Dagblaðið Vísir - DV - 06.08.1994, Blaðsíða 28
56
LAUGARDAGUR 6. ÁGÚST 1994
DV fylgist með orrustunni á Stiklastöðum í stærsta útileikhúsi Norðurlanda:
Kolbrúnarskáldið
sem allir vilja sjá
- átta hundruð þúsund manns hafa séð leikritið um Ólaf helga og kappa hans
Norski leikarinn Stále Björnhaug fór með hlutverk íslendingsins Þormóðar Kolbrúnarskálds. Hlutverkið lék hann fyrst 17 ára fyrir 30 árum og hefur
æ siðan laðað að fjölda fólks þvi hann fer á kostum i hlutverki garpsins, skáldsins og flagarans. Stále, sem hefur mikið uppáhald á Þormóði,
íslenskri útgáfu.
Árlega koma þúsundir manna aö sjá leikinn um Ólaf helga á Stiklastöðum. Heimamenn eru að sjálfsögðu
fjölmennir en erlendir ferðamenn koma einnig i hópum. Útileikhúsið tekur 6000 manns í sæti og annað eins
i stæði og komast jafnan færri að en vilja.
„Auðvitað er þetta ekki réttlátt
en hlutverk Þormóðs Kolbrúnar-
skálds er bara miklu betra en önn-
ur hlutverk í leikritinu. Þess vegna
stelur hann alltaf senunni," segir
Stále Björnhaug, einn fremsti leik-
ari Norðmanna, í viðtali við DV.
Nú á Ólafsvökunni geröist hann
senuþjófur eina ferðina enn í ár-
legri uppfærslu á orrustunni við
Stiklastaði árið 1030.
í íjörutíu ár hefur það verið venja
að setja endalokin á valdabrölti
Ólafs konungs helga á svið á Stikla-
stöðum þar sem bændur höfðu
konung sinn undir og tóku hann
síðan í tölu helgra manna.
Þarna er íslendingurinn Þormóð-
ur Kolbrúnarskáld aðalmaðurinn
og þykir Stále Björnhaug túlka
hann öllum öðrum betur. Stále hef-
ur farið með þetta hlutverk öðru
hvoru í 30 ár og nú segist hann
ekki taka á sig gervi Kolbrúnar-
skáldsins nema einu sinni enn.
Uppáhalds-
hlutverkið
„Ég held meira upp á Kolbrúnar-
skáldið en nokkurt annað hlutverk
sem ég hef leikið," segir Stále. „Ég
hef líka breytt því eftir eigin höíöi
og bætt við túlkunina þeim Þor-
móði sem Halldór Laxness skrifar
um í Gerplu. Það gefur óendanlega
möguleika. Kolbrúnarskáldið er
eiginlega eini maðurinn af holdi og
blóði í leikritinu.
Ólafur konungur á að vera aðal-
maðurinn en hann er einlitur og
óspennandi. Kolbrúnarskáldið er
hins vegar allt í senn; hjartahrein
hetja og illmenni, rómantískur
elskhugi og kvennaflagari, kristinn
á yfirborðinu en hundheiðinn und-
ir niðri, trúfastur konungsmaður
þegar hann er ekki tækifærissinni.
Auðvitað stelur svona maður sen-
unni,“ segir Stále og glottir.
Norsk blöð gerðu mikiö úr þeirri
frétt að Stále ætlaði að leika Kol-
brúnarskáldið enn einu sinni á
þessu ári. Stále var 17 ára gamall
þegar hann fór fyrst með þetta
hlutverk áriö 1964 og sló þá strax
í gegn.
Bæti skáldi
Laxness við
„Ég var alltof ungur þegar ég lék
Kolbrúnarskáldið fyrst. Sautján
ára unglingur ræður ekki við þetta
hlutverk þótt það hafi gengið ágæt-
lega. Síðan hef ég lesið mikið, bæði
af íslenskum fomsögum og einnig
allar bækur Laxness. Þetta hefur
hjálpað mér mikið við aö fylla inn
í myndina af skáldinu og ég hika
ekki við aö víkja frá upphaflegu
rullunni og bæta Kolbrúnarskáldi
Laxness við.
Ég hef mikiö dálæti á Laxness.
Hann hefur skapað ógleymanlegar
persónur eins og t.d. Ólaf Kárason
eöa þá Jón Hreggviðsson og auðvit-
að Þormóð Kolbrúnarskáld. Þetta
eru ólíkir menn en hver öðrum
betri,“ segir Stále.
Stolt allra
Norðmanna
Talið er að allt að 800 þúsund
manns hafl séð slaginn mikla á
Stiklastöðum frá því hann var fyrst
hampar hér Fóstbræðrasögu i fornri
Fjölmenni tekur þátt í sýningunni
og er oft vopnaskak mikið og heitt
í kolunum.
færður upp fyrir 40 árum á sama
stað og bændur börðust við Ólaf
helga fyrir 964 árum og höfðu sig-
ur. Ólafur, þjóðardýrlingur Norð-
manna, féll þar með miklu liði og
þar á mgðal hirðskáldi sínu, Þor-
móði Kolbrúnarskáldi.
Nú þykir enginn maöur með
mönnum í Noregi nema hann hafi
verið á Stiklastöðum á Ólafsvök-
unni og séð helstu leikara landsins,
ásamt áhugaleikurum, úr Þrænda-
lögum spreyta sig á þjóðhetjunum
úr liði beggja.
Á Stiklastöðum er stærsta úti-
leikhús á Norðurlöndum. Þaö tek-
ur 6000 manns í sæti, auk þess sem
dæmi eru um að aðrar sex þúsund-
ir hafí staðið og horft á.
Leikritið sjálft er heldur þunnt
og raunar útblásiö af norskum
þjóðrembingi. Því kemur sér vel
að hafa Þormóð Kolbrúnarskáld á
sviðinu nær allan tímann og kæta
áhorfendur með skringilegum til-
burðum og meitluðum tilsvörum.
Um 300 leikarar og tónlistarmenn
taka þátt í sýningunni sem sett er
upp fjögur kvöld í röð. íslendingar
hafa oft verið fjölmennir á Stikla-
stöðum um Ólafsvökuna og svo var
einnig nú. M.a. var Jón Böðvarsson
cand. mag. með hóp af nemendum
sínum frá íslendingasagnanám-
skeiði í vetur.
íslendingar
í pílagrímsför
„Mér fannst sýningin góð og
merkilegt að sjá hana. Þá spillti
ekki fyrir að veður var mjög hag-
stætt til að leika úti undir beru
lofti. Leikurinn er að mestu skáld-
skapur en höfundurinn byggir á
nokkrum frásögnum úr Heims-
kringlu Snorra Sturlusonar og
spinnur í kringum þær.
Þormóður Kolbrúnarskáld er
þama í aöalhlutverkinu og túlkun
Stále Bjömhaug á honum er mjög
góð. Hins vegar var Arnljótur gell-
ini heldur daufur og þaö hefði mátt
gera meira úr því hlutverki," sagði
Jón.
Erindi Jóns og nemenda hans var
að fara á íslendingaslóðir í
Þrændalögum. Þær liggja víða fyrir
utan Stiklastaði. Þetta er því eins
konar pílagrímsfór á slóðir ís-
lenskra garpa í útlöndum.