Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Síða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
Fréttir
Svalbaröadeilan:
Norðmenn sagðir tilbúnir
til viðræðna í nóvember
þegar kosningamar um inngöngu Noregs 1ESB eru afstaðnar
Samkvæmt heimildum, sem DV
telur áreiöanlegar, hafa norsk stjóm-
völd látið það leka eftir krókaleiðum
til íslenskra stjómvalda að þau séu
tilbúin til viðræðna við íslendinga í
nóvember, aö loknum kosningum
um inngöngu Noregs í ESB. Sömu
heimildir herma að einmitt vegna
þessa séu ráðherrar okkar jafn stiltir
og rólegir vegna deilunnar sem raun
ber vitni.
í dag munu þeir Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra og Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráðherra
ræða við útgerðarmenn og stjóm LÍÚ
norður á Akureyri. Nær öruggt er
talið að þeir muni ekki leggja til ein-
hverja eina leið í málinu. Þeir munu
benda á þá kosti sem við eigum í
málinu. Helstur kostimir sem við
eigum í raun em aðeins þrír. I fyrsta
lagi óbreytt ástand. Togaramir veiði
í Smugunni og eitt aðstoðarskip verði
hjá þeim á miðunum. Það sé í valdi
útgerðarmanna hvort þeir taki þá
áhættu að láta skipin veiða við Sval-
barða. í öðm lagi að farið verði út í
hörku og veiðar við Svalbarða og að
deilunni yerði vísað til Alþjóðadóm-
stólsins. í þriöja lagi, og það er sú
leiS sem ríkisstjómin vill fara, að
bíða fram í nóvember og hefja þá
samningaviðræður við Norðmenn.
Nú em um 50 íslenskir togarar að
veiðum í Smugunni en þar er nú
ördeyða. Áhafnir þeirra hafa sent
íslenskum stjómvöldum skeyti þar
sem sjómenn krefjast aðgerða af
hálfu ríkisstjórnarinnar. Tahð er
mjög hæpið að sjómennirnir sætti sig
við að bíða fram í nóvember eftir að
samningaviðræður hefjist. Ekki er
heldur talið vist að alhr útgerðar-
menn sætti sig við þessa diplómat-
ísku óskaleið ríkisstjórnarinnar. Það
er því afar hæpið að ráöherramir
komi með nokkra lausn inn á fund-
inn í dag.
- sjá einnig bls. 7
Svaríborgarráði:
Óeðlilegt að
borganritari
hafi pólitíska
forystu
Á borgarráðsfundi nýlega var
lagt fram svar við fyrirspurn
sjálfstæðismanna um það hver sé
staðgengill borgarstjóra í leyfi og
hvort borgarstjóri og aðstoðar-
maður hennar haíi sent inn skrif-
lega tilkynningu til starfsmanna-
halds borgarinnar um launalaust
leyfi meðan þær voru í sumar-
leyfi dagana 8.-19. ágúst.
I svari við fyrirspurn um staö-
gengil borgarstjóra kemur fram
að samkvæmt samþykktum
borgarstjómar geti borgarritari
gegnt störfum borgarstjóra ífjar-
vem hennar en óeðhlegt sé aö
borgarritari gegni póhtiskri for-
ystu í borgarstjóm Reykjavikur.
Þá kemur fram að borgarstjóri
eigi væntanlega sama oriofsrétt
og fyrirrennarar hennar í starfi.
Árið 1993 hafi verið ákveðið að
greiða borgarstjóra orlofslaun
miðað við að ekkert orlof hafi
verið tekið þar eð borgarstjóri
geti ekki tekið orlof með sama
hætti og aðrir launþegar borgar-
innar. Aðstoðarmaður borgar-
stjóra hefur sama orlofsrétt og
aðrir opinberir starfsmenn.
„Aðsóknin það sem af er svarar væntingum okkar en hingað komu um helgina um 4 þúsund gestir," segir Jóhann-
es Geir Sigurgeirsson, alþingismaður og bóndi i Eyjafjarðarsveit. Á myndinni sjást þrír af aðstandendum sýningar-
innar, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, Kristín Brynjarsdóttir, kona hans, og Vaka Jónsdóttir, framkvæmdastjóri sýn-
ingarinnar. DV-mynd gk
Stuttar fréttir
Formaður endurkjörinn
Guðmundur Lárusson var í gær
endurkjörinn formaður Lands-
sambands kúabænda þrátt fyrir
fyrri yfirlýsingar ura að hann
gæfi ekki kost á sér.
Haföminn gjaldþrota
Hafórnin á Akranesi var í vik-
unni tekinn til gjaldþrotaskipta.
Mbl. segir mánaðarlegt tap í lokin
hafa verið 10 milljónir.
Umþóttunartimi liðinn
Umþóttunartiminn sem Sam-
keppnisráö gaf sér til að úrskuröa
um hvort bankar og sparisjóðir
hefðu haft samráð um gjaldtöku
á þjónustu er liðinn. Sjónvarpið
hafði þetta eftir formanni Neyt-
endafélags Reykjavíkur.
Ónýtttækifæri
Kúabændur telja að afurða-
stöðvar haft ekki nýtt sér mörg
tækifæri th hagræðingar. Þetta
kom fram á aðalfundi kúabænda
sem lauk í gær.
Skiptar skoðank í Noregi
Ríflega 28% Norðmanna vilja
heimila íslendingum veiðar við
Svalbarða en tæplega 72 prósent
eru andvígir því. Þetta er niður-
staöa könnunar sem TV 2 í Nor-
egi gerði í gærkvöldi.
Stöðug fjárútlát 48 ára gamals manns vegna hjónabands hans og tælenskrar konu:
Konan hef ur féflett mig
- segir maðurinn sem ekki hefur séð konuna 1 tvö ár
„Það er greinilegt að konan hefur
féflett mig. Ég hef greitt umtals-
verðar fjárhæðir til hennar en
varla séð hana síðan við giftum
okkur. Hún talaði strax um að gift-
ast mér en ég vildi bíða og sjá til.
Þann stutta tíma sem við vorum
saman eftir að viö giftumst vildi
hún vera ein, það var hreinlega
eins og við værum ekki gift. Mitt
ráð til þeirra sem eru að fara til
Tælands eöa Filippseyja í konuleit
er að vara sig á konunum, sérstak-
lega þegar peningar eru annars
vegar,“ sagði Hreiðar B. Hreiðars-
son, 48 ára gamall bifreiðastjóri úr
Reykjavík, við DV.
Upp er komið sérstakt hjúskapar-
mál þar sem Hreiðar segir tæ-
lenska eiginkonu sína hafa reynt
að hafa af sér fé og eignir og í því
augnamiði gifst sér með blekking-
um. Hreiðar vildi ekki segja hve
mikla peninga hann hefði látið af
hendi rakna en ljóst er að hann
hefur látið umtalsvert fé af hendi
til konunnar og þarfa hennar og
fjölskyldu hennar. Hún hefur ekki
sést hér á landi sl. tvö ár og ekki
er vitað hvar hún er niðurkomin.
Þaö er Róbert Árai Hreiðarsson
hæstaréttarlögmaður sem hefur,
fyrir hönd Hreiðars B. Hreiðars-
sonar, höfðað mál gegn Wan Ekn-
arin, eiginkonu Hreiðars. Er þess
krafist að Wan verði dæmd til að
þola ógildingu á 3. grein kaupmála
sem þau hjón gerðu með sér 25.
júní 1991. Greinin hljóðar svo:
Komi til skilnaðar milli okkar skv.
ósk mannsins skal htið svo á að
kaupmáli þessi sé fahinn úr gildi
og fer þá um skipti mhh okkar skv.
lögum.“ Þetta þýðir að fari Hreiöar
fram á skhnað, sem kæmi fáum á
óvart eins og mál standa, fær hún
helming eignanna.
Vildi breyta kaupmálanum
Forsaga þessa máls er að Hreiðar
og Won hittust stuttlega í Tælandi
sumarið 1990. Var afráðið veturinn
eftir aö Wan kæmi hingað til lands
og þau hæfu sambúð. Hún kom svo
í júní 1991 og gerði fljótlega aö skil-
yrði fyrir áframhaldandi sambúð
að þau gengju í hjónaband. Féhst
Hreiðar á það en taldi þá rétt og
eðhlegt að þau gerðu með sér kaup-
mála þar eð hann ætti þriggja her-
bergja íbúð og nýlegan bíl fyrir og
engin reynsla væri komin á sam-
band þeirra. Féllst hún á það en
daginn fyrir brúðkaupið var komið
annað hljóð í strokkinn. Vísaði
Wan þá til siðferðhegra skyldna
Hreiðars gagnvart sér en hún væri
félaus, þekkti engan hér og væri
fjarri öllum ættingjum. Segir í
greinargerð lögmanns að með for-
tölum hafi Won tekist að véla
Hreiðar til að setja fyrmefnt
ákvæði inn í kaupmálann.
Dýr ferðalög
Strax í september sagðist Won
þurfa að fara til Tælands vegna
fjölskyldumála og fékk hún farseðh
og farareyri frá Hreiðari. Dvaldi
hún í Tælandi fram í febrúar 1992
og fékk þráfaldlega senda til sín
peninga frá Hreiöari samkvæmt
beiðni. í febrúar tók hún dóttur
sína með sér th íslands og greiddi
Hreiðar fargjaldið. Vhdi Won að
dóttir hennar færi th náms í Eng-
landi og fór svo að Hreiðar greiddi
það sem th þurfti. Won fór með
dóttur sinni. Haustið eftir að hún
fór hafði hún samband og sagðist
þurfa að fara th Tælands á ný
vegna veikinda í fjölskyldunni.
Fékk Hreiðar henni farareyri. Síð-
an hefur hún ekki komið til íslands
og ekki er vitað með vissu hvar hún
er niðurkomin.
Hreiðar segist hafa verið varaður
við af tælenskri konu hér á landi
en ákvað að láta reyna á samband
þeirra Wan. Hann er ekki reynslu-
laus af samskiptum við tælenskar
konur því að fyrir nokkrum árum
flutti hann hingað konu en ekkert
varð úr sambúö þeirra. Sú kona
býr nú hér á íslandi.