Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Qupperneq 4
4
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
Fréttir
Landskjörnir
' þingmenn
Kjördæmakjörnir
þingmenn
Fjöldi kjósenda
voriö 1991
Kjördæmaskiptingin og vægi atkvæða
W-' - ■ »
\
- 1 flakkari
M 5 | 6.576
'>" Vestfirðír \
T" [ I V
Misvægi atkvæöa í kosningunum 1991 og
leiöir til úrbóta samkvæmt hugmyndum nefndar
á vegum forsætisráðherra
á|Jl
m 5 19-889
Vesturfand'
44.387
Norðurl. v.
Atkvæöavægi miöaö
viö Vestf. (Vestfiröir
án flakkara = 100%)
7.160
Austurland
Reykjavík
Reykjanes
Suðurland
Hugmynd A:
Jafna má atkvæöavægi
landsmanna án þess aö
breyta núverandi
kjördæmaskipan, til
dæmis meö því aö
fækka þingmönnum
um einn í hverju
kjördæmi úr 63 í 54
og útrýma
"flakkaranum".
Reyk-
víkingur
Vest-
Hugmynd B:
Jafna má atkvæöavægi
landsmanna meö því aö
fjölga kjördæmum í 11
og fækka þingmönnum
úr 63 í 53. Reykjavík yröi
þá skipt í 3 kjörd. og
Reykjanes í 2. Úr hverju
kjörd. kæmu 3 þingm.
og aö auki yröu 20
þingm. landskjörnir
13.968
Reyk-
nesingur
Vest-
Atkvæöavægi
Vestfiröings:
3,1
Atkvæöavægi
Reykvíkings:
1
Núverandi
misvægi
atkvæða
Hugmynd C:
Nánast fullkomna jöfnun
atkvæöavægis má ná meö því
aö gera landiö aö einu kjörd.
Vmsar leiöir eru færar til aö
tryggja valfrelsi kjósenda milli
einstakra frambjóöenda á
listum. Kjósendum væri í
sjálfsvald sett hvort þeir kjósa
lista í heild eöa einstaka
frambjóöendur. Fækkun
þingmanna er ekki nauösynleg.
Aörir
landsmenn
Vest-
firðingur
DV
í dag mælir Dagfari
Kraftaverkamaðurinn
Það var sannarlega kominn tími til
að íslendingar fengju kraftaverka-
mann í heimsókn. Benny Hinn,
sérlegur sendimaöur Guðs, var
mikill aufúsugestur hér á landi.
Þar er vanur og reyndur krafta-
verkamaður á ferð og er í beinu
sambandi við himnaríki og þótt
tengingin sé þráðlaus að ofan er
hún svo sterk að ein snerting af
hálfu Benny dugar fyrir venjulega
veikt fólk.
FOadelfíusöfnuöimn stóð fyrir
þessari heimsókn. Þeir í Fíladelfíu
eru mikhr áhugamenn um krafta-
verk en hafa ekki haft erindi sem
erindi á vakningarsamkundum
sínum og ákváðu þess vegna aö
bjóða hinum bandaríska predikara
tU landsins til að hafa sýnikennslu
í kraftaverkum. Það tókst vonum
framar. Þúsundir manna sóttu
samkomuna og mikill fjöldi þurfti
frá að hverfa. Þama vom aðallega
mættir heittrúaðir og sannkristnir
en þeir sem ekki vora sannfærðir
í trú sinni við komuna höíðu allir
kristnast við brottförina.
Hvers vegna? Jú, Benny Hinn
gerði það sem þjóðkirkjunni hefur
ekki tekist í öUu sinu bæna- og
messuhaldi, hann talaði sig inn í
hjörtu viðstaddra og flutti boðskap
Krists af slíkri innlifun að fólk var
gagntekið. Og svo kom rúsínan í
pylsuendanum. Kraftaverkin!
Maður var sárlasinn í hnjánum
og hafði pantað uppskurð. Hann
mætti og Benni snart og maðurinn
gekk alheill út. Bingó! Kona mætti
og studdist við hækjur. Benny Hinn
bað fyrir henni og það var eins óg
við manninn mælt: Konan gekk ein
og óstudd út í kvöldskinið. Ekkert
mál.
Algóður Guð ásamt með Jesú
Kristi og Benny Hinn sáu til þess
að sjúkir og þjáðir gengju heU-
brigðir út og í rauninni var það
eina vandamáUð á þessari vakn-
ingarsamkomu aö færri komust að
en vildu. Manni er sagt að mikil
örtröð hafi skapast við senuna þar
sem sendiboöi Guðs var tU staðar
og hafi þurft að bægja fólki frá
kraftaverkunum til að komast hjá
algjöru öngþveiti.
Annars hefðu allir læknast og
það er synd að ekki skyldu fleiri í
þjóðfélaginu átta sig á þýðingu
þessa fundar. Til dæmis ráöamenn-
imir og ráðherramir sem eru með
krónisk vandamál á herðunum og
ef Benny Hinn getur læknað minni
háttar holdleg veikindi, yrði hon-
um sjálfsagt ekki skotaskuld úr því
að leysa veraldleg vandamál á borð
viö fjárlagahalla og atvinnuleysi.
Hann gæti snortið atvinnuleysingj-
ann og sagt hókus, pókus, og at-
vinnan væri í höfn. Eða þá fjár-
málaráðherra. Ef Friðrik Sophus-
son hefði mætt á vakningarsam-
komunni með fjárlögin undir hend-
inni heföi kraftaverkamaðurinn
eflaust gert honum þann greiða að
breyta hallanum í gróða. Svo ekki
sé talað um ef hann hefði fengið
prósentur fyrir. Kraftaverkamenn
á borð við Benny Hinn eru nefni-
lega á prósentum sem eölilegt er
því aö menn framkvæma ekki
kraftaverk ókeypis.
Hafnfirðingar vom heppnir að
kraftaverkasamkoman skyldi hafa
farið fram í Kaplakrikanum.
Áhrifa af komu Benny Hinn mun
gæta um langa framtíð og FH-ingar
munu njóta góðs af því í sínu
íþróttahúsi og andstæðingar þeirra
verða ekki sæhr af því hlutskipti
aö kljást bæði við heimamenn og
kraftaverkaandann sem hlýtur að
svífa þar yfir vötnunum löngu eftir
að Hinn er farinn heim.
Þannig munu kraftaverkin skipta
sköpum fyrir trúarlífið í landinu,
íþróttalífiö, stjórnmálin og ekki síst
heilbrigðiskerfið sem hlýtur að
spara ómældar upphæðir á því að
kraftaverkamenn leysa læknavís-
indin af hólmi.
Guði sé lof og dýrð fyrir slíka
handleiðslu. Biskupinn yfir íslandi
á ekki að vera agnúast út í þessa
billegu þjónustu frá Hinn, hvað þá
landlæknir eða aðrir talsmenn ver-
aldlegra vísinda. Þessir menn eiga
að þakka fyrir sérlega sendiboða
af himnum ofan og allar þær snert-
ingar og fyrirbænir slíkra milli-
göngumanna sem lækna örkuml
og líkamskvilla á svipstundu. •
Hér höfum við verið að beijast
við mannleg vandamál og höfum
her manns í því að leysa þau þegar
það eitt dugar að fá hingað krafta-
verkamann til að biðjast fyrir! Af
hverju kom hann ekki fyrr?
Dagfari