Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994
Stuttar fréttir
Utlönd
Endurheimta land
ísraelsmenn byrjuöu í gær að
afhenda Palestínumönnum land-
svæði á Vesturbakkanum í sam-
ræmi viö samkomulag sem náðist
í síðasta mánuði.
Vopnahlé væntanlegt
Orðrómur er uppi um aö IRA
skæruliðar muni leggja niöur
vopn og semjí um vopnahlé við
Bresku stjórnjna.
Mannskæður fellibylur
Fellibylur í Kína hefur kostaö
yfír 1.000 manns lífið, 100.000 hafa
misst heimili sín og 2 milljónir
manna eru einangraöar vegna
flóða.
Fleiri fangelsi
Nelson
Mandela heim-
sótti Polls-
mour-fangelsið
i S-Afriku í
gær, þar sem
hann var fangi
í 7 ár og sagði
viö það tæki-
færi aö nauð-
synlegt væri að byggja fleiri fang-
elsi í landinu.
Múslímarflýja
Hjálparstarfsmenn SÞ leita
leiða til aö koma 30.000 mú-
slímskum flóttamönnum til
hjálpar í Bosníu-Herzegovínu.
Vísaðfrá
Málshöíðun Argentínumanna á
hendur írönum vegna sprengjuá-
rásar í Buenos Aires hefur verið
vísað frá vegna ónógra sannana.
Gasleiðsla
íran og Túrkmenistan hafa
komist að samkomulagi umlagn-
ingu gasleiöslu frá Túrkmenistan
til Evrópu.
Ólympíuleikar
Brasiliska borgin Rio De Ja-
neiro hefur sótt um að fá að halda
ólympíuleikana árið 2004.
Kjarnorkuvopn
Embættismenn í Bandaríkjun-
um segja að bæði Pakistanar og
Indverjar geti búiö til kjarnorku-
vopn á mjög skömmum tíma.
OJ.Simpson
Fram kom
viö yílrheyrsl-
ur í gær að hár
af ruönings-
kappanum O.J.
Simpson hefði
fundist á staðn-
um þar sem
fyrrum eigin-
kona hans og unnusti hennar
voru myrt.
Japanír fjárfesta
Japanska bifreiðafyrirtækið
Mitsubishi ætlar aö opna bíla-
verksmiðju í Kentuckyfylki í
Bandaríkjimum.
Verðstríðátölvum
IBM tölvufyrirtækið tilkynnti
um allt að íjóröungslækkun
markaðsverös á framleiðsluvör-
um sínum og búist er við miklu
veröstríði á næstu vikum.
Ásakanir
Chrysler bifreiðafyrirtækið,
sem á bílaverksmiðjur í Kína,
hefur verið sakað um að notfæra
sér ódýrt vinnuafl fanga í land-
inu.
20 ára bið
Þegnar í Tékklandi geta átt von
á því að þurfa aö bíöa allt að 20
ár eftir að ía síma.
Heimta breytingar
Repúblikanar í öldungadeild
Bandaríkjaþings heimta aö gerð-
ar verði breytingar á vopnasölu-
frumvarpiBiUsClintons. Reuter
Vöflur komnar á Norðmenn vegna hamagangsins gegn íslendingum:
Sekir um rányrkju á
f iskimiðum annarra
- heitar umræður 1 norska sjónvarpinu um fiskveiðideiluna 1 gærkveldi
Gunnar Blöndal, DV, Ósló:
Heitar umræður í norska sjónvarp-
inu um fiskveiðideiluna við íslend-
inga hafa komið róti á hugi margra
Norðmanna. í umræðunum kom
berlega í ljós aö Norömenn stunda
sjálflr veiðar í íjarlægum „smugum"
og hirða þá ekki um verndum fiski-
stofna þar.
Þetta þykir í hróplegu ósamræmi
við yfirlýsingar Jans Henrys T. Ols-
ens sjávarútvegsráðherra og fleiri
ráðamanna um veiðar íslendinga í
Barentshafi síðustu vikur.
Einkum vekur athygli að 15 til 20
norskir togarar eru á veiðum á
Flæmska hattinum utan 200 mílna
lögsögunnar
við Nýfundna-
land. Norsk yf-
irvöld svara
þessu með því
að veiðar þar
séu öllum
heimilar þrátt
fyrri hávær
mótmæh
heimamanna.
Þá þykir famganga Norðmanna
gegn Islendingum undarleg og gagn-
rýndi Carl I. Hagen, leiðtogi Fram-
faraflokksins, ráðherra í ríkisstjórn-
inni fyrir að leika friðarboða í íjar-
lægum löndum en fara svo meö yfir-
gangi og vopnaskaki gegn íslending-
Hagen.
um, frændum sínum og nágrönnum.
Meðal íslenskra þátttakenda í um-
ræðunum var Þorsteinn Baldvinsson
frá Samherja á Akureyri. Varði hann
gerðir íslendinga og þótti standi sig
vel.
Rangfærslum mótmælt
í gær sendi Eiður Guðnason, sendi-
herra íslands í Ósló, frá sér leiðrétt-
ingu á missögnum í norskum fjöl-
miðlum um veiðar íslendinga. Eink-
um vildi hann leiðrétta tröllasögur
af smáfiskadrápi með flottrollum og
benti á að Norðmenn nota þessi sömu
veiðarfæri viö karfaveiðar á Reykja-
neshrygg.
Norsk yfirvöld hafa svarað þessu á
þann veg að karfaveiöar séu ekki
sambærilegar við þorskveiðar hvað
flottrollin varðar. Annars hafa
norskir ráðherrar haft fremur hægt
um sig vegna Smuguveiðanna sið-
ustu daga. Bíða þeir eftir framvindu
mála nú þegar tregfiski er í Smug-
unni og líkur á að togaraflotinn haldi
þaðan inn á vemdarsvæðið við Sval-
barða.
Norska strandgæslan segir að ís-
lendingar hafi nú dregið afla fyrir
fimm milljarða íslenskra króna úr
Smugunni og af verndarsvæðinu í
ár. Þessar tölur eru byggðar á áætl-
unum um aíla togaranna og hafa
áður reynst ótraustar.
Skartar skrautlegasta skegginu
Melvut Dogan er ekki í vafa um að hann skartar skrautlegasta skegginu í heimabæ sínum, Kamramanmaras í Tyrklandi. Yfirskeggi hefur hann safnað
um árabil með þeim árangri að nú mælist það 1,5 metrar enda á milli. Vöxturinn er að jafnaði fjórir sentimetrar á mánuði. Vandræði nokkur fylgja
skeggvextinum og hefur Melvut gripið til þess ráös að halda stolti sínu á lofti með þar til gerðum stöngum úr höfuðfati sínu. Símamynd Reuter
Tvö gróf of beldisverk kærð á dag
Grænlenska heimastjórnin ætlar
aö endurskoða réttarkerfi landsins
eftir að Erling Olsen, dómsmála-
ráðherra Dana, fór þar um á dög-
unum með fríðu föruneyti danskra
lögmanna. Ástæðan er sú að í
grænlenskri löggöf er gert ráð fyr-
ir að leikmenn dæmi í afbrotamál-
um við hliöina á þeim löglærðu.
Þetta stríðir gegn mannréttinda-
sáttmála Sameinuöu þjóðanna.
í Grænlandi eru menn ekki sáttir
við að leikmenn víki úr dómum.
Þar benda reyndir dómarar á að
vandi Grænlendinga felist ekki í
réttarkerfxnu heldur óheyrilegum
fjölda afbrota. Lögreglan þarf ár
hvert að fást við yfir 800 alvarleg
glæpamál, eða meira en tvö afbrot
á dag. Það er óheyrilegur fjöldi hjá
fimmtíu þúsund manna þjóö.
Fjöigun um fjórðung
Glæpir eru tíðari meðai Græn-
lendinga en nokkurrar annarrar
þjóðar. Ástandið fer lika versnandi
því afhrotum fjölgaði um 24% frá
1992 til 1993. Er sú þróun einnig
einsdæmi meðal þjóða heims.
Grænlenskir lögmenn segja að
engu breyti í þessu efni þótt leik-
menn verði ekki látnir dæma.
Árið 1993 voru 10 morð framin á
Grænlandi. Miðað við fólksfjölda
svarar það til yfir 50 morða á i’s-
landi. Sama ár voru kærð 179 mál
vegna sifjaspella. Það myndi svara
til um 900 mála hér á landi, sé enn
miðað við fólksfjölda. Þá er ótalinn
fjöldi nauðgana, morðtilrauna og
annarra ofbeldisverka.
Afbrotaskráin grænlenska tekur
ekki til auðgunarbrota. í þeim efn-
um eru Grænlendingar á líku reki
og nágrannaþjóöírnar. Það er sí-
vaxandi ofbeldi sem heldur vöku
fyrir lögreglunni.
Ofbeldi í ölæði
í skýrslum lögreglunnar kemur
fram aö um 90% allra glæpa séu
framin í ölæði. Yfirmenn í lögregl-
unni segja að helsta ráðið til úrbóta
sé að draga úr áfengjsdrykkju.
Drykkjuskapur er meiri á Græn-
landi en þekkist víðast í heiminum.