Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Side 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 íþróttir Tryggvi Pétursson, GR, setti á dögunum nýtt vallarmet á Kiðja- bergsvelli er hann sigraöi á opna Bykomótinu sem þar fór fram. Tryggvi lék 18 holur á 69 högg- um, einu höggi undir pari vallar- ins. Annar í keppni án forgjafar varö Óskar Friðþjófsson, NK, á 75 höggum og þriðji Haukur Bjömsson, GR, á 76 höggum. Tryggvi sigraði í keppni meö forgjöf og lék á 64 höggutn. Annar varð Ólafur Steinsson, GKB, á 64 höggum og þriðji Terry Douglas, GÖ, einnlg á 64 höggum. Knattspyrna: Lineker aftur til Englands? Nokkrar líkur eru nú taldar á því aö Gary Lineker hætti aö leika knattspyrnu í Japan og snúi aftur til enskrar knattspymu, Samningur Linekers við jap- anska liðið Nagoya Grampus rennur út í desember. Þrjú lið í ensku úrvalsdeildinni hafa sýnt Lineker mikinn áhuga. Það eru Southampton, Newcastle og Middlesboro. Mestar líkur eru taldar á því að Lineker fari til Southampton ef hann á annaö borð ákveður aö snúa til Eng- lands a ný. Whelantil Bristol City? Ronnie Whelan, sem í mörg ár var einn besti leikmaður Liver- pool í enska boltanum, er á fórum til Bristol City. Wheian, sem lengi var fyrirliði Liverpool og er 32 ára, var oröinn úrkuia vonar um að komast að hjá liði fyrir keppnistímabilið en hann fékk frjálsa sölu frá Li- verpool. Loks hringdi síminn og í honum var Russel Osman, stjóri hjá Bristol City. Whelan var í HM-líði íra í Bandaríkjunum i sumar og lék með Liverpool í 15 ár. Ástralir fflest gull Á samveldisleikunum, sem nú standa yfir í Victoria i Kanada, hafa Ástralir unnið til flestra gullverðlauna, alls 31, 18 silfur og 17 brons. Kanadamenn koma næstir með 21 gull, 17 silfur og 15 brons. Englendingar koma í þriðja sætinu með 10 gull, 14 silf- ur og 15 brons. Met í 100 m baksundi Nýtt samveldismet leit dagsins ljós í gær þegar Ástrahnn Steven Derwick synti 100 metra baksund á 55,89 sekúndum. Mark Tewks- bury, Kanada, átti fyrra netið frá 1989 sem var 56,07 sekúndur. Enski deildabikarínn Bamsley - Darlington.....0-0 Bírmingham - Shrewsbury......2-0 Brentford - Colchester.......2-0 Cambridge -Portsmouth........2-3 Carlisle - Rotherham.........3-1 Chester Lmcoln.......................2-8 Chestertleld - Blackpool..,..4-2 Fulham - Luton...............l-l Grimsby -Bradford............1-2 Hartlepool - Bury............5-1 Huddersfield - Scunthorpe....3-0 Orient-Barnet................1-1 Mansfield - Rochdale.........1-0 Peterbro-Oxford....................0-1 Plymouth - Walsall...........2-1 Port Vale - Bristol Rovers...1-1 Reading - Gillingham.........3-0 Scarborough - Huli...........2-0 Stockport - Preston..........4-1 Swansea -Exeter..............2-0 Torquay-Cardiff..............4-2 Watford - Southend...........1-0 Wigan - Crewe................3-0 Wrexham -Doncaster...........l-l Wycombe - Brighton...........1-3 York -Burnley................2-2 Þetta var gríðarlegt áfall Wendy Toms braut blað í sögu ensku knattspyrnunnar þegar keppnis- tímabilið hófst á dögunum. Hún var línuvörður á leik Torquay og Carl- isle og það hefur ekki gerst áður í ensku knattspyrnunni. Toms er 31 árs og mjög metnaðarfull. „Ég stefni að því að verða alþjóðlegur dómari og hver veit nema ég eigi eftir að dæma leik í úrslitakeppni heimsmeistara- keppninnar," segir Wendy Toms. Fyrsta konan í dómarabúninginn Guömundur Hilmaisson, DV, Belfast: „Við sofnuðum á verðinum í varn- arleiknum og í stöðunni 1-1 hugsuðu menn að þetta væri í höfn. Við töpuð- um þessu strax í fyrri hálfleik en þá lékum við mjög illa. Þeir voru miklu grimmari og komu okkur á óvart með að spila svona stífan sóknarleik í fyrri hálfleik," sagði Hallsteinn Arnarson við DV eftir leikinn. „Auðvitað var það mikið áfall að falla úr keppninni og það má segja að við séum of litlir ennþá. Núna verðum við bara að klára íslands- mótið með sæmd og keppa í Evrópu- keppninni að ári,“ sagði Hallsteinn. „Það voru alltof margir í liðinu sem voru að spila langt undir getu í fyrri hálfleik og þá tapaðist leikurinn. Menn voru mjög taugaóstyrkir og þorðu ekki að halda boltanum eða að fá hann,“ sagði Andri Marteins- son, besti leikmaður FH í leiknum. „Ég fékk það á tilfmninguna að þegar við jöfnuðum leikinn myndi þetta hafast. Því var þetta gríðarlegt áfall því við fundum svo sannarlega lyktina af að komast áfram. Vendi- punkturinn í öllu þessu var samt að vinna fyrri leikinn ekki með meiri mun.“ „Ég var mjög ánægður meö leik minna manna í fyrri hálfleik enda lagði ég dæmið þannig upp að hafa góða stöðu í hálfleik. Núna var liðið mitt að spila fótbolta en gerði það ekki í fyrri leiknum á íslandi. Þetta voru sanngjörn úrslit. FH spilaði ekki vel í fyrri hálfleik en lék ágæt- lega í þeim síðari. Við hugsuðum hins vegar um það eitt aö hleypa þeim ekki inn í leikinn," sagði Trever Anderson, framkvæmdastjóri Linfi- eld, eftir leikinn. Úrslit leikja í UEFA-keppni Úrslit leikja í forkeppni Evrópumóts félagsliða í knattspyrnu í gær- kvöldi. Um er aö ræða síðari leiki liðanna. Samanlögð úrslit eru í sviga aftast. Craiova (Rúmeníul - TiblisifGeoreiul 1-2 íl-fi Rapid Búkarest (Rúmeníu) - Valetta (Möltu) 1-1(7-3) Hapoel (Isreal) - Aris Salonika (Grikklandi) 1-2 (2-5) FC Shumen (Búlgaríu) - Famagusta (Kýpur) 1-2 (1-4) Zimbru (Moldavíu) - Kispest Honved (Ungverjalandi) Flora Tallinn (Eistlandi) - Odense BK (Danmörku) 0-1 (1-5) 0-3 (0-6) Bekescsabi (Ungverjalandi) - Vardar Skopje (Makedóníu). .1-0 (2-1) FC Jazz (Finnlandi) - FC Copenhagen (Danmörku) Mypa (Finnlandi) - Inter Bratislava (Slóvakíu) Touran (Azerbaijan) - Fenerbache (Tyrklandi) 0—4 (1—4) 0-1 (3-1) 0-2 (0-7) Shakhtyor Donetsk (Úkraínu) - Lifleström (Noregi) 2-0 (3-4) Ararat Erevan (Armenlu) - CSKA Sofia (Búlgaríu) Slovan Bratislava (Slóvakíu) - Portadown (N-írlandi) 0-8 (0-3) 3-0 (5-0) GKS Katowice (Póllandi) - Inter Cardiff (Wales) 6-0 (8-6) Shamrock Rovers (írlandi) - Gomik Zabrze) Levski Sofia (Búlgaríu) - SCT Olimpija (Slóveníu) Havnar Boltafélag (Færeyjum) - Motherwell (Skotlandi) Cork City (írlandi) - Slavía Prag (Tékklandi) Trelleborg (Svíþjóð) - Götu íþróttarfélag 0-f(0-8) 1-2(3-5) 1-4 (1-7) 0-4 (0-6) 3-2 (4-2) AIK Solna (Svíþjóð) - FC Romar (Litháen) Rosenborg (Noregi) - Grevenmacher (Lúxemborg) 2-0 (4-0) 6-0 (8-1) Hibernians (Möltul - Dinamo Minsk (H-Rússlandil 4-3 (5-6) Aberdeen (Skotlandi) - Skonto Riga (Lettlandi) 1-1 (1-1) Skonto áfram. Linfield (N-írlandi) - FH (Hafnarfirði) 3-1 (3-2) DV Alex Ferguson, framkvæmdastjóri Man Utd: „Mínir menn stef na á ný á hæsta tind“ Þrátt fyrir aö lið Manchester Un- ited hafi síðustu ár verið besta liðið í ensku knattspyrnunni er engin eft- irgjöf á dagskrá á þeim bænum. Alex Ferguson, framkvæmdastjóra liðs- ins, er mikið í mun að því takist að vinna enska meistaratitilinn þriðja árið í röð. Hann leggur gríðarlega áherslu á að leikmenn sínir sýni mikinn baráttuvilja og „hungur“ í titilinn. Gangi það eftir segist Fergu- son vera bjartsýnn á gott gengi Manchester United í vetur. í viðtölum við breska fjölmiðla hef- ur Ferguson lýst þeirri skoðun sinni að þrátt fyrir háar launagreiðslur sitji knattspyrnan og árangur liðsins enn í fyrirrúmi á meðal leikmanna. „Mínir leikmenn hugsa ekki mikið um peninga. Það eru ekki launa- greiðslurnar sem halda þeim við efn- ið. Það er að sigra. Af öllum þeim snjöllustu knattspyrnumönnum sem ég hef samið við um dagana hafa peningagreiðslur verið nánast auka- atriði. Ég hef mikla trú á mínu liði og við munum reyna að sigra í öllum þeim keppnum sem við tökum þátt í á þessu keppnistímabili," segir Ferguson og bætir við: „Það er mín trú að við höfum á að skipa besta lið- inu í boltanum í dag og það eina sem ég hef áhyggjur af er hvort leikmenn mínir eru nægilega „hungraðir" í að ná árangri eftir gott gengi undanfar- in ár. Eftir að hafa rætt þessi mál við mína leikmenn er ég þess fullviss að þeir ætla sér á efsta tind á nýjan leik. Þeir eru orönir vanir því að sigra og beinlínis háðir því að vinna leiki og titia," segir Ferguson. Allir bestu leikmenn United hafa gert nýja samninga við félagið. Síð- astir til að gera slíkt voru þeir Paul Ince og Mark Hughes. Ince samdi til þriggja ára og Hughes framlengdi sinn samning í tvö ár. Chri Leic Slakur fyrri há varð FH-ingum - Linfield sló FH-inga út úr UEFA-keppni} Guðmundur Hflmaisson, DV, Belfast: Þeir gengu vonsviknir af leikvelli, leikmenn og forráðamenn FH, eftir að hafa tapað, 3-1, fyrir Linfield í síðari leik liðanna í forkeppni UEFA-keppn- innar í knattspymu í Belfast í gær- kvöldi. Eftir þessi úrslit var ljóst að þátttöku FH-inga í keppninni var lokið en Linfield sigraði samanlagt, 3-2, eftir að hafa tapaö fyrri leiknum í Hafnar- firði, 1-0. Eftir þann leik höfðu menn á orði að uppskera FH í þeim leik hefði verið rýr, það er að skora aðeins eitt mark þrátt fyrir að hafa haft tögl og hagldir í öllum leiknum. Það kom líka á daginn að þetta eina mark var of lítið vega- nesti fyrir FH þvi írska liðið lék allt annan og betri leik í gær og vann mjög svo sannfærandi sigur. Öll mörkin skoruð í fyrri hálfleik Linfield náði forystunni á 15. mínútu en þá skoraði Stephen Beattey með þrumuskoti af um 20 metra færi eftir að hafa fengið boltann frá varnar- mönnum FH. Þrátt fyrir þetta kjafts- högg náðu FH-ingar að jafna metin fimm mínútum síðar. Brotið var á Andra Marteinssyni rétt utan vítateigs og úr aukaspyrnunni, sem dæmd var, skoraði Drazen Podunavac með fallegu skoti sem fór í stöng og inn. FH-ingar íognuðu þessu marki vel og innilega enda var staða þeirra orðin mjög góð þar sem Linfield þurfti nú að skora tvö mörk til viðbótar til að komast áfram. Við jöfnunarmarkið slökuðu FH- ingar mikið á en að sama skapi efldust leikmenn Linfield við mótlætið. Á 31. mínútu náðu þeir yfirhöndinni á ný. Desmond Gorman skoraði þá með fall- egri bakfallsspyrnu eftir fyrirgjöf frá hægri kanti og aðeins 6 mínútum síðar var staðan oröin 3-1 en þá skoraði Gary Peebles eftir að varnarmenn FH höfðu sofið illa á verðinum. Skyndilega var staða Linfield orðin góð og liðið með yfirhöndina í einvígi sínu við FH. FH-ingar virtust vakna af værum blundi þegar flautað var til síðari hálf- leiks og strax á fjórðu mínútu var skalla frá Petr Mrazek bjargað á marklínu. Eftir það náðu FH-ingar ekki að fmna glufur á vörn Linfield. Liðið var meira með boltann en náði Ólafur Þórðarson og Haraldur Ingólfsson standa i eldlinunni gegn Bangor í kvöld.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.