Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Síða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 24.08.1994, Síða 26
26 MIÐVIKUDAGUR 24. ÁGÚST 1994 Afrnæli Hundrað ára: Kristín P. Sveinsdóttir Kristín Petrea Sveinsdóttir, fyrrum húsfreyja í Gufudal í Gufudalssveit, nú til heimilis aö Hrafnistu í Reykja- vík, er hundraö ára í dag. Starfsferill Kristín er fædd í Skáleyjum á Breiðafirði og ólst þar upp hjá föður sínum en móðir hennar dó þegar hún var fjögurra ára. Á yngri árum var Kristín vinnu- kona í eyjunum uns hún flutti upp á land í kringum 1920. Þá giftist hún Bergsveini Finnssyni og bjó með honum í Gufudal í þrjátíu og tvö ár. Þegar Bergsveinn maður hennar lést árið 1952 flutti hún dl Reykja- víkur og bjó hjá Guðmundu dóttur sinni og tengdasyni til ársins 1986 þegar hún flutti á Hrafnistu. Eftir að Kristín flutti til Reykja- víkur vann hún í hraðfrystihúsinu á Kirkjusandi þar til um áttrætt. Fjölskylda Maður Kristínar var Bergsveinn ElidonFinnsson, f. 30.9.1894, d. 1952, bóndi í Gufudal til æviloka. Foreldr- ar hans: Finnur Gíslason og Elín Ehdonsdóttir, búendur á Illugastöð- um í Múlasveit í Austur-Barða- strandarsýslu. Böm Kristínar og Bergsveins: Finnur, 28.5.1920, rafvirkjameistari í Reykjavík, kona hans var Anna María Waltraut, látin, þau eignuð- ust eitt barn; Ebba Aðalheiður, f. 7.4.1921, húsmóöir í Reykjavík, maður hennar er Bjami Þorsteins- son bílstjóri, þau eiga fjögur böm; Guðmunda Elín, f. 12.5.1923, hús- móöir í Reykjavík, maður hennar var Tómas Guðmundur Guðjóns- son, látinn, bifreiðasmiður, þau eignuðust fjögur börn, Guðmunda átti eitt barn fyrir hjónaband; Sveinsína Pálína, 10.4.1925, látin, húsmóðir í Reykjavík, maður henn- ar var Þorkell Guðjónsson múrari, þau eignuðust Sögur börn; Kristinn, f. 29.6.1927, fyrrverandi bóndi í Gufudal en nú garðyrkj ubóndi á Reykhólum, kona hans var Krist- jana Jónsdóttir, þau skildu, þau eiga sex börn; Ólafur, f. 2.4.1929, bóndi í Stafafelli í Lóni, kona hans er Nanna Sigurðarsóttir, þau eiga þrjú böm; Rebekka, f. 11.12.1934, hús- móðir á Hólum í Helgafellssveit, fyrri maður hennar var Magnús Hansson, þau eiga tvö böm, seinni maður hennar er Vésteinn Magnús- son, bóndi á Hólum, þau eiga þrjú börn, Rebekka átti áður eitt barn; Reynir, f. 30.11.1938, fyrrverandi bóndi í Fremri-Gufudal en starfar nú við þangskurð og smíðar, kona hans var Guðlaug Guðbergsdóttir, þau skildu, þau eiga sjö börn. Fyrir hjónaband eignaðist Kristín dóttur- ina Ebbu Aðalheiði Eybolín með Eyjólfi Magnússyni. Hún var fædd 3.5.1917 og lést fjögurra ára gömul. Kristín á sextíu og tvö barnabarna- böm og níu bamabamabarnaböm. Systkini Kristínar, sem öll eru lát- in: Kristján, f. 21.9.1869; Halldór, f. 22.9.1878; María, f. 11.10.1880; Guð- mundur, f. 23.1.1884; Þorbjöm, f. 18.7.1888; Pétur, f. 30.9.1890; Sess- elja, f. 25.9.1892. Foreldrar Kristínar: Sveinn Pét- ursson, f. 17.4.1848, d. 27.11.1939, sjómaður í Skáleyjum, og Pálína Tómasdóttir. Ætt Sveinn var sonur Péturs frá Hval- Kristin P. Sveinsdóttir. látrum á Breiðafirði, Guðmunds- sonar og Sesselju Jónsdóttur frá Djúpadal í Gufudalssveit. Systir Sesselju var Sigríður, móðir Bjöms Jónssonar, ritstjóra og ráðherra, föður Sveins, forseta Islands. Pálína var dóttir Tómasar Ás- grímssonar og Rebekku Jónsdóttur, búenda í Nesi í Grunnavík. Kristín tekur á móti gestum sunnudaginn 28. ágúst frá kl. 15-18 í AKOGES-salnum í Sigtúni 3. Til hamingju með afmælið 24. ágúst 100 ára Guðrún Jónasdóttir, Hornsstöðum, Laxárdalshreppi. 85 ára Jóna Fr. Jónasdóttir, Sjafnargötu 7, Reykjavík. Anna Ólöf Helgadóttir, Hrafnistu, Hafnarfirði. Ásta F. Ingvarsson, Jökulgrunni 3, Reykjavík. 80 ára Ilse Emilie Frieda Guðnason, Bessastíg 12, Vestmannaeyjum. ÞórðurSævar Jónsson, ' Lækjargötu 8, Hvammstanga. Magnús Kristinn Guðmundsson, Gríshóli, Helgafellssveit. Ingibjörg J. Gunnlaugsdóttir, Grundarbraut 32, Ólafsvik. Óskar Eggertsson, Sundstræti 26, ísafirði. Kristbjörg Þórarinsdóttir, Huldubraut 7, Kópavogi. Louise Kristín Theodórsdóttir, Aðalgötu 19,Sigluíirði. örn Svavar Garðarsson, Frumskógum 16, Hveragerði. SOára Herdís H. Oddsdóttir, Barmahlíð 20, Reykjavík. Margrét Jónsdóttir, Garöi, Svalbarðshreppi, MaritaHansen, Valbraute, Garði. Guðbrandur Gíslason, Goðheimum 21, Reykjavík. Guðmundur Konráðsson, Skólagerði 61, Kópavogi. JónGuðnason, Gnoðarvogi 74, Reykjavík. 75 ára Torfi Sveinsson, Aöalgötu 12, Sauðárkróki. 70ára Svanbjörg Jónsdóttir, Bámgötu 6, Dalvík. Ema Þorkelsdóttir, Eiðsvallagötu 7b, Akureyri 60 ára Steingrímur J. Guðraundsson, Neshaga 5, Reykiavík. Jenný Lára Jónasdóttir, Hásteinsvegi 7, Stokkseyri. Hanna D. J ónsdóttir, Silfurgötu23, Stykkishólmi. RARIK RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Útboð Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í að stækka stöðvarhús aðveitustöðva við Flúðir í Hruna- mannahreppi og Hellu á Rangárvöllum. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofum Rafmagns- veitna ríkisins við Dufþaksbraut 12, Hvolsvelli, og Laugavegi 118, Reykjavík, frá og með fimmtudegin- um 25. ágúst 1994 gegn kr. 15.000 í skilatryggingu. Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkis- ins á Hvolsvelli fyrir kl. 14.00 fimmtudaginn 8. sept- ember 1994 og verða þau þá opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska. Tilboðin séu í lokuðu umslagi, merktu: „RARIK-94012 Flúóir og Hella - Byggingarhluti“ Rafmagnsveitur ríkisins Laugavegi 118 105 Reykjavík Valgerður Guðmundsdóttir Valgerður Guömundsdóttir, fyrr- verandi ljósmóðir í Mosfellssveit og skrifstofumaður, Hjarðarslóð 4e, Dalvík, er sjötug í dag. Fjölskylda Valgerður er fædd í Reykjavík en ólst upp að Seljabrekku í Mosfells- sveit. Hún lauk ljósmæðraprófl LMSÍ1946 og var ljósmóðir í Mos- fellssveitar- og Þingvallasveitarum- dæmi 1946-68 og starfsmaður Verkalýðsfélagsins Einingar á Dal- vík 1980-93. Valgerður var vara- formaður LMFI1955-59, formaður LMFÍ1959-65 og sat í hreppsnefnd Dalvíkurhrepps 1970-74. Valgerður giftist 24.8.1957 Ingva Birni Antonssyni, f. 5.2.1928, d. 16.1. 1993, bónda á Hrísum, bústjóra á ríkisbúinu á Bessastöðum 1956-68 og hafnarstarfsmanni á Dalvík. For- eldrar hans: Wilhelm Anton Ant- onsson sjómaður og Sólveig Soffía Hallgrímsdóttir húsmóðir. Börn Valgerðar og Ingva: Guð- mundur, f. 13.3.1958, húsasmiður, maki Hulda J. Hafsteinsdóttir, þau eru búsett á Hauganesi og eiga eina dóttur, Valgeröi Ingu; Petra, f. 15.12. 1959, sjómaður (kokkur), hún er búsett á Dalvík og á tvær dætur, Völu Dögg Birgisdóttur og Heiðu Pálrúnu Leifsdóttur; Anton, f. 5.3. 1961, stýrimaður, búsettur á Dalvík; Bjarnveig, f. 29.8.1962, hjúkrunar- fræðingur, búsett á Dalvík. Fóstur- dóttir: Magnea Þóra Einarsdóttir, f. 17.6.1971, háskólanemi, búsett í Danmörku, maki Örnólfur Einar Rögnvaldsson. Systkini Valgerðar: Þorbjörg, f. 16.1.1920; Þorlákur, f. 9.12.1921; Málfríður, f. 21.3.1923, látin; Guð- rún, f. 18.9.1925; Ástríður, f. 25.8. 1930. Foreldrar Valgerðar: Guðmundur Þorláksson, f. 29.11.1894, d. 30.9. Valgerður Guðmundsdóttir. 1985, bóndi, og Bjarnveig Sigríður Steindóra Guðjónsdóttir, f. 5.11. 1896, d. 14.6.1979, húsmóðir, þau bjuggu að Seljabrekku í Mosfells- sveit. Valgerður verður heima á afmæl- isdaginn og tekur á móti gestum. Sveinbjöm S. Ragnarsson Sveinbjöm Sævar Ragnarsson for- stjóri, Dvergholti 12, Mosfellsbæ, er fimmtugurídag. Fjölskylda Sveinbjörn er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann hóf prentnám í Prentsmiðjunni Eddu 1960 og síðan setjaranám hjá Morgunblaðinu og starfaði þar í 9 ár. Sveinbjörn stofn- aði Silkiprent 1972 og hefur rekið þaö síðan. Hann spilaði handknatt- leik með Þrótti og síðar Aftureld- ingu. Sveinbjörn er meðlimur í Hestamannafélaginu Herði og hefur keppt og unnið að félagsstörfum fyr- irþað. Sveinbjöm kvæntist 15.8.1964 Gretu Sigurðardóttur, f. 8.11.1946, bókara. Foreldrar hennar: Sigurður E. Agústsson, fyrrverandi lögreglu- þjónn og fulltrúi, og Pálína G. Guð- jónsdóttir húsmóðir. Börn Sveinbjörns og Gretu: Lilja, f. 23.2.1964, hárskerameistari, gift Sigurði Pálssyni, þau eiga tvo syni; Sigríður, f. 7.8.1965, húsmóðir, gift Frímanni Ægi Frímannssyni, þau eiga þrjú börn; Ragna, f. 10.6.1971, skrifstofumaður, hún á eina dóttir; Sveinbjörn, f. 27.9.1978, nemi. Bræður Sveinbjörns: Páll, búsett- ur í Garðabæ; Guðmundur, búsett- uríReykjavík. Foreldrar Sveinbjöms: Ragnar Breiðfjörð Sveinbjömsson, f. 1917 í Stykkishólmi, d. 1972, bryti, og Lilja Guðmundsdóttir, f. 21.8.1924 á Stokkseyri, Sóknarkona. Sveinbjörn tekur á móti gestum Sveinbjörn S. Ragnarsson. frá kl. 18-21 föstudagskvöldið26. ágúst í Harðarbóli, félagsheimili Harðarmanna við Varmárbakka. Jón G. Friðjónsson Jón G. Friðjónsson dósent, Lauga- læk 56, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Starfsferill Jón er fæddur í Reykjavík og ólst þar upp. Hann er stúdent af mála- deild MR1964, lauk BA-prófi í ís- lensku og sagnfræði 1969 og cand. mag.-prófi í íslenskri og almennri málfræði 1972. Jón starfaði við Christian- Albrechts háskólann í Kiel 1972-75, var lektor við HÍ1975-82 og hefur verið þar dósent frá þeim tíma. Jón hefur verið formaður stjórnar Orðabókar Háskólans frá 1982. Hann hefur skrifað greinar og bæk- ui um íslensk mál, síðast Mergur málsins, 1993. Fj'ölskylda Kona Jóns er Herdís Svavarsdótt- ir, f. 2.9.1951, hjúkrunarfræðingur. Foreldrar hennar: Svavar Bjöms- son og Valborg Jónasdóttir. Synir Jóns og Herdísar: Friðjón Eiríkur, f. 10.5.1972; Bergsteinn Þór, f. 9.6.1974; Egill Bjarki, f. 10.6.1983. Bræður Jóns: Ásgeir Bergur Frið- jónsson, f. 22.5.1937, d. 29.9.1992, héraðsdómari; Sigurður H. Frið- jónsson, f. 4.5.1943, Ph. d.; Ingólfur Friðjónsson, f. 11.5.1951, hdl.; Frið- jón Ö. Friðjónsson, f. 19.5.1956, hrl. Foreldrar Jóns: Friðjón Sigurðs- son, f. 16.3.1914, skrifstofustjóri Al- Jón G. Friöjónsson. þingis, og Áslaug Siggeirsdóttir, f. 25.11.1917, húsfreyja. Jóneraðheiman.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.