Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Qupperneq 3
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994
3
Skíðalyfta á ísafirði:
Lægsta tilboð-
ið 30% hærra
en kostnað-
aráætlun
Siguijón J. Sigurðsson, DV, ísafirði;
SVR:
Hundrað
milljóna tap
á þessu ári
Gert er ráö fyrir að ríílega 100 millj-
óna króna tap veröi á rekstri Strætis-
vagna Reykjavíkur, SVR, á þessu ári.
Arthur Morthens, formaður stjórn-
ar SVR, segir aö tapið sé til komið
vegna þess að ákveðið hafi verið að
taka upp sérstök unglingafargjöld án
þess að gert hafi verið ráð fyrir því
í fjárhagsáætlun, auk þess sem
breytingin á rekstrarformi SVR hf.
hafi kostað sitt. Verið er að gera út-
tekt á því hvað rekstrarbreytingin
kostaöi og er búist við niðurstöðum
mjög fljótlega.
„Þetta þýðir einfaldlega að fjár-
hagsáætlun fyrrverandi meirihluta
er röng og nú verðum við að gera
viðeigandi ráðstafanir. Þessum 100
milljónum er í raun bara ávísað á
borgarsjóð. Lækkun á útgjöldum
borgarinnar til reksturs SVR und-
anfarin ár hefur verið mætt með
hærri fargjöldum þannig að borg-
arbúar hafa einfaldlega borgað mis-
muninn. Meirihlutinn stendur
frammi fyrir því hversu mikið menn -
vilja hækka framlögin að nýju til að
bæta þjónustuna. Við förum gegnum
það við gerð fjárhagsáætlunar í nóv-
ember,“ segir Arthur Morthens.
Framlög borgarinnar til reksturs
SVR hafa lækkað úr tæpum 300 millj-
ónum króna fyrir um þremur' árum
í 125 milljónir á síðasta ári.
Nýlega voru opnuð tilboð í bygg-
ingu á undirstöðum fyrir þrjár skíða-
lyftur sem fyrirhugað er að setja upp
á næstu mánuðum í Tungudal og á
Seljalandsdal.
Fjórir aðilár buðu í verkið og var
það lægsta tæpum 30% hærra en
kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir en
hún hljóðaði upp á kr. 14.302 þúsund.
Lægsta tilboðið kom frá Eiríki og
Einari Val hf., sem buðu kr.
18.577.600. Næsta tilboð þar á eftir
kom frá Naglanum hf., en þaö hljóð-
aði upp á kr. 18.637.310.
Fréttir
Unnið að gagngerum skipulagsbreytmgum í dómsmálaráðuneytinu:
Tekist á við þjónustu-
vandamál ráðuneytisins
- nýir aðilar hafa umsjón með Landlielgisgæslu, lögreglu og dómstólum
Gagngerar breytingar á skipulagi og
starfsháttum eru fram undan hjá
dómsmálaráðuneytinu. „Við erum
að takast á við það sem við töldum
vera vandamál í okkar þjónustu.
Þetta eru innanhússbreytingar sem
allir eru ánægðir með,“ sagði Ari
Edwald, aðstoöarmaður dómsmála-
ráðherra, í samtali viö DV. Ari sagði
að breytingarnar ættu að auka skil-
virkni og bæta þjónustu hvað varðar
samskipti við ráðuneytið.
Hjalti Zóphóníasson skrifstofu-
stjóri, sem hefur annast málefni og
samskipti við lögreglustjóra, sýslu-
menn og dómstóla, mun í framtíðinni
sjá um kirkjumál, Landhelgisgæslu
og almannavarnir. Hann mun áfram
hafa umsjón með Fangelsismála-
stofnun.
Högni S. Kristjánsson, Gísli Guð-
mundsson og Þorsteinn A. Jónsson
munu annast samskiptin við lög-
reglu og sýslumenn og dómstóla í
stað Hjalta. Að sögn Ara mun Ólafur
Walter Stefánsson skrifstofustjóri
hafa umsjón með svokölluðu laga-
sviði sem lýtur að vinnu við laga-
frumvörp og smíði þeirra. Jón Thors,
Drífa Pálsdóttir, Þorsteinn A. Jóns-
son og Hjalti Zóphóníasson munu
hafa umsjón með svokölluöu þjón-
ustusviði. Ari sagði að með breyting-
unum, sem eru fyrirhugaðar og er
enn verið að móta, sé gert ráö fyrir
aö þeir sem hafa samskipti við ráðu-
neytið þurfi að hafa samband við sem
fæsta „samskiptapunkta".
UMDPEIL0 AIRMAIMIM!
Sundskóli
Innritun stendur yfir í vetrarstarf sundskólans
Boðið verður upp á:
• Ungbarnasund
• Sundnámskeið fyrir 1-6 ára
• Sundnámskeið fyrir vatnshrædda
• Sundnámskeið fyrir fullorðna o.fi.
Innritun og upplýsingar gefa
Stella, s. 76618, óg Hafþór, s. 656454.
V'
HVER HELDUR
ÞÉR UPPI
eftir að þú hœttir að vinna?
ifyunu bömin þín halda þér uppi
eða sýnir þú þá fyrirhyggju að greiða
í lífeyrissjóð? Frjálsi lífeyrissjóður-
inn er hugsaðurfyrir þá sem ekki eru
skyldaðir til að greiða
í hefðbundna lífeyris-
sjóði og þá sem gera
kröfu um hœrri lífeyri
en fœst úr tryggingakerfinu
og almennum lífeyrissjóðum.
Sjóðurinn er þín eign, þú rœður
iðgjaldinu og þú rœður hvernig
greiðslum úrsjóðnum er háttað.
Hafðu samband við okkur hjá
Skandia ogfáðu sendan
bœkling ogforritsem
reiknar út þínar lífeyris-
greiðslur. Haltu vel á
þínum lífeyrismálum og njóttu
lífsins með Fijálsa lífeyrissjóðnum
FRJALSI
LÍFEYRISSJÓÐURINN
- til að njóis lífsms
■KANDIA > LAUOAVMOI 170 • BÍMI 01 B7 OO
rSkandia