Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Qupperneq 7
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994
7
Fréttir
Stykkishólmur:
Sömu listar
Þrír listar verða í framboði í
bæjarstjórnarkosningunum í
Stykkishólmi 1. október eða sömu
listar og voru í framboði í kosning-
unum í vor. Framboðslistarnir eru
lítið breyttir frá því í síðustu kosn-
ingum. Kosningarnar 28. maí voru
úrskurðaðar ógildar þar sem fram-
boðsfrestur rann út áður en sam-
eining Stykkishólms og Helgafells-
sveitar var auglýst í Stjórnartíð-
indum.
B-hsti Framsóknarflokks: 1. Guð-
brandur Björgvinsson sjómaður,
2. Hilmar HaUvarðsson rafverk-
taki, 3. Elín Sigurðardóttir ljósmóð-
ir, 4. Sigurður Þórarinsson stýri-
maður, 5. Karl M. Helgason raf-
virki.
D-listi Sjálfstæðisflokks og
óháðra: 1. Ellert Kristinsson fram-
kvæmdastjóri, 2. Bæring Guð-
mundsson verkstjóri, 3. Guðrún
Gunnarsdóttir ritari, 4. Rúnar
Gíslason dýralæknir, 5. Margrét
Thorlacius ljósmóðir.
H-hsti Vettvangs: 1. Davíð Sveins-
son skrifstofumaður, 2. Kristín
Benediktsdóttir húsmóðir, 3. Guð-
rún Marta Ársælsdóttir verka-
kona, 4. Hörður Gunnarsson skip-
stjóri og 5. Hermann Guðmundsson
rafvirki.
Hólmavlk:
Þrír listar
Guðfinnur Fiimbogason, DV, Hólmavik:
Þrír listar verða í kjöri við kosn-
ingarnar 1. október nk. eða jafn
margir og við kosningarnar 28. maí
í vor. Aðeins H-listi er mikið til
skipaður sama fólki, hinir tveir
bera ný nöfn og eru að hluta til
skipaðir nýju fólki.
H-Usti almennra borgara: 1. Jón
Ólafsson, 2. Jónína Gunnarsdóttir,
3. Rósmundur Númason, 4. Ey-
steinn Gunnarsson, 5. Björgvin
í f ramboði
Gestsson.
L-listi framfarasinnaðra borgara:
1. Drífa Hrólfsdóttir, 2. Gunnar R.
Grímsson, 3. Jón Arngrímsson, 4.
Sigfús Ólafsson, 5. Haraldur V.A.
Jónsson.
N-listi, nýtt framboð sjálfstæðis-
manna og óháðra: 1. Daði Guðjóns-
son, 2. Guðrún Eggertsdóttir, 3.
Gunnar Jóhannsson, 4. Kristján
Steindórsson, 5. Kristinn Ver-
mundsson.
Sjávarútvegsráðherra um takmörkun kvótaframsals:
Ekkert tilefni
til breytinga
„Þetta er tímabundin regla sem
fellur niður eftir eitt og hálft ár. Hún
var sett til að leysa átök milli sjó-
manna og útgerðarmanna. Ég sé ekk-
ert tilefni til breytinga á henni,“ seg-
ir Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra vegna þeirrar gagnrýni
sem komið hefur fram hjá mörgum
út af svokallaðri 15 prósent reglu.
Reglan, sem þrengir mjög rétt út-
gerða til að færa kvóta milli skipa,
hefur orðið mörgum tilefni til gagn-
rýni. Formaður Útvegsmannafélags
Vestfjarða sagði hana einfaldlega vit-
leysu sem bæri að afnema. Forsvars-
menn fiskmarkaða hafa einnig gagn-
rýnt hana og telja hana m.a. setta til
höfuðs fiskmörkuðum.
„Þetta ákvæði hefur tímabundið
gildi og verður afnumið um áramótin
1995-1996,“ segir Þorsteinn.
AEG
Opið laugardaga
kl. 10.00-14.00
BOSCH
BRÆÐURNIR
ORMSSONHF
Lágmúla 8, Sími 38820
^índesíf
Mercedes-Benz
í 40 ár
/
á Islandi
Verið velkomin
á sýningu í tilefni afmælisins
laugardag 17.9.
eða sunnudag 18.9.
Opið kl. 12.00 - 16.00.
Mercedes-Benz