Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 21
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 21 Skák Stórmeistaramótið í Sviss: Kasparov hristi keppinautana af sér Garrí Kasparov hafði tryggt sér sigurinn á stórmeistaramótinu í Horgen í Sviss er einni umferð var ólokið. Hann hafði hlotið 8 vinninga úr tíu skákum, Júsupov og Sírov höfðu 6,5, Kortsnoj og Lautier 6, Gelf- and 5, Leko 4,5, Nikolic og Benjamin 4, Miles og Lutz 3,5 og Gavrikov 2,5. í tveimur síðustu umferðunum vann Kasparov helstu keppinauta sína, Sírov og Júsupov, og sýndi þar með enn yfirburði sína. Kasparov hélt rakleiðis til Sviss frá atskákmótinu í London þar sem hann varö að bíta í það súra epli að láta tölvuforritið Chess Genius 2 slá sig út af laginu. Frétt þessa efnis fór um heimsbyggðina eins og eldur í sinu og fylgdi gjarnan sögunni að nú væru dagar skákmanna af holdi og blóði taldir. Þess var sjaldnast getið að ekki var um venjulega kappskák aö ræða heldur atskák, með 25 mín- útna umhugsunartíma. Forritið tefldi svo sem vel í skákun- um - yfirspilaði Kasparov í endatafli í þeirri fyrri og tókst að þvælast svo fyrir honum með tapaða stöðu í þeirri seinni a$ hann kaus að bjóða jafntefli þegar hann var að falla á tíma. Forritið bætti svo við 2-0 sigri gegn Nikolic í næstu umferð en Indverjinn Anand kom því síðan niður á jörð- ina. Anand, sem er þekktur fyrir aö hugsa hraðar en öflugasta tölva, vann fyrri skákina auðveldlega og í þeirri seinni þurfti hann ekki að nota nema 5 mínútur af umhugsunartíma sínum til þess að koma forritinu á kné. Hann var meira aö segja svo ósvífinn að hafna vélrænu jafnteflis- boði tölvunnar. „Ég held að Kasparov hafi látið til- finningarnar hlaupa með sig í gönur og talið sig sterkari en tölvuna,“ sagði Anand. „Á endanum tefldi hann til vinnings í stöðu þar sem hann hefði átt að stíga á bremsuna." Anand vildi sjálfur sem minnst úr sigri sínum gera. „Það var dálítiö ógnvekjandi að sjá tölvuskjá fyrir framan sig í stað andlits en tölvan tók ósigrinum mjög vel,“ sagöi hann. En hvað um það. Kasparov þurfti nauðsynlega á sigri að halda í Sviss til þess að sýna skákheiminum aö hann væri ekki dauður úr öllum æðum, þrátt fyrir áfallið í London. Lengi vel var þó útlit fyrir að Sírov ætlaði að hafa í fullu tré við meistar- ann. í innbyrðis skák þeirra sýndi Kasparov hins vegar hver hefur völdin. Sírov tefldi þó býsna vel á mótinu, eins og þessi bráðskemmti- lega skák hans við bandaríska stór- meistarann Benjamin ber með sér. Sírov er trúr lettneska stílnum og lætur sig ekki muna um að fórna drottningunni í tvígang. Hvítt: Alexei Sírov Svart: Joel Benjamin Umsjón Jón L. Árnason Sikileyjarvörn. 1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rc6 5. Rc3 a6 6. Be2 Dc7 7. Be3 Rf6 8. 0-0 Be7 9. f4 d6 10. Del 0-0 11. Dg3 Rxd4 12. Bxd4 b5 13. a3 Bb7 14. Khl Bc6 15. Hael Db7 16. Bd3 b4 17. Rdl Hér í eina tíð tefldust allmargar skákir 17. axb4 Dxb4 18. Re2 Db7 19. Rc3 Db4 20. Re2 með þráleik og jafn- tefli sem var einkar vinsælt meðal friðsamra skákmanna í Austur- Evrópu. Hvítur getur teflt áfram með 19. e5 Rh5 20. Dh3 g6 21. Rg3 en 21. - dxe5 22. Bxe5 Rxg3+ 23. hxg3 Bb5! gaf Ivantsjúk jafnt tafl gegn Sírov í Linares í fyrra. Leikur Sírovs nú er langt frá því að vera nýr í stöðunni - hvítur kær- ir sig kollóttan þótt peðastaðan á drottningarværig riðlist lítillega. 17. - g6 Strax 17. - bxa318. bxa3 Rh5 kemur ekki síður til greina. 18. Rf2 bxa319. bxa3 Rh5 20. De3 Rxf4?! Þessi dæmigerða „flétta" sem svo oft leiðir til auðveldrar tafljöfnunar í svipuðum stöðum gefur hvítum nú óvænta möguleika. 21. Dxf4 e5 22. Rg4! Drottninguna má nú ekki þiggja vegna 23. Rh6 mát. 22. - f6? ' Þetta er ekki eins traust og ætla mætti! Nauðsynlegt er 22. - exd4 því að eftir 23. Rh6+ Kg7 24. Rxf7 g5! gæti brugðið til beggja vona. En 23. Bc4 er annar möguleiki. 23. Bc4 + Kh8 24. Rxe5! dxe5 25. Dxe5! Aftur fórnar hvítur drottningunni! Ef 25. - fxe5 26. Bxe5+ Hf6 27. Hxf6 Kg7 28. Hxc6+ Kh6 29. Hc7, biskup- inn á e7 fellur og sókn hvíts heldur áfram. 25. - Kg7 26. Df4 Hvítur hefur haft peð upp úr krafs- inu og sterka stöðu. Áfram teflir Sírov af krafti. 26. - Had8 27. e3 h6 28. Hbl Da8 29. Hb6 Hxd4 Eða 29. - Bxe4 30. Hxf6! og nú 30. - Hxd4 31. Hf7 + , eða 30. - Bxf6 31. Bxf6+ Kh7 32. Dc7+ og vinnur. 30. cxd4 Bxe4 31. Hel f5 32. De5+ Bf6 33. Hxf6! - Og Benjamin gafst upp því að 33. - Hxf6 34. De7 + kostar hrókinn. Skákþing Hafnarfjarðar Skákþing Hafnarfjarðar hefst sunnudaginn 18. september kl. 20 og er búist við góðri þátttöku. Teflt verður á sunnudags- og þriðjudags- kvöldum, alls 7 umferðir eftir Monrad-kerfi. Mótið verður með nokkuð óvenjulegu sniði því að eftir fjórar fyrstu umferðirnar verður gert hlé til 13. nóvember og mótinu þá fram haldið. Áhugasamir geta á meðan teflt á haustmóti Skákfélags Hafnarfjarðar sem hefst 2. október. Teflt eH húsinu Dverg, við Lækjar- götu 2, Hafnarfirði, og er öllum heim- il þátttaka. Fyrstu verðlaun eru 20.000 krónur, auk þess sem stefnt verður að því að sigurvegarinn öðlist rétt til kegpni í áskorendaflokki á Skákþingi íslands um páskana. Borgarskákmótið Eitt hundrað og fjögur fyrirtæki og stofnanir tóku þátt í Borgarskákmót- inu sem fram fór í níunda sinn 19. ágúst sl. Teflt var í Ráðhúsi Reykja- víkur og stóðu Taflfélag Reykjavíkur og Hellir að mótinu. Helgi Áss Grétarsson, sem tefldi fyrir Sveinsbakarí, Hannes Hlífar Stefánsson, sem var fulltrúi Ofna- smiðju Kópavogs, Helgi Ólafsson, sem tefldi fyrir Fjölni - tölvu- og tækniþjónustu, og Sævar Bjarnason, fyrir Garðakaup; fengu allir 6 v. af 7 mögulegum. Helgi Áss, sem nú stendur í ströngu á HM-unglinga í Brasilíu, var úrskurðaður sigurveg- ari á stigum. Næstir komu Guðmundur Hall- dórsson, Rafmagnsveitu Reykjavík- ur, Jóhann Hjartarson, Plastos hf., og Gunnar Freyr Rúnarsson, fyrir Innkaupastofnun ríkisins, með 5,5 v. Þar á eftir komu Tómas Björnsson (Hoffell, umboðs- og heildverslun), Ásgeir P. Ásbjörnsson (Hugskot hf.), Arnar E. Gunnarsson (Landsbréf), Áskell Örn Kárason (Betri borgarar), Ólafur B. Þórsson (Eyjakleinur), Kristján Eðvarðsson (Sæbjörg), Ró- bert Harðarson (Eyðublaðatækni), Dan Hansson (Iðnnemasambandið) og Björn Þorfmnsson (VISA ísland), allir meö 5 v. Nýi ökuskólinn h/f Klettagörðum 11, et húsið Meirapróf Innritun stendur yfir til og með 19. sept. Allar upplýsingar í síma 884500. NAFN KENNITA LA HEIMILISFANG PÓSTNÚMER STAÐUR Kostir þess að fá þér „ Gerðu það gotí' möppu fyrir uppskriftirnar þínar eru fleiri en einn: * Þú hefur alla bæklinga Tilraunaeldhúss MS á einum stað * Mappan er falleg, handhæg og af hentugri stærð fyrir alla bæklingana * í möppunni eru grunnupplýsingar um mál, vog og ýmis góð ráð * Hún kostar aðeins 490 kr _____ Já takk! □ Ég vil fá senda safnmöppu MS í póstkröfu □ Ég óska eftir því að uppskriftarbMingar MS númer------------------- fylgi möppunni. Utanáskriftin er: Tilraunaeldhús MS, Pósthólf10340, 130 Reykjavík. Vikutilboð á verkfærum Hleðsluborvél B&D kr. 5.369, blikkklippur, 3 stk. sett, kr. 876, sandblásturssett kr. 5.410, borasett, tré-járn-steinn, kr. 1.891 Rafsuðu- transari 145 AMP kr. 8.590 Lyklasett op/lok., 24 stk. 6-32 mm kr. 2.365 Höggskrúf- járn sett kr. 690 Loftbor- vél 3/8" kr. 5.990 Erum beint Verkfæralagerinn a móti Hagkaupi Skeifunni 13, sími 88 60 90 Opið mánud.-föstud. kl. 9-19 laugard. 10-17 sunnud.12-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.