Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 31
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 39 j 1 W Hláturinn bætir heilsuna og lengir lífið. Húmorleysi er lífshættulegt „Mér leiðist eiginlega allt,“ sagði þessi gleðilausa kona. Nökkvi læknir hafði haldið fyrirlestur um lífsgleði á fundi glaösinna kvenfé- lagskvenna. Fundarmenn hlógu mikinn en þessari konu stökk aldr- ei bros. Hún sat með krosslagðar hendur og skeifu niður á miðjar axlir meðan aðrir kættust dátt. Þau sátu saman í fundarlok, drukku kaffiogspjölluðu. „Sumumfinnst lífið skemmtilegt," hélt hún áfram, „en mér fmnst það hundleiðinlegt. Aldrei get ég hlegið að gaman- myndum eða bröndurum enda tel ég allt slíkt bæði vitlaust og heimskulegt. Sumum finnst þú skemmtilegur, Nökkvi læknir, en ég tel að þú beitir aulabröndurum og sleggjudómum sem eru allsendis ófyndnir. Eiginlega hef ég ekki hlegið í nokkur ár og ekki sakna ég þess.“ Að þessari ræðu lokinni hóf konan að segja frá vandamál- um sínum sem bæði voru mörg og flókin. Aldrei gat hún komið auga á eitthvað spaugilegt í tilverunni; hún svamlaði ein í djúpum táradal þar sem hvergi sást örla fyrir landi. Nökkvi læknir hafði engin svör og skyndilega stóð konan fætur, kast- aði á hann kveðju og gekk á dyr alvarleg á svip. Þegar hún var farin varp hann öndinni léttar enda leið- ist honum húmorlaust fólk. „Það er mikil bæklun að sjá aldrei neitt broslegt í tilverunni heldur ein- blína á skuggahliðar mannlífsins," sagöi hann við Bergdísi konu sína síðar þetta sama kvöld. Bætir heilsuna Fyrir mörgum árum lá banda- ríski rithöfundurinn Norman Cousins fyrir dauðanum. Hann velti því þá fyrir sér hvort jákvætt hugarfar, hlátur og skemmtan gæti haft læknandi áhrif. „Af hverju ekki,“ sagði Norman, „neikvæði og fýla gera alla sjúkdóma verri.“ Hann tók á leigu ótal grínmyndir og lá sárþjáður yfir þeim til að geta hlegið hressOega. Hann komst ífjót- lega að raun um að góður hlátur virkaði betur en verkjalyf. Glað- værð hafði læknandi áhrif. Smám saman bötnuðu honum veikindin og gerðist hann eftir það talsmaður gleði og kímni í lækningaskyni. „Hláturinn lengir líffð,“ sagði Nor- man og tók undir með íslenskum A læknavaktinni & KÍ P v^' Óttar Guðmundsson \ / R læknir málsháttaviðrinum. Læknisfræðin hefur sannað þetta á siöustu árum. Hlátur og jákvætt hugarfar lækka blóðþrýsting, hafa góð áhrif á önd- un og blóðrás og styrkja ónæmis- kerfið. Hláturinn bætir svefn og hreinsar alls kyns spennu, streitu og óróleika úr sálinni. Húmorleysi er því lífshættulegt ástand auk þess að vera afspyrnu leiðinlegt. En miklu skiptir að geta skilgreint eig- inn húmor. Allar þjóðir eiga sér einhverja tegund af kímni. Á seinni árum hefur íslensk þjóð misst ákveðin tengsl við eigin kimnigáfu. Menn hafa fallið flatir fyrir amer- ískum aulahúmor, rjómatertukasti og tvíræðum bröndurum úr þar- lendum bókum og blöðum. Ýmsir íslenskir skemmtikraftar hafa þýtt ógrynni slíkra brandara til að hafa á hraðbergi á mannamótum gegn vænni greiðslu. Þetta finnst Nökkva lækni vafasamar aðgerðir; nær væri að styðja við íslenska fyndni í góðu þjóðræknisátaki. ís- lenski húmorinn er um margt ákaf- lega skemmtilegur og sérstakur. Islensk fyndni Franski rithöfundurinn Voltaire sagði eitt sinn: „Ég hef aðeins beðið einnar bænar um dagana til Guðs: Láttu, góði Drottinn, óvini mína gera sig að fíflum." Og oftar en ekki var ég bænheyrður." íslensk- ur húmor er í þessum anda. Ósjald- an gengur hann út á aö gera grín að óvinum og öfundarmönnum eða öðrum sem gerðu sögumanninum lífið leitt. Ótal sagnir eru til frá öll- um öldum um nafngreinda menn þar sem heimska þeirra og, dóm- greindajrleysi er haft að gamanmál- um. Margar slikar sögur eru bæði' smekklausar og ófyndnar í augum nútímamanna en skemmtu forver- um okkar í þessu landi. Dæmigerð saga úr íslenskri fyndni hljómar svona: Bóndi í Mýrdal (nafngreind- ur) kom í búð til Halldórs kaup- manns í Vík og sagði: „Nú er dreng- urinn minn dáinn. Ég þyrfti að biðja þig um fjalir utan um hann. Halldór, og dálítið af salti.“ Mörg- um nútímamönnum finnst þetta ákaflega ófyndið en hugsunin að baki sögunnar er í raun bráð- skemmtileg og sérstaklega fyrir þá sem þekktu bónda þennan. Vin- sældir Davíðs Oddssonar, Sverris Hermannssonar og Sighvats Björg- vinssonar sem stjórnmálamanna byggjast að verulegu leyti á því að þeir kunna að skemmta þjóðinni með íslenskum húmor, hæfilega illkvittnum og hnitmiðuðum. Fáir stjórnmálamenn kunna þá list enda eru þeir margir gleðileysið holdi klætt. Þjóðareðlið breytist ekki á nokkrum árum. Nökkvi læknir telur að margs konar sjúk- dóma og vesöld og volæði megi rekja til þess að þjóðin hefur glatað tengslum við eigin kímnigáfu. „Hún ráfar villt um eyðimerkur bandarískra brandarabóka og gamanmynda og verður við það húmorlaus," sagði Nökkvi læknir, „og það er lífshættulegur and- skoti!“ Til sölu Sport-Craft bátur með 146 ha Volvo Penta inboard/outboard vél. Ýmis aukabúnaður, m.a. Power trim, útvarp/segulband og talstöð. Vagn íylgir. Bátur og vél í topp- standi: Litið notað. Verð kr. 990.000. Ath. Skipti á snjósleða eða góðum bíl. Svarþjónusta DV, sími 91-632700. H-9429. INNANHÚSS- ioo ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriftum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtísku eldhús, gólflagnir,. vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o.fl. Eg óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ Nafn ...........7................ Heimilisfang Akademisk Brevskole Jyllandsvej 15 • Postboks 234 2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir og tæki sem verða til sýnis þriðjud^ginn 20. september 1994 kl. 13-16 I porti bak við skrifstofu vora að Borgartúni 7 og víðar. 1 stk. Cadillac Fleetwood 1982 1. stk. Nissan Primera SLX 1991 1. stk. Mitsubishi Galant 1987 1. ?tk. BMW320 1989 2. stk. Saab 9001 1987-88 2. stk. Toyota Corolla 1990-91 1. stk. Mazda 323station 1987 3. stk. Nissan Micra 1988 1. stk. Subaru 1800station 1991 1. stk. Toyota Hi Lux Extra cab (skemmdur) 1994 1. stk., Toyota Hi Lux Extra cab 1990 4. stk. Toyota Hi Lux Doublecab 1986 1. stk. Nissan Patrol pickup m/húsi 1986 1stk. GMC Suburban 1982-88 1. stk. Lada Sport 1989 4. stk. Mitsubishi L-300 Mini bus 1987-91 2. stk. Toyota Hi Ace 1987-88 2. stk. Toyota Tercel 1986-87 1. stk. Volkswagen Pickup 1987 1. stk. Mercedes Benz 914 m/lyftu 1985 1. stk. Mercedes Benz 1628 1986 2.stk. Ford Econoline-sendiferðabifr. 1981-88 1. stk. Harley Davidson bifhjól 1980 1. stk. Bílkrani Gottvald 1971 Til sýnis hjá Bifreiðaverkstæði GT Haukamýri 1, 640 Húsavík. 1 • stk. Subaru station (með bilaðri vél) 1988 Til sýnis hjá iðntæknistofnun Islands, Keldnaholti. 1. stk. Case 580 G traktorsgrafa 4x4 1986 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins, birgðastöð Grafarvogi, Reykjavík. 1 - stk. Veghefill Caterpillar 12G 1975 1. stk. snjótönn á veghefil, handskekkt 1 - stk. kastplógur á vörubíl Viking 285 PD 1974 l.stk. fjölplógur á vörubíl Síndri 1985 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Hvolsvelli 1. stk. Massey Ferguson 690 4x4 dráttarvél 1984 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins í Búðardal 1 stk. Massey Ferguson 699 4x4 dráttarvól 1985 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Patreksfirði 1. stk. Massey Ferguson 399 4x4 dráttarvél 1988 Til sýnis hjá Vegagerð ríkisins á Hvammstanga 1. stk. vatnstankur, 10.000 I með dælu Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri sama dag kl. 16.30 að viðstöddum bjóðendum. Réttur er áskilinn til að hafna tilboðum sem ekki teljast viðun- andi. Wríkiskaup Ú t b o b Í k í I a á r a n g r i I BORGARTÚNI 7, 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-26844, BRÉFASÍMI 91-626739

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.