Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Side 33

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Side 33
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 41 Sjálfvirk auglýsingaþjónusta DV opnuð á mánudag: Stórbætt þjónusta við auglýsendur og lesendur „Megintilgangurinn með sjálf- virku auglýsingaþjónustunni er að bæta þjónustuna við auglýsendur og lesendur blaðsins. Þessi nýja þjónusta sparar bæði tíma og fyrir- höfn fólks þar sem hún er opin all- an sólarhringinn,“ segja þær Jó- hanna Á.H. Jóhannsdóttir, deildar- stjóri sjálfvirkrar símaþjónustu DV, og Ingibjörg L. Halldórsdóttir, deildarstjórismáauglýsingadeildar blaðsins. Sjálívirk auglýsingaþjónusta DV mun taka til starfa á mánudaginn kemur. Um er að ræða tölvustýrt samskipta- og upplýsingakerfi sem gefur bæði auglýsendum og þeim sem svara auglýsingum kost á sam- skiptum með sem minnstri fyrir- höfn og tilkostnaði. Notendur þjón- ustunnar þurfa aö hafa tónvals- síma (takkasíma) og smáauglýs- ingu í DV til að hringja eftir, Eftir sem áður munu auglýsend- ur þó geta auglýst á hefðbundinn hátt með því að gefa upp símanúm- er sitt. En vilji þeir spara tíma og fyrirhöfn er sjálfvirk auglýsinga- þjónusta DV einfold og ódýr leið. Mínútusamtal við sjálfvirku aug- lýsingaþjónustu DV mun aðeins kosta 25 krónur. Einfalt í notkun Sjálfvirka auglýsingaþjónustan er mjög einfóld í notkun. Frá því að samband næst við síma 99 56 70 leiðir vinsamleg rödd viðskiptavin- ina áfram og leiðbeinir um notkun á kerfmu. Smáauglýsing sem er þjónustuð á þennan hátt er auðkennd með tilvísunarnúmeri. Vilji auglýs- andinn gefa frekari upplýsingar, t.d. um bíl til sölu, getur hann hringt í 99 56 70, slegið inn tilvísun- arnúmerið og lesið inn viðbótar- upplýsingar um bílinn; um fjölda eigenda, gerð vélar, viðgerðir o.fl. Eftir að hafa lesið inn þessar upp- lýsingar er auglýsandanum gefmn kostur á að hlýða á sjálfan sig og • velja hvort hann vill hafa upplýs- ingarnar óbreyttar eða eyða þeim og endurtaka upptöku. Hafi lesandi DV áhuga á að svara viðkomandi auglýsingu hringir hann í síma 99 56 70 og slær inn tilvísunarnúmer auglýsingarinn- ar. Hann getur hlustað á viðbótar- upplýsingar seljanda og ef honum Ingibjörg L. Halldórsdóttir, deildarstjóri smáauglýsingadeildar DV, og Jóhanna Á.H. Jóhannsdóttir, umsjónarmaður sjálfvirkrar símaþjónustu DV. líst vel á bílinn lesið skilaboð inn í talhólf, sem sérstaklega er fyrir þessa auglýsingu, um að hann vilji kaupa bíhnn. Sá sem auglýsti bílinn til sölu get- ur hvenær sem er athugað hve margir hafa svarað auglýsingunni og hvemig tilboðin hljóma með því að hringja í 99 56 70, slá inn tilvísun- amúmerið og sérstakt aðgangs- númer. Aðgangsnúmerið fær aug- lýsandinn þegar hann setur auglýs- inguna í blaðið og það tryggir að enginn annar fái aðgang að talhólfi auglýsingarinnar en hann sjálfur. Sérþjónusta fyrir atyinnuauglýsingar Þegar um atvinnuauglýsingar er að ræða er fariö eins að nema hvað einum þjónustulið er bætt við. Þeg- ar auglýsandi hefur hlustað á þá sem vilja fá vinnuna getur hann, með því að fara eftir leiðbeiningum tölvunnar, valið úr umsóknunum og svarað hveijum og einum. Hann getur með einu símtali fengið upp- lýsingar um fjölda nýrra svarenda og flokkað þá eins og hina. Allir umsækjendur um atvinnu fá leyninúmer. Getur hver þeirra síðan hringt í síma 99 56 70, slegið inn tilvísunarnúmer og leyninúm- er og fengið svar við umsókninni sinni eftir að auglýsandinn hefur flokkað umsóknirnar. Þessi þjón- usta við auglýsendur er nýjung á íslenska auglýsingamarkaðnum, nýjung sem ætlað er að svara þörf- um auglýsenda og lesenda. Fjölmargir kostir DV hefur veitt sérstaka svarþjón- ustu við smáauglýsingum um nokkurt skeið. Hafa undirtektir viðskiptavina verið mjög góðar, svo góðar að ekki var lengur hægt að anna eftirspurninni. Sjálfvirka áuglýsingaþjónustan gerir hins vegar kleift að anna miklum fjölda svara við auglýsingum á skjótan og öruggan hátt. „Aðrir kostir þessarar sjálfvirku auglýsingaþjónustu eru fjölmargir. Þannig getur lesandi svarað aug- lýsingu hvenær sem er sólar- hringsins og auglýsandi getur hve- nær sem er athugað hverjir hafa svarað auglýsingunni. Bréfaskrift- ir til að senda inn merkt tilboð verða óþarfar. Þá er mikill munur fyrir auglýsandann að þurfa ekki að binda sig heima við á ákveðnum tíma til að svara í símann. Auglýs- ingaþjónustan tekur viö öllum hringingum vegna auglýsingarinn- ar og auglýsandinn athugar svör- unina einfaldlega þegar honum hentar. Helsta breytingin er sú að auglýsandinn og sá sem svarar auglýsingunni tala ekki beint sam- an fyrr en auglýsandinn hefur val- ið líklegan viðskiptavin," segja þær Jóhanna og Ingibjörg. Sjálfvirka auglýsingaþjónustan verður kynnt frekar í blaðinu og víðar á næstunni, þar á meðal í heilsíðuauglýsingu í DV á mánu- dag. Jón vill leigja út þriggja her- Þegar blaðið kemur út rekst Guð- bergja íbúð í Hlíðunum. Hann setur rún á auglýsinguna. í stað þess að smáauglýsingu í DV þar sem fram skrifa bréf og senda þaö á auglýs- kemur að íbúðin sé laus strax og ingadeild.DV hringir hún strax í hann óski fyrirframgreiðslu. Jón síma995670ogslærinntilvísunar- er mjög upptekinn og getur þvi númerið. Henni býðst að heyra við- ekki setið vdð símann eða náð í til- bótarupplýsingar Jóns. Að því lo- boð á smáauglýsingadeild DV. knu talar hún í talhólfxð hans, ger- Hann velur því sjálfvirku auglýs- ir tilboð í íbúðina og gefur umbeðn- ingaþj ónustuna. ar upplýsingar. Fleiri fara að dæmi Auglýsingin er merkt tilvisunar- Guörúnar. númexi og Jón fær sérstakt að- Þegar Jón kemur heim seint um gangsnúmer. Til að gefa áhuga- kvöld hringir hann í 99 56 70, slær sömum ítarlegri upplýsingar inn tilvísunarnúmer og aðgangs- hringir hann í síma 99 56 70 og les númer og hlustar á þau tilboð sem ínn á talhólflð: „íbúðin er á þriðju borist hafa. Tilboð Guðrúnar hæð í blokk, meö parketi á gólfum hljómar best. Daginn eftir hafa og ný innrétting er í baðherbergi. fleiri hringt og þegar Jón hringir í Ég vil helst leigja reglusömu flöl- 99 56 70 um kvöldið er tilkynnt að skyldufólki, fá upplýsingar um þrjú ný tilboð hafl borist. En hann greiðslugetu og sjá meðmæli frá ákveður aö gera leigusamning við fyrri leigusölum. Segið mér hvar Guðrúnu og gengur írá málinu og hvenær ég get. náð í ykkur og strax daginn eftir. ég svara e;ns fljótt og ég get.“ BLOMASYMIM GAR Pottablóm - 30% afsláttur Garðskálaplöntur - 60% afsláttur Verið vtíkgmn á ‘Bíóttia- sýnitigunaíŒerlumi utnklginaogsjáúð skreytitigamarfrá Qarðsfiomi viö fossvogskidjugarð - sínti40500 OjPíð al/a da#a TO-Æ2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.