Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Síða 36
44 LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994 fþróttir Alexi Lalas, knattspymumaðurinn með geithafursskeggið, byrjar vel á ftalíu: .. .. a../. 4 '... ■- I ' . \_ .. ■ ' . ■'''- .' . '. „Ég verð að hafa tónlistina Frá því Ruud Gullit lét sér vaxa hár- ið hefur enginn knattspyrnumaður vakið jafnmikla athygli fyrir útlit sitt og bandaríski varnarmaðurinn Alexi Lalas. Þegar bandaríska landsliöið tók að vekja athygli í undirbúningi sínúm fyrir heimsmeistarakeppnina varð þessi hávaxni piltur með geit- hafursskeggið persónugervingur þess. Nú hefur hann náð lengst landa sinna, Lalas er kominn í ítölsku 1. deildina fyrstur bandarískra knatt- spyrnumanna og leikur þar með nýl- iðum Padova í vetur. > Lalas er 24 ára gamall og forsagan að flutningi hans til Ítalíu er einstök. Þar til í síðasta mánuði hafði hann aldrei leikið sem atvinnumaður með félagsliði. Hann spilaði meö skólaliði Rutgers háskóla í New Jersey í Bandaríkjunum, þar sem hann nam enskar bókmenntir, og valdi þar knattspyrnuna í stað þess að gerast atvinnumaður í íshokkí. Hann var síðan einn af fjölmörgum leikmönn- um sem gerðu samning við banda- ríska knattspyrnusambandið og hóf Jpngan og strangan undirbúning fyr- ir heimsmeistarakeppnina 1994. Leikmennirnir bjuggu saman ásamt íjölskyldum sínum í Kaliforníu og spiluðu ekki með neinu félagsliði, aðeins með landsliðinu, og Lalas náði 50 landsleikjum á aðeins tveimur árum. Vakti athygli gegn Englandi Hann vakti fyrst athygli þegar hann skoraði annað markið í 2-0 sigri á Englendingum á móti í New York árið 1993 og fagnaði með því að stökkva upp á girðinguna umhverfls völlinn. Þá sá heimsbyggðin fyrst ^bregða fyrir þessum skeggprúða varnarmanni. í sumar festi hann sig svo í sessi sem einn af öflugustu varnarmönnum heims þegar banda- ríska liöiö komst í 16-liða úrslit HM og var útnefndur í sum þeirra úr- valsliða sem valin voru að keppninni lokinni. Lalas reyndi að komast í ensku knattspyrnuna síðasta vetur og var til reynslu hjá Arsenal, en var hafn- að. Eftir HM í sumar rigndi hins veg- ar tilboðunum yfir hann og hann gat valið á milli Englands, Þýskalands og Ítalíu. Nú er Alexi Lalas búinn að fá smjörþefinn af atvinnumennskunni í erfiðustu deildakeppni heims, og hann nýtur hverrar mínútu þó liði hans hafi gengið illa það sem af er tímabilinu. Strúturinn og állinn Lalas þykir ekki búa yfir sérstaklega mikilli knatttækni og eftir leikinn við Brasilíu á HM skrifaði einn blaða- maðurinn að barátta hans við Rom- ario hefði minnt á strút sem væri að reyna að stiga á ál. Sjálfur viður- kennir hann aö margir félagar sínir í bandaríska landsliðinu séu með meiri tækni í litlafingri en hann í fótunum. „Ég hef alltaf fengið að heyra að ég geti ekki hitt og þetta. Mér var sagt að ég kæmist ekki í ólympíulið- ið, mér var sagt að ég kæmist aldrei í landsliðið, mér var sagt að ég myndi ekki ráöa við að spila í heimsmeist- Padova af ítölskum blöðum og eitt þeirra sagði: „Hvaða sóknarmaður er ekki pínulítið hræddur við Lalas?“ Ógnvekjandi í loftinu Mauro Sandreani, þjálfari Padova, segir að Lalas hafi þegar staðið undir væntingum og þurfi aðeins að fín- pússa leik sinn. „Hann þarf að ná betra sambandi við samherja sína inni á vellinum og öðlast meiri mýkt, en í loftinu er hann ógnvekjandi og það nýtum við okkur eins og hægt er í sóknarleikn- um,“ segir Sandreani, og Arrigo Sacchi, landsliðsþjálfari ítala, hefur einnig farið lofsamlegum orðum um frammistöðu Bandaríkjamannsins. Hrærigrautur af þremur tungumálum Félagi hans í liði Padova, David Ball- eri, segir að þaö fari vel á með Lalas og öðrum leikmönnum, þrátt fyrir að tungumálið, sem notað sé í sam- skiptunum, sé hrærigrautur af ensku, ítölsku og spænsku. „ítalskan mín fer skánandi og félagar mínir eru búnir að kenna mér öll ljótu orð- in!“ segir Lalas. Fyrirmynd Lalas er Paolo Maldini, varnarmaðurinn öflugi hjá AC Milan, og hann stefnir að því að verða jafn góður knattspyrnumaður og hann. „En þegar upp er staðiö skiptir ekki máli hvort ég spila á gítar, hvernig útlitið er eða hárgreiðslan - ef frammistaðan á knattspyrnuvell- inum er ekki nægilega góð hefur enginn not fyrir mig,“ segir Alexi Lalas. „Strúturinn og állinn": Lalas reynir að hemja Romario hinn brasilíska i 16-liða úrslitunum. arakeppninni. Samt er ég hér - á ítal- íu,“ segir Lalas. Égverð að hafa tónlistina Tónlistin er þýðingarmikill hluti af lífi hans og Lalas spilar á gítar í tóm- stundum sínum. Hann er gítarleikari í hljómsveit sem heitir Gypsies og hefur gefið út einn geisladisk og er með annan í vinnslu. Lalas segir að sveitin sé væntanleg til Ítalíu innan skamms til að skemmta sér og spila á veitingahúsum. „Sumir segja að nú sé ég í 1. deild- inni og verði að leggja tónlistina á hilluna. Það er útilokað, ég verð að hafa tónlistina til þess aö halda takt- inum inni á knattspyrnuvellinum.“ Þegar hann er spurður hvort hann ætli ekki að skera skegg sitt er svar- ið einfaldlega: „Ertu að grínast?“ Góð byrjun í ítölsku deildinni Þó Padova hafi gengið illa í fyrstu leikjum sínum og liðinu sé almennt spáð falli, eru menn ánægðir með frammistöðu Lalas til þessa. í fyrsta leiknum, gegn Inter Milano, munaði engu að hann skoraöi með glæsileg- um skalla en Gianluca Pagliuca, landsliðsmarkvörður ítala, varði á ótrúlegan hátt. „Ég hélt að boltinn væri inni. Hann varði glæsilega, en ég sá það ekki. Andlit mitt var grafið í leðjuna!“ Hann var valinn besti maður Gítarleikarinn Alexi Lalas leggur ekki tónlistina á hilluna þó hann sé farinn að ieika í ítölsku 1. deildinni. Á sigurstundu: Alexi Lalas fagnar sigri Bandarikjanna á Kólumbíu á HM í sumar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.