Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Side 50
58
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994
Afmæli
Sveinn Einarsson
Sveinn Einarsson, leikhússtjóri og
rithöfundur, Tjarnargötu 26,
Reykjavík, veröur sextugur á morg-
un.
Starfsferill
Sveinn fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR1954, phil. cand-prófi í al-
mennri bókmenntasögu, leikhstar-
sögu og heimspeki frá Stokkhólms-
háskóla 1958, phil. hc.-prófi í leik-
húsfræðum þaðan 1964, stundaði
framhaldsnám í samanburðarbók-
menntum og leiklist við Sorbonne-
háskóla 1958-59 og 1961, nám í
frönsku og sænsku við HÍ1959-60
og dvaldi við nám í Oxford 1971 og
í Kaupmannahöfn 1972-73.
Sveinn var blaöamaður við Al-
þýðublaðið sumrin 1955-57, leikhst-
argagnrýnandiþess 1959-60, fulltrúi
á dagskrárdeild RÚV1959-61 og
1962, skólastjóri og kennari við
Leiklistarskóla Leikfélags Reykja-
víkur 1963-69, leikhússtjóri LR
1963-72, þjóðleikhússtjóri 1972-83,
menningarráðunautur hjá mennta-
málaráðuneytinu 1983-89 og dag-
skrárstjóri innlendrar dagskrár rík-
issjónvarpsins 1989—93.
Sveinn hefur setið í ýmsum nor-
rænum leiklistarnefndum, í RKK
1973-77, í aðalstjórn Alþjóðasam-
bands leihúsmanna 1977-81 og vara-
forseti 1979-81, í stjórn Sambands
norrænna leikhússtjóra 1965-83, í
skólanefnd Leikhstarskóla íslands,
formaður skólanefndar frá 1983 og
kennari þar af og til, í leikhstar-
ráði, í stjórn Sænsk-íslenska félags-
ins í Reykjavík í nokkur ár og for-
maður 1984-87, formaður Leik-
skáldafélags íslands 1985-89, í vara-
stjórn Amnesty International um
skeið, í úthlutunarnefnd bók-
menntaverðlauna Norðurlandaráðs
1985-90, í menningarmálanefnd
Evrópuráðsins 1986-89 og frá 1993,
formaður skáldskaparnefndar Evr-
ópuráðsins 1987-90, stundakennari
öðru hvoru frá 1970 í leikbókmennt-
um og leiklistarsögu við HÍ, í stjórn
Samtaka norrænna leiklistarfræð-
inga frá 1989, í norrænni nefnd um
óperuflutning 1985-91, í stjórn evr-
ópsku menningarstofnunarinnar í
Delfí frá 1990, í framkvæmdastjórn
Listahátíðar í Reykjavík 1968-74 og
1978-80 og í fulltrúaráðinu 1968-83,
í fulltrúaráði Samtaka um byggingu
tónhstarhúss og í stjórn 1987-90, í
opinberum nefndum um Þjóðleik-
hús, listdans og leikhstarlög, í út-
hlutunarnefnd Kvikmyndasjóðs
1986, formaður Félags leiklistar-
fræðinga 1982—88, stjórnarformaður
Listdansskóla íslands og íslenska
dansflokksins frá 1992.
Sveinn hefur flutt fyrirlestra um
íslenska leiklist og leikritun við
marga erlenda háskóla, flutt leik-
húspistla og annast um ijögur
hundruð útvarpsþætti um árabil.
Hann hefur verið stjórnandi um
sextíu verka á sviði hér á landi og
erlendis og í sjónvarpi.
Eftir Svein hafa komið út bækurn-
ar Leikhúsið við Tjörnina, útg. 1972;
Níu ár í neðra, 1984; Gabríella í Port-
úgal (barnabók), 1985; íslensk leik-
list I, útg. 1991; Bandamannasaga,
leikverk, sýnt af leikflokkum víða
um heim; Dordingull, (barnasaga)
lesin í Ríkisútvarp 1994. Hann samdi
leikritin Fjöreggið, 1984; Ég er gull
og gersemi, 1985; Búkohu, 1991, og
Viðkomustað, 1970, sem varfyrsta
íslenska sjónvarpsmyndin.
Sveinn hlaut barnabókavérðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkur 1986;
norrænu Clara Lachmann-verð-
launin 1990; Finnsku hvítu rósina;
fyrstu verðlaun í smásagnakeppni
Ríkisútvarpsins á lýðveldisafmæli
og konunglegu norsku viðurkenn-
ingarorðuna 1993.
Fjölskylda
Eiginkona Sveins er Þóra Krist-
Sveinn Einarsson.
jánsdóttir, f. 23.1.1939, listfræðing-
ur. Hún er dóttir Kristjáns G. Gísla-
sonar stórkaupmanns og Ingunnar
Jónsdóttur húsmóður.
Dóttir Sveins og Þóru er Ásta
Kristjana, f. 5.10.1969, BA frá
Brandeis-háskóla í stærðfræði og
heimspeki frá 1992 en stundar nú
doktorsnám við Harvard-háskóla.
Foreldrar Sveins voru Einar Ólaf-
ur Sveinsson, f. 12.12.1899, d. 18.4.
1984, prófessor og forstöðumaður
Stofnunar Árna Magnússonar, og
k. h„ Kristjana Þorsteinsdóttir, f.
l. 7.1903, d. 19.10.1981, píanókennari.
85 ára
Agnar K. Hreinsson,
Leifsgötu 28, Reykjavík.
Björn Kristmundsson,
Álftamýri 54, Reykjavík.
Ólafur Ásmundsson,
Langagerði 78, Reykjavík.
80ára
Jónbjörg Katrin Jónsdóttir,
Hverfisgötu62,
llafnarfiröi.
Eiginmaður
Jónbjargar var
Karl Sölvason
semerlátinn.
Jónbjörgtekur
ámótigestumá
afmæhsdaginn
kl. 15-18 í Kiwanishúsinu, Hellu-
hrauni 22, Hafharfirði.
Óli Hermannsson,
Kleppsvegi 64, Reykjavík.
Þórdís Sveinbjörg Jónsdóttir,
Sólvahagötu 43, Reykjavík.
Úthlíð, Seyluhreppi.
Guðrún Erla Melsted,
Álfsstétt 3, Eyrarbakka.
Lilja O. Ólafsdóttir,
Þórunnargötu 3, Borgarnesi.
Guðrún Helga Ágústsdóttir,
HvammabrautlO, Hafnarfirði.
Guðmundur Sveinsson,
Engil\jalla9, Kópavogi.
Ingvar Christiansen,
jloltsgötu 41, Reykjavík.
Stefán Arngrímsson,
Hhðartúni 17, Höfn í Hornafirði.
Gígja Garðarsdóttir,
Grenigrund 48,
Akranesi.
Eiginmaður
Gígjuer Sig-
urður Guðjóns-
son húsa-
smíðameistari
frá Bæjarstæöi.
Þau hjónin
taka á móti vinum og vandamönn-
ummeð grillveislu í sumarbú-
staðnura Bjarkarlundi við Munaö-
arnesl7.9.frákL18.
Kristín Br. Kristmundsdóttir,
írabakka 18, Reykjavík.
Gyða Helgadóttír
Gyða Helgadóttir, verkakona og
húsmóðir, Sólvangi, Suðurbraut 4,
Hafnarfirði, er áttræð í dag.
Starfsferill
Gyða fæddist í Melshúsum í Hafn-
arfirði, ólst þar upp og hefur átt þar
heima alla tíð þar til hún flutti á
Sólvang nú fyrir skömmu. Hún
missti mann sinn 1953 en hann fórst
með Eddunni frá Hafnarfirði. Fljót-
lega eftir það hóf hún störf hjá ís-
húsi Hafnarfjarðar og vann þar í
tuttugu og fimm ár. Þá var hún
mörg sumur í síldarsöltun hjá Ólafi
Óskarssyni, ýmist á Siglufirði, Rauf-
arhöfn eða Seyðisfirði auk þess sem
hún leysti af sem kokkur á síldar-
bátum.
Fjölskylda
Eiginmaður Gyöu var Guðbjartur
Guðmundsson, f. 29.6.1911, d. 16.11.
1953, sjómaður. Hann var sonur
Guðmundar Jónssonar, sjómanns
frá Þingeyri við Dýraíjörð, og Helgu
Jónu Jónsdóttur húsmóður.
Börn Gyðu og Guðbjarts eru Bára,
f. 8.6.1938, verslunarmaður í Hafn-
arfirði, gift Gissuri Þóroddssyni
bólstrara og eiga þau sex börn; Sig-
ríður, f. 25.9.1941, verslunarmaður
á Norðfirði, gift Magna Kristjáns-
syni skipstjóra og eignuðust þau
þrjú börn en tvö þeirra eru á lífi;
Guðný, f. 3.8.1944, skrifstofumaður
í Grindavík, gift Hinrik Bergssyni
vélstjóra og eiga þau þrjú börn;
Helga, f. 21.5.1946, starfsmaður við
prentsmiðju, gift Hafsteini Jónssyni
húsasmið og eiga þau fjögur börn;
Guðmundur, f. 1.9.1952, húsasmiður
í Hafnarfirði, kvæntur Ingibjörgu
Óskarsdóttur leikskólakennara og
eiga þau fjögur börn.
Systkini Gyðu voru Þórunn, bæj-
arfulltrúi í Hafnarfirði, nú látin, var
gift Páli Sveinssyni yfirkennara sem
er látinn; Sigríður, húsmóðir í Hafn-
arfirði, var gift Bjarna Guðmunds-
syni, verkamanni frá Stóra-Nýjabæ
í Krísuvík en þau eru bæði látin;
Gyða Helgadóttir.
Guðmundur, síðast prestur á Norð-
firði, kvæntur Huldu Sveinsdóttur
en þau eru látin; Hahdóra, dó fimm
ára.
Foreldrar Gyðu voru Helgi Guð-
mundsson, f. 1877, d. 1956, sjómaður
í Melshúsum, og Guðrún Þórarins-
dóttir, f. 1875, d. 1955, húsmóðir.
Gyða tekur á móti gestum á veit-
ingastaðnum Kænunni sem er í suð-
urhöfninni í Hafnarfirði mihi kl.
16.00 og 19.00 ídag.
75 ára 40 ára
. ■ ■" ■ ■ ............... ...... 11111 ^ iti i,........................ „ ■... ■ ..
Margrét S. Blöndal, Sigurður ÁsgeirÓIafsson,
Naustahleinl8,Garðabæ. - Flyðrugranda 14, Reykjavík.
Bósa Pétursdóttir, Þórður Sævar Pálmason,
Heiðarbrún 14, Hveragerði. Lækjarbraut 4, Hólhr.
Guðrún Sigfúsdóttir, Guðríður Þorkelsdóttir,
Dalalandi 9, Reykjavík. Heiöarbraut 9f, Keflavík.
Vilborg Ósk Ársælsdóttir,
Leifsgötu 12, Reykjavík.
Ríkharður Pescia,
Grandavegi 5, Reykjavík.
Guðmundur Einarsson,
Goðalandi 11, Rcykjavík.
Jón Ágúst Benediktsson,
Reykási 45, Reykjavík.
Sigurður Jón Hjai-tarson,
Urðarstekk 10, Reykjavík.
Eva Wilfriede Horlebein,
Eyþór Sigmundsson, ‘ Heiðarbraut32, Akranesi.
Kársnesbraut 93, Kópavogi. Matthildur Laustsen,
Inga Hauksdóttir, Svarthömrum 21, Reykjavík.
Kambsstöðum,Hálshreppi. LiljaGuðmundsdóttir,
--------------:------------------ Dalhúsum 81, Reykjavík.
50 ára
Jóna Guðrún Gísladóttir,
Ég sendi mínar bestu þakkir þeim íjölrriörgu
sem glöddu mig á margan hátt á 80 ára afmæl-
inu m/nu og gerðu mér daginn ógleymanleg-
an. Megi góður guð blessa ykkur öll.
Ásta Laufey Gunnarsdóttir
Litlagerði 14, Hvolsvelli
70 ára
Þórdis Inga Þorsteinsdóttir,
Barmahlíð 9, Reykjavik.
Þorlákur Arnórsson,
Blönduhlíö 25, Reykjavík.
60 ára
Bergljót Líndal
Bergljót Líndal, hjúkrunarforstjóri
Heilsuverndarstöðvar Reykjavíkur,
til heimihs að Skaftahlíð 8, Reykja-
vík, verður sextug á morgun.
Starfsferill
Bergljót fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp við Bergstaðastrætið.
Hún lauk stúdentsprófi frá MR1954
og námi frá Hjúkrunarskóla íslands
1957, stundaði framhaldsnám í
heilsuvernd í Stokkhólmi 1972 og í
stjórnun við Hjúkrunarskóla ís-
lands 1986. Þá fór hún náms- og
kynnisferð til Minneapolis í Banda-
ríkjunum sumarið 1970.
Berglj ót hóf störf við Heilsuvernd-
arstöð Reykjavíkur 1958 og hefur
unnið þar á ýmsum deildum. Hún
er hjúkrunarforstjóri þar frá 1974.
Bergljót hefur setið í stjómum og
verið formaður í dehd hjúkrunarfor-
stjóra innan HFÍ og hefur setið í út-
gáfunefnd Hjúkrunarkvennatals og
Hjúkrunarfræðingatals seinni útg.
Fjölskylda
Bergljót giftist 10.8.1957 Guð-
mundi Jónassyni, f. 12.9.1929, d.
16.6.1962, kennara. Hann var sonur
Jónasar Jónassonar, kennara og
hreppstjóra í Flatey á Skjálfanda,
og Guðríöar Kristjánsdóttur hús-
freyju.
Seinni maður Bergljótar er Einar
Þ. Guðjohnsen, f. 14.4.1922, fram-
kvæmdastjóri. Hann er sonur Svein-
bjöms Guðjohnsens, sparisjóðs-
stjóra á Húsavík, og Hahgerðar Ey-
jólfsdóttur Guðjohnsen húsmóður.
Börn Bergljótar og Guðmundar
eru Jónas Guðmundsson, sýslu-
maður í Bolungarvík, kvæntur Sól-
rúnu Geirsdóttur kennara og er
dóttir þeirra Halldóra, f. 12.6.1994,
auk þess sem dóttir Jónasar frá því
áður með Hildi Jónsdóttur, er Helga
Theodóra, f. 14.5.1989; Guömundur
Þór Guðmundsson, f. 13.3.1962, full-
trúi í dóms- og kirkjumálaráðuneyt-
inu, kvæntur Ehnu Davíðsdóttur
tónlistarnema en böm þeirra eru
Bergljót Gyða, f. 17.1.1985, Kolbrún
María, f. 4.6.1990, og Kristján Páll,
f. 24.12.1991.
Stjúpsynir Bergljótar eru Björn
Jóhann Guðjohnsen, f. 8.3.1961, vél-
fræðingur, og Sigurður Kristinn
Guðjohnsen, f. 27.8.1962, myndlist-
armaður.
Systkini Bergljótar: Páh Líndal, f.
9.12.1924, d. 25.7.1992, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu; Sig-
urður Líndal, f. 2.7.1931, prófessor
við lagadeild HÍ; Álfheiður Líndal,
f. 15.8:1932, húsmóðir.
Foreldrar Bergljótar vom Theo-
dór B. Líndal, f. 5.12.1898, d. 2.2.
1975, prófessor við lagadeild HÍ, og
k.h„ Þórhildur Líndal, f. Briem 7.12.
1896, d. 12.3.1991, húsmóðir.
Ætt
Theodór var sonur Bjöms Líndal,
yfirdómslögmanns og útgerðar-
manns, Jóhannessonar, og k.h„ Sig-
Bergljót Líndal.
ríðar Metúsalemsdóttur, b. á Arnar-
vatni, Magnússonar, bróður Þórar-
ins, föður Magnúsar, afa Magnúsar
Torfasonar hæstaréttardómara.
Þórarinn var einnig faðir Þorbergs,
langafa Steingríms prófessors, föð-
ur Héðins skákmanns.
Þórhildur var dóttir Páls Briem
amtmanns, bróður Eiríks presta-
skólakennara, föður Eggerts í Við-
ey, afa Eggerts stærðfræðiprófess-
ors. Annar bróðir Páls var Ólafur,
alþm. á Álfgeirsvöllum og formaður
Framsóknarflokksins, faðir Þor-
steins, prófasts og ráðherra, og Ingi-
bjargar, móður Þóröar, fyrrv. ríkis-
saksóknara. Systir Páls var Kristin,
móðir Ingibjargar, konu Jóns Þor-
lákssonar forsætisráðherra og Mar-
íu Kristínar, móður Gunnars Thor-
oddsens forsætisráðherra. PáU amt-
maður var sonur Eggerts Briem,
sýslumanns á Reynistað, Gunn-
laugssonar Briem, amtmanns á
Grund, ættfööur Briemættarinnar.
Móðir Páls var Ingibjörg Eiríksdótt-
ir, sýslumanns í Kohabæ, Sverris-
sonar.