Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Side 51
LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994
59
Afmæli
Armann Snævarr
Ármann Snævarr, fyrrv. háskóla-
rektor og hæstaréttardómari, Ara-
götu 8, Reykjavík, verður sjötíu og
fimm ára á morgun.
Starfsferill
Ármann fæddist á Nesi í Norðfirði
og ólst þar upp. Hann lauk stúdents-
prófi frá MA1938, embættisprófi í
lögfræði við HÍ1944, stundaöi fram-
haldsnám í lögfræði við háskólana
í Uppsölum 1945-46, í Kaupmanna-
höfn 1946-47, í Ósló 1947^48 og við
Harvard Law School 1954-55.
Ármann var prófessor í lögum við
HÍ1948-72, rektor HÍ1960-69, gisti-
prófessor við Uppsalaháskóla
1969-70, við Ohio Northern Univer-
sity 1971 og 1972 og við McGeorge
lagaskólann í Sacramento í Kali-
forníu 1976. Hann var hæstaréttar-
dómari 1972-84, stundakennari við
lagadeild HÍ um árabil frá 1973, við
guðfræðideild 1967-79 og 1992 og við
Fósturskóla íslands. Hann hefur
verið prófdómari við lagadeild HÍ.
Ármann var formaður Náttúru-
verndamefndar Reykjavíkur
1957-62, sat í stjórn Norræna húss-
ins 1965-76 og formaður þar 1965-68,
í stjórn norrænu lögfræðingaþing-
anna, íslandsdeildar frá 1951 og
formaður þar 1972, formaður stjórn-
ar Lögfræðingafélags íslands
1958-65 og Bandalags háskóla-
manna 1958-64, forseti Þjóðvinafé-
lagsins 1962-66, í stjóm Vísindasjóðs
1957-74, fulltrúi HÍ í háskóla- og vís-
indanefnd Evrópuráðsins 1961-69, í
fyrstu stjórn Samtaka háskólarekt-
ora frá Evrópulöndum í Göttingen
1964, í stjórn Handritastofnunar ís-
lands 1962-66, fulltrúi Sáttmála-
sjóðs í stjórn Ámastofnunar í Kaup-
mannahöfn 1969-73, formaður
stjórnar Dómarafélags íslands
1977-84, formaður Félags Samein-
uðu þjóðanna á íslandi 1960-69, for-
seti Rotaryklúbbs Reykjavíkur
1987-88, formaður hegningalaga-
nefndar 1970-85 og sifjalaganefndar
frá 1957, hefur átt sæti í dómnefnd-
um varðandi prófessorsembætti,
þ.á m. viðÁrósarháskólaogÓslóar-
háskóla, hefur verið andmælandi
við doktorsvörn við lagadeild HÍ
1968,1971 og við Cambridgeháskóla
1973. Hann hefur flutt fyrirlestra við
háskóla á öllum Norðurlöndunum
og í Kanada, Þýskalandi og í Rúss-
landi. Þá hefur hann samið fjölmörg
fmmvörp til laga, einn eða ásamt
öðrum.
Ármann hefur samið tjölda rita
og ritgerða um lögfræðileg efni, sum
hver margsinnis útgefin. Má þar
nefna Almenna lögfræöi, Þætti úr
refsirétti, siíjarétt, bamarétt og
erfðarétt. Þá hefur hann setið í út-
gáfustjómum, verið ritstjóri og gefið
út fjölda laga- og dómasafna. Hann
sat í útgáfustjóm Kulturhistorisk
Leksikon 1961-80.
Ármann var sæmdur doktors-
nafnbót í lögfræði við Uppsalahá-
skóla 1970, við Ohio Northen Uni-
versity 1973, Helsingforsháskóla
1980 og Óslóar- og Kaupmannahafn-
arháskóla 1986. Hann var sæmdur
norrænu lögfræðivísindaverðlaun-
unum 1993 sem veitt eru þriðja
hvert ár. Hann hefur verið félagi í
Vísindafélagi íslendinga frá 1955 og
var forseti þess 1962-65, varð erlend-
ur félagi í finnsku vísindaakadem-
íunni 1971, Academy of Human
Rights frá 1964 og alþjóðasamtökum
háskólarektora 1964.
Ármann er heiðursfélagi í finnska
lögfræðingafélaginu, Juridiska För-
eningen í Finnlandi, í Islándska sáU-
skapet í Uppsölum, í Lögfræðingafé-
lagi íslands, Dómarafélagi íslands,
Orator, félagi laganema og í finnska
sakfræðingafélaginu. Hann var
sæmdur stórriddarakrossi fálka-
orðunnar 1982 og hefur verið sæmd-
ur fjölda annarra orða og heiðurs-
merkja, íslenskra og erlendra.
Fjölskylda
Ármann kvæntist 11.11.1950 Val-
borgu Sigurðardóttur, f. 1.2.1922,
uppeldisfræðingi og skólastjóra
Fósturskóla íslands. Hún er dóttir
Sigurðar Þórólfssonar, skólastjóra
Lýðháskólans á Hvítárbakka, og s.
k. h., Ásdísar Margrétar Þorgríms-
dóttur.
Börn Ármanns og Valborgar eru
Sigríður Ásdís, f. 23.6.1952, M.A. í
alþjóöasamskiptum, sendiherra ís-
lands í Stokkhólmi, gift Kjartani
Gunnarssyni, lögfræðingi og fram-
kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokksins;
Stefán Valdemar, f. 25.10.1953, mag-
ister í heimspeki, ljóðskáld og há-
skólakennari í Björgvin; Sigurður
Ármann, f. 6.4.1955, M.Sc. í hag-
fræði, forstöðumaður hjá Þjóöhags-
Armann Snævarr.
stofnun, kvæntur Beru Nordal, hst-
fræðingi og forstöðumanni Lista-
safns íslands; Valborg Þóra, f. 10.8.
1960, fóstra og hdl.; Árni Þorvaldur,
f. 4.3.1962, BA í sagnfræði, frétta-
maður hjá ríkissjónvarpinu en kona
hans er Ásdís Björg Schram B.Ed.
Systkini Ármanns: Árni, verk-
fræðingur og ráðuneytisstjóri í
Reykjavík, nú látinn; Laufey, hús-
móðir í Reykjavík; Stefán, prófastur
á Dalvík, nú látinn; Guðrún, hús-
móðiríGarðabæ.
Foreldrar Ármanns voru Valde-
mar Valvesson Snævarr, skólastjóri
á Húsavík og síðar í Neskaupstað,
f. 22.8.1883, d. 18.7.1961, og k.h.,
StefaníaErlendsdóttir, f. 6.11.1883,
d. 11.12.1970, húsmóðir.
Ármann er að heiman á afmælis-
daginn.
90 ára
50ára
Daðína Þórarinsdóttir,
Skjólvangi, Hrafnistu, Haiharfirði.
Magdalena Zakaríasdóttir,
Heiðargerði 18, Akranesi.
Guðrún Jónsdóttir,
Kieppsvegi64, Reykjavík.
80ára
Sæmundur Jónsson,
Friðarstöðum, Hveragerðí.
75ára
Jóhann Þ. Eiríksson,
Aðalbraut 63, Raufarhöfn.
Benedikt Jónsson,
Tjarnargötu 29, Keflavík.
Jens Ásgeir Guðmundsson,
Sólheimum 12, Breiðdalsvík.
Ásbjörn Magnússon,
Súlunesi 7, Garöabæ.
Guðlaugur Gunnarsson,
Svínafelli 2, Víðihlíð, Hofshreppi.
Hrafn Haraldsson,
starfsmaður ; i
GeneralSyst-
ems &Software
áíslandihf.,
Vesturbergi26,
Reykjavík.
Eiginkona
HrafnserÞór-
unn Gumiars-
dóttir. Þau hjónin taka á móti gest-
um í sal Lögreglufélagsins, Braut-
árholti 30,3. hæð, áafmælisdaginn
milhkl.l6ogl9.
Sigurður Ingólfsson,
Fagrabergi46, Hafnarfirði.
Stefán Valdimarsson,
Ásgötu 15, Raufarhöfn.
Halldóra Þ. Guðmundsdóttir,
Lyngholti, Laugardalshreppi,
Eiginmaður hennar er Böðvar Ingi
Guðmundsson. Þau hjónin taka á
móti gestum i samkomusal Barna-
skólans á Laugarvatni eftir kl. 20 á
afmælisdaginn.
Sigríður Karlsdóttir,
Flyðrugranda6, Reykjavík.
Sigríður Markúsdóttir,
Vesturhólum 19, Reykjavík.
60 ára
Ólafur Edvinsson,
Selvogsbraut *
15, Þorláks-
höfn.
Konaólafser
Monza Edvins-
son húsmóðir.
Þau hjónin
verðaaðheim-
an á afmælis-
daginn.
Jóhanna Guðrún Finn.sdóttir,
Mávabraut 8c, Keflavík.
Margrét Ingvarsdóttir,
Aflagranda 14, Reykjavík.
Jóhanna María Ingvadóttir,
Túngötu 18, Grindavik.
Guðrún Björk Guðsteinsdóttir,
Logafold 85, Reykjavík.
Hlíf Bente Sigurjónsdóttir,
Lynghaga 6, Reykjavík.
IngibjörgNielsen,
Fannafold 81, Reykjavík.
Einar Már Guðmundsson
Einar Már Guðmundsson rithöf-
undur, Miðhúsum 9, Reykjavik,
verður fertugur á morgun.
Starfsferill
Einar fæddist í Reykjavík 18.9.
1954. Hann lauk stúdentsprófi frá
MT1975, BA-prófi í bókmenntum
og sagnfræði við HÍ1979 og stundaði
framhaldsnám í bókmenntafræði
við Kaupmannahafnarháskóla.
Hann hefur stundað ritstörf frá 1980.
Ljóðabækur Einars: Er nokkur í
kórónafótum hér inni?, 1980; Sendi-
sveinninn er einmana, 1980; Róbin-
son Krúsó snýr aftur, 1981; Klettur
í hafi, með málverkum eftir Tolla,
1991. Skáldsögur Einars: Riddarar
hringstigans, 1982; Vængjaslátturí
þakrennum, 1983; EftirmáM regn-
dropanna, 1986; Rauðir dagar, 1990;
Englar alheimsins, 1993. Hann hefur
samið smásagnasafnið Leitin að
dýragarðinum, 1988, ogbarnasög-
urnar Fólkið í steinunum, 1992, og
Hundakexið, 1992. Þá samdi hann,
ásamt Friðriki Þór Friðrikssyni
handritin að kvikmyndunum Böm
náttúrunnar og Bíódagar.
Einar hlaut fyrstu verðlaun í bók-
menntasamkeppni Almenna bóka-
félagsins fyrir skáldsöguna Riddar-
ar hringstigans, 1982, bjartsýnis-
verðlaun Brostes 1988 og Menning-
arverðlaun DV í bókmenntum fyrir
skáldsöguna Englar alheimsins.
Fjölskylda
Kona Einars er Þómnn Jónsdótt-
ir, f. 6.11.1955, fóstra, dóttir Jóns
Bjamasonar og Maríu Guðmunds-
dóttur.
Börn Einars og Þórunnar em
Anna Björk, f. 13.1.1983; Hildur Úa,
f. 13.5.1984; Hrafnkell Már, f. 17.3.
1987; Guðmundur Már, f. 11.4.1990.
Stjúpdóttir Einars er Rakel María
Axelsdóttir, f. 17.2.1977.
Systkini Einars: Skúli Ragnar, f.
18.8.1942, verslunarmaður í Reykja-
vík; Pálmi Örn, f. 22.4.1949, d. 27.5.
1992, listamaður í Reykjavík; Guð-
mundur Hrafn, f. 2.4.1959, lífíræð-
ingur í Svíþjóð; Auður Hrönn, f.
10.5.1962, arkitekt í Þýskalandi.
Foreldrar Einars em Guðmundur
Guðmundsson, f. 10.5.1922, bifreiða-
stjóri í Reykjavík, og Anna Pálma-
dóttir, f. 2.12.1928, skrifstofumaður.
Ætt
Guðmundur er sonur Guömund-
ar, sjómanns í Reykjavík, Magnús-
sonar, sjómanns í Ánanaustum,
Guðmundssonar, b. í Kópavogi,
Árnasonar. Móðir Guðmundar sjó-
manns var Margrét, systir Gísla,
langafa bankastjórarina Birgis
ísleifs Gunnarssonar og Björgvins
Vilmundarsonar. Margrét var dóttir
Bjöms, b. á Bakka, Guðlaugssonar.
Móðir Guðmundar var Ingibjörg
Gísladóttir, b. á Syðri-Brúnavöllum,
Vigfússonar, b. á Reykjum, bróður
Ingunnar, langömmu Grétars Fells
rithöfundar og Þorgeirs, afa Péturs
Gunnarssonar rithöfundar. Vigfús
var sonur Eiríks, ættfóður Reykja-
ættarinnar, Vigfússonar, og Guð-
rúnar Kolbeinsdóttur, skálds í
Miðdal, Þorsteinssonar. Móðir Gísla
var Ingibjörg Gísladóttir frá Ár-
hrauni. Móðir Ingibjargar var Vil-
borg Jónsdóttir, b. í Hellukoti, Jóns-
sonar, b. á Ásgautsstöðum, Jónsson-
ar, b. á Leiðólfsstöðum, bróður
Beinteins, langafá EMsabetar,
langömmu Guðmundar símritara,
föður Jónasarrithöfundar. Bein-
teinn var einnig langafi Helgu,
langömmu Játvarðs Jökuls Júlíus-
sonar rithöfundar og langafi Sigríð-
Einar Már Guðmundsson.
ar, langömmu Júlíu, móður Svein-
björns Baldvinssonar rithöfundar.
Jón var sonur Ingimundar, b. á
Hólum, Bergssonar, ættföður
Bergs-ættarinnar, Sturlaugssonar.
Móðir Jóns í Hellukoti var Sigríður
Jónsdóttir, ættföður Nesættarinnar,
Snorrasonar. Móðir Vilborgar var
Kristín Gottsveinsdóttir. Móðir
Kristínar var Kristín Magnúsdóttir,
b. í Steinsholti og ættföður Hörgs-
holtsættarinnar.
Bróðir Önnu er Haukur aðstoö-
arrafmagnssljóri. Anna er dóttir
Pálma, landnámsstjóra í Reykjavík,
bróöur Ólafs læknis, afa Ólafs Jó-
hannssonar fréttamanns. Pálmi er
sonur Einars, b. á Svalbarða í Döl-
um, Guðmundssonar, b. á Gilja-
landi, Bjamasonar.
Móðir Önnu var Soffia, systir Sig-
fúsar ritstjóra, föður Öddu Báru
veðurfræðings. Hálfsystur Sofííu
eru Sigrún, móðir Kristjáns Eld-
járns forseta, föður Þórarins, skálds
og rithöfundar, og Arnfríður, móðir
GíslaJónssonarmenntaskólakenn-
ara. Soffía var dóttir Sigurhjartar,
b. á Uröum, Jóhannssonar.
Gunnar Eysteinn Sigurbjömsson
Gunnar Eysteinn Sigurbjömsson
múrarameistari, Lyngbrekku 14,
Kópavogi, er sextugur í dag.
Starfsferill
Gunnar fæddist að Þröm í Staðar-
hreppi í Skagafirði en ólst upp í
GrófargiM í Seyluhreppi. Hann lauk
búfræðiprófi frá Hólum 1954,
sveinsprófi í múrsmíði 1960 og öðl-
aðist meistararéttindi 1964.
Fjölskylda
Gunnar kvæntist 30.3.1956 Sigríði
Óladóttur, f. 12.4.1935, húsmóður
og starfsmanni hjá Félagsmála-
stofnun Kópavogs. Hún er dóttir Óla
Péturs MöUer, skólastjóra á Þórs-
höfn, sem lést 1973, og Helgu EMas-
dótturkennara.
Börn Gunnars og Sigríðar eru Sig-
urbjörn Tryggvi, f. 20.11.1954, b. og
múrari í Þjóðólfshaga í Holtahreppi,
kvæntur Magneu Bjamadóttur og
eiga þau tvö börn; ÓM Pétur, f. 25.6.
1956, b. í Litlu-Sandvík í Sandvíkur-
hreppi í Flóa'kvæntur Aldísi Páls-
dóttur og eiga þau tvo syni; And-
vana sonur, f. 25.6.1956; Þorsteinn
Marinó, f. 24.6.1959, trésmiður í
Reykjavík, og á hann tvö böm; Erla
Dögg, f. 19.8.1967, húsmóðir í Garði
í Gerðahreppi, í sambúð með Grét-
ari Einarssyni og á hún eina dóttur.
Systkini Gunnars: Hulda, f. 4.9.
1922, húsmóðir á Sauðárkróki; Jór-
unn, f. 3.7.1925, d. 30.5.1979, hús-
móðir á Akureyri; Árni, f. 29.8.1927,
verkamaður í Kópavogi; Ólafur, f.
20.9.1930, d. 22.6.1991, bílstjóri á
Akranesi; Stefán, f. 2.10.1932, bif-
vélavirki á Akureyri; Sæmundur, f.
21.7.1936, b. og vörubílstjóriá
Syðstu-Grund í Skagafirði; Ásta, f.
11.11.1938, húsfreyja á Flugumýri í
Skagafirði; Gígja, f. 11.6.1940, kenn-
ari í Mývatnssveit; María, f. 20.9.
1942, starfsmaður hjá Félagsmála-
stofnun á Akureyri; Tryggvi, f. 15.7.
1945, b. á Jaðri á Fljótsdalshéraði;
Hugrún, f. 7.12.1949, húsmóðir á
Akureyri.
Foreldrar Gunnars vom Sigur-
björn Tryggvason, f. 30.3.1896, d.
14.9.1984, bóndi í GrófargiM í Seylu-
hreppi, og k.h., Jónanna Jónsdóttir,
f. 23.1.1904, d. 14.8.1969, húsfreyja.
Gunnar verður að heiman á af-
mæMsdaginn.
Gunnar Eysteinn Sigurbjörnsson.