Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Qupperneq 56

Dagblaðið Vísir - DV - 17.09.1994, Qupperneq 56
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- 7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. 3.000 krónur. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 632700 Frjálst, óháð dagblað LAUGARDAGUR 17. SEPTEMBER 1994. Sophia hitti dóttur sína: Erfiðasta stund lífs míns Forstjóri Hagkaups í stríði við Mjólkursamsöluna: Sótti 5 þúsund mjólkur- lítra til Borgarness Sendibíll frá Hagkaupi fór upp í Borgarnes í gær eftir 5 þusund lítr- um af nýmjólk og léttmjólk hjá Mjólkursamlagi Borgfirðinga. Ósk- ar Magnússon, forstjóri Hagkaups, sem fór ásamt böstjóra í ferðina, sagði í samtali viö DV að ferðin heíði verið farin til aö koma til móts við óskir viðskiptavina Hag- kaups en í Borgarnesi er mjólkin pökkuð í hærri og mjórri eins litra umbúðir en í Mjólkursamsölunni við Bitruháls í Reykjavik og þykja þær umbúðir meðfærilegri fyrir neytendur. Sökum meiri gæða umbúðanna er mjólkurlítrinn í þessum umbúðum seldur á einni krónu meira en í hinum umbúðun- um. Mjólkurumbúðir af þessu tagi hafa ekki fengist í verslunum í Revkjavík mörg undanfarin ár. Óskar sagði við DV að Hagkaup hefði farið fram á það við Mjólkur- samsöluna að hún útvegaði mjólk í þessum umbúðum en beiðninni var hafnað. Síðan var leitað til Mjólkurbús Flóamanna á Selfossi fyrir tveimur vikum en þar fékk Hagkaup ekki afgreiðslu þar sem kassar voru ekki sagðir til utan um mjólkina. Þaö kom ekki í Ijós fyrr en sendibíll frá Hagkaupi var kom- inn til Selfoss. Mjólkursamsalan í Reykjavík verður þarna af miklum viðskipt- um og forráðamenn hennar eru allt annað en ánægðir með þessi viðskipti Hagkaupsmanna sam- kvæmt heimildum DV. Hafa þeir reynt með öllum mætti að koma í veg fyrir áform Hagkaups. DV gerði árangurslausar tilraunir til að hafa uppi á Mjólkursamsölu- mönnum síðdegis í gær. Forstjór- inn var ekki við og framkvæmda- stjóri sölusviös svaraði ekki skila- boðum. Mjólkurfernunum úr Borgamesi var vel tekið af viðskiptavinum Hagkaups i gær. DV-mynd BG LOKI Skál fyrir Hagkaupi- í mjólk! „Þetta var erfiðasta stund sem ég hef upplifað. Við fundum Dagbjörtu í hnipri úti á svölum ásamt eigin- konu Hahms A1 þar sem hún hélt á nýfæddu barni þeirra. Halim hafði hins vegar tekið yngri dóttur okkar með sér í vinnuna. Dagbjört brast strax í grát en harkaði af sér því að hún var hrædd við að sýna tilfinn- ingar sínar í viðurvist eiginkonu Hahms. Við töluðum saman inni og náðum aö vera saman í 10 til 15 mín- útur. Hins vegar stóð eiginkona Hal- ims allan tímann yfir okkur. Dagrún sagðist ekki þora með mér þar sem henni yrði refsað og hún vissi ekki hvort hún myndi lifa það af,“ sagði Sophia Hansen í samtali við DV en í gær hitti hún eldri dóttur sína í Ist- anbúl. Sophia segir að Dagbjört hafi verið fátæklega klædd og með slæðu og í pilsi að hætti múslíma og í mikilli geðshræringu. Hún segist ekki hafa viljað fylgja eftir umgengnisrétti sín- um þar sem hún hafi fundið til með dóttur sinni og skynjað hvað hún var hrædd. „Ég varð samt að fara og hitta dætur mínar á þennan máta því líðan mín var orðin óbærileg. Ég hef ekki hitt þær í rúmlega hálft þriðja ár. Halim kom þarna og blótaði mér og talaði illa til mín, ýmist á íslensku eða tyrknesku. Það endaði með því að við fórum en ég sagði Dagbjörtu að ég myndi ekki pína hana til að koma en hún mætti vita það að ég myndi halda áfram að berjast. Við værum í raun og veru búin að vinna málið. Það væri einungis tímaspurs- mál hvenær við yrðum allar saman á ný. Hún sagði fátt en tárin runnu úr augum hennar og hún hélt fast í hendur mínar,“ segir Sophia. Veöriö á sunnudag og mánudag: Hlýjast norðaustanlands Á sunnudag verður suðaustlæg átt, rigning á Suður- og Vesturlandi en úrkomulítið noröaustanlands. Hiti verður 7-14 stig að deginum, hlýjast norðaustanlands. Á mánudag veröur austan- og norðaustanátt, rigning um norðan- og austanvert landið en þurrt á Suðvesturlandi. Hiti &-12 stig. Veðrið 1 dag er á bls. 61. Ægir Már Karason, DV, Suðumesjum; „Þetta fór að aukast verulega þegar atvinnuleysið jókst og erfiðara var að fá vinnu,“ sagði Karl Hermanns- son, aðstoðaryfirlögregluþjónn í Keflavík, í samtali við DV. Mörg inn- brot hafa verið framin á Suðurnesj- um undanfarið og hefur lögreglan fengið margar tilkynningar um inn- brot og þjófnaði úr húsum, bílum og fyrirtækjum. Mikið er um að þjófarnir séu farnir aö vakta húsin og bíða eftir að hús- ráðendur fari. Biður lögreglan fólk að hafa þetta í huga þegar farið er í lengri ferðir. Fíkniefnifundust viðhúsleit Innbrotafaraldur Blómabændur og -verslanir standa fyrir mikilli blómasýningu í Perlunni um helgina sem ber heitið Islensk blóm '94. Þar gefur aö líta allt þaö besta sem blómaskreytingamenn hafa upp á að bjóða og fólk getur séð fjölbreyttar blómaafurðir, jafnt islenskar sem innfluttar. Hér má sjá eina fagra blómarós virða fyrir sér aðrar rósir á sýningunni í gær. Sýningunni lýkur kl. 18 á morgun. DV-mynd Brynjar Gauti Fíkniefnadeild lögreglunnar fann við húsleit í austurbænum 40 g af hassi og lítið eitt af amfetamíni. Kona sem var handtekin viðurkenndi að eiga efnið og var henni sleppt að loknum yfirheyrslum. Hún hefur áður komið við sögu lögreglu. KEÐJUTALIUR SuAurlandsbraut 10. S. 686489.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.