Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Page 14
14
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994
Útgáfufélag: FRJALS FJOLMIÐLUN HF.
Stjómarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF., ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð í lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Enn svartar skýrslur
Þegar núverandi ríkisstjóm tók við völdum fyrir meira
en þremur árum setti hún nefnd eigin manna til að fara
yfir gerðir forvera sinna, einkum til að gera úttekt á stöðu
ýmissa sjóða sem störfuðu á ábyrgð ríkisins. Niðurstaða
þessa nefndarstarfs vom svartar skýrslur um svokallað-
an „fortíðarvanda“ ríkisins. Þar kom skýrt í ljós að ráð-
herrar höfðu fómað miklum fjármunum af almannafé í
eins konar lyQagjafir til atvinnufyrirtækja víðs vegar um
landið. Markmið þessa fjárausturs var væntanlega að
stuðla að aukinni atvinnu. Það kann svo sem að hafa
tekist tímabundið, en sú skammvinna uppstytta kostaði
líka skattborgarana mikið fé sem er glatað.
Þau stjómmálaöfl sem komust til valda í tveimur af
stærstu bæjarfélögum landsins, Reykjavík og Hafnar-
firði, við bæjarstjómarkosningamar síðastbðið vor fengu
sjálfstæðar endurskoðunarskrifstofur til að gera úttekt á
fjárhagslegri stöðu bæjarfélaganna við valdaskiptin. Fyr-
ir nokkrum dögum birtist skýrsla sérfræðinga um fjár-
hagsstöðu Hafnarfjarðar og í gær var kynnt hbðstæð
úttekt löggiltra endurskoðenda á fjármálum Reykjavíkur.
Báðar þessar skýrslur em kolsvartar og einkennast
af hinu sama: gegndarlausum fláraustri til framkvæmda
fyrir lánsfé. í báðum bæjarfélögunum hafa stjórnendur
bersýnbega fylgt þeirri stefnu að framkvæma strax en
láta framtíðina um að borga brúsann.
Skýrslan um fjárhagsstöðu Hafnarfjarðar, þar sem
alþýðuflokksmenn höfðu farið með völdin í mörg ár,
sýnir að hebdarskuldir bæjarfélagsins höfðu stokkið úr
um 1.500 mdljónum króna í árslok 1991 í ríflega 3.100
mibjónir við meirihlutaskiptin 1 sumar. Þessar tölur ná
tb bæjarsjóðs sjálfs, leiguíbúðasjóðs og holræsasjóðs.
Nettóskuldir Hafnarfjarðar höfðu samkvæmt þessari
úttekt hækkað úr 530 mbljónum króna í desember 1991
í 2.500 mbljónir um mitt yfirstandandi ár. Hebdarskuldir
bæjarins, að meðtöldum skuldum rafveitunnar, hafnar-
sjóðs og húsnæðisnefndar, námu við valdaskiptin í sum-
ar rúmum fimm mibjörðum króna.
Samkvæmt nýju skýrslunni um fjárhagsstöðu Reykja-
víkurborgar, þar sem sjálfstæðismenn fóru með völdin
um langt árabb þar tb í vor, hafa skuldirnar líka hrann-
ast upp eins og í Hafnarfirði. Á síðasta kjörtímabbi, eða
frá árslokum 1990 tb valdaskiptanna í borgarstjóm fyrr
á þessu ári, jukust skuldir borgarinnar umfram peninga-
legar eignir um tæpar 6.000 mibjónir króna.
Tabð er að í árslok verði heildarskuldir borgarsjóðs
komnar 1 12.000 mbljónir.
Abar framkvæmdir borgarinnar á þessu ári em fjár-
magnaðar með lánsfé, enda taka rekstrarútgjöld Reykja-
víkur nú tb sín abar tekjur borgarinnar og vel það.
Bæði talsmenn sjálfstæðismanna í Reykjavík og Al-
þýðuflokksins í Hafnarfirði hafa sömu afsökunina fyrir
þessari gífurlegu skuldasöfnum. Hún er sú að þeir hafi
verið að tryggja aukna atvinnu og sýna dug í fram-
kvæmdum, enda séu þeir stoltir af verkum sínum. Rök-
semd síðustu ríkisstjómar fyrir öbu sjóðasukkinu var
reyndar af svipuðum toga.
Þessar svörtu skýrslur sýna almenningi í landinu að
btlu máb virðist skipta hvaða stjómmálaflokkar hreiðra
um sig í valdastólunum. Jafnt sjálfstæðismenn í borgar-
stjóm Reykjavíkur sem alþýðuflokksmenn í bæjarstjóm
Hafnarfjarðar hafa keppst við að að moka út fjármagni
sem ekki er tb - og senda svo reikninginn tb skattborg-
ara framtíðarinnar.
Ebas Snæland Jónsson
Hvemig ferjur
verda mann-
drápsgímöld
Tugþúsunda tonna gegnumakst-
ursferjur eru svar viö kröfu um sem
hraðastar og kostnaðarminnstar
samgöngur á sjó með farþega og far-
artæki milli hafnarborga. Meginein-
kenni þeirra er bílaþilfar með hliðum
á báðum stöfnum svo fólksbílar jafnt
sem vöruflutningabákn geta ekið
rakleitt inn um skut í brottfararhöfn
og síðan út um stefni í áfangastað,
eða öfugt.
Til að sjá geta þessi stórskip virst
sjóborgir en þegar komið er um
borð getur sótt að mönnum sú
kennd aö vera staddir í mann-
drápsgímaldi þar sem treysta verð-
ur mestmegnis á lyftur til aö kom-
ast milli þilfara sem kunna að vera
á annan tug. Og reynslan sýnir að
slys á þessum farkostum eru ein-
hver hin mannskæðustu sem nú
eiga sér stað á sjó.
Þó kastaði fyrst tólfunum þegar
ferjan Estonia sökk skyndilega á
Eystrasalti í vikunni á leið frá
heimahöfn, Tallinn í Eistlandi, til
Stokkhólms. Tahð er þegar þetta
er ritað að þar hafi drukknað um
900 manns.
Það ferjuslys sem gaumgæfileg-
ast hefur verið rannsakað átti sér
stað 1987, skammt undan belgísku
höfninni Zeebrugge. Þar sökk
enska feijan Herald of Free Enter-
prise og 193 menn fórust. Skipið
sökk á grunnsævi og unnt var að
ganga úr skugga um að orsök slyss-
ins var að láðst hafði að loka hurð-
um í stafnhliði ferjunnar svo sjór
gekk óhindrað inn á bílaþilfarið.
Einn af skipverjum á Estonia sem
af komust hefur skýrt frá því að á
siglingunni hafi hann orðiö þess
var aö sjór var tekinn að flæða ínn
á bílaþilfarið svo honum tók í hné.
Sá sjór hefur trauðla getað gengið
inn í skipið aöra leið en um stafn-
hlið.
Um leið og sjór fer að kastast til
á bílþilfari missir skipið stöðug;
leika og tekur auknar veltur. Á
siglingu Estonia var hvassviðri,
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
sex til sjö vindstig, og ölduhæð sex
metrar eða meira.
Við aukinn velting eykst áraun á
festingar bíla um allan helming,
sérstaklega vörubíla með þunga
tengivagna. Sænskir skipaeftirhts-
menn, sem voru um borð í Estonia
í Tallinn að leiðbeina eistneskum
nemum í grein sinni daginn fyrir
slysið, skýra frá að festingar bíla
hafi verið kaðlar og þeir margir
trosnaðir, en ekki keðjur eins og
þarf ef vel á aö vera.
Skýringar vantar með öllu á
hvers vegna vélar Estonia stöðvuð-
ust og mönnum þykir með ólíkind-
um hversu skjótt skipinu hvolfdi
og það sökk. Líklegasta tilgátan
þykir sú að bílarnir á bílaþilfari
hafi kastast út í aðra síðuna á skipi
sem var orðið stjómlaust og rak
fyrir veðri.
Rannsóknarnefnd undir forsæti
samgönguráðherra Eistlands og
með aðild Svía og Finna á að reyna
að grafast fyrir um orsök eða or-
sakir slyssins. Verður reynt að
kanna flakið á sjávarbotni eftir
föngum með myndatöku en ólíklegt
þykir að það náist upp.
Hver sem niðurstaðan verður er
ljóst að reglur um gerð og sighngu
gegnumakstursferja verða teknar
til nýrrar skoðunar í framhaldi af
þessu skelfilega slysi. Þar koma
ekki aðeins til afdrif Estonia.
Ekki er langt liöið síðan pólska
ferjan Jan Hevelius sökk sunnar á
Eystrasalti. Eldur kom upp fyrir
íjórum árum í ferjunni Scandin-
avian Star á siglingu milli Noregs
og Danmerkur og varð þar mikið
manntjón.
Eftir að Herald of Free Enterprise
sökk voru settar nýjar reglur um
smíði gegnumakstursferja, sér í
lagi til að auka stöðugleika þeirra,
og sömuleiðis hert ákvæði um aö
öryggisreglum sé framfylgt um
borð. En undir hæhnn er lagt hvort
stöðugleikabægslum er bætt á eldri
skip og eftirlit með að öryggis-
ákvæði séu haldin veltur á rögg-
semi og nákvæmni siglingayfir-
valda í landinu þar sem skipin eru
gerð út. Áður en Estonia fórst var
búið að ákveða að kalla saman fund
á vegum alþjóðlegra siglingayfir-
valda til að ræða auknar öryggis-
kröfur til gegnumakstursferja.
Meginmáliö sem þar á að ræða er
hvort ástæða sé til að stía bílaþilfar
í sundur í hólf á sighngu með út-
skjótanlegum, vatnsþéttum skil-
rúmum. Mannskaðinn mikli á
Eystrasalti hlýtur að verða til þess
að það mál fái forgangsmeöferð.
kuwnnmntt w - 1
Estonia hét áður Viking Sally, mældist 15.556 brúttótonn, gat tekið 2000 farþega og 460 bila. Símamynd Reuter
Skoðanir annarra
Bindandi reglurvantar
„Yfir 800 menn hafa týnt lífi án þess að geta nokk-
uð gert sér til bjargar í einum versta harmleik á
Norðurlöndum á friðartímum. Margt bendir til að
orsakir þessa harmieiks megi rekja til mannlegra
mistaka. Aldrei er hægt að útiloka slík mistök en
viö getum smíðað öruggari skip. Vinna þarf að al-
þjóðlegum bindandi reglum um öryggi í ferjum. Þetta
er sá lærdómur sem við getum dregið af slysinu
mikla á Eystrasalti."
Úr forystugrein Aftenposten 29. september.
Minna en við óttuðumst
„Málefnasamningur nýrrar ríkisstjórnar Pouls
Nyrup Rasmussen er rýrari en við óttuðumst. Það
þarf ekki að koma nokkrum manni á óvart að ríkis-
stjórnin ætlar að nota gamla fjárlagafrumvarpið. Og
fyrir utan þær upplýsingar verður enginn vitrari af
að lesa þessar 17 síður. Málefnasamningurinn er svo
óljóst orðaður og lopakenndur að það er engin leið
að finna þar svör við mikilvægustu spurningum."
Úr forystugrein Jyllands-Posten 27. september.
Skipt um hlutverk
„Fallandi vinsældir, afglöp í samningum og
áhættusöm innrás í nágrannaland. Hann á ekki sjö
dagana sæla hann Borís... fyrirgefið, Bill Clinton.
Því er hkast sem leiötogar Rússlands og Bandaríkj-
anna hafi skipt um hlutverk á fundum sínum þessa
dagana. Jeltsín getur státað af því að nú rofar til í
efnahagsmálunum og hann er að styrkja stöðu sína
á alþjóðavettvangi meðan Clinton hefur misst öll tök
á sínum verkefnum."
Úr forystugrein Expressen 27. september.