Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Page 15

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Page 15
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994 15 Stjórnmálamenn andspænis fjölmiðlafólki: Albert Guðmundsson árið 1987, Jón Baldvin Hannibalsson árið 1989 og Guðmundur Árni Stefánsson 1994. Mistök án ábyrgðar Sumir halda því fram að sagan sé alltaf að endurtaka sig með örlítið breyttum áherslum, blæbrigða- mun en ekki eðbs. Lítum til dæmis á eftirfarandi til- vitnun í ummæli þekkts íslensks stjómmálamanns: „Ég hef íhugað afsögn en komist að þeirri niðurstöðu engu að síður, þegar ég skoða samhengi þessa máls, að til þess séu ekki rök. Og hvers vegna ekki? í fyrsta lagi vegna þess að ég er þeirrar skoðun- ar að hér hafi ekki verið um að ræða brot á neinum reglum. í ann- an stað tel ég það mér ekki til minnkunar ef ég, eftir vandlega skoðun á þessu máb, hreinlega játa að mér hafi orðið á mistök. Hvað svo sem aðrir kunna að halda um þær hugmyndir sem ég geri um sjálfan mig þá er ég ekki háleitari en svo að ég er dauðlegur maður og breyskur og mér verða á mistök. Og þetta voru mistök." Hver skyldi nú hafa sagt þetta? Guðmundur Ámi Stefánsson, varaformaður Alþýðuflokksins, á blaðamannafundi sínum fyrir viku? Nei, reynar ekki. Þessi ummæb fébu úr munni for- manns Alþýðuflokksins, Jóns Baldvins Hannibalssonar, þáver- andi fjármálaráðherra, fyrir funm ámm þegar hann barðist fyrir pól- itisku lífi sínu vegna siðferðilegra „mistaka" - um leið og hann greiddi til baka það fé sem hann hafði áður látið ráðuneyti sitt inna af hendi vegna afmælisveislu fé- laga. síns í Alþýðuflokknum, þáver- andi ritstjóra Alþýðublaðsins. En orðin hijóða auðvitað nánast alveg eins og játningar Guðmundar Árna á blaðamannafundinum. Og. niðurstaða Jón Baldvins þá var sú sama og Guðmundar Árna nú: Afsögn? Nei takk! Alþýðuflokkurinn féUst á rök formanns síns árið 1989. Það mun víst endanlega ráðast nú um helg- ina hvort flokkurinn gerir slíkt hið sama í máb Guðmundar Árna - en á því eru yfirgnæfandi líkur. Hefðbundin viðbrögð stjórnmálamánna En það er fleira sem gerst hefur aftur og aftur í almennri umræðu hér á landi. í hvert sinn sem upp komast ein- hver siðferðisleg afglöp ráðherra eða annarra stjórnmálamanna, og fjölmiölar skýra eðhlega frá þeim „mistökum", fer í gang hávær aðdáendakór viðkomandi stjórn- málamanns. Þeir gagnrýna ekki afglöp ráðherrans heldur þá sem dirfast aö koma upplýsingum um þau á framfæri við almenning - fjölmiðlamennina. Þannig hafa hörðustu stuðnings- menn Guðmundar Árna að undan- fórnu sent tilfinningaþrungin skeyti að fjölmiðlum fyrir ábyrgð- arleysi, siðleysi og einelti í frásögn- um af löngum ávirðingabsta ráð- herrans. Þanrúg var það líka þegar fjabað var fyrir tiltölulega skömmu síðan ítarlega í fjölmiðlum um margar einkar umdeildar mannaráðningar núverandi menntamálaráðherra, Ólafs G. Einarssonar - ekki síst mál Hrafns Gunnlaugssonar hjá Sjónvarpinu. Líka þegar ritað var um brennivínskaupamál Jóns Baldvins fyrir fimm árum. Að ekki sé nú minnst á storminn í kringum Ólaf Jóhannesson dómsmálaráð- herra á árunum 1974-1976. „Mafía er hún og mafía skal hún heita,“ sagði ráðherrann þá um aðstand- endur þess blaðs sem mest hafði sig í frammi í skrifum um spbbngu í stjórnmálalífinu á þeim tíma. Sbk orð hafa ekki enn verið notuð í umræðunni nú, enda hlaut ráð- herrann dóm fyrir méiðyrði, en meiningin er vafalítið svipuð. Sókn er besta vörnin Það sem einkennir þessi viðbrögö stjórnmálamanna við umfjöllun um misgjörðir þeirra í fjölmiðlum er gömul herkænskulist sem felst í orðunum: Sókn er besta vörnin! Það má bka segja að þetta kjörorð sé kjarni þess samkomulags sem Jón Baldvin og Guðmundur Árni hafa nú gert sín í mibi. Að baki þeirri ákvörðun bggur vafabtið kalt póbtískt mat for- manns Alþýðuflokksins sem hefur hugsað ráð sitt vandlega síðustu dagana. Hann átti í reynd aðeins um tvennt að velja og hvorugt kræsi- legt: Annars vegar að krefjast afsagn- ar Guðmundar Áma sem hefði Laugardags- pistLll Elías Snæland Jónsson aðstoðarritstjóri engu að síöur barist fyrir áfram- haldandi póbtískum frama af fullri hörku og notið til þess stuönings bróður síns, Gunnlaugs Stefáns- sonar, og hugsanlega fleiri þing- manna Alþýðuflokksins. í reynd hefði þetta þýtt fab ríkisstjómar- innar ihnan skamms og kosningar þar sem Alþýðuflokkurinn gengi margklofinn til leUcs. Hins vegar að slá eins konar skjaidborg um Guðmund Árna og mál hans öll, blása til sóknar gegn hinum flokkunum á þeim grund- velli að þeir séu jafn spilltir - í von um að Alþýðuflokknum takist þannig að halda sér ofansjávar í komandi kosningum. Við mat á þessum valkostum er augljóst að siðferðisleg og flokks- póbtísk viðhorf stangast gjörsam- lega á. Formaðurinn hefur vabð þá leið sem hann telur koma best út fyrir flokkinn, eins og vænta mátti. Enda er það vafalítið rétt niður- staða hjá Jóni Baldvin að Alþýðu- flokkurinn á, af tvennu illu, meiri möguleika á að bfa þessar hremm- ingar af meö því að blása í sóknar- lúðra, hversu fólsk sem sú tónlist kann að hljóma í eyrum meirihluta landsmanna, en að grípa til manns- fórnar. Sporinfrá 1987 hræða enn Afar forvitnilegt er aö bera sam- an niðurstöðu formanns Alþýðu- flokksins nú og ákvörðun for- manns Sjálfstæðisflokksins árið 1987 - en þá stóð Þorsteinn Pálsson í sömu sporum og Jón Baldvin nú að því leyti að hann þurfti að ákveða framtíð eins af ráöherrum flokks síns. Mál Alberts Guðmundssonar og Guðmundar Árna eru um margt ólík, en þó er þar ákveðinn sam- hljómur. Þorsteinn Pálsson neyddi Albert til að segja af sér ráðherradómi þegar í ljós kom að gleymst hafði að telja fram afslátt sem heildversl- un Alberts hafði fengið af flutn- ingsgjöldum. Þetta var gert þrátt fyrir að Albert og sonur hans, Ingi Björn, sem sá um rekstur heild- verslunarinnar, tækju báðir fram að Albert hefði hvergi komið nærri rekstri verslunarinnar á ráð- herraárum sínum. Albert var þannig neyddur til af- sagnar vegna skattsvika fyrirtækis sem hann átti en stjórnaði ekki. Ein alvarlegasta gagnrýnin á ráð- herrastörf Guðmundar Árna tengj- ast einnig óbeint skattsvikum - það er þeim gjörningi að ráða yfirlýstan skattsvikara til sérstakra starfa hjá því ráðuneyti sem Guðmundur Árni veitti forstöðu. Albert átti svarna andstæðinga í Sjálfstæðisflokknum, alveg eins og Guðmundur Árni í Alþýðuflokkn- um. Þorsteinn Pálsson mat þaö svo að hann gæti látið Albert hætta án þess að það yrði til tjóns fyrir Sjálf- stæðisflokkinn. Það reyndist hrikalega rangt mat; Albert stofn- aði Borgaraflokkinn nánast á auga- bragði og veitti Sjálfstæðisflokkn- um póbtískt svöðusár sem nokkru síðar átti drjúgan þátt í að velta Þorsteini sjálfum úr formannssæt- inu. Þau spor hræða enn, bka í Al- þýðuflokknum. Guömundur Árni nýtur verulegra vinsælda í kjör- dæmi sínu - svo mikiba að formað- ur Alþýðuflokksins telur sig vafa- laust ekki hafa nein efni á því að neyða hann til afsagnar. Alþýðuflokkurinn hefur þegar misst fyrrverandi varaformann flokksins og félagsmálaráðherra, Jóhönnu Sigurðardóttur, fyrir borð. Hún mun bjóöa fram sér- stakan bsta í komandi alþingis- kosningum og vafabtið taka um- talsvert fylgi frá Alþýðuflokknum. Að fara nú til viðbótar í opið stríð við Guðmund Áma, núverandi varaformann, og bandamenn hans innan þingflokks og utan gæti ein- faldlega veitt formanninum sjálf- um póbtískt náðarhögg. Þegar stjórnmálaforingjar standa andspænis því að velja á milb þess sem er siöferðislega rétt og hins sem er póbtískt hagkvæmt þá ráða flokkshagsmunirnir í langflestum tilvikum. Þess vegna neita íslensk- ir stjórnmálamenn yfirleitt alltaf að bera ábyrgð á mistökum sínum, hvaö þá taka afleiðingum þeirra meö því að segja af sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.