Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Blaðsíða 19
LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994
19
Skák
Áskorendaeinvígi PCA í linares:
Enskir eru
auðveld bráð
YAMAHA
P PATRICK
BADMINTON
SPAÐAR
OG BOLTAR
Góðar vörur
á góðu verði
SPAÐAVIÐGERÐIR
HELLAS
Allt stefnir í aö Bandaríkjamaður-
inn Gata Kamsky og Indverjinn
Viswanathan Anand muni tefla um
réttinn til þess aö skora á PCA;
heimsmeistarann Garrí Kasparov. í
áskorendaeinvígjunum, sem nú
standa yfir í Linares á Spáni, hafa
þeir yfirburða forskot á ensku stór-
meistarana Nigel Short og Michael
Adams. Að loknum sex skákum er
staðan 5-1 í báðum einvígjunum.
Kamsky hóf einvígi sitt við Short
með þremur sigrum og eftir að Short
náði að klóra í bakkann í fjórðu skák-
inni, bætti Kamsky enn tveimur
vinningum við. Adams hefur ekki
enn náð að vinna skák af Indverjan-
um handfljóta. Tefldar eru tíu skákir
í einvigjunum, þannig að Kamsky og
Anand nægir hálfur vinningur til
viðbótar til þess að tryggja sér sigur-
inn.
Sigur Kamskys gegn Short í 5.
skákinni var býsna laglegur:
Hvítt: Gata Kamsky
Svart: Nigel Short
Nimzo-indversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 c5
5. Bd3 Rc6 6. Re2 cxd4 7. exd4 d5 8.
cxd5 Rxd5 9. (M) Bd6 10. Re4 Be7 11.
a3 0-0 12. Bc2 He8 13. Dd3 g6 14. Bh6
b6 15. Hadl Bb7 16. Hfel Hc8 17. Bb3
a6 18. R2g3 Rb8 19. Df3 Hc7 20. Rh5!
Upphafið að snotrum endalokum.
Nú strandar 20. - gxh5 vitaskuld á
21. Dg3+.
20. - Rd7 21. h4! R7f6? 22. Rhxf6 + Rxf6
fl #
il ii i
i i itii
a-a &
fii w
A A A
A B C S H <±> D E F G H
23. d5!!
Vinningsleikur. Ef a) 23. - exd5 24.
Rxf6+ Bxf6 25. Dxf6 og vinnur, eða
b) 23. - Rxd5 24. Bxd5 Bxd5 25. Hxd5!
exd5 (25. - Dxd5 26. RÍ6+ BxfB 27.
Dxd5 exd5 28. Hxe8 mát) 26. RÍ6 +
Kh8 27. Rxe8 Dxe8 28. DÍ6+ Bxf6 29.
Hxe8 mát.
23. - Rxe4 24. dxe6 fö 25. Hxd8 Hxd8
26. Hdl
Og Short gafst upp.
Blindskákfjöltefli
Helga Áss
Helgi Áss Grétarsson tefldi fjöltcíli
sl. laugardag á vegum Skákskóla ís-
lands. Þátttakendur voru færri en
búast hefði mátt við því að þarna
gafst einstakt tækifæri til að tefla við
nýrkýndan heimsmeistarann og átt-
unda stórmeistara íslendinga. Hins
vegar munu „leiðbeinendur" á ungl-
ingaæfmgu í Taflfélagi Reykjavíkur,
sem fram fór handan við þilið, hafa
talið ungviðinu betra að tefla saman
innbyrðis sem vekur auðvitað ýmsar
spurningar.
Helgi Áss lét það ekkert á sig fá
þótt móteijarnir væru færri en hann
átti von á. Hann brá einfaldlega á það
ráð að tefla blindandi við andstæð-
inga sína, sem voru átta ungir og
efnilegir skákmenn. Þeir máttu allir
játa sig sigraða, sem er til marks um
það hversu Helgi Áss er orðinn sterk-
ur.
Blindskákfjöltefli eru fátíð á ís-
landi. Ásmundur Ásgeirsson setti ís-
Helgi Áss tefldi leikandi létt og
skemmtilega.
Umsjón
Jón L. Árnason
landsmet er hann tefldi blindandi við
jafnmarga andstæðinga og Helgi Áss
í Reykjavík 1932. Helgi Ólafsson sló
met hans er hann mætti tíu andstæð-
ingum á Eiöum fyrir sautján árum.
Heimsmetið á hins vegar Ungverj-
inn Janos Flesch, sem tefldi 62 skák-
ir samtímis árið 1970 án þess að hafa
taflborð fyrir framan sig. Margir
telja þó vafa leika á um réttmæti
þessa og ýmissa annarra blindskák-
meta sem menn hafa gortað af. Þegar
Retí tefldi við 29 samtímis árið 1925
hélt hann sig hafa sett met en frétti
þá af Spánverja nokkrum sém sagður
var hafa teflt við 32 mótherja. Retí
hraðaði sér til Spánar en komst þá
að því að 32 skákmönnum hefði verið
boðið en 29 þeirra heföu ekki mætt
og því hefðu skákir þeirra verið
dæmdar tapaðar. Af þeim þremur
sem eftir voru gerði „meistarinn"
eitt jafntefli en tapaði tveimur.
Þátttakendur í þessum sögufræga
viðburði í Faxafeni voru Hilmar Þor-
steinsson, Knútur Otterstedt, Ingi-
björg Edda Birgisdóttir, Hlynur Hafl-
iðason, Sindri Guðjónsson, Einar
Hjalti Jensson, Benedikt Helgi Jóns-
son og Andreas Guðmundsson.
Helgi Áss tefldi leikandi létt og
skemmtilega og virtist „sjá“ ýmsa
möguleika á taflborðinu innra með
sér, eins og eftirfarandi skák hans
ber með sér.
Hvítt: Helgi Áss Grétarsson
Svart: Sindri Guðjónsson
Enskur leikur.
1. c4 Rf6 2. Rc3 e6 3. e4 Bb4 4. e5
Bxc3 5. dxc3 Rg8 6. Dg4 g6 7. Bg5 f6
9. Bh4 Rc6 10. Rf3 De7 11. exf6 Rxffi
12. Df4 0-0 13. Dxc7 Dc5 14. Hdl Re4
15. Bd3 g5 16. Bxe4 gxh4
I A l#
Á áWá i
* Á
m A á
' A
A A A A A
s a*
ABCD EFGH
17. Hd4! Dxa2 18. Bxc6 bxc6 19. Hg4 +
KU
Ef 19. - Kh8 20. De5+ og mát i
næsta leik. 20. Re5+ Kf6
Ef 20. - Ke8 21. Rxc6! dxc6 22. Hg7
og mátar.
21. Hf4+ Kg7 22. Hxffi Kxffi 23. Dd8+
Kg7 24. De7+ Kh6 25. Dffi+
„Svikamyllan" 25. Dxh4+ Kg7 26.
De7+ Kh6 27. Df6+ Kh5 28. g4 mát
var jafnvel skemmtilegri.
25. - Kh5 26. g4+ hxg3 fr.hl. 27. fxg3
Dd5 28. g4 mát!
Suðurlandsbraut 22 - símar 688-988 - 15328
Opið: Mánud.-fimmtud. 16-18 - föstud. 12.30-14.30
LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA
VALDA ÞÉR SKAÐA!
,|UJ«ROAR
Blðndunartækl og
SturtuBdefar, gólfdúkur.
Veggfóður 300 kr. rúllan.
Vðnduó stofuteppi og mottur.
Blelkt flltteppl: Sértllbod 295 kr.
25% afsláttur af FtJAVÖRN.
Glerboré og sjónvarpsboró.