Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 1. OKTÖBER 1994' Kvikmyndir Þorsteinn Jónsson, fyrir miðri mynd, við gerð Skýjahallarinnar. Skýj^höllin framsýnd: Vorum yfirleitt á undan áætlun Tímalöggan vinsælust Aðra helgina í röð var nýjasta kvikmynd Jean-Claude Van Damme, Timecop, mest sótta myndin í Bandarikjunum og hef- ur hún á tveimur vikum halað inn rúmar 23 milljónir dollara. Kemur þessi mikla aðsókn nokk- uð á óvart þar sem hún fékk slaka dóma. í öðru sætinu er Terrainai Velocity, en hún var frumsýnd um helgina. Hér á eftir fer listi yfir næstu átta myndir, í sviga er sú tjárhæö sem í heild hefur komiö, 3. Forrest Gump (263.646.568), 4. Quiz Show (4.098.362, 1. vika), 5. Clear and Present Danger (112.879.094), 6. Natural Born Killers (42.686.295), 7. The Mask (108.557.722), 8. Milk Money (15.090.256), 9. True Lies (139.358.691), 10. Corrina, Corrina (16.216.827). The Lion King sem var innan við 10. sætið var kippt út af markaöinum en verður sett aftur i umferð i desember. Níumánuðir Nokkuö hefur verið á reiki hvaða hlutverk Hugh Grant muni taka að sér eftir hina óvæntu frægð hans í kjölfariö á Four Weddings and a Funeral. Nú er hann þó búinn aö samþykkja að leika í Nine Months, sem Chris Columbus leikstýrir. Nine Months er endurgerð franskrar kvikmyndar og fjallar um ungt par sem á í samskiptaörðugleik- um á meðgöngutíma stúlkunnar. Julianne Moore, JefT Goldblum og Tom Arnold eru meöal leí kara. Antonionibakvið myndavélinaáný Nú er hafinn lokaundirbúning- ur fyrir kvikmyndina Lies sem Michelangelo Antonioni og Wim Wenders munu leikstýra saman. Er myndin byggö á smásögum eftir Antonioni sem er oröinn 81 árs gamall og hefur ekki leikstýrt kvikmynd í þrettán ár. Erfíölega hefur gengiö að fjármagna verkið en nú hillir undir að tökur byrji. Margir þekktir leíkarar hafa samþykkt að leika í myndinni, má þar nefna Jeremy Irons, Fanny Ardant, Sophie Marceau, Irene Jacob, Marcello Mastro- ianni og Gian Maria Volonte. TeiknimyndinCats Nú á Ioks að fara að kvikmynda hinn vinsæla söngleik Cats, sem í kvikmyndaútgáfu verður teiknimynd. Það er fyrirtæki Ste- vens Spielbergs, Amblimation, sem framleiðir myndina. Hand- ritiö hefur Tom Stoppard skrifað og er það aö sögn nokkuð breytt frá söngleikjatextanum. Lögin verða samt á sínum stað og helstu persónur verksins. Cats, sem Andrew Lloyd Webber samdi upp úr ljóöaflokki eftir T.S. Elliot, er einhver vinsælasti söngieikur sem settur hefur verið á svið og hefur gengið bæði í London og New York í mörg ár. Nýgamanmyndfrá WoodyAIlen Woody Allen hefur mátt muna betri tíma. Einkalífið hefur veriö á milli tannanna á almenningi og síöustu myndir hans hafa litla athygii vakið. Hann lætur samt ekki deigan síga og nýlega var frumsýnd nýjasta kvikmynd hans Bullets Over Broadway. Hann breytir frá vananum og ieikur ekki sjálfúr í myndinni en það hefúr hann ekki gert síöan hann leikstýrðí Stardust Me- mories árið 1980. Sem fyrr prýðir frítt leikaralið Buliets Over Bro- adway. Stærsta hlutverkið er í höndum John Cusack en aðrir leikarar eru Jack Warden, Jenni- fer Tilly, Tracey UUman, Harvey Fierstein og Rob Reíner. Það er alltaf viðburður þegar ný ís- lensk kvikmynd er frumsýnd. Á fimmtudaginn var Skýjahöllin eftir Þorstein Jónsson frumsýnd, en tíu ár eru frá því hann gerði sína síðustu leiknu kvikmynd, Atómstööina. Var hún gerð eftir skáldsögu Halldórs Laxness. Skýjahöllin er einnig gerö eftir skáldsögu, verðlaunabókinni Emil og Skundi, eftir Guðmund Ól- afsson. Þorsteinn sagði í stuttu spjalli að þaö hefði í raun allt gengið eins og áætlanir hefðu gert ráð fyrir og kvikmyndatakan meira að segja gengið betur en áætlanir sögðu til um og hefði hann þurft að gefa frí til að ná tímamörkum. „Upprunalega átti Skýjahöllin að vera hluti af norrænu samstarfi um barnamyndir og sendi ég handrit af Emil og Skunda í keppni hér heima um besta handritið og var það valið. En þetta norræna samstarf varð að engu og hóf ég þá sjálfur að leita eft- ir stuðning og gekk þaö furðu vel og þótt Skýjahöllin sé alíslensk, með að langmestum hluta íslensku starfs- liði, þá er ég meö tvo erlenda með- framleiðendur, Transfilm í Berlín, sem meðal annars framleiddi stutt- myndina Black Rider, sem fékk ósk- arsverðlaun, og danska framleiðand- ann Per Holst, sem einnig hefur feng- ið óskarsverðlaun fyrir Pelle sigur- Kvikmyndir Hilmar Karlsson vegara sem hann framleiddi. En fyr- irtæki mitt Kvikmynd hefur samt alfarið séð um framkvæmdina." Samstarf sem ekki má fara forgörðum Þorsteinn sagði að það væri nokkuð merkilegt hvernig íslenskir kvik- myndagerðarmenn væru búnir að byggja upp samstarf við Norðurlönd- in og Þýskaland á þann hátt að við komum inn með kannski einn fjórða eða einn fimmta af kostnaöinum en þeir borga restina, en Þorsteinn tók fram aö þetta samstarf væri í hættu vegna fyrirsjánanlegs niðurskurðar á fjármagni til Kvikmyndasjóðs. Skýjahölhn er þriðja kvikmyndin í fullri lengd sem Þorsteinn Jónsson leikstýrir. Fyrst var þaö Punktur, punktur, komma, strik, sem gerð var 1981, og síðan kom Atómstöðin. Á þeim tíu árum sem liðin eru frá því hann gerði þá mynd var hann meðal annars framkvæmdastjóri Kvik- myndasjóðs frá 1990 til 1993, en segir þó að aðalástæðan fyrir því að hann hafi ekki gert kvikmynd í millitíðinni sé peningaskortur - of margir væru um það litla íjármagn sem Kvik- myndasjóður hefur yfir að ráða. Þorsteinn útskrifaðist með próf í kvikmyndaleikstjórn frá Kvik- myndaakademíunni í Prag árið 1971 og stundaði nám við kvikmynda- deildina í Nipponháskóla í Japan á árunum 1977-1979. Þorsteinn byrjaði feril sinn með tveimur heimilda- myndum sem vöktu báðar athygli, Fiskur undir steini fiallar um menn- ingarfátækt í litlu íslensku fiskveiði- þorpi og Bóndi sem fiallar um bónda í afskekktum dal sem neitar að bregða búi. Nýmæli í íslenskri kvikmynd Það sem vekur einna mesta forvitni í Skýjahöllinni er að hluti hennar er teiknaöur. „Það var ætlun mín frá upphafi að hluti myndarinnar yröi teiknaður. Áður en fiölskyldan í sög- unni fór út í húsbygginguna hafði hún það fyrir sið að fara ofan í fiöru og segja skýjasögu. Þau lágu í gras- inu og horfðu upp í himininn og sá sem sagði söguna valdi sér ský og sagði sögu og það eru þessar sögur sem eru teiknaðar. Þessi tækni, að tengja þetta saman, er nýleg, hún er einíold en tímafrek.“ Þorsteinn sagði að öll kvikmynda- geröin hefði verið það snurðulaus að hann hefði í raun aldrei fundiö fyrir neinum spenningi fyrr en frumsýn- ingardaginn þegar myndin kom fyrst fyrir augu almennings. Hluti af Skýjahöllinni er teiknaður. A myndinni eru kóngur og drottning í Skýjahöllinnl. Gleymum París Billy Crystal leikstýrði fyrstu kvikmynd sinni, Mr. Saturday Night, fyrir tveimur árum og þrátt fyrir góða spretti vakti hún htla athygli. Hann ætlar samt ekki að gefast upp og er að und- irbúa Forget Paris. Leikur hann aðalhlutverkið ásamt Debru Winger. Aðrir leikarar eru Joe Mantegna, Cathy Moriarty, Ric- hard Masur og Julie Kavnar. Crystal ieikur dómara í amerísk- um fótbolta sem verður ástfang- inn í París. Myndin er þannig uppbyggð að nokkrir vinir dóm- arans segja sögu hans í kvöld- verðarboði. EddieMurphyfetar ífótsporJerryLewis Leikrita- og kvikmyndahand- ritshöfundurinn Larry Geibart hefur nú skrifað nýtt handrit eft- ir einni af vinsælustu kvikmynd- um Jerry Lewis, Tlie Nutty Pro- fessor, sem gerð var 1963. Leik- stjóri verður Tom Shadyac (Ace Ventura, Pet Detective). Sá sem fær að feta í fótspor Jerry Lewis er sjálfur Eddie Murphy. Áætlað- ur kostnaður við gerð myndar- innar er 45 milijónir dollara. Tal- ið er að Jerry Lewis muni leika lítið hlutverk í myndinni. PfeifferogRedford samaníUpClose andPersonal Nú er búið að ganga frá því að Michelle Pfeiffer og Robert Red- ford leiki saman í Up Close and Personal sem Jon Avnet leikstýr- ir. Mynd þessi er byggö á nánu sambandi sjónvarpsfréttakon- unnar Jessicu Savitch, sem Iést í bílslysi, og yíirmanns hennar sem einnig var elskhugi hennar. Handritið skrifar ríthöfundurinn Joan Didion ásamt John Gregory Dunne. Robert Redford mun áður leika í kvikmyndinni An Ameri- can President en tökur á henni eru að byrja. Meira af RobertRedford Nýjásta kvikmyndin sem Ro- bert Redford leikstýrír nefnist Quiz Show og var hún frumsýnd fyrir stuttu. Fær myndin glimr- andi viðtökur, bæöi hjá almenn- ingi og gagnrýnendum, og er þeg- ar farið að tala um hana sem eina heitustu kvikmyndina þegar að óskarsverðlaunumkemur. Gerist myndin 1958 og er fylgst með per- sónum sem taka þátt í spuminga- þættinum Twenty-One sem er einvígi tveggja þátttakanda og eru aöalpersónurnar tveir óiíkir snillingar. Annar hefur verið kóngurinn í þáttunum en þegar aðdráttaraflið fer að minnka er erfðaprinsinn fundinn og er hann mataður á svörum sem hann kærir sig ekki um í fyrstu en verður brátt þátttakandi í svindl- inu. Leikarar eru Ralph Fiennes, John Turturro og Paul Scofield. SigurvegararáSan Sebastianhátíðinni Nýlega lauk árlegri kvik- myndahátíð í San Sebastian á Spáni og var spánska myndin Dias Contados vaiin besta mynd- in. Var urgur í mörgum út af þessari veitingu vegna þess að þar er skæruliöum Baska gert hátt undir höfði en leiksfiórinn, Imanol Uribe, er Baski. Besti leik- sfióri var valinn Danny Boyle (Shallow Grave, Bretiand), besta leikkona Ning Jing (Paoda Shaungdeng, Kina) og Javier Bardem var valinn besti leikar- inn (Dias Contados). Tvær kvik- myndir fengu sérstök verðlaun dómnefndar, Vor lauter Feigheit gibt es kein Erbarman (Þýska- land) og Second Best (Bretland).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.