Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Síða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 01.10.1994, Síða 42
50 LAUGARDAGUR 1. OKTÓBER 1994 Hjartans þakkir sendum við öllum þeim sem glöddu okkur með gjöfum og kveðjum í tilefni af 75 ára af- mælimínu 26. maísl. og 90ára afmælimínu 12. sept. sl. Sérstaklega viljum við þakka börnum og tengdabörn- um okkar og fjölskyldum þeirra ógleymanlega ferð í Þórsmörk dagana 10.-11. sept. sl. sem þau efndu til vegna þessara tímamóta í lífi okkar. Lifíð heil, Þorbjörg og Ingólfur frá Neðri-Dal umarbústaður óskast Heilsárshús í allt að 100-120 km fjarlægð frá Reykjavík. Heitt og kalt vatn og rafmagn skilyrði, ásamt grónu, kjarri vöxnu landi. Um staðgreiðslu er að ræða fyrir rétta eign. Nánari upplýsingar um verðhugmynd, aldur húss, stærð og staðsetningu, ásamt mynd, sendist á af- greiðslu blaðsins sem fyrst, merkt „Sumarhús-9689“. J Tækifæri við módelstörf erlendis Módelskrifstofan Exel vinnur í samstarfi við bestu skrifstofur í heimi, t.d. Elite, Next, Storm, Premier, Ford, Team, Zem og fleiri víða um heim. Starfsmaður frá skrifstofunni verður á ís- landi frá 1. okt. - 1. nóv. í leit að nýjum andlitum á aldrinum 13-26 ára. Verið er að leita að nýjum módelum fyrir skrifstofur úti um allan heim. Það er ekki nauðsynlegt að hafa möppu. Engin módelskóli. Upplýsingar í síma 3 96 72 Varnarliðið: Laus störf tveggja tölvunar- eða kerfísfræðinga Sjúkrahús Varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, óskar að ráða tvo tölvunar- eða kerfisfræðinga til starfa, annan á vélbúnaðarsviði, hinn á hugbúnaðarsviði. Um er að ræða föst störf. Störfin felast í viðbótaruppsetningu tölvubúnaðar, gera tillögur um breytingar ásamt því að annast daglegan rekstur þeirra tölvukerfa er undir starfið heyra. Um er að ræða nettengd kerfi. Einnig að annast uppsetn- ingu nýrra forrita ásamt kennslu og þjónustu við starfs- fólk. Að fylgja öryggisþáttum samkvæmt stöðlum og gera tillögur um breytingar ef við á er einnig hluti starfsins. Kröfur: Umsækjendur séu tölvunar- eða kerfisfræðingar með sem víðtækasta reynslu á sviði vél- og hugbúnaðar. Þurfa að geta unnið sjálfstætt og að eiga gott með samskipti við annað fólk auk þess að hafa góða aðlög- unarhæfni. Mjög góðrar enskukunnáttu er krafist, bæði á talað mál og skrifað. Umsóknir skulu berast til ráðingardeildar varnarmála- skrifstofu, Brekkustíg 39, Njarðvík, sími 92-11973, ekki síðar en 12. október nk. Starfslýsingar liggja þar frammi til aflestrar fyrir um- sækjendur og er þeim bent á að lesa þær, þar sem í auglýsingunni er aðeins tæpt á því helsta og aðskilin lýsing er fyrir hvort starf. Umsóknareyðublöð fást einnig á sama stað. UMSÓKNUM SÉ SKILAÐ Á ENSKU. Afmæli Sigurrós Margrét Sigurjónsdóttir Sigurrós Margrét Sigurjónsdóttir, fuUtrúi hjá Tryggingastofnun ríkis- ins, til heimilis aö Selvogsgrunni 5, Reykjavík, er sextug í dag. Starfsferill Sigurrós fæddist að Söndum í Meðallandi í Vestur-Skaftafellssýslu en ólst upp í vesturhænum í Reykja- vík. Hún hefur sótt ýmis námskeið sem m.a. hafa tengst starfi hennar. Sigurrós stundaði ýmis almenn störf frá sextán ára aldri. Hún hefur síðan stundað skrifstofustörf, m.a. hjá Sjálfsbjörg og síðustu ellefu árin hjá Tryggingastofnun ríkisins. Sigurrós hefur gegnt ýmsum trún- aðarstöfum fyrir Sjálfsbjörg, setið í stjóm félagsins með hléum frá 1981 og er formaður Sjálfsbjargar í Reykjavík og nágrenni frá 1993. Fjölskylda Sigurrós giftist 22.1.1972 Jónasi Gunnari Guðmundssyni, f. 14.11. 1933, verkamanni. Hann er sonur Guðmundar Helgasonar, verka- manns í Reykjavík, og Guðrúnar Helgadóttur húsmóður sem bæði eru látin. Börn Sigurrósar og Gunnars eru Sigurbjörn Rúnar, f. 1967, iðntækni- fræðingur, starfsmaður og einn af eigendum íslenskrar vöruþróunar hf., kvæntur Jórunni Frímanns- dóttur og eiga þau tvo syni; Reynir, f. 1971, rafeindavirki hjá Nýherja hf. Systkini Sigurrósar em Erla, f. 1936, fulltrúi Pósts og síma, búsett í Kópavogi; Sigurhjörg, f. 1937, hús- móðir í Reykjavík; Páll, f. 1939, múrarameistari í Reykjavík; Guð- mundur Ármann, f. 1944, listamaður og kennari á Akureyri; Birna, f. 1946, yfirkennari í Snælandsskóla, búsett í Kópavogi; Jón Páll, f. 1947, skrifstofustjóri hjá Barðanum, bú- settur í Kópavogi; Sigurður, f. 1950, prentari í Gutenberg, búsettur í Kópavogi. Foreldrar Sigurrósar: Sigurjón Björnsson, f. 9.6.1908, fyrrv. póst- og s_ímstöðvarstjóri í Kópavogi, og Þorbjörg Pálsdóttir, f. 1.1.1915, hús- móðir. Ætt Foreldrar Sigurjóns voru Björn Bjömsson, b. á Hryggjum í Mýrdal, og k.h„ Sigþrúður Dagbjartsdóttir húsfreyja. Foreldrar Þorbjargar voru Páll Sigurrós Margrét Sigurjónsdóttir. Pálsson, b. í Búlandsseli í Vestur- Skaftafellssýslu, og k.h., Margrét Þorleifsdóttir húsfreyja. Þess má geta að Björn Björnsson var fæddur 2.10.1844 og verða því hundrað og fimmtíu ár liðin frá fæðingu hans daginn eftir sextugsafmæh Sigur- rósar. Sigurrós og Gunnar taka á móti gestum í sal Sjálfsbjargar, Hátúni 12, að sunnanverðu, laugardaginn 1.10. nk. kl. 16.00-19.00. Stefán Jóhannsson, Heiðargerði 5, Reykjavík. Guðlaug Tómasdóttir, Bólstaðarhlíð 68, Reykjavík. Þórdís Jóhannesdóttir, Glaðheimum 16, Reykjavík. Páli Kjartan Saunundsson, Öldugötu 52, Reykjavík. Ragnar A. Þórarinsson, Brautarholti, Blönduósi. Páll Gíslason, yfirlæknir og fyrrv. forseti borgarstjórnar (á afmæli 3.10), Kvistalandi3, Reykjavik. Kona hanser Sofíia Stefáns- dóttir íþrótta- kcnnari. Pálltekurá móti gestum á afmælisdaginn ífélagshelmili Fóstbræðra við Langholtsvegfrá kl. 17-19. Jóhanna Lovísa Hallgrímsdóttir, Háarima 2, Djúpárhreppi. Sigfús G. Þormar, Espilundi 5, Garðabæ. Egill Jónasson, Hagatúni 11, Höfn íHornaíirði. Heiðar Rafn Baldvinsson, Melgötu 5, Grenivík. Hanna Birna Jó- hannsdóttir bankastarfs- maður, Lækjargötu 34c, Hafnar- firði. Jón Kristinn Jónasson, Háagerði 27, Reykjavík. Lárus Jóhannsson, Kinarsnesi 56, Reykjavík. Sigríður Páimadóttir, Höföahhð 17, Akureyri. Helga Þorvaldsdóttir, Suðurgötu7, Vogum. Daníel Stefánsson, Rauðási 7, Reykjavík. Heiðrún Ágústsdóttir, Tjamarbraut 11, Egilsstöðum. Soi'fía Jakobsdóttir, Borgarhóli, Akrahreppi. Sigrún Ragnarsdóttir, Grýtubakka 16, Reykiavík. Gyða Þórólfsdóttir, Starrahólum 1, Reykjavík. Óiafur Karlsson, Reykjavíkurvegi 21, Hafnarfirði. Sigurbj öm Sigurbj örnsson, Bergsstöðum, Vatnsleysustrandar- hreppi. Svana A. Daðadóttir, Sambyggð 8, Þorlákshöth. Geirlaug Xngibergsdóttir, Goðheimum 8, Reykjavík. Droplaug Einarsdóttir, Jörundarholti 196, Akranesi. Guðmundur Þór Kristjánsson, Bakkavegi l, ísafirði. Pálmar Guðmundsson, Leirutanga 10, Mosfellsbæ. Lárus Róbertsson, Álfhólsvegi 63, Kópavogi. Víðtæk þjónusta fyrir lesendur og auglýsendur! Aðeins 25 kr. mínútan. Sama verð fyrir alla landsmenn. AUGLÝSINGA 99*56*70

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.