Dagblaðið Vísir - DV - 21.11.1994, Blaðsíða 40
52
MÁNUDAGI/R 21. NÓVEMBER 1994
Sigurður Líndal.
Engan rétt að
þröngva samn-
ingum sínum
upp á aðra
„FÍA hefur engan einkarétt til
að gera samning fyrir alla flug-
menn. Það hefur engan forgangs-
rétt til að gera samninga umfram
löglegt stéttarfélag sem fyrir er.
Þaö hefur engan rétt til að ryðja
löglegu stéttarfélagi til hliöar og
þröngva sínum samningum upp
á aðra,“ segir Sigurður Líndal
lagaprófessor í DV.
Ummæli
Eitthvað sem berst
í bökkum
„.. .í stað þess að bókaútgáfa
ljlári sig þolanlega á markaðinum
þá verður hún eitthvað sem berst
í bökkum og nýtur styrkja. Ég get
ekki ímyndað mér aö það hafi
verið markmið Friðriks Sophus-
sonar með virðisaukaskattinum
þegar hann var lagður á, en sú
verður lokaútkoman engu að síð-
ur,“ segir Halldór Guðmundsson
bókaútgefandi.
Slæmir ræðumenn
„Þaö sem einkennir slæma ræðu-
menn er einmitt að þeir meina
ekki það sem þeir segja, hugsa
ekki það sem þeir segja og finna
ekki það sem þeir hugsa...,“
segir Pétur Tyrfingsson í Alþýðu-
blaðinu.
Fáir góðir ræðumenn
„Hvað er ræðusnilld...? Meiri-
hluti þjóðarinnar er strax útilok-
aður því góður ræðumaður verð-
ur að kunna íslensku...,“ segir
Helgi Hjörvar í Alþýðublaðinu.
Áhugamál að tína dósir
„Ég hef íjármagnað utanlands-
ferðir mínar síðustu árin með því
að tína upp dósir... Ég hef svo
gaman af þessu að þetta er orðið
aö áhugamáli...,“ segir Sigur-
geir Þorvaldsson, fyrrverandi
lögregluþjónn, í DV.
Tónlistin er aukadjobb
„Ég lít á sjálfan mig sem leikara
fyrst og fremst, sem leikhúsmann
og kannski skáld. Það eru aðrir
sem stimpla mig sem tónlistar-
mann. Ég lít á tónlistina sem hálf-
gert aukadjobb," segir Hörður
Torfason í Morgunpóstinum.
Mikill þrýstingur
„Það hafa mjög margir í kjör-
dæminu haft samband viö mig
og þrýst á um að ég bjóði fram
sérhsta í alþingiskosningunum í
vor og það er verið að skoða þetta
mál vel,“ segir Eggert Haukdal í
DV.
Sagtvar:
Seldar voru veitingar í nýja
mötuneyti skólans.
Rétt væri: Seldar voru veitingar
Gætum timgunnar
í nýju mötuneyti skólans. Eða:
Selaar voru veitingar í hinu nýja
mötuneyti skólans.
Fer hlýnandi en yíða verður hvasst
Um sunnan- og vestanvert landið
verður í dag allhvasst eða hvasst
suðvestan og súld eða skúrir. Norð-
Veörið í dag
anlands er vaxandi suðaustanátt, all-
hvasst og slydda til að byrja með en
siðan suövestan strekkingur, léttir
til norðaustanlands. Hlýna mun í
veðri. Á höfuðborgarsvæðinu verður
allhvöss sunnan- og suðvestanátt
með súld en síðan skúrum. Hitinn
verður 4 til 5 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 16.12
Sólarupprás á morgun: 10.18
Síðdegisflóð í Reykjavík: 20.09
Árdegisflóð á morgun: 8.27
Heimild: Almanak Húskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri snjóél -3
Akurnes hálfskýjaö 2
Bergstaðir hálfskýjað -2
Bolungarvík snjóél -3
KeíIavíkurílugvöUur skýjað -1
Kirkjubæjarklaustur skýjað 0
Raufarhöfn alskýjað -5
Reykjavik alskýjað -1
Stórhöíði skúr 0
Bergen léttskýjað 10
Helsinki skýjað -2
Kaupmarmahöfn skýjað 5
Stokkhólmur skýjað 3
Þórshöfn skýjað 3
Amsterdam skýjað 10
Beriín skýjað 7
Chicago léttskýjað 9
Feneyjar þokumóða 11
Frankfurt rigning 9
Glasgow skýjað 7
Hamborg léttskýjað 7
London skýjað 10
LosAngeles léttskýjað 12
Lúxemborg súld 7
Madrid léttskýjað 14
MaUorca léttskýjað 18
Montreal léttskýjað 3
New York alskýjað 12
Nice léttskýjað 17
Orlando alskýjað 16
París skýjað 11
Róm léttskýjað 16
Vín skýjað 9
Winnipeg snjókoma -1
Þrándheimur skýjað -3
Jón Gröndal tónlistarkrossgátuhöfundur:
„Það sem réð þvf ööru fremur að
ég ákvað að gefa pólitíkinni frí í
bili var aö ég hef tekið að mér auk-
in störf hjá Iionshreyfingunni en
þaö er mitt áhugamál þessar vik-
urnar. Ég segi ekki að ég sé hættur
í pólitík því það er erfitt að vera
fyrir utan og mig er þegar farið að
klæja í lófana," segir Jón Gröndal,
kennari í Grindavík. Jón var átta
ár í bæjarstjórninni í Grindavík en
hefur tekið sér hvild þetta kjör-
Maðux dagsins
tímabfi. Jón hefur komið víða við
en þekktastur er hann fyrir tónlist-
arkrossgátur sínar sem voru vin-
sælt útvarpsefni á sínum tíma og
hefur Jón nú tekið upp þráðinn
aftur við gerð tónlístarkrossgát-
unnar.
„Þaö eru fjórtán ár síðan ég byrj-
aöi hjá RÚV, en þá var ég með töfr-
andi tóna, danstónlist og sitthvað
fleira. Ég byrjaði með tónlistar-
krossgátuna á rás 2, þegar Þorgeir
Ástvaldsson var þar við stjóm og
Jón Gröndal.
var þetta einn vinsælasti þátturinn
á rásinni fyrr og síðar. Þegar best
lét fengum við yfir þúsund bréf á
viku."
Allan tímann sem Jón var með
þáttinn á rás 2 bjó hann í Grinda-
vík og nú hefur hann tekið upp
þráðinn á útvarpsstöðinní Bros á
Suðurnesjum, en þar hefur hann
undanfarin misseri verið með
ýmnsa þætti. „Tónlistarkrossgátan
hefur tekið vel við sér og er orðinn
óhemjuvinsæl og það er oft hringt
x mig heim og spurt um ýmislegt
varðandi krossgátuna. Það er mjög
gefandi að vera svona í sambandi
viö fólk.“
Jón Gröndal og eiginkona hans,
Dórothea Emilsdóttir, eru úr Hlíð-
unum f Reykjavík, en þau fluttust
til Grindavíkur 1976 þegar Jón fékk
þar kennarastöðu. „Það voru
nokkrir staöir sem komu til greina
þegar við ákváðum að flyija búferl-
um, en ég valdi Grindavík vegna
þess að það var stutt frá Reykjavík
og ekki langt fyrir mig aö fara á
gömlu dansana. í dag lit ég tvi-
mælaláust á mig sem Grindvíking.
Hér er gott að búa og skemmtilegt
að vera.“ Jón og Dórothea eiga þrjú
börn.
Ægir Már Kárason
Til heiðurs konum
Til heiðurs konum nefnist af-
mælishátið sem haldin verður í
Borgarleikhúsinu í kvöld kl.
20.30. Aö hátíðinni standa Meim-
ingar- og fræðslusamband alþýðu
og Tómstundaskólixm. JPjölbreytt
Leikhús
dagskrá er í boði. Tveir leikhóp-
ar, sem sýndu verk i Finnlandi í
sumar, koma fram. Um er að
ræða leikhóp kvenna f BSRB og
ílikhóp kvenna i ASÍ. Gefst hér
tækifæri til að sjá leiktúlkun
kvennanna á jafnréttisbarátt-
unrú. Jóhanna Sveinsdóttir les
úr nýrri ljóöabók sinni, Borgar-
dætur syngja og Guðrún María
Finnbogadóttir óperusöngkona
syngur viö undirleik Iwona Jagla,
en Guðrún hlaut Tónvakaverð-
laun Ríkisútvarpsins nýlega.
Kynnir á hátíðinni verður Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir, en há-
tiðina setur Bergþóra Ingólfsdótt-
ir, fræðslufulltrúi MFA. Aðgang-
ur er ókeypis.
Skák
Svartur á leikinn í meðfylgjandi stöðu,
sem er úr skák Lopez og Gerber, tefid á
opnu móti i Genf snemma á árinu. í stöö-
unni leynistbýsnaóvænturmöguleiki...
Hvitur varð aö gefast upp eftir 1. -
Hxg2 +! 2. Hxg2 Dxh3 + !, því að 3. Kxh3
Hh5 er mát.
Jón L. Árnason
Bridge
Mörg spilin í Reykjavíkurmótinu voru
skemmtileg, meö mikia skiptingu og
buðu upp á óvæntar niðurstöður. Það er
til dæmis erfitt að ímynda sér lokaniður-
stöðuna í þessu spili á einu borðanna
fyrirfram, áöur en sagnir og úrspilið er
skoðað. Sagnir gengu þannig, austur gjaf-
ari og NS á hættu:
* DG72
¥ ÁD1032
♦ 53
+ K7
♦ 108653
¥ K
♦ Á984
+ G95
¥ G9864
♦ DG2
+ D6432
♦ ÁK94
¥ 75
♦ K1076
+ Á108
Austur Suður Vestur Norður
24 Dobl 2¥ Dobl
Pass 2+ 4¥ Pass
Pass Dobl P/h
Tveggja tígla opnun austurs var gervi-
opnun og lofaði a.m.k. 5-5 skiptingu í ein-
hverjum tveimur litum og undir opnun-
arstyrk. Dobl suðurs sýndi fyrst og
fremst styrk, tvö hjörtu vesturs var leit-
andi sögn aö samlegu og dobl norðurs
var úttekt á hjartalitinn. Pass austurs
lofaði því að hjarta var annar hvor lit-
anna og þá beið vestur ekki boðanna og
stökk í fjögur hjörtu. Norður hóf vörnina
á spaðaþristi, sagnhafi trompaði í blind-
um og spilaöi lágu laufi. Suður setti lítiö
spil, vestur átti slaginn á kóng og tromp-
aði enn spaða. Enn kom lauf frá blindum
og suður varö þá skelkaður og rauk upp
með ás. Honum fannst nú vænlegast í
stöðunni aö spila trompi en það gerði þaö
eingöngu aö verkum að vestur rauk upp
með ásinn og feUdi blankan kónginn. Þá
var hjarta tekið öðru sinni á gosann og
tíglum síöan hent í frílaufin. Fjögur
hjörtu dobluð með tveimur yfirslögum
(790) var þó ekki hreinn toppur, gaf „að-
eins“ 30 stig af 32 mögulegum.
ísak Örn Sigurðsson