Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1994, Side 2

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1994, Side 2
2 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 Fréttir_____________- v ________' __________ Samstaða um GATT á Alþingi: Kemur öllum til góða þegar f ram í sækir - segir Davíð Oddsson forsætisráðherra „Það kom mér ekki á óvart að sam- staða skyldi nást um afgreiðslu GATT á Alþingi. í mínum huga er enginn vafi um að þetta kemur öllum til góða þegar fram í sækir. Landbún- aðurinn fær aðlögunartíma og neyt- endur fá vöru á lægra verði,“ segir Davíð Oddsson forsætisráðherra. Samkomulag milli allra þingflokka náðist á Alþingi í gær um texta þings- ályktunartillögu um fullgildingu GATT-samningsins varðandi stofn- un Alþjóðaviðskiptastofnunar. Af- greiða á tillöguna frá Alþingi í dag. í tillögunni kemur fram að þrátt fyrir fullgildingu samningsins gildi óhreytt skipulag á innflutningi land- búnaðarvara þar til lögum hefur ver- ið breytt með hliðsjón af samningn- um. í ályktuninni segir ennfremur að landbúnaðarráðherra verði tryggt forræði um allar efnislegar ákvarð- anir sem varða landbúnað og inn- flutning landbúnaðarafurða. Um forræði landbúnaðarráðherra hafa um langt skeið staðið deilur á stjórnarheimilinu. Kratar og íjár- málaráðherra hafa verið því andvíg- ir að landbúnaðarráðherra fái ákvörðunarvald um álagningu jöfn- unartolla á innfluttar landbúnaðar- vörur en með samkomulaginu í gær er þeim ágreiningi ýtt til hliðar. Aðspurður kveðst Davíð Oddsson ekki í vafa um að friður muni ríkja á stjómarheimilinu um útfærsluna á GATT-samkomulaginu, bæði hvað varðar laga- og tollabreytingar. „Vilji þingsins liggur fyrir og hann er leið- beinandi fyrir alla,“ segir Davíð. Páll Pétursson, þingmaður Fram- sóknarflokksins, kveöst ákaflega ánægður með þá samstöðu sem náð- ist um GATT-málið. „Alþýðuflokkur- inn hefur einangrast með sína hryðjuverkastarfsemi gagnvart landbúnaðinum. Jón Baldvin stóð frammi fyrir því að bíta á jaxlinn og kyngja þessari auðmýkingu eða verða til þess sjálfur að stöðva full- gildingu GATT,“ segir Páll. Að sögn Halldórs Blöndals land- búnaðarráðherra er niðurstaðan í samræmi við fyrri yfirlýsingar ríkis- stjórnarinnar og vilja Alþingis. „Það var óhjákvæmilegt fyrir okkur ís- lendinga að gerast aðilar að GATT- samkomulaginu. Við höfum barist fyrir fijálsum viðskiptum, líka með matvörur. Afgreiðsla Alþingis skýrir það sjónarmið að á meðan óeðlilegir viðskiptahættir eru með landbúnað- arvörur og ekkert heimsmarkaðs- verð þá sé íslendingum unnt að fara með gát í þau viðskipti.“ Ólafiu- Ragnar Grímsson, formað- ur Alþýðubandalagsins, segir þings- ályktunartillöguna endurspegla vilja stórs meirihluta þingmanna. í raun hafi það einungis tekið utanríkis- málanefnd hálfa aðra klukkustund að útbúa texta sem embættismanna- nefnd hafi heykst á í marga mánuði. „Gatt-samningurinn er þess eðlis að menn leika sér ekki með hann í ein- hverju skaki hér á Alþingi." Anna Ólafsdóttir Björnsson, þing- maður Kvennalistans, kveðst fagna GATT-samkomulaginu en bendir á að Kvennalistinn sé óánægður með hversu lítil áhersla sé lögð á um- hverfismál í honum. Bjöm Bjama- son, formaður utanríkismálanefnd- ar, segir samninginn hins vegar móta ákveðin þáttaskil. „í fyrsta sinn er samið um fijálsræði í viðskiptum með landbúnaðarvörur. Á næstu mánuðum þarf að huga aö innlendri löggjöf svo að hægt verði að hrinda þessu í framkvæmd," segir Bjöm. -kaa Stuttarfréttir dv Sighvatur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Vinnslustöðvar- innar í Vestmannaeyjum, var í gær útnefndur maður ársins 1994 í íslensku atvinnulífi af tímarit- inu Fijálsri verslun og Stöð 2. Ak&rei minni fjöigun : :ísléndingar voru tæplega 267 þúsund talsins 1. desember sl. samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Á einu ári flölgaði okkur um 0,7%. Fjölgunin hefur sjaldan eða aldrei verið minni. Blekking i Liíháen? Nokkrir hrossabændur saka stjóra Félags hrassabænda um blekkingar varðandi uppbygg- ingu búgarðs i Litháen sem hefði átt að vera sölustöö en sé í raun ræktunarstöð hrossa. RÚV greindi frá þessu. Verdbréfaþing gagnrýnt Vnmslustöðin hefur óskað eftir því við viðskiptaráðherra að haim rannsaki afgreiðslu skrán- ingar fyrirtækisíns á Veröbréfa- þingi íslands. Vinnslustööin gagnrýnir vinnubrögð stjómar Verðbréfaþings, samkvæmt Mbl. Ríkið vill halda Leifsstöð Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra sagði í viðtali við Stöð 2 að Flugstöð Leifs Eiríks- sonar yrði ekki einkavædd á meðan núverandi rikisstjórn væri við völd. Flóðhjálðunni: Aldrei tryggt að fullu - segir framkvæmdastjóri „Það er erfitt að meta tjónið á þessu stigi en svona lagaö er aldrei tryggt að fullu," sagði Jón Karlsson, fram- kvæmdastjóri bókaútgáfurmar Ið- unnar, í samtah viö DV í gær. í gærmorgun uppgötvaðist að fleiri tonn af vatni höfðu flætt inn í eitt þúsund fermetra lagerhúsnæði Ið- unnar í vesturbænum eftir að pottofn á hæðinni fyrir ofan lagerinn sprakk. Mikið af bókum var geymt í hús- næðinu og er stór hluti þeirra ónýtur en eins og gefur að skilja eiga bækur og vatn illa saman. Unnið var að því fram eftir degi í gær að bera bækur úr húsinu og ná upp vatni og bera svo bækurnar inn aftur. Síðan var unnið að því að kæla loftið til að koma í veg fyrir rakamyndum og frekari skemmdir Að sögn Jóns er von á sænskum sérfræðingum til landsins í dag á vegum tryggingafélags Iðunnar en þeir munu vinna að því að rakatæma skemmuna. Starfsmenn Iðunnar unnu að þvi hörðum höndum í gær að bjarga vatn- sósa bókum úr vöruskemmu fyrirtækisins. DV-mynd Brynjar Gauti Alger metþatttaka í jolagetraun DV: Tæplega tólf þúsund lausnir bárust Metþátttaka var í jólagetraun DV að þessu sinni. Hátt á tólfta þúsund lausnir bámst blaðinu sem er mun meira en í fyrra. Það var því gríðar- legur haugur sem blasti við starfs- fólki þegar draga átti vinningsum- slög úr innsendum lausnum. Þegar yfir lauk höfðu verið dregnir út 19 vinningar að verðmæti samtals 333 þúsund krónur. 1. verðlaun, Macintosh Performa 475 einkatölvu og Style Write prent- ara frá Radíóbúðinni að verðmæti 158 þúsund krónur, hlýtur Carl Jo- han Carlsson, Skólagerði 47, Kópa- vogi. 2. verðlaun, Panasonic NV-HD90 myndbandstæki með víðómi frá Jap- is að verðmæti 73.800 krónur, hlýtur Regína Jóhannsdóttir, Holtagerði 14, Kópavogi. 3. verðlaun, Panasonic SC-CH40 hljómtækjasamstæðu með geisla- spilara frá Japis að verðmæti 69.450 krónur, hlýtur Guðrún Jóna Guð- finnsdóttir, Valshólum 2, Reykjavík. 4. -11. verðlaun, geislaplötuna Spil- aðu lagið með Mannakorni frá Japis að verðmæti 1.990 krónur, hljóta: Jón Stefánsson, Borgarhóli, Varmahlið, Gunnhildur Gestsdóttir, Breiðvangi 30, Hafnarfirði, Rut Sigurðardóttir, Kúrlandi 19, Reykjavík, Steingrímur J. Guðjónsson, Hátröð 4, Kópavogi, Pétur Þór Lárusson, Vallholti 7, Akranesi, Jóna B. Pálsdóttir, Miklu- braut 13, Reykjavík, Anna Birna Rögnvaldsdóttir, Dalatúni 14, Sauö- árkróki, og Randy Guðmundsdóttir, Hringbraut 67, Keflavík. 12.-19. verðlaun, geislaplötuna Mmningar 3 frá Japis að verðmæti 1.990 krónur, hljóta: Erla Hrand Friöfinnsdóttir, Grenivöllum 32, Ak- ureyri, Helga Halldórsdóttir, Kóngs- bakka 6, Reykjavík, Guðrún V. Vign- isdóttir, Mánabraut 5, Akranesi, Svavar Annesson, Hverfisgötu 4b, Hafnarfirði, Ólafur Ólafsson, Eini- gmnd 12, Akranesi, Fríða Eiríksdótt- ir, Fjólugötu 2, Vestmannaeyjum, Ingveldur Sigrún Steindórsdóttir, Heimahaga 6, Selfossi, og Sigurður Enoksson, Lundarbrekku 14, Kópa- vogi. Efstu þrír vinningshafar vitja verð- launa sinna á ritstjóm DV í dag en geislaplötumar verða sendar í pósti. DV þakkar góða þátttöku í jólaget- rauninni og óskar vinningshöfum til hamingju. Jón Baldvin um GATT-samkomulagið á Alþingi: Pólitíkin í málinu er enn óútkljáð - verkalýöshreyfinginsækiávirminganaíkjarasamningum „Á Alþingi er harðsnúinn hópur til vamar einokunarkerfinu með ótrúleg ítök í flestum flokkum. í þeim hópi em margir sem vilja nýta að fullu ýtrustu heimildir til tollaálagn- inga og koma þannig í verki í veg fyrir innflutning og samkeppni. Þetta er pólitik. Hvort verkalýðshreyfingin líti á það sem sitt mál aö gæta hags- muna launþega, launþega og heimil- anna í pólitískum átökum um þetta mun tíminn leiða í ljós,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Al- þýðuflokksins. Jón Baldvin fagnar því að meiri- hluti hafi loks myndast á Alþingi fyrir því að ísland verði stofnaðili að Álþjóðaviðskiptastofnuninni. Fyrir vikið tryggi Islendingar sér nánast núlltolla í Bandaríkjunum og vem- legar tollalækkanir í Asíu, Þá muni íslendingar njóta tollalækkana sem aðrar þjóðir hafi samið um á grund- velli reglunnar um bestukjör. „Með þessari niðurstöðu hefur þjóðinni verið forðað frá þeirri hneisu að geta ekki skipað sér á bekk með öllum helstu viðskiptaþjóðum sínum. Á því voru hins vegar horfur vegna misskilinnar hagsmunavörslu hins úrelta landbúnaðarkerfis." Aö sögn Jóns Baldvins er það ekki deilumál milli stjómarflokkanna að landbúnaðarráðherra hafi forræði yfir jöfnunartollum á þær innfluttu landbúnaðarafurðir sem jafnframt em framleiddar hér á landi. í bú- vörusamningnum sé kveðið á um þetta. Hins vegar sé forræðið tak- markað því við hlið ráðherra sé ráð- gjafanefnd sem í sitji fulltrúar þriggja ráðuneyta. Ágreiningi þar beri að vísa til ríkisstjómar. „Pólitíkin í málinu er hins vegar óútkljáð. Það á eftir að taka pólitisk- ar ákvarðanir um hversu langt skuli gengið í að nýta hámarksheimildir til vemdartolla. Þær pólitísku ákvarðandir munu ráða miklu um framfærslukostnað heimilanna og verð á lífsnauðsynjum.“ Jón Baldvin telur að það muni sumpart ráðast í komandi kjara- samningum hver úrfærslan á GATT verði hér innanlands. í raun standi menn frammi fyrir tveimur kostum. Að sækja kjarabætur meö háum pró- sentuhækkunum launa samfara aukinni áhættu af vaxandi verðbólgu og greiðslubyrði af skuldum eða bæta kjör hinna lægst launuðu og festa efnahagsbatann í sessi meö lækkun á matvörum og öðmm lífs- nauðsynjum með lækkun tolla. Að sögn Jóns Baldvins felur sam- komulagið frá því í gær ekki í sér neinar skuldbindingar um hvemig staðið verði að álagningu jöfnunar- tolla. Nefnd fimm ráðuneyta sem nú vinni að málinu hafi óbundnar hend- ur í því sambandi. Á hinn bóginn segir hann ljóst að með því að gerast stofnaðili að Alþjóðaviöskiptastofn- uninni skuldbindi ísland sig til að fara að reglum og sæta úrskurðum stofnunarinnar. „Þetta þýðir að við emm nú að sjá upphaf endalokanna á hinu gamla og úrelta einokunarkerfi landbúnað- arins. Reyndar á ég von á því að laun- þegar og neytendur geti orðið nokk- uð langeygðir eftir því að sjá þess merki við búðarboröið. Engu að síð- ur er þetta fyrsta hænuskrefið í þá átt að innleiða samkeppni í stað inn- flutningsbannsogeinokunar.“ -kaa Alþingi: Minni skattur á böm og ungmenni SamstaöavaráAlþingiígærkvöldi breytingum sem nú hafa orðið á um að fella svokallaðan bamaskatt skattalögummuntilfallanditekjuöfl- úr gildi. Breytingin felur í sér að al- un barna og ungmenna, til dæmis mennar launatekjur bama og ungl- við merkja- og blaðasölu ekki mynda inga að flárhæð 75 þúsund krónur stofn til álagningar útsvars_ogteláu.- skuli ekki skattlagðar. Með þeim skatts. -kaa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.