Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1994, Blaðsíða 21
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994
33
dv Fréttir
Dregið var úr aðsendum svörum Jólaleiks Radíóbúðarinnar á dögunum
og reyndist Eiríkur Jónsson sá heppni. Hér tekur hann við 29 tomma Telef-
unken sjónvarpstæki úr höndum Gunnars Kristins Sigurjónssonar, starfs-
manns Radíóbúðarinnar.
Flugeldaþjófnaöurinn upplýstur:
Öryggismál fyrir
neðan allar hellur
- segir rannsóknarlögreglumaður
Rannsóknarlögreglan í Keflavík
hefur handtekið tólf manns á aldrin-
um 15 til 20 ára vegna innbrota í
húsnæði Björgunarsveitarinnar
Suðumesja í Keflavík en um 20 hafa
verið yfirheyrðir. Rannsókn málsins
hófst eftir að 40 til 50 þúsund kínverj-
um og sýningarflugeldum var stohð
í einu innbroti um jólin. í fyrradag
var byrjað að handtaka menn vegna
innbrotsins og í gær var svo komið
að fangageymslur í Keflavík fylltust
og þurfti lögreglan þar að leita ásjár
lögreglunnar í Grindavík.
Þrátt fyrir slæmt ástand í fanga-
geymslumálum þurfti að hýsa tvo
þjófa til viðbótar en þeir voru hand-
teknir í gærmorgun eftir innbrot í
íþróttamiðstöðina í Sandgerði.
Við yfirheyrslur yfir mönnunum
sem handteknir voru vegna inn-
brotsins í flugeldageymsluna kom
fram að unglingar á Suðumesjum
hefðu gengið inn og út úr flugelda-
geymslunni frá því í byrjun desemb-
er. í framhaldi af fyrstu yfirheyrslum
var hafist handa við aö handtaka
gmnað og segir John Hill, rannsókn-
arlögreglumaður í Keflavík, að þeim
sé ekki lokið og má búast viö að fleiri
verði handteknir í dag. „Óheyrilegu
magni“ af flugeldum hafi verið stolið
á þessum tíma og málið sé allt með
ólíkindum. Fleiri, fleiri kassar og
pokar hafi horfið án þess að nokkur
hafi orðið þess var.
„Öryggisaðstæður í flugelda-
geymslunni vom fyrir neðan allar
hellur og ég geri fastlega ráð fyrir
því að yfirmenn lögreglunnar kreíj-
ist úrbóta á ástandinu. Við gemm
út sérstakan mann sem fylgist með
flugeldasölunni og við gefum út leyfi
fyrir sölu á flugeldum og ég geri ráð
fyrir því að menn hafi staðið í þeirri
trú að öryggismál væru í góðu lagi.
Hins vegar er staðreyndin sú að
menn uppgötvuðu ekki þjófnaðinn
fyrr en tívolíbomburnar og sýningar-
flugeldarnir hurfu yfir jólin.
Geymslustaðir þjófanna voru hinir
ótrúlegustu. Þetta var undir rúmun-
um hjá þeim og víðar og skreytingar
með kertum á nátthorðinu við hlið-
ina á þeim. Tveir menn frá okkur
hafa verið að innheimta flugelda í
dag og þeir hafa verið að koma með
heilu íþróttatöskumar fullar af flug-
eldum hingað inn,“ segir John.
Mest af flugeldunum sem stolið var
yfir jólin, en þeir éru stórhættulegir
viðvaningum, hefur komið í leitimar
og vonaðist John til þess að það tæk-
ist að innheimta svo til alla. Þá hefur
mikið af öðrum flugeldum, sem var
stohð fyrr í mánuðinum, einnig kom-
ið í leitirnar.
ÞJÓDLEIKHÚSID
Sími 11200
Stóra sviðið kl. 20.00
FÁVITINN
ettir Fjodor Dostojevskí
2. sýn. í kvöld fid., uppselt, 3. sýn. á
morgun föd., uppselt, 4. sýn. fld. 5/1,
nokkur sæti laus, 5. sýn. Id. 7/1, nokkur
sæti laus, 6. sýn. fld. 12/1.
SNÆDROTTNINGIN
eftir Évgeni Schwartz
Byggt á ævintýri H.C. Andersen
Sud. 8. jan. kl. 14.00, örfá sæti laus, 15/1
kl. 14.00.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Föd. 6. jan., örfá sæti laus, sud. 8/1, Id.
14/1. Ath. Fáar sýnlngar eftir.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Föd. 13. jan. Ath. Sýnlngum fer fækkandi.
GJAFAKORTI LEIKHÚS -
SÍGILD OG SKEMMTILEG GJÖF.
Afsláttur fyrlr korthafa
áskriftarkorta.
Miðasala Þjóðleikhússins er opln alla
daga nema mánudaga frá kl. 13 til 18
og fram aö sýningu sýningardaga.
Tekið á móti símapöntunum virka daga
frá kl. 10.
Græna linan 99 61 60. Bréfsími 6112 00.
Siml 1 12 00-Greiðslukortaþjónusta.
Tilkynningar
Flugfreyjufélag íslands
verður 40 ára fóstudaginn 30. desember
1994. Afmælisfagnaður verður haldinn í
Efri þingsal á Scandic Hótel Loftleiðum
sama dag kl. 18-20. Núverandi og fyrrver-
andi flugfreyjur og flugþjónar sérstak-
lega velkomin.
Jólaball Kvennakórs
Reykjavikur
Kvennakór Reykjavíkur heldur jólaball
fóstudaginn 30. desember kl. 16-18. Jóla-
ballið verður haldið í húskynnum
Kvennakórsins að Ægisgötu 7 og er öllum
heimill aðgangur. Jólasveinninn mætir á
staðinn og að sjálfsögðu verður mikið
sungið.
Gaukur á Stöng
Hljómsveitin Sól Dögg leikur á Gauknum
29. og 30. desember. Meðlimir hljómsveit-
arinnar eru þeir Bergsveinn Árelíusson,
söngur, Ásgeir Ásgeirsson, gítar, Baldvin
A.B. Aalen, trommur, Ólafur Þ. Kristj-
ánsson, bassa, og Stefán H. Henrýsson,
hljómborð.
Guðþjónusta fyrir
eldri borgara
Haldin verður sérstök guðsþjónusta fyrir
eldri borgara í Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 29. desember kl. 14 á vegum Elli-
málaráös Reykjavíkurprófastsdæma og
Öldrunarþjónustudeildar Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkur. Sr. Pétur Sigur-
geirsson biskup predikar. Sr. Guðlaug
H. Ásgeirsdóttir og sr. Pálmi Matthíasson
annast guðsþjónustu. Kaffiveitingar í
safnaðarheimili Bústaðakirkju eftir
guðsþjónustu. Allir hjartanlega vel-
komnir.
Dorgveiði í Reynisvatni
Vegna fjölda áskorana verður opið fyrir
dorgveiði í Reynisvatni í Reykjavík milh
jóla og nýárs, opiö verður frá birtingu
fram í myrkur. A nýársdag verður opið
frá kl. 12 á hádegi.
Svidsljós
Meðal gesta í fertugsafmæli Jóns Baldurssonar voru þær Kristin Vigfúsdótt-
ir og Berglind Oddgeirsdóttir. Engum sögum fer af bridgekunnáttu þeirra
en án nokkurs vafa hljóma algengar sagnir kunnuglega í eyrum þeirra.
DV-mynd Sveinn
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litlasviðkl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
. eftir Jóhann Sigurjónsson
Föstud. 30. des.
Laugard. 7. jan.
Stóra svið kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og Indriða Waage.
Föstud. 30. des.
Laugard. 7. jan.
Litla sviðkl. 20:
ÓFÆLNA STÚLKAN
eftir Anton Helga Jónsson.
Flmmtud. 29/12, sunnud. 8. jan. kl. 16.
Söngleikurinn
KABARETT
Frumsýning föstud. 13. jan., örfá
sæti laus,
2. sýn. mlðd. 18. jan. Grá kort gilda,
örfá sæti laus.
3. sýn. föstud. 20. jan. Rauð kort gilda.
Miðasaia verður opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-20.00.
Miðapantanir i sima 680680 alla
virka daga frá kl. 10-12.
Munið gjafakortin
okkar
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Spennandi og margslunginn
sakamólaleikur!
SÝNINGAR
3. sýning í kvöld kl. 20.30
4. sýning lau. 7. jan. kl. 20.30
•®®SjBáns>
MiOusalun cr opin virka dugu ncma
múinidaga kl. 14-18 oc sýningardaga
l'ram að sýningu. Sími 24073
Grciðsliikorlaþjóinista
Klúbbur matreiðslumeistara
Föstudaginn 6. janúar nk. veröur hinn
árlegi hátíöarkvöldverður Klúbbs mat-
reiðslumeistara haldinn í Skiðaskálan-
um í Hveradölum. Tíu rétta veislumat-
seðill er í boði ásamt jafnmörgum vínum
og munu milli tuttugu og þijátíu mat-
reiðslumeistarar sjá um matreiðsluna.
Sérstakur listamaður er fenginn hveiju
sinni til að hanna listaverk á veisludisk-
ana, sem að þessu sinni verður í höndum
Helgu Jóhannsdóttur leirlistakonu í
gamla Álafossi í Mosfellsbæ. Miðar á
hátiðarkvöldverðinn eru seldir til fastra
gesta sem koma í veisluna á hveiju ári,
en eftir miðjan desember eru þeir miðar
sem eftir eru seldir öllum þeim sem
áhuga hafa á matgerðarlist eins og hún
gerist best á íslandi.
9 9*17*00
Verö aöeins 39,90 mín.
1 Fótbolti
2 Handbolti
:3j Körfubolti
Enski boltinn
ítalski boltinn
61 Þýski boltinn
7 j Önnur úrslit
81 NBA-deildin
stórmarkaðanna
_2J Uppskriftir
Læknavaktin
2 Apótek
3 Gengi
Dagskrá Sjónv.
Dagskrá St. 2
Dagskrá rásar 1
Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
Myndbandagagnrýni
ísl. listinn
-topp 40
_7j Tónlistargagnrýni
n
m
m
AJ
1} Krár
2j Dansstaöir
3 Leikhús
41 Leikhúsgagnrýni
_5J Bíó
[6J Kvikmgagnrýni
/mnmgsnumer
SJ Lottó
21 Víkingalottó
;3j Getraunir
AÍlflli,
DV
99*17*00
Verö aðeins 39,90 mín.