Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1994, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 29.12.1994, Blaðsíða 24
36 FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 Ólafur Ragnar Grímsson. Fíkjublað sem dylur ágreining „Spurningin er bara hvort yfir- lýsingin sé fikjublaö til aö dylja ágreining í stjórnarflokkunum eöa er hún raunvenileg stjórnar- yíirlýsing," segir Ólafur Ragnar Grímsson í DV. 400 þúsund á mánuði ættu að nægja fyrir húsaleigu „Ég greiddi því ekki atkvæöi mitt að bæjarstjórinn fengi niöur- greidda húsaleigu. Mín rök fyrir að hafna því eru þau að maður sem er með laun fast aö 400 þús- und á mánuöi sé ekkert of góður til aö greiða sína húsaleigu sjálf- ur,“ segir Bjöm Valur Gíslason, bæjarfuiltrúi á Ólafsfirði. Miklir mannkostir „Hún er glæsilegur heimsborgari í fremstu röö þar sem saman fara Ummæli þokki, þekking, fegurð og gáfur. Slíkir mannkostir fara fyrir brjóstið á litlum sálum, sem glefsa þar til þeirra sem þær kom- ast næst þeim og hæst - í hæl- ana,“ skrifar Ragnar Tómasson um Bryndísi Schram í Morgun- blaðinu.“ Eiginkonur að skrifa Njálu „Segja má að eiginkonur þeirra Viðeyjarbræðra séu að skrifa sína eigin Njálu í dagpeningamál- um, því hvorug viU hornkerling vera og verður fróðlegt að fylgjast með ættarveldinu þegar Schram, svarar þessu framlagi Thorar- ensen," skrifar Garri í Tímann. Viljum eitthvað í staðinn „Mér finnst það ekki sjálfgefið að á sama tima og við höfum ekki frelsi til athafna í þessu vinalandi okkar séum við að opna athuga- semdalaust fyrir umsvif kana- dískra stórfyrirtækja hér á landi. Það er ef við viljum halda uppi vemdunarsjónarmiðum með sama hætti og Kanadamenn þeg- ar þeir vilja passa Upp á Air Canada gagnvart Flugleiðum," segir Halldór Blöndal í DV. Kynnast kvenmaður frá ísafold „Með leyfi að spyrja: ekki vænti ég þú getir hjál það mér. ég biðja þér hjálpa mig kynnast með kvenmaður frá ísafold með til- gangur bréfaviðskipti," skrifar Gleb Teröhin með beiðni um pennavin. Ekki sama Jón og séra Jón „Þaö er gott að ég er nýr í þessu hlutverki, ef A1 Pacino hefði verið settur í hlutverkið hefði myndin verið tekin á íslandi og hann lát- inn dúsa í kofaskrifli í þrjár vikur til að ná tökum á hlutverkinu,“ segir bandaríski leikarinn Tim Allen en hann leikur jólasveininn í samnéfndri kvikmynd. Sagtvar: Hann var ásakaður fyrir afbrot. Rétt væri: Hann var sakaöur um afbrot. < Gætum timgunnar Éljagangur fyrir norðan í dag verður norðaustan- og síðan norðanátt um allt land. Víða verður allhvasst eða hvasst framan af degi, Veðriðídag en í kvöld og nótt tekur vind að lægja um landið vestanvert. Éljagangur verður norðan- og norðaustanlands og eins á Vestfjörðum en þurrt og víða léttskýjað syöra. Frost verður víða á bilinu 3-8 stig. Á höfuðborgar- svæðinu verður norðaustan- og síðar norðanátt, kaldi, en síðar stinnings- kaldi og léttskýjað. Frost á bilinu 4-8 stig. Sólarlag í Reykjavík: 15.38 Sólarupprás á morgun: 11.21 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.42 Árdegisflóð á morgun: 04.19 Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri snjókoma -6 Akumes léttskýjað -A Bergstaðir hálfskýjað -6 Bolungarvík snjóél -5 Keflavíkurflugvöllur léttskýjað -A Kirkjubæjarklaustur skafrenn- ingur -5 Raufarhöfn snjóél -3 Reykjavík léttskýjað -7 Stórhöfði léttskýjað -3 Bergen rign.ásíð. klst. 7 Helsinki skýjað -7 Kaupmarmahöfn þokumóða 9 Stokkhólmur slydda 1 Þórshöfn rigning 5 Amsterdam rigning 11 Berlín rigning 13 Frankfurt skýjað 11 Glasgow þrumuv. á síð. klst. 5 Hamborg rigning og súld 12 London skúr 13 LosAngeles léttskýjað 12 Lúxemborg rigning 8 Mallorca léttskýjað 0 Montreal skýjað -2 New York skýjað 7 Nice hálfskýjað 7 Orlando skýjað 15 Róm þokumóða 7 Vín skýjað 7 Washington léttskýjað 6 Winnipeg alskýjað -9 Þrándheimur snjókoma 2 Þórður Tómasson, safnvörðurí Skógum: „Byggöasafnið í Skógum er bæði landbúnaöarsafn og sjóminjasafn og á uppruna sinn í kringum 1946 en sýningarsafn varö það fyrst í litlum mæli 1949. Þar var síöan byggt safnhús 1954-1955. Var það byggt utan um höfuðdýrgrip safns- ins, áraskipið Pétursey, sem er frá 1855,“ segir Þórður Tómasson, safhvörður við Byggðasafnið í Skógum en honum voru veitt heið- Maöur dagsins ursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttur Wright fyrir uppbyggingarstarf við safnið og fræðistörf. Voru honum afhent verðlaunin við hátíðlega athöfn í Norræna húsinu. Þórður sagði að það hafi verið hans hugmynd aö byggja upp safn á Skógum. „Ég átti reyndar góöan mann að, séra Jón Guðjónsson í Holti, sem bar fram á erindi á sýslufundi Rangæinga 1945. Vest- ur-Skaftfellingar komu síðan inn í Þórður Tómasson. samstarfið 1952 og er byggðasafnið sameign Rangárvalla- og Vestur- Skaftafellssýslu." Þórður hefur auk þess að sinna safninu staöíð í að flytja gömul hús að Skógum og endurbyggja þau og þar má nefna fyrsta timburhús Skaftfellinga frá Holti á Síöu, hús sem er frá 1878, og bæ með fjósi og baðstofu frá Skálasíðu. Þórður sagði aðspurður að hann hefði ekki óraö fyrir því í byrjun að safnið yrði jafn umfangsmikið og raunin er orðin. „Þetta hefur þróast í rólegheitum meö góöum vilja allra og hef ég fengið alla þá styrki sem ég hef þurft á að halda.“ Þórður sagðist vera í um það bil hálfu starfi við safnið. „Á veturna er ég á kafi viö aö skrifa íslenska búskaparhætti og að safna efni 1 þetta verk sem er mjög stórt og ofviða einum manni sem kominn er á efri ár. En þarna er ég aö sinna áhugamáli sem ég hef haft frá barn- æsku og má segja að þarna fari saman vinna og áhugamál. Þórði finnst það afskaplega raerkilegt að hann skuli hafa fengið styrk úr verðlaunasjóði Ásu Guð- mundsdóttur Wright: „Ég er bara ótíndur alþýðumaður og hef lært allt sem ég veit af lifinu og fólkinu. Ég met þessa viðurkenningu mjög mikils og tel hana vera viðurkenn- ingu fyrir islenska alþýðumenn- ingu.“ Myndgátan Unglingalands- leikir í körfubolta Það er mikið um að vera í körfuboltanum í dag. Unglinga- landslið kvenna og karla eru nú að taka þátt í Norðurlandamótura og eru þrír leikir á dagskrá í dag. fþróttir Strákarnir leika tvo leiki, þann fyrri gegn Eistlendingum en þann síðari gegn Svíum. Stelpurnar leika gegn eistlensku stúlkunum. Þá veröur í dag síðastijeikurinn í þriggja leikja keppni íslendinga og Englendinga. íslendingar voru sterkari í fyrsta leiknum og unnu glæsilega. Leikurinn i kvöld fer fram í Hveragerði og hefst kl. 20. Einn stærsti viðburður ársins í íþróttalííi íslendinga veröur í dag en þá verður valinn íþróttamaður ársins. Þegar hafa tilnefningar verið kynntar og eru þar margir kallaöir en aðeins einn verður fyrir valinu. Það eru samtök íþróttafréttamanna sem velja íþróttamann ársins. Skák Jan Timman tefldi á fyrsta borði með Hollendingum í Moskvu en þreytumerki voru á taflmennskunni og hann náði ekki að styrkja sveitina sem skyldi. Þessi staða er úr tafli Hollendinga við Dani. Lars Bo Hansen, með hvitt, lék síð- ast 33. Rd7-f6 með skák og ekki leyst Tim- man alls kostar á 33. - Kh8 34. Re8. Hann valdi því 33. - Kf8, en hvað beið hans þá? Eftir 33. - KfB(?) 34. He8 +! gafst Tim- man upp. Ef 34. - Hxe8 35. Dd6+ He7 36. Dd8+ He8 37. Dxe8 mát. Bridge I gær sagði frá spiii úr nýútkominni bók danska bridgesambandsins, Bridge Á La Carte. Spil dagsins er einnig úr þeirri bók, en höfundur er Lars Blakset og tígul- drottningin er þar í aðalhlutverki. Spiliö var spilað af honum sjálfum á HM í tví- menningi í Albuquerque á þessu ári. Blakset sat í suður og sagnir gengu þann- ig, vestur gjafari og AV á hættu: ♦ Á63 V 864 ♦ G873 + DG4 ♦ K107542 V 5 ♦ ÁK109 + 85 Vestur Noröur Austur Suður Pass Pass 1» 2* 3+ 3* Pass Pass 4* Pass Pass 44 Dobl p/h Tveggja spaða sögn Blaksets lofaði spaða og öðrum hvorum láglitanna. Þegar kom að Blakset að segja yfir fjórum hjörtum, þá taldi hann sjálfsagt að segja 4 spaða, því ef þeir höfðu hreinlega ekki mögu- leika á að vinnast, voru þeir sennilega góð fóm yfir 4 hjörtum. Það var rétt hjá Blakset enda spiluðu flestir fjóra spaða doblaða á suöur höndina. Alflestir fóru einn niður í þeim samningi eflir laufás- inn út, síðan kónginn og meira lauf sem austur trompaði. Sagnhafi henti þá ein- faldlega hjarta og gaf þannig aðeins 4 slagi.. En Blakset var óheppnari þvi vest- ur spilaði út þjarta, austur drap á gosa og spilaði ásnum. Blakset trompaði, tók spaðakóng, spilaði spaða á ás og síðan tígulgosa. Austur setti umsvifalaust litið spil sem benti til þess að hann ætti ekki drottninguna. Blakset hafði grun um að vestur ætti Dxx og ákvað því að leggja gildru fyrir hann. Hann drap á ás og spil- aði síðan lágum tígli. Vestur hugsaði sig um andartak og setti síðan lítið spil því hann gat ómögulega séð sagnhafa fyrir sér hafna svíningunni. Þannig slapp Blakset einn niöur en hefði fengið mjög lélega skor fyrir aö fara 2 niður. » utiy V ÁKDG72 ♦ 65 ♦ 8 V 1093 ♦ D42 + ÁK10763

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.