Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1995, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995
7
Fréttir
Veitustofhun 1 viðræðmn við Háskólann um prófessorsstöðu í vélaverkfræði:
Skipað í embættið í vor
- verið að afhenda forkólfi R-listans 3,5 milljónir, segir Gunnar Jóhann Birgisson
í byrjun janúar verða teknar upp
viðræður milli stjórnenda Háskóla
íslands, stjórnar Veitustofnana og
menntamálaráðherra um að Hita-
veita Reykjavíkur kosti stöðu pró-
fessors í vélaverkfræði við Háskól-
ann. Alfreð Þorsteinsson, formaður
stjórnar Veitustofnana, segir að gert
sé ráð fyrir að samþykki ráðherra
fáist og verði því að öllum líkindum
skipað í stöðuna í vor. Staðan verður
veitt til tveggja ára frá 1. ágúst.
„Þetta er hugmynd sem hefur verið
til umræðu í nokkur ár. Ég vissi af
henni og tók hana upp. Gamla hug-
myndin gerði ráð fyrir aö staðan yrði
kostuð ótímabundið en menn voru
ragir við það og því var þetta gert í
tilraunaskyni til tveggja ára. Valdi-
mar K. Jónsson, formaður fulltrúa-
ráðs Framsóknarflokksins, er pró-
fessor í vélaverkfræði. Hitaveitan
hefur um árabil keypt rannsóknir
af vélaverkfræðideildinni og því er í
sjálfu sér ekki um miklar breytingar
að ræða,“ segir Alfreð Þorsteinsson,
formaður stjórnar Veitustofnana.
„Okkur finnst óeðlilegt hjá stjórn-
málaafli að styrkja prófessorsemb-
ætti með þessum hætti. Við teljum
að það sé hlutverk rikisvaldsins að
reka Háskóla íslands og teljum eðli-
legt að styrkja rannsóknarverkefni
þegar þau koma upp og hafa þannig
sama háttinn á og áður. Þarna er
verið að afhenda einum forkólfi R-
listans 3,5 milljónir í rannsóknir á
ári,“ segir Gunnar Jóhann Birgisson,
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn
Veitustofnana.
Verslunarráö viU undirbúa aöildarumsókn aö ESB:
Áskorun til for-
sætisráðherra
„Verslunarráð íslands skorar á
stjórnvöld að taka aðild íslands að
Evrópusambandinu nú þegar til
skipulegrar og markvissrar um-
fjöllunar og meðferðar. Verslunar-
ráðið lýsir sig jafnframt að sínu
leyti reiðubúið til samstarfs viö
stjórnvöld um það verkefni," segir
í bréfi sem Verslunarráðið hefur
sent Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra.
í bréfinu kemur fram að Verslun-
arráðið vill að íslensk stjórnvöld
setji sér samningsmarkmið gagn-
vart Evrópusambandinu og hefji
skipulega kynningu á þeim gagn-
vart aðildarríkjum sambandsins.
Markmið sé að leggja fram aðilda-
rumsókn eigi síöar en á árinu 1996
leiði slík kynning í ljós að markmið
íslendinga geti náðst í slíkum aðild-
arviðræðum.
Verslunarráðið- er fyrst samtaka
atvinnulífsins til að taka formlega
jákvæða afstöðu til hugsanlegrar
aðildarumsóknar að Evrópusam-
bandinu. Eftir áralanga umfjöllun
um málið hefur ráðið komist að
þeirri niðurstöðu að ísland eigi
góða möguleika á að koma ár sinni
vel fyrir borð innan Evrópusam-
bandsins.
í bréfi Verslunarráðsins er fjallað
um efnahagsleg og pólitísk rök fyr-
ir aðild íslands að Evrópusam-
bandinu. Pólitísku rökin fjalla um
nauðsyn þess aö eiga aðild að
ákvarðanatöku innan sambands-
ins sem snertir íslenska hagsmuni.
Efnahagslegu rökin snerta fyrst og
fremst langtímahagsmuni íslensks
atvinnulífs.
-kaa
Ferðafélagið efndi til blysfarar og göngu um Elliðaárdal kvöldið fyrir gamlársdag. Ganga þessi, sem hugsuð er
sem stutt og skemmtileg fjölskylduferð, er orðin að árlegum viðburði í starfi félagsins. Nokkur hópur áhugasamra
félaaa oa aönaumanna tók bátt í ferðinni. DV-mynd JAK
EggertHaukdal:
Þögull um
sérframboð
Á fundi Sjálfstæðisflokksfélaganna
í Rangárvallasýslu á Hellu á fimmtu-
daginn kom fram tillaga þar sem
skorað var á Eggert Haukdal að
hætta við sérframboð og var tillagan
samþykkt með 26 atkvæðum gegn 10
en 2 sátu hjá. Áður kom fram frávís-
unartillaga sem var felld með 21 at-
kvæði gegn 16.
Eggert sat fundinn en samkvæmt
heimildum DV gaf hann engar yfir-
lýsingar um framboðsmál sín. í sam-
tali við DV vildi hann ekkert tjá sig
um framboðsmál sín.
„Um þetta er ekkert að segja. Nú
eru áramót og hvað verður mun
koma í ljós síðar í mánuðinum,"
sagði Eggert. -kaa
Yfirlýsing Rússa:
Tek svörin hæf i-
lega trúanleg
- segir Þorsteinn Pálsson
„Þetta er býsna furðulegt í ljósi
þeirrar niðurstöðu sem utanríkis-
ráöherra lýsti eftir fund hans með
utanríkisráðherra Rússlands. Það er
engu líkara en að þeir séu að koma
beint í bakið á honum,“ segir Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
vegna þeirra svara rússneskra
stjómvalda að ákvörðun um að landa
ekki Rússafiski á íslandi sé ákvörðun
útgerðarmanna í Murmansk.
„Maður tekur þau svör hæfilega
trúanleg. Ekki síst í því ljósi að þetta
gerist bara nokkrum dögum eftir að
utanríkisráðherrar ríkjanna undir-
rita yfirlýsingu um að beita sér fyrir
aukinni samvinnu landanna," segir
Þorsteinn. -rt
Kennslustaðir:
Grensásvegur 12 (bakhús)
Grafarvogur
Breiðholt
Seltjarnarnes
Garðabær
Selfoss
Akranes
Afsláttartilboð fyrír lokaða hópa,
s.s. fyrirtæki, saumaklúbba,
starfsmannahópa og ff.
DANSS
Au Ð A R H A R A L D
óðÁrvt ’Mum iaadMtötuutrtt
Það sem við kennum:
★ Frábærir, skemmtilegir barnadansar og leikir
fyrir börn 3-4 ára. Jóki trúður kemur í heimsókn.
★ Samkvæmisdansar fyrir alla aldurshópa,
sértímar fyrir byrjendur.
★ Rock’n’roll, 5 tíma námskeið.
★ Funk- og jassdansar (yngst 8 ára),
íslandsmeistarar í funk kvenna.
EinkatímarI hóptímar
Kennarar skólans eru:
Auður Haraldsdóttir
Hinrik Valsson
Ragnar Sverrisson
Hólmfríður Þorvaldsdóttir
Jóhannes Bachman „Rock“
Innritun og upplýsingar til 7. janúar
frákl. 13-21 í síma 39600.
Afhending skírteina 8. janúar kl. 15-18. • Kennsla hefst mánudaginn 9. janúar