Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1995, Blaðsíða 24
24
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995
Sviðsljós
Bums berst
við flensu
George Burns, gamalreyndur
grínistl og vindlareykingamaður
í Ameríku, ætlar sér aö verða
alira karla elstur. Hann er ekki
nema 98 ára þessa stundina en
verður 99 þann 20. janúar. Þá
ætlaði karl sér að skemmta í Las
Vegas en hefur orðiö að fresta því
vegna flensupestar. Hann er þó
staðráðinn í að skemmta gestum
spilavítisborgarinnar á 100 ára
afmælinu árið 1996.
Ungfru Frakkland 1995 var valin i Paris á dögunum. Fyrir valinu varð Melody Vilbert sem er til vinstri á mynd-
inni. Stúlkan við hliðina á henni er sigurvegarinn frá keppninni 1994. Melody er átján ára gömul og er mennta-
skólanemi. Hana langar til að verða blaðamaður. Simamynd Reuter
Minnelli með
stálmjöðm
Söngkonan Liza Minnelli er
nýkomin heim af sjúkrahúsi þar
sem settur var gerviliður í
mjöðmina hægra megin. „Það
verða heldur betur lætin þegar
ég fer í gegnum málmleitartækin
á flugvöilunum," sagði hún í við-
tali. „Aðgerðin gekk vel og það
er stórkostleg aö finna ekki til í
tyrsta sinn í mörg ár. Ég verð
meö hækjur i sex vikur en eftir
það get ég gert hvað sem er.“
Bissettil
Frakklands
Holiywood-leikkonan Jacque-
line Bisset er í miklu uppáhaldi
hjá frönskum kvikmyndaáhuga-
mönnum, kannski vegna þess að
nafnið hennar er svo franskt.
Hvaö um þaö, hún tekur fyrsta
flug til Parísar nú eftir hátiöarnar
til að leika í nýjustu mynd snill-
ingsins Claudes Chabrols, La
Cérémonie, eða Athöfninni, á
móti tveimur öðrum stórleikkon-
um, hinum frönsku Isabelle
Huppert og Sandrine Bonnaire.
RogerMoore
áflótta
Leikarinn og hjartaknúsarinn
Roger Moore hefur sennilega
þurft að rifja upp snerpu og út-
sjónarsemi bæði Dýrlingsins og
James Bond á dögunum þegar
hann neyddist til að flýja heimili
sín í London og Frakklandi.
Fregnir herma að hann sé um það
bil að skilja viö eiginkonuna og
því voru heimilin umsetin ljós-
myndurum. Kærasta Rogers,
Khristina Tholstrup, er í Monte
Cario en sjálfur flúði Bond-inn
fyrrverandi heim til pabba.
Mel Gibson og Jodie Foster eru hér nieð James Garner í vestranum um spilagosann Maverick.
Jodie Foster elskar Mel
Gibson út af lífinu
Jodie Foster hefur löngum verið
talin gáfaðasta leikkonan vestur í
Hollywood, með próf frá finum há-
skóla og allt það, hlutverk í mörgum
gáfulegum myndum. Henni fmnst þó
gaman að fíflaskap, eins og okkur
öllum hinum. Hún lýsti þvi yfir í við-
tah við stórblaðið Washington Post
þegar hún var að tala vel um sam-
leikara sinn úr vestranum Maverick,
hjartaknúsarann Mel Gibson.
Jodie sagði að Maverick hefði veriö
skemmtilegasta myndin að leika í,
allt Mel Gibson að þakka.
„Mel er fyndinn á einstaklega
heimskulegan hátt. Hann segir leiö-
inlega brandara, setur pappírs-
klemmur í jakkann manns og gerir
virkilega heimskulega hluti,“ sagöi
Jodie í viðtalinu.
Og áfram heldur fegurðardísin að
dásama Mel: „Hann er svo margt sem
ég er ekki. Hann gerir til dæmis af-
skaplega htla rehu út af hlutunum.
í fyrsta skipti sem ég hitti hann gekk
ég inn í herbergið og sagði: ég elska
þennan náunga! En þannig er því
sjálfsagt farið um fullt af fólki sem
hittir hann,“ sagði Jodie Foster um
Mel Gibson. Greinheg hrifning þar.
Ekki fylgir sögunni hvort eitthvað
meira hafi orðið úr þessu eða hvort
hrifningin var gagnkvæm. Annað er
þó ótrúlegt. Jodie Foster er jú bæði
gáfuð og faheg.
^ Sýnið lifrina úr
David Crosby á
Hard Rock Café
Donald Trump
villekki
selja hótelið
Bandarískur blaðamaöur, Phil
Rosenthal að nafni, sem starfar við
Los Angeles Daily News, kom meö
skemmtilega uppástungu um daginn
um hvað gera skyldi viö gömlu lifr-
ina úr popparanum David Crosby,
þessum úr Crosby, Stills og Nash.
Crosby gekkst undir lifrarskiptaað-
gerð fyrir skömmu þar sem sú gamla
var handónýt eftir áratugalanga of-
drykkju og dópneyslu eigandans.
„Lifrin í Crosby er minnisvarði um
hversu heimskuleg ofneysla vímu-
efna er,“ sagði Rosenthal og lagði til
að líffærið yrði sent vitt og breitt um
landið og það notað tfl fræðslu um
skaðsemi vímuefna.
„Þeir ættu að senda ónýtu lifrina
th skóla og samtaka, eða kannski
koma henni fyrir í einhverju Hard
Rock Café,“ sagði Phh Rosenthal.
David Crosby stórpoppari var enn
ekki búinn að skemma i sér lifrina
þegar þessi mynd var tekin við brúð-
kaupið fyrir nokkrum árum.
Heldur hljótt heítir verið um
ameríska fasteignagrósserann
Donald Trump upp á síðkastið,
engir skandalar, ekki neitt. Nú
er hann hins vegar aftur kominn
í fréttimar, aö þessu sinni vegna
glæsihótelsins Plaza í New York
þar sem það getur borgað sig að
láta sjá sig í hádegisverði.
Það er nefnilega svo að annar
auöjöfur, sennhega heldur betur
stæður en Donald, ku hafa sýnt
hótehnu áhuga, sjálfur soldáninn
afBrúnei, smáríki austur I Asíu.
Donald á 51 prósent hlutabréfa
í gistihúsinu glæsilega og á fjör-
legum fundi með fréttamönnum
nýlega sagði hann hátt og snjaht
að hann ætlaði sko hreint ekki
að selja. Starfsfólk hans virðist
sammála því ekki færri en eitt
hundrað þemur, kokkar og við-
haldsmenn fóm i kröfugöngu um
ganga hótelsins og inn á blaða-
mannafundinn með spjöld á lofti
þar sem stóð meðal annars: Við
viljum Trump, og: Sendiö soldán-
inn aftur til Brúnei.
Það fylgir hins vegar sögunni
aö eigendur 49 prósentanna sem
Donald á ekki, mislitur flokkur
bankastofnana, haldi ekki jafn
fast í sinn hlut. Donald þarf því
kannski aö eiga við soldáninn,
þótt síðar verði.
Donald Trump er elskaöur og
dáður af starfsfólki sínu. Grelnl-
lega lika af eiginkonunni, Mörlu
Maples.