Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1995, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1995, Blaðsíða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995 Afmæli Sveinn Torfi Sveinsson Sveinn Torfi Sveinsson verkfræö- ingur, Hraungörðum, Garðabæ, varð sjötugur í gær. Starfsferill Sveinn fæddist á Hvítárbakka í Andakílshreppi í Borgarfirði en ólst upp í Reykjavík. Hann lauk stúd- entsprófi frá MR1944, fyrri hluta- verkfræöiprófi frá HÍ og seinni hluta-verkfræðiprófi frá Danmarks Tekniske Höjskole 1949. Sveinn var verkfræðingur við Hitaveitu Reykjavíkur 1949, deildar- verkfræðingur þar 1950-61 en hefur starfrækt eigin verkfræðistofu frá 1961. Sveinn sat í ritnefnd Ökuþórs, tímarits FÍB1950-52, var formaður FÍB1952-56, í byggingarnefnd Garðabæjar og formaður hennar í nokkur ár, í almannavarnanefnd Hafnarfjarðarumdæmis frá 1971 og formaður þar frá 1986, í stjórn Hag- tryggingar hf. frá 1965-86 og í lands- þjónustunefnd AA-samtakanna frá 1994. Fjölskylda Sveinn kvæntist 4.7.1953 Elísa- betu Hinriksdóttur, f. 8.4.1925, hús- móður. Hún er dóttir Henriks Schumanns Wagles, vélgæslu- manns af norskum ættum er varð íslenskur ríkisborgari, og Önnu Árnadóttur húsmóður. Dætur Sveins og Elísabetar eru Vilborg Elín Torfadóttir, f. 23.10. 1954, húsmóðir í Garðabæ, gift Ein- ari J. Benediktssyni vélgæslu- manni; Ingibjörg Ásdís Torfadóttir, f. 22.5.1959, húsmóðir i Kaupmanna- höfn, gift Jóni I. Ragnarssyni hús- gagnasmið. Dóttir Sveins og Þórunnar Árna- dóttur ljósmóður er Ingibjörg Erna Sveinsdóttir, f. 16.7.1962, húsmóðir, gift Helga Ó. Ólafssyni líffræðingi. Systir Sveins er Sigrún Ásdís Sveinsdóttir, f. 15.1.1935, búsett í Sviss, var gift Virko Mir, hagfræð- ingi í Ljubljara í Slóveníu en þau skildu og er sonur þeirra Jón Alex- ander Mir, f. 16.9.1962, rafmagns- verkfræðingur, kvæntur Önnu Nusa Mir. Foreldrar Sveins voru Gústaf Adolf Sveinsson, f. 7.1.1898, d. 5.1. 1971, hrl. í Reykjavík, og k.h., Olga Dagmar Sveinsson, f. Jónsdóttir, f. 15.8.1898, d. 27.8.1981, húsmóöir. Ætt Gústaf Adolf var bróðir dr. Einars Ólafs Sveinssonar, fööur Sveins, leikskálds og leikstjóra. Gústaf Adolf var sonur Sveins, b. í Suður- Hvammi í Mýrdal, bróður Guðrún- ar, móður Orms, rafveitustjóra í Borgarnesi og Ólafs, fóður Örms, formanns Kvæðamannafélagsins Iðunnar, fóður Ólafs rithöfundar. Guðrún var einnig móðir Eiríks og Jóns er stofnuðu fyrirtækið Bræð- urnir Ormsson en Jón var faðir Jóns Aðalsteins, fyrrv. forstöðu- manns Orðabókar HÍ, föður Jóns Viðars leiklistargagnrýnanda. Sveinn var sonur Ólafs, b. í Eystri- Lyngum, Sveinssonar, bróður Ingi- mundar, afa Jóhannesar Kjarvals. Móðir Sveins var Guðrún Bjarna- dóttir, b. í Efri-Ey, Runólfssonar og Ingibjargar Nikulásdóttur. Móðir Gústafs Adolfs var Vilborg Einarsdóttir, oddvita í Efri-Ey, Ein- arssonar og Rannveigar Magnús- dóttur. Olga var dóttir Jóns, sölustjóra í Efnagerð Reykjavíkur, Gíslasonar, b. á Lambanes-Reykjum í Fljótum, Árnasonar, b. á Brekku í Vallhólma, Gíslasonar. Móðir Gísla var Guð- björg, systir Margrétar, ömmu Ein- ars, alþm. á Hraunum í Fljótum, föður Páls borgarstjóra, fóður verk- fræðinganna Einars borgarverk- fræðings og Ólafs, fóður Unnar veð- urfræðings. Guðbjörg var dóttir Gísla, prests í Stærra-Árskógi, Jóns- Sveinn Torfi Sveinsson. sonar, biskups Teitssonar. Móðir Olgu var Ásdís Jónsdóttir, sjómanns frá Miðdalshúsum, Hall- dórssonar, og Guðrúnar Nikulás- dóttur, b. í Hraunkoti í Grímsnesi, Þórðarsona. Móðir Guðrúnar var Ingunn Erlendsdóttir. Skjalaskápar skipuleg skjalavistun :shannon: :datastor: idatastor: skjalaskáp Nýr litur Sem áður er hægt að fá skáp- ana með föstum hillum, hillu- stoðum, útdregnum hillum, upphengjum, bæði föstum og útdregnum fyrir skjalapoka, út- dregnum spjaldskrám, hillum og vinnuborði, útdregnu til að leggja á þá hluti sem unnið er með hverju sinni. HAGSTÆTT VERÐ. LEITIÐ UPPLÝSINGA. ölilfua 0ISIA50N 4 CO. Hf. Sundaborg 3 - sími 684800 Útboð Vesturlandsvegur í Reykjavík. Mislæg gatnamót við Höfðabakka Borgarverkfræðingurinn í Reykjavík og vegamálastjóri óska eftir tilboðum í gerð mislægra gatnamóta á mótum Vesturlands- vegar og Höfðabakka. Um er að ræða gerð brúar auk aðliggjandi vega og vegtenginga. Helstu magntölur brúarhluta; Mótafletir 6.000 m2, steypustyrktarjárn 320 tonn, spennistál 19 tonn, steinsteypa 2.100 m3 og stálsmíði 9 tonn. Helstu magntölur vegarhluta: Skering í laus jarðlög 74.000 m3, skering í berg 1.500 m3, fylling og neðra burðarlag 115.000 m3, púkk 35.000 m3, malbik 108.000 m2 og kantsteinar 3.200 m. Verki skal lokið að hluta 4. september 1995 en að öllu leyti eigi síðar en 15. október 1995. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð- inni, Borgartúni 5, Reykjavík (aðalgjald- kera), frá og með 9. janúar nk. Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 30. janúar 1995. J Þorbjörg Gunnlaug Halldórsdóttir Þorbjörg Gunnlaug Halldórs- dóttir húsfreyja, Bakkavegi 1, Þórs- höfn, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Þorbjörg fæddist á Svalbarðsseli í Þistilíirði og ólst þar upp fyrstu ellefu árin. Hún var síðan að Flögu í eitt ár og þar næst að Víðihóli á Fjöllum á þriðja ár en fór þá aftur í Þistilflörðinn. Þorbjörg gekk í barnaskóla í fjóra mánuöi á þremur árum. Hún festi kaup á saumavél er hún var sautj- án ára og saumaði mikið fyrir aðra. Þá vann hún öll almenn sveitastörf innanhúss og utan. Hún hóf búskap ásamt manni sínum á Fjallalækjar- seli í Þistilfirði árið 1930, en árið 1937 fluttu þau í Fagranes á Langa- nesi. Þar voru þau aðeins í tvö ár, en fluttu þá í Hlíð á Langanesi. Árið 1949 keyptu þau jörðina Ártún þar sem þau bjuggu í tuttugu og fimm ár. Þorbjörg flutti síðan með syni sínum að Hallgilsstöðum þar sem þau bjuggu til 1984. Þá fluttu þau til Þórshafnar þar sem Þor- björg hefur átt heima síðan. Fjölskylda Þorbjörg giftist þann 12.7.1930 Birni Jónssyni, f. 14.5.1893, d. 19.9. 1978, bónda. Foreldrar hans voru Jón Bjarnason, b. á Fjallalækjars- eli, og k.h. Abigael Guðmundsdótt- irhúsfreyja. Börn Þorbjargar og Björns eru Þórarinn Sigurður, f. 1.3.1932, bóndi og síðan starfsmaöur við frystihúsiö á Þórshöfn, og Sigur- veig Halldóra, f. 3.10.1933, húsmóð- ir á Akureyri. Auk þess áttu þau Þorbjörg og Björn tvo fóstursyni. Þeir eru Þorgrímur Kjartansson, búsettur í Keflavík, og Óli Jóhann- es Jónsson, verkamaður á Þórs- höfn. Þorbjörg átti fjögur alsystkini. Systkini hennar: Kristján Hall- dórsson, húsasmiður á Akureyri, sem nú er látinn; Sigvaldi Halldórs- son, söðlasmiður á Raufarhöfn; Sæmundur Halldórsson, smiður og múrari á Raufarhöfn, sem nú er látinn; og Ingibjörg Halldórsdóttir, húsmóðir á Þórshöfn. Foreldrar Þorbjargar voru Hall- dór Kristjánsson, f. 19.3.1878, d. 24.12.1967, bóndi á Svalbarðsseli og k.h., Sigurveig Sigvaldadóttir, f. 23.6.1874, d. 4.2.1953, húsfreyja frá Hafrafellstungu í Öxarfirði. Ætt Foreldrar Halldórs voru Kristján, b. í Kollavík og víðar í Þistilfiröi, Jóhannesson og k.h. Sigríður Jón- asdóttir húsmóðir. Foreldrar Sigurveigar voru Sig- valdi Eiríksson og Ingibjörg Jóns- dóttir sem bjuggu allan sinn bú- skap í Hafrafellstungu. Eiríkur var frá Hafrafellstungu, Sigvaldason, Sigvaldasonar, b. þar, Eiríkssonar, b. á Ketilsstöðum í Jökulsárhlíð og á Hauksstöðum á Jökuldal, Styr- bjarnarsonar. Kona Eiríks var Her- borg frá Grímsstöðum á Fjöllum, Sigurðardóttir, b. þar, Jónssonar. 85 ára 70ára 40 ára Kristján Ágúst Lárusson, Sefjavegi 29, Reykjavík. Róbert Róbertsson, Brún, Bískupstungnahreppí. Sigrún Sigfúsdóttir, Aftanhæð 3, Garöabæ. Friðbj örg Dröfn Magnúsdóttir, Norðurbraut 13, Hvammstanga. 80 ára 60ára Jón Erling Einarsson, Bakkabraut 6, Mýrdalshreppi. Kristín Jónsdóttir, Draflastöðum, Hálshreppi. Jakob Sigvaldi Sigurðsson, Kirkjubraut 1, Njarðvík. Riraasíðu 11, Akureyri. Oddur Helgi Jónsson, Nlálsgerði6,Hvoli. Anna Svala Johnsen, 75 ára 50ára Þóra BimaBjörnsdóttir, _ Hliðarhvammi 4, Kópavogi. Sigurður Sigurðsson, Aðalstræti 97, Vesturbyggð. Guðmundur Axelsson, Valdarási syöri, Þorkelshóls- hreppi. Þor Benediktsson, Kambaseli 69, Reykjavík. Aðalsteinn Unnar Jónsson, Silungakvisl 21, Reykjavik. Sigríður Sigurðardóttir, Ásbúð 17, Garðabæ. Eyrún Helgadóttir, Bakkaseli 14, Reykjavík. Sesselja Sigurðardóttir, Hlaðavöllum 12, Selfossi. Steindór Ólafur Kárason, Byggðavegi 96, Akureyri. Bryndis Þorgeirsdóttir, Hjallavegi 17, Reykjavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.