Dagblaðið Vísir - DV - 03.01.1995, Blaðsíða 28
28
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1995
Skúrir og slydduél
Benedikt Davíðsson
Prósentan skiptir
ekki máli
„Þaö skiptir okkur ekki megin-
máli að fá háar tölur i kauphækk-
un ef þvi fylgir ekki kaupmáttar-
auki. En viö hljótum aö gera ráð
fyrir að okkar fólk fái notið þess
bata sem er að veröa í þjóðfélag-
inu... Það er til lítils að fá ein-
hverjar prósentuhækkanir sem
síðan eru teknar jafnharðan af
stjórnvöldum," segir Benedikt
Davíðsson í DV.
Hærri laun greidd
„Það er kunnara en frá þurfi að
segja að allir launataxtar í land-
inu hafa tekið miö af afkomu fisk-
vinnslunnar. Innan verslunar-
innar eru almennt greidd hærri
laun en lágmarkstaxtar Verslun-
armannafélags Reykjavíkur
segja til um,“ segir Bjarni Finns-
son í Morgunpóstinum.
Ummæli
Skriðan komin af stað
„Ég hef einnig sagt að þó að okk-
ar verkfall hefði verið brotið á
bak aftur hljóti aðrir launahópar
að horfa til þeirra kjarasamninga
sem gerðir hafa verið á síðustu
mánuðum. Með þeim er velt af
stað skriðu," segir Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður
Sjúkraliðafélagsins, í Morgun-
blaðinu.
Stefnumörkun
ríkisstjórnarinnar
„Ég vonast til þess að aðilar al-
menna vinnumarkaðarins taki
höndum saman og reyni að koma
í veg fyrir að afleiðingar þessarar
stefnumörkunar ríkisstjórnar-
innar verði látnar bitna á fólki,“
segir Magnús Gunnarsson, for-
maður VSÍ, í Morgunblaðinu.
Sleppi börnunum aldrei
„Ég sleppi börnunum aldrei, það
er alveg sama hvað á dynur...
Það voru sendir eftir mér tveir
lögreglubílar og umsátur gert um
hús þar sem ég var staddur. Ég
var síðan handtekinn og lokaður
inni í klefa í 8 klukkustundir. Við
yfirheyrsluna var farið með mig
eins ogótíndan glæpamann," seg-
ir Aðalsteinn Jónsson, faðir
tveggja bama, í DV.
Farið út í
Grandahólma
Náttúruverndarfélag Suövest-
urlands stendur fyrir fjöruferð
út í Grandahólma í dag. Farið
verður frá Slysavamafélagshús-
inu á Grandagarði kl. 13.00 (há-
Umhverfi
fjara er kl. 13.54) og gengið eftir
grandanum út í Grandahólma að
Hólmasundi. Hugað verður að
fiörulifi og rifiaðar upp sagnir um
að Hólmakaupstaður hafi fyrrum
verið úti í hólma sem var á Akur-
eyjargrandanum.
Tilgangurinn með þessari vett-
vangsferö er að minna á hið ein-
stæða tækifæri til að skoöa og
taka rnyndir, ef veðurskilyrði
leyfa, af fjörulandslaglnu á einu
mesta útfiri ársins. Allir em vel-
komnir vel stígvélaðir.
Um landið vestanvert verður breyti-
leg átt, gola eða kaldi og skúrir eða
slydduél í dag. Austanlands verður
Veðrið í dag
allhvöss suðaustanátt og rigning,
einkum sunnan til, en síöan suðvest-
ankaldi og skúrir suðaustanlands.
Norðaustan til fer að létta til með
suðvestan kalda seint í dag. I nótt
verður norðaustan stinningskaldi
með éljum norðvestan til en austan-
gola eða kaldi og él suövestanlands.
Veður fer kólnandi, fyrst suðvestan-
lands. í nótt verður komið frost um
mestallt land. Á höfuðborgarsvæð-
inu verður suðlæg átt, gola eða kaldi
og skúrir í dag en síðan suðaustan
og austan gola eða kaldi og él. Hiti
2-4 stig í dag en vægt frost í nótt.
Sólarlag í Reykjavík: 15.48
Sólarupprás á morgun: 11.15
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjaö 6
Akurnes rigning 5
Bergstaðir alskýjað 6
Bolungarvík skúrásíö. klst. 6
KeflavíkurflugvöUur skýjaö 4
Kirkjubæjarklaustur rigningog súld 5
Raufarhöfn alskýjað 5
Reykjavík alskýjað 4
Stórhöfði rigningog súld 6
Helsinki heiðskírt -8
Ka upmarmahöfn léttskýjað -3
Stokkhólmur heiðskírt -9
Þórshöfn alskýjað 4
Amsterdam léttskýjað 0
Berlín snjókoma 0
Feneyjar léttskýjað 0
Frankfurt snjók. á síð. klst. 1
Glasgow léttskýjað -8
Hamborg léttskýjað -1
London heiðskírt -3
LosAngeles alskýjað 13
Lúxemborg snjóélásíð. klst. 0
Maliorca heiðskírt 0
Montreal heiöskírt -9
Nice léttskýjað 3
París skýjað 2
Róm skýjað 4
Vín snjóélásíð. klst. -1
Washington heiðskírt -3
Noregur- ís-
land á Noröur-
landamótinu
Landsliðið í handbolta stendur
í ströngu um þessar mundir en
það tekur þáttíN orðurlandamót-
inu sem fram fer í Svíþjóð þessa
íþróttir
dagana. Einum leik er lokið, okk-
ar menn mættu Dönum í gær. í
dag eru það Norðmenn sem þarf
að kijást við og verður það örugg-
lega tvísýnn leikur en Norðmenn
hafa veriö í mikilli framfór í
handboltanum. Leikurinn hefst
kl. 17.00.
Þeir sem fylgjast með keppni i
NBA-deildinni hafa í nógu að
snúast en nánast er leikið daglega
um þessar mundir og ekkert slak-
aö á þótt jól og áramót séu. I dag
fara fram niu leikir í þessari
bestu körfuboltadeild í heimin-
um.
Skák
Tveir Kinverjar sitja að tafli í meðfylgj-
andi stöðu. Við fyrstu sýn virðist hvítur,
sem á leikinn, geta stillt upp óverjandi
máti með 1. Dh6 en svartur leikur þá 1.
- Dc5+ og næst 2. - DfB og nær að verj-
ast. Hver er vinningsleiðin í stöðunni?
Eftir 1. Dh6 Dc5+ lék hvítur 2. Hd4!!
og svartur kaus að gefast upp. Ef 2. -
Dxd4+ 3. Khl og nú verður svartur að
gefa drottninguna fyrir peð til að komast
þjá máti á g7. Eða 2. - DfB 3. Dxf8+ Kxf8
4. Hxb4 og hvítur á manni meira.
Jón L. Árnason
Bridge
Spil dagsins er aldarfjórðungs gamalt og
þar kemur við sögu Bandaríkjamaðurinn
Sidney Lazard sem áþeim árum var einn
besti spilari heims. A árinu 1969 var eft-
irfarandi spil kosið spil ársins vegna þess
hve sérkennilega stefnu það tók í úrspil-
inu. Lazard sat í vestur, suður var gjaf-
ari og allir á hættu:
♦ K752
V KG7
♦ 74
+ 8754
♦ --
V 1098643
♦ 953
+ DG92
♦ ÁD10863
V 5
♦ ÁG2
+ Á106
Suður Vestur Noröur Austur
1* Pass 2* Pass
4* p/h Pass Pass Dobl
Það verðiu að teljast í harðari kantinum,
doblið hjá austri, en samt sem áður gaf
það ágæta raun. Hins vegar fékk austur
engan slag á sín spil, heldur tók vestur
alla vamarslagina!? Spilið gekk þannig
fyrir sig. Lazard spilaði út laufadrottn-
ingunni og sagnhafi leyfði henni að eiga
slaginn. Þá skipti Lazard yfir í hjartatíu,
sagnhafi setti lítið spil og enn átti vestur
slaginn. Þá spilaði Lazard laufatvisti yfir
á kóng austurs og sagnhafi drap á ás.
Hann tók trompin þrisvar og spilaði síðan
lúmskt tígultvistinum að heiman. Hug-
mynd hans var sú að reyna að svæfa
vestur, vonast til að austur myndi eiga
slaginn og freistast til að taka hjartaás-
inn. En Lazard var kominn á bragðið og
setti tígulniuna sem fékk að eiga slaginn.
Fjórða og síðasta slag vamarinnar tók
Lazard síöan á laufgosann. Lazard gat
ekki sleppt þvi að hrósa félaga sínum
fyrir vel heppnað dobl í lok spfisins.
ísak Örn Sigurðsson
3°
V
■SyWt
— y_. ',.
4C
0°
, •
*
1
'f
Veðrið kl. 6 i morgun
/*%
Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugaróa Reykjavíkurprófastsdæma:
einna
„Starf mitt felst i að veita Kirkju-
görðum Reykjavíkurprófastsdæma
forstöðu og sé ég um daglega
stjómun. Kirkjugarðarnir eru tjór-
ir, í Suðurgötunni, Fossvoginum,
Gufunesi og svo í Viðey. Þaö eru
yfir tuttugu manns fastráönir hjá
Kirkjugörðunum en á sumrin bæt-
ist við mikill fjöldi sumarfólks, um
það bil 150 manns," segir Þórsteinn
Ragnarsson, nýráöinn forstjóri
Maður dagsins
Kirkjugarða Reylgavikurprófasts-
dæmis, en Þórsteinn er guðfræö-
ingur og lauk einnig námi í viö-
skipta- og rekstrarfræöum frá End-
urmenntunarstofnun Háskóla ís-
lands. Hann starfar sem prestur
hjá Óháða söfnuðinum og lætur að
þvi starfi i lok apríl. Starf mitt hjá
Óháöa söfnuðinum var hálft staíf
en allt ftá þvi söfnuðurinn var
stofnaður hefur veriö um hálft
Þórsteinn Ragnarsson.
starf að ræða híá presti safiiaðar-
ins. Ég starfaði einnig sem deildar-
stjóri í viöskiptadeild hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur, þar
verða starfslok min í lok janúar.“
Aðspurður um hvort væri farið
aö huga að nýjum kirkjugarði sagði
Þórsteinn: „Það er komiö á skipu-
lagsstig kirkjugarður i Leirdal í
Kópavogi. Svæði það sem kirkju-
garðurinn er fyrirhugaður á er um
fjórtán hektarar og verður hann
því töluvert minni en kirkjugarð-
urinn í Gufunesi sem er tuttugu og
átta hektarar. Það er ekki búið að
ákveða hvenær kirkjugarðurinn í
Leirdal verður tekinn í notkun en
þaö er talaö um þrjú til íjögur ár.
Eiginkona Þórsteins heitir Elsa
Guðmundsdóttir og eiga þau fjórar
dætur. Þórsteinn sagði að áhuga-
mál hans tengdust útiveru og því
að hann væri fyrrverandi bóndi pg
prestur á Miklabæ í Skagafirði: „Ég
hef mikinn áhuga á hestamennsku
þá göngum viö hjónin mikið og
veit ég varla betra en að spjalia
saman um leiö og famar eru
gönguieiðir í nágrenninu."
Myndgátan
/// \o ’/í/'Ú' t c/ “J
© IIIO
Slær eld
• EyÞÓR—A-
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.