Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
Fréttir
Svavar Gestsson alþingismaður um Stasi-skjölin og ásakanir íhaldsins:
Þetta eru landráðabrigsl
- Hverjum augum lítur þú umfjöll-
un íjölmiöla undanfarna daga?
„Mér finnst þetta í aðra röndina
ósköp dapurlegt. Mér finnst vont
að vera kallaður landráðamaður,
þótt ég sé búinn að vera í pólitík
næstum alla ævi. Mér finnast þetta
særandi og meiðandi ummæli. í
annan stað finnst mér þetta dapur-
legt vegna þess að það er eins og
einhver gamall tími sé kominn
fram. Sá tími sem var áður en ég
varð til í pólitík, kalda stríðs
tíminn. Þetta er afturhvarf til for-
tíðar. Ég held ég hafi kallað Bjöm
Bjarnason við umræðumar á þingi
háttvirtan síðasta þingmann kalda
stríðsins og mér finnst hann stund-
um vera það.
Þegar verið er að stilla okkur upp
viö vegg vegna einhverrar fortíðar
er kannski rétt að vekja athygli
öðmm atriðum úr fortíðinni. Hvað
er með þetta lið hér sem var til
dæmis 1 Sjálfstæðisflokknum og
var á móti vökulögunum, á móti
verkamannabústöðunum? Hvenær
vom sett lög um málefni fatlaðra
fyrst á íslandi, málefni aldraðra?
Sjálfstæðisflokkurinn var ekki þar
á ferð. Vill þetta gengi ekki gera
grein fyrir því af hverju það setti
sig upp á móti þessum hlutum. Öllu
velferðarkerfinu? Vill ekki Alþýðu-
flokkurinn gera grein fyrir því af
hveiju hann var á móti stofnun
lýðveldisins? Eigum við sem sagt
að fara að heyja stjórnmálabarátt-
una núna árið 1995 á sama grunni
og menn gerðu árið 1935. Eg segi
nei takk.“
Sex mánuði í A-Berlín
- Hvaö varstu að læra í A-Berlín
árið 1968?
„Ég var þarna einungis í sex mán-
uði. Ég var innritaður í nám í heim-
speki en fann að það var eiginlega
ekki hægt eins og andrúmsloftið
var. Auk þess langaði mig orðið
heim í pólitíkina og ég átti orðið
fjölskyldu. Ég stoppaði því mjög
stutt.“
- Hefurðu hitt samstúdenta þína
eftir þú varst þama í námi
„Ég hef ekki haldið kunningskap
við það fólk sem var þarna í námi.
Þessi tími, sem ég var þama, var
venjulega skoðaöur meðal stúd-
enta sem undirbúningstími. Það
var ekki þannig að menn væra
famir að bindast einhverjum
tengslum með fóstum skipulegum
hætti. Mér leist satt að segja fljót-
lega ekkert á þetta."
- Hvað áttu við með að þér hafi
ekkert litist á þetta?
„Þetta var dogmatískt umhverfi
sem mér fannst ég mjög lítið geta
lært af. Stúdentar höfðu til dæmis
tvo eftirUtsmenn. Það vissu það
allir og við kölluðum þá spor-
hunda. Þannig var það með mig
eins og aðra. Þótt ég sé laus við að
vera haldinn ofsóknarbrjálæði
hafði ég þaö á tilfinningunni að það
væri fylgst með mér.
Aldrei neina trú
á þessu kerfi
- Breytti vera þín í A-Þýskalandi
viöhorfum þínum til sósíalismans?
„Nei. Ég hafði aldrei neina trú á
þessu kerfi sem slíku. Ég hef aldrei
haft trú á því að altæk miðstýring
í efnahagsmálum leysi vandann.
Hún geti í raun verið hættuleg.
Allir stúdentar í V-Evrópu voru að
tala um pólitík á þessum tíma. AUt
þetta fólk batt gríðarlegar vonir við
Voriö í Prag. Þá var verið að taka
upp það sem Dubcek kallaði „sós-
íaUsma með mannlegu andliti".
Síðan gerðist það að skriðdrekarnir
fóru eins og yfir hjartað í fólkinu
þegar ráðist var inn í Tékkóslóvak
íu. Það breytti auðvitaö gríðarlega
miklu fyrir þetta fólk.
Þessi tími var mjög sterkur part-
ur af mínu póUtíska mótunar-
skeiði, en aö ég hafi einhvern tíma
bundið vonir við að svona kerfi
væri vitlegt fyrir okkur er í versta
lagi lygi. Þessi tími staðfesti miklu
frekar það sem ég hafði ímyndað
mér.“
- Nú er það svo að margir ykkar
vora sendir tU náms í A-Þýskalandi
í þeim tilgangi að búa ykkur undir
að gegna forystu í Sósíalistaflokkn-
um á íslandi?
„Á þessum tíma haföi ég mjög tak-
mörkuð fjárráð. Mig langaði í nám
í heimspeki en hafði ekki efni á
námi á Vesturlöndum á þessum
tíma. Þama var boðið upp á náms-
styrk og þama var fjöldinn allur
af námsmönnum alls staðar af
Norðurjöndum. Stjórnvöld þama
sóttust eftir námsmönnum og
menntamálaráðuneytið hafði milli-
göngu um að senda liámsmenn til
A-Evrópu á þessum tima. A-Þýska-
land var undantekning því landið
var ekki viðurkennt. Aðferð þeirra
til að ná sambandi liingað var að
gera það með pólitískum hætti.
Þessi tengsl voru í gegnum Einar
Olgeirsson."
- Hefðuð þið Alþýðubandalags-
menn, sem höfðuð tengsl við A-
Evrópuríkin, ekki getað gert upp
fortíöina miklu fyrr?
„Menn þurfa að gera sér grein fyr-
ir því að þetta er tal um ekki neitt.
Við höfum ekkert að gera upp við.
Við höfum þegar sagt fram og aftur
Yfirheyrsla
Pétur Pétursson
frá þessum hlutum. Mér finnst það
ósanngjarnt þegar ráðist er á rót-
tækustu forystumenn verkalýðs-
hreyfingarinnar með þessum rógi
áratugum saman.
Núna þykist Morgunblaðið
standa á líki heimskommúnismans
og hoppar hæð sína í öllum her-
klæöum og segir: „Við unnum.“
Þetta er barnaleg uppsetning mála.
Auðvitað hafa þeir gert vitleysur
og við líka en aðalatriðið finnst mér
vera það að menn reyri sig ekki svo
fasta í fortíðinni."
Gerðu það sjálfur!'
- Nú er því haldið fram að skjölum
er þig varða í skjalasafni Stasi hafi
veriö eytt 25. júní 1989. Þú hefur
rakið ferðir þínar í júní og júlí og
menntamálaráðuneytið staðfestir
frásögn þína að mestu leyti. Hins
vegar segir þú sjálfur frá því að þú
hafir veriö í Grikklandi í fríi frá 21.
júní til 2. júlí. Af hverju ertu ekki
reiðubúinn aö leggja gögn á borðið
sem sanna þetta?
„Gerðu það sjálfur. Heldurðu að ég
fari að taka þátt í þessum fíflaskap
með þessum hætti. Það er veriö að
dylgja um að ég hafi kannski verið
í Grikklandi en svo liafi ég kannski
farið til Berlínar og eyðilagt þessi
gögn. Þetta eru landráðabrigsl af
því að sagt hefur verið að í gögnun-
um séu upplýsingar um Stasi-
tengsl mín. Ég kann ekld við svona
lagað.
Ég veit aö til er einstaka maður
í landinu sem vill trúa því að ég sé
sá fantur sem hægripressan hefur
lýst mér í 30 ár. Ég veit aö þetta
fólk mun missa mjög mikilvægan
þátt úr tilveru sinni ef ég yrði allt
í einu talinn almennilegur maður.
Ég vil ekki svipta það einum af
homsteinum að pólitískri tilveru
sinni. Það er alveg sama hvað ég
geri. Hvort ég reiöi fram farmiða,
vegabréfsáritun eða yfirlýsingar.
Þetta fólk myndi aldrei trúa mér
nokkum tima, vegna þéss að það
er búið að ljúga svo miklu upp á
mig af þessu hægra liði, sem er í
landinu, aö ég fæ engu breytt.“
- Kom það þér á óvart aö til var
mappa um þig hjá Stasi?
„Arni Snævarr sagöi mér fyrst af
því. Mér hafði veriö sagt að til
væru fleiri hillukílómetrar af skjöl-
um þarna. Þetta var náttúrlega
brjálað skriffinnskuþjóðfélag þar
sem menn vora hundeltir, lá við á
klósettiö. Ég hafði ekki pælt mikið
í því, ég tók engin bakfóll. Ég fagna
því að menn reiði fram eins mikið
af pappírum og mögulegt er. Það
eina sem er slæmt í þessu máli er
að menn skuli ekki finna eina
helv.... möppu um mig sem er
sennilega um ferðalög yfir landa-
mærin og jafnvel vafasamar ferðir
á bari og knæpur í A- og V-Berlín
á þessum tíma. Þessi skjöl, sem eiga
að hafa verið til um mig, hljóta að
hafa verið gasalega ómerkileg.
- Samkvæmt mínum heimildum
eru til skjöl þar sem fram kemur
að menn í Alþýðubandalaginu hafi
veitt sendiráðsstarfsmönnum a-
þýska sendiráðsins hér á landi upp-
lýsingar um flokksstarf bandalags-
ins á áttunda áratugnum. Varst þú
einn af þeim?
„Ég hef séð skýrslu hjá Árna Snæv-
ari sem sendifulltrúi þeirra hér
skrifaði á níunda áratugnum. Þá
var ég formaður Alþýðubandalags-
ins og kom í sendiráðið eins og al-
gengt er og sendiráðsstarfsmenn
komu einnig í Stjórnarráðið. í þess-
ari skýrslu var heldur kvartað
undan mér. Ég hafði mjög skýra
afstöðu í þessum efnum. Ekki að-
eins þá aö sjá til að fylgt væri
flokkssamþykktum Alþýðubanda-
lagsins um að hafa engin samskipti
við þetta lið, heldur líka beinlínis
að ekki kæmi til greina að breyta
því.“
Ég hlakka til
- Telurðu að á næstu misserum
eigi eftir að koma fram skjöl sem
varpa nýju ljósi á tengsl félaga
þinna í Sósíalistaflokknum við A-
Evrópu og Moskvu eða telurðu þig
geta fullyrt, vegna náinna tengsla
þinna við þessa menn, að ekkert
nýtt muni koma franí um pólitísk
og fjáhagsleg tengsl við þessi ríki?
„Ég reikna ekki með neinum stór-
um tíðindum. Ég hlakka hins vegar
til þegar öll skjöl koma fram, aust-
anhafs og vestan.
Fólk verður að átta sig á því að
ísland var í raun og veru eins og
eldfjall í miöju kalda stríðinu.
Ameríkaninn réð að nokkru leyti
skoðanamyndun í þessu landi í
gegnum íhaldsblöðin. Hann var
með ótrúlega sterk ítök. Það var
ritskoðað efni í útvarpinu og þaðan
voru menn reknir af því að þeir
voru grunaðir um að halla oröi á
þá utanríkisstefnu sem hér var
fyigt-
Eg hlakka tU og vona að ég lifi
það að öll skjalasöfn veröi opnuð,
í Moskvu, í Washington og Reykja-
vík. Ég skora á DV að finna þessi
skjöl og birta þau og spyija menn
um hlutina. Ekki hvar þeir hafi
verið þegar þeir voru strákar á
knæpum einshvers staðar i útlönd-
um. Spyrjið þá hvernig Ameríkan-
inn styrkti þingmenn sem vora á
ferðalögum í Bandaríkjunum,
hverr.ig Ameríkaninn styrkti
verkalýðssendinefndir. Hvernig
var þaö með Marshallaðstoöina og
mótvirðissjóðinn? Voru þeir pen-
ingar notaðir til að styrkja einhver
blöð? Komið þið með þetta allt sam-
an og þá verð ég kátur. Ég vona
að það vanti engar möppur alvöra-
efni þá.!“