Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Page 6
6
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
Stuttar fréttir
Taka hart ábardögum
Fyrrum rM Sovétríkjanna ætla
að taka hart á þjóðemisbardög-
um innan Samveldis sjálfstæöra
ríkja en minntust ekki einu orði
á átökin í Tsjetsjeníu.
Rússarsprengja
Sveitir Rússa sendu í gær
sprengjur á bæinn Argun sem er
rétt fyrir utan Grosní.
Arafat vill hjálp
Arafat Palest-
ínuleiötogi bið-
ur leiðtoga
heimsins að
koma til bjarg-
ar friðarsamn-
ingi hans og
ísraela eftir að
fundur hans og
Rabíns fór út um þúfur í gær.
Fimmíhaldí
Súdanskir byssumenn héldu í
gær flmm starfsmönnum hjálp-
arstofnana í gisiingu í Suður-
Súdan.
Búlgaríamafíuriki
Ný ríkisstjóm sósíahsta verður
að taka hart á glæpasamtökum
ef ríkið á ekki að verða mafíu-
ríki, segir forseti landsins.
Franskur sundmaöur sem synti
yfir Atlantshafið, eina 3900 kiló-
metra, var furðanlega vel á sig
kominn þegar læknar skoðuðu
hann á eyjunni Barbados.
Mandelaífangelsi
Nelson Mand-
ela, forseti Suð-
ur-Afríku, sneri
aftur til Robben
Island-fangels-
isins í gær
ásamt 1300
fyrrverandi
fóngum til að
halda upp á að flmm ár eru liöin
síðan hann slapp út eftir 27 ára
fangelsisvist.
BardagaríBihae
Bardagar voru milli herja Bos-
níustjórnar og Bosniuserba í Bi-
hac í gær.
Finnaekkitæki
Hlustunartæki sem átti að hafa
verið komið fyrir í skrifstofum
Sinn Fein, norður-írsku stjóm-
málasamtakanna, hafa ekki
fundist í lögregluleit en viöræð-
um við Breta var frestaö vegna
gruns um hlerun.
Brauðgegngetuleysi
Rússneskur bakari segist búa
til brauð sem lækni getuleysi
karlmanna. Mikil eftirspum er
eftir brauöunum í Moskvu.
Keuter
Olíumarkaðir:
Bensín hækkar
Innkaupaverð á 95 og 98 oktana
bensíni á Rotterdammarkaði hefur
hækkað nokkuð síðustu daga. Engar
tæmandi skýringar eru á hvers
vegna þessi hækkun verður nú enda
stendur bensínnotkun yfirleitt í stað
yfir vetrarmánuðina. Helst er taliö
að stærstu kaupendur hafi verið
orðnir birgðalitlir og rokið til við
innkaup og því hafi verðið hækkað.
Því er ekki búist við frekari hækkun-
um næstu vikur. Upp úr páskunum
má hins vegar búast við að inn-
kaupaverð bensíns hækki vegna þess
að þá eykst notkun bíla venjulega í
Evrópu nokkuð.
Lítið var að gerast í evrópskum
veröbréfahöllum í síðustu viku. Fjár-
festar halda að sér höndum þangað
til séð verður að verðið þokist upp á
ný. Reuter
Útlönd
I>V
Verkamannaflokkurmn með yfírburðastöðu í norskum stjómmálum:
Flokkur Gróu,
hann er ríkið
Gísli Kristjánsson, DV, Osló:
Haraldur V. hefur heiðurinn af að
vera Noregskonungur en hinn eigin-
legi konungur heitir Thorbjorn Jag-
land. Þó gegnir hann ekki valdastöðu
á vegum ríkisins, situr ekki í ríkis-
stjórn og er bara formaður Verka-
mannaflokksins í skugga Gro
Harlem Brundtland forsætisráð-
herra.
Engum dylst þó að það er Jagland
sem ræður ferðinni í flokknum og
ríkisstjórninni. Hann er helsti hug-
myndasmiður og herforingi minni-
hlutastjórnar Verkamannaflokksins
og mótar stefnuna.
Gro til eilífðar
„Gro verður forsætisráðherra svo
lengi sem hún vill. Þegar hún hættir
tekur Jagland við,“ ályktaði Aften-
posten í gær við upphaf landsfundar
flokksins. Þetta er sjaldgæf staða hjá
stjórnmálaflokki í lýðræðisríki og
það hjá flokki sem ekki hefur ekki
einu sinni meirihluta á þingi.
Ástæðan er auövitað ekki sú að
enginn hafi neitt við Verkamanna-
flokkinn að athuga. Ástæðan er
miklu fremur að hinir norsku stjórn-
málaflokkamir eru svo veikir og
sundraðir að aðeins einn þeirra, Mið-
flokkurinn, gerir kröfu um að taka
víð stjórnartaumunum. Og það er
Verkamannaflokkurinn heldur
landsfund sinn nú um helgina.
Flokkurinn hefur slika yfirburða-
sföðu í norskum stjórnmálum að
enginn hinna flokkanna vill taka við
stjórnartaumunum af Gro Harlem.
bara hlegiö að þeirri kröfu.
Hægriflokkurinn, höfuðandstæð-
ingur Verkamannaflokksins um ára-
tuga skeiö, hefur ekki forsætisráö-
herraefni í sínum röðum og flokks-
menn viðurkenna það fúslega. For-
maðurinn Jan Petersen þykir enginn
skörungur og er almennt Utið svo á
að hægrimenn liggi í dvala eftir af-
hroð í síðustu kosningum.
Jafnvægiskúnstir
Minnihlutastjórn Verkamanna-
flokksins nýtur stuðnings eftir þörf-
um frá öllum flokkum nema Rauða
kosningabandalaginu. í utanríkis- og
efnahagsmálum kemur stuðningur-
inn frá hægri, í félagsmálum frá
vinstri. Jagland segir fyrir um jafn-
vægiskúnstimar þegar leita þarf
stuðnings við stefnu stjómarinnar.
Svo er að sjá sem það sé létt verk því
enginn hefur hag af því að fella
stjórnina. Verkamannaflokkurinn
hefur lengi haft yfirburðastöðu í
Noregi. Nú er flokkurinn orðinn slíkt
bákn að vandi er að skilja milli hans
og ríkisins. Ekki dugar að segja að
flokkurinn sé ríki í ríkinu - hann er
ríkið.
Útvötnuð stefna
Gagnrýnendur segja að stefna
flokksins hafl aldrei verið jafnóljós
og útvötnuð. Opinberlega er stefnan
eins konar gamaldags jafnaðarstefna
en í reynd eru allar gerðir flokksins
í ætt við hægfara miðjuflokka. Það á
að gera allt það besta fyrir alla;
markaðshagkerfi fyrir atvinnulífið
og félagslegt öryggi fyrir alþýðuna.
Eina ógnunin við veldi flokksins
var í þjóðaratkvæðagreiðslunni um
inngönguna í ESB í haust. Hluti
flokksmanna myndaði bandalag
gegn stefnu flokksins. Nú er þetta
innanflokksbandalag horfið og helsti
leiðtogi þess hættur afskiptum af
stjórnmálum.
Fangavörður í Robben Island-fangelsinu í Suður-Afríku heilsar upp á tvo fyrrum fanga sem voru ásamt Nelson
Mandela forseta i heimsókn í fangelsinu i gær. Haldið var upp á það í gær að fimm ár eru liðin siðan Mandela
var sleppt úr fangelsinu. Simamynd Reuter
Demierofkyn-
þokkafull
Yfirvöld
þremur frönsk-
um bæjum hafa
ákveðið að láta
fjarlægja vegg-
spjöld þar sem
kvikmyndin
Disclosure er
auglýst. Ástæð
an er sú að mörgum muum oæj-
anna þykir aðalleikkonan, Demi
Moore, vera hættulega, og raunar
alltof, sexí á plakatinu. Myndin
íjallar eins og kunnugt er um
kynferðislega áreitni og í mynd-
inni er það Moore sem lætur
aumingja Michael Douglas ekki í
friði á vinnustaðnum.
*
Islenskar kart-
öflurseldarí
Gísli Kristjánsscm, DV, Ósló:
„Framboðið af kartöflum er
einfaldlega svo litið og verðið svo
hátt að það borgar sig jafhvel að
flytja þær imi frá íslandi,“ segir
Lasse Erdal hjá grænmetiseinka-
sölunni i Ósló. Mörgum til undr-
unar hefur síðustu daga mátt fá
íslenskar kartöflur hér í Noregi
þótt í smáum stíl sé.
Skortur er á kartöflum í Noregi
enda hefur nú að mestu tekið fyr-
ir innflutning frá Hollandi í kjöl-
fiar flóðanna þar. Norska fram-
leiðslan dugar fram i apríl og
nýjar kartöflur koma ekki á
markaðinn fyrr en í júní. Verð
hefur liækkað verulega og nú eru
kartöflur fluttar inn frá Kanada
og Suður-Afríku, auk íslands.
Meirihluti
Bandaríkja-
manna vill losna
viðClinton
Ný skoðana-
könnun . sýnir
að meirihluti
Bandaríkja-
manna vill aö
Clinton íbrseti
sitji aðeins út
núverandi
kjörtímabil og
bjóði sig ekki fram aftur. 55%
vildu að hann sæti aðeins út tíma-
bilið en 38% vildu aö hann byði
sig fram aftur.
Ef forsetakosníngar væru
haldnar i dag telja menn að Ro-
bert Dole, öldungadeildarþmg-
maður úr röðum repúblikana,
myndi sigra Clinton. 51% vildu
Dole en 44% Clinton. Ef þrír væru
í framboöi, Dole, Clinton og
auðkýfingurinn Ross Perot,
myndi Dole fá 41%, Clinton 39%
og Perot 18%.
íslensk bygging-
arlistiOsló
Gísli Kristjánsson, DV, Ósló:
„Við sjáum vel að Islendingar
hafa farið sínar eigin leiðir í bygg-
ingarlistinni. Áhrifin frá gamla
tímanum eru greinileg en um leið
er húsagerðin mjög nýtiskuleg og
alþjóöleg," sagði Ulf Gronvold,
safnstjóri í norska byggmgar-
listasafmnu i Ósló, þegar sýning
á íslenskri byggingarlist var opn-
uð þar í fyrradag.
Sýmngin er mjög vegleg og
spannar sögu byggíngarlistar á
íslandi frá upphafi vega. Sýning-
in er hönnuð í Arkitektaskólan-
um í Árósum og er ætlunin að
setja hana upp á nokkrum stöð-
um í Noregi til að minna á fimm-
tíu ára afmæli lýðveldisins.
Eiður Guðnason sendiherra
opnaði sýninguna en einnig var
Össur Skarphéðinsson umhverf-
isráðherra viðstaddur. Hann er
nú á umhverfisráðstefnu í Ósló.
Reutei