Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995
Erlend bóksjá
DV
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Anne Rice;
Interview with the Vampire.
2. Mary Wesley:
An Imaginative Experience.
3. Peter Heeg:
Miss Smilla's Feeling for
Snow.
4. Anne Ríce:
The Wampire Lestat.
5. Dick Francis:
Decider.
6. Rosie Thomas:
Other Poople's Marriages.
7. Nicholson Baker:
The Fermata.
8. Sebastian Faulks:
Birdsong.
9. Robert James Waller:
Slow Waltz in Cedar Bend.
10. lain Banks:
Complicíty.
Rit almenns eðlis:
1. Jung Chang:
Wild Swans.
2. Andy McNab:
Bravo Two 2ero.
3. Quentin Tarantino:
Pulp Fiction.
4. W.H. Auden:
Tell MetheTruthaboutLove.
5. N.E. Thing Enterprises:
Magic Eye,
6. J. Cleese & R. Skynner:
Life and how to Survive It,
7. Bill Bryson:
The Lost Continent.
8. Bill Bryson:
Neither here nor there.
9. Nick Hornby:
Fever Pitch.
10. Elinor J. Brecher:
Schindler’s Legacy.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
Skáldsögur:
1. JungChang:
Vilde svaner.
2. Jostein Gaarder:
Sofies verden.
3. Johannes Mpllehave:
Det tabte sekund.
4. Peter Hoeg:
Freken Smillas
fornemmelse for sne.
5. Suzanne Brogger:
Transparence.
6. Herbjorg Wassmo:
Lykkens son.
7. Anne Rice:
En vampyrs bekendelser.
(Byggt á Politiken Sondag)
Highsmith
fallin frá
Snillingur hinnar sálfræöiiegu
spennusögu, Patricia Highsmith, er
fallin frá, 74 ára að aldri.
Hún lést á sjúkrahúsi í Sviss eftir
skamma sjúkdómslegu. Talið er að
dánarorsökin hafi verið hvítblæði.
Patricia Plangman fæddist í Fort
Worth í Texas árið 1921. Foreldrar
hennar skildu og hún ólst upp hjá
afa sínum og ömmu til sex ára ald-
urs. Þá flutti hún með móður sinni
til New York og fékk þar eftirnafn
stjúpfoður síns, Highsmith. Hún átti
að eigin sögn dapra æsku og leitaöi
snemma huggunar í bókum.
Hún var alla tíð einfari, giftist
aldrei og gerði sitt besta til að halda
sig íjarri sviðsljósi fjölmiöla.
Fór ung
að semja sögur
Hún dvaldi reyndar mikinn hluta
ævinnar fjarri heimalandi sínu -
fyrst á Ítalíu, svo á Englandi. Árið
1966 settist hún að í litlu þorpi í
Frakklandi. Fyrir skömmu flutti
Patricia sig svo enn um set, nú til
Sviss, en þar bjó hún í Tenga, sem
er lítið þorp í Ölpunum, ásamt
kisunni sinni, Karlottu.
Patricia fór að semja sögur þegar á
unglingsárum. Þær fjölluðu gjarnan
um ungt fólk í erfiðleikum: ein um
skólastúlku sem stelur bók af safni,
önnur um telpu sem fer upp í bíl hjá
ókunnum karlmanni.
Tímaritið Harper’s Bazar birti
fyrstu smásögu hennar áriö 1945. Það
Patricia Highsmith, einn helsti
spennusagnahöfundur aldarinnar,
er látin, 74 ára að aldri.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
var hins vegar með fyrstu skáldsög-
unni árið 1950 sem hún sló í gegn.
Sú heitir „Strangers on a Train“ og
vakti svo mikla athygli - ekki síst
eftir að Alfred Hitchcock gerði sam-
nefnda kvikmynd eftir sögunni árið
1951 - að Patricia gat einbeitt sér að
ritstörfum upp frá því.
Sögurnar um morð-
ingjann Ripley
Árið 1955 urðu önnur tímamót á
rithöfundarferli hennar með útkomu
bókarinnar „The Talented Mr. Rip-
ley“. Þar birtist í fyrsta sinn söguper-
sóna sem tengist nafni hennar órjúf-
anlegum böndum, en Ripley þessi er
ótíndur glæpamaður og morðingi.
Fyrir þá sögu hlaut hún verðlaun í
Ameríku.
Patricia lýsti því eitt sinn að hún
væri svo nátengd Ripley að „mér
fannst oft að Ripley væri að skrifa
sögumar en ég aðeins að vélrita text-
ann“. Enda samdi hún margar bæk-
ur um þennan sérstæða persónu-
leika - þar á meðal þá síðustu sem
kom frá hennar hendi - „Ripley und-
er Water" frá árinu 1991.
Patricia Highsmith fékk víða mikið
hrós fyrir skáldsögur sínar og smá-
sögur, meðal annars frá öðrum rit-
höfundum. Nægir þar að nefna Gra-
ham Greene sem sagði hana búa til
í sögum sínum lokaða og ruglaða
veröld sem lesandanum fyndist
hættulegt aö heimsækja. „Þetta er
ekki heimur eins og við héldum að
hann væri, en ógn hans er mun raun-
verulegri í okkar augum en húsið við
hliðina á okkur.“
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Dean Koontz:
lcebound.
2. Michael Crichton:
Disclosure.
3. Allan Foisom:
The Day after tomorrow.
4. T. Clancy 8i S. Pieczenik:
Tom Clancy's Op-Center.
5. Julie Garwood:
Prince Charming.
6. Robin Cook:
Fatal Cure.
7. E. Annie Proulx:
The Shipping News.
8. Judith Krantz:
Lovers.
9. Peter Hoeg:
Smiiia's Sense of Snow.
10. Ken Follett:
A Dangerous Fortune.
11. Anne Rice:
Intervíew with the Vampire.
12. Michael Palmer:
Natural Causes.
13. Anne Ríce:
The Vampire Lestat.
14. Dean Koontz:
Mr. Murder.
15. Catherine Coulter:
Lord Harry.
Rit almenns eðlis:
1. B.J. Eadie & C. Taylor:
Embraced by the Light.
2. Jerry Seinfeld:
Seinlanguage.
3. Newt Gingrich, D. Armey o.fl;
Contract with America.
4. Thomas Moore:
Care of the Soul.
5. Delany, Delany & Hearth:
Having Our Say.
6. Thomas Moore:
Soul Mates.
7. Maya Angeiou:
Wouldn't Take Nothing for
My Journey now.
8. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
9. Karen Armstrong:
A History of God.
10. Sherwin B; Nuland:
How We Oie.
11. Joan Wester Anderson;
Where Angel’s Walk.
12. BaileyWhite;
Mama Makes up Her Mind.
13. Maya Anagelou;
I Know why the Caged Bird Sings.
14. M. Hammer og J. Champy:
Reengineeríng the Corporation.
15. M. Scott Peck:
Further along the Road Less
Traveted.
(Byggt é New York Tímes Book Review)
Discovery heldur sig (400
metra fjarlægfl og fer tvo
hríngi um Mir til að taka
myndir af geimstöðinni
Vísindi
Umsjón
Guðlaugur Bergmundsson
Stefnumót í himingeimnimi
Bandariska geimskutlan Discov-
ery átti stefnumót við rússnesku
geimstöðina Mir á 28 þúsund kíló-
metra hraða á sporbaug um jörðu
síðastliðinn mánudag. Þegar þær
voru næst hvor annarri voru ekki
nema ellefu metrar á milh þeirra. í
júní í sumar er svo fyrirhugað að
geimskutla leggist upp að geimstöð-
inni og geimfararnir um borð í þeim
munu hittast. Þeir létu sér þó nægja
að veifa hver til annars á mánudag.
Stefnumót þetta var aðeins fyrsta
skrefið í samruna þess þáttar geim-
ferðaáætlana stórveldanna tveggja
sem lýtur að mönnuðum ferðum.
Bandaríska geimferðastofnunin
(NASA) hyggur á aö minnsta kosti
sjö ferðir enn til Mir áður en Banda-
ríkjamenn og Rússar hefja smíði
sameiginlegrar geimstöðvar seint á
árinu 1997.
„Þetta sannar svo um munar að
Bandaríkjamenn og Rússar geta unnið
saman og að við getum gert þetta al-
þjóðlega geimstöðvarverkefhi að veru-
leika," sagði Bill Clinton Bandaríkja-
forseti eftir stefnumótið sögulega.
Jörðin upp
og niður
Vísindamenn í Frakklandi hafa
komist að því að jörðin rís og
hnígur á degj hverjum, ekki
ósvipað og öldumar á úthafinu.
Þeir komust að þessu með aðstoð
gervihnattar.
Borgin Toulouse í suðvestur-
hluta Frakklands reis t.d. og
hneig um 40 sentímetra á hverj-
um degi, að sögn vísindamann-
anna. Þá kom í ijós að flestar
heimsálfur rísa um einn sentí-
metra á ári vegna þess að jöklar
bráðna og dregur þar af leiðandi
úr þyngd þeirra.
Vísindamennimir mældu einn-
ig rek heimsálfanna miðað við
Evrópu og komust að því að
Noröur-Ameríka fjarlægðist um
tvo sentímetra á ári.
Lyktin
drepur
Ýmis nagdýr sem merlga sér
land með þvi aö pissa á það eru
hugsanlega aö gefa hungruöum
ránfuglum til kynna hvar þeir
megi eiga vona á góðri magafylli.
Að sögn finnskra líffræðinga
virðast fuglarair geta séð iila þefj-
andi hlandslóðina með því aö
beita fyrir sig útfjólubláa hluta
litrófsins. Erfitt er hins vegar að
sjá sjálf dýrin úr lofti vegna
smæðar þeirra.
Geimskutlan Discovery flaug að
rússnesku geimstöðinni Mir á
braut umhverfis jörðu á mánu-
dag og var það æfing fyrir teng-
ingu geimskutlu við Mir í júní í
sumar
Mir hefur verið á sporbaug um jörðu í níu ár og
er blanda margra rússneskra geimflauga
Q Progress-M flutningaflaug
^ Kvant-1 stjarneðlisfræðieining
^ Kvanf-2 vísinda- og þrýstijöfnunarein.
Q Aðalhluti Mir geimstöðvarínnar
^ Soyuz-T geimfar
Kristall tækníeining
STEFNUMÓT®
Tveir geimfarar fóru einnig í geimgcjBu i átta
daga ferðinni, auk þess sem gervihrrottur var
sendur á loft og annar tekinn inn, og gerðar voru
vísindatilraunir
Discovery og Mir
fara á 28000
km hraða um-
hverfis jörðina á
meðan á þessu
stendur
Fjorði dagur
Discovery nemur
staðar 11 m. frá
Stefnumótið og hringsólið
er ómetanleg þjálfun fyrir
fyrirhugaða tengingu
REUTER