Dagblaðið Vísir - DV - 11.02.1995, Síða 13
LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 1995,
13
Bama- og unglingaviku lýkur á morgun: *
Ætla aö gefa út
eigin ljóðabækur
- segir Róbert Öm Einarsson, 11 ára ljóöskáld
„Eg byrjaði að semja ljóð þegar ég
var sjö ára gamall. Þá var Ijóða-
keppni í skólanum og ég tók þátt í
henni. Áhuginn kviknaöi þegar ég
settist niður og samdi ljóðið. Ég var
einn þeirra sem sigraði í þessari
keppni og ljóð mitt birtist síðan í
Ljóðabók bamanna sem út kom árið
1990 á vegum Alþýðusambands ís-
lands,“ segir Róbert Öm Einarsson,
11 ára nemandi í Hvassaleitiskóla,
sem vakið hefur mikla athygli í skó-
lanum vegna skáldskapar. Á skóla-
skemmtunum hefur Róbert staðið
upp og flutt frumsamin ljóð af mikl-
um krafti.
„Eftir að ég vann í þessari keppni
hef ég haft mjög gaman af að búa til
ljóð og hef skrifað þau niður en þó
varla nógu vel,“ segir Róbert. „Æth
ég verði ekki að bæta úr því og hrein-
skrifa þau. Ég hef heldur ekki verið
nógu duglegur að halda þeim til haga
en þarf að taka tO í dótinu mínu,“
heldur stráksi áfram.
Þegar Róbert var spurður hvort
fleiri skáld væru í ættinni var hann
fljótur til svars: „Já, Egill Skalla-
grímsson, afi og mamma. Afi, Guð-
mundur Oddsson, var mjög hag-
mæltur en pabbi gagnrýnir mig
bara,“ segir Róbert en bætir því að
faðir sinn sé mjög klár í stærfræði
sem hann sjálfur ráði verr við.
Á foreldrakvöldi fyrir stuttu las
Róbert Örn upp frumsamin ljóð við
mikla hrifningu. Þannig löjómar
þaö:
Tígur
Grimmur tígur, tennm- vigur
hrammar stórir, léttur stigur
fugla étiu' hann getur betur
fíla drepur hann, klórað getur.
Veiðimaður sporin stígur
sprækur hleypur voðavígur
heggur gróður augum frá,
veiðimaður, hann er hræddur
mundar byssu skjóta fer.
Veiðimaður kvíðir því
að hlaupa hans hreysi í,
maður mætir dýri grimmu
lileður byssu, skýtur á.
Öskur heyrast niðrí byggð
brjálað dýr með skot í kvið.
Veiðimaður flettir feldi
flýtir sér hann fer að kveldi.
Dauöamóða dýrið áðan i sorgartóni
heilsar dauðan missir feldinn
líkama af.
Róbert segir að hugmyndir að ljóð-
um sínum komi bara fram í hugann
án þess að hann sé mikið að hugsa
um þau. „Þegar ég samdi þetta Ijóð
hafði ég verið að hugsa um tígrisdýr
og ég var að horfa á sjónvarpið þegar
það fæddist á blaði. Annað ljóð las
hann líka í skólanum sem heitir Fá-
tæka stúlkan og hljóðar svo:
Dregur eftir götu skjólu fulla af vatni
fátæka stelpan heim í hreysi hvergj.
Hendir sér í götu að niðurlotum komin,
Jesú, margir englar toga hans til sín,
vill hún svefnin langa, leggst hún skýin í.
Stelpan Utla fegin í himnariki fer
sefur svefninum langa, í rauninni er hún
hér.
En hvílir nú á himnum en ekki á götunni
ber.
Þetta er tUgangur lifsins, að deyja og
koma hér.
Róbert dregur upp sterkar myndir
í ljóðum sínum en hann segist hins
vegar lítið hafa samið sögur. „Ég hef
samið myndasögur og í fyrra samdi
ég draugasögu."
Eftirlætisskáld Róberts er Hall-
grímur Pétursson. „Hann samdi
Passíusálmana," segir hann. „Ann-
ars hef ég gaman af að lesa ljóðabæk-
ur.“
Róbert er langyngstur af systkin-
um sínum, hann á þrjár eldri systur
21, 31 og 33ja ára. „Þær hafa frekar
verið fyrir að teikna en að semja sög-
ur eða ljóð,“ segir hann.
Undanfamir dagar hafa verið til-
einkaðir börnum og unglingum. Það
er Heimili og skóli, sem eru hags-
munasamtök bama og unglinga, sem
hafa staðið fyrir henni. Það er ljóst
að mörg böm og unglingar á íslandi
em að gera skemmtilega hluti og
kynslóð sinni til sóma. Skólamir
hafa stutt þessi börn með því að leyfa
hæfileikum þeirra að njóta sín.
Róbert Örn segist stefna að því að
gefa út ljóðabækur í framtíðinni en
jafnframt langar hann til að verða
rafmagnsverkfræðingur eða raf-
eindavirki. Áhugamálin em hins
vegar fimleikar, sem hann æfir,
píanóleikur, sem hann er að læra,
og ljóöagerð.
Róbert öm Einarsson, 11 ára nemandi í Hvassaleitiskóla, á orðið mikið
safn frumsaminna Ijóða. DV-mynd Brynjar Gauti
Vií bjóðum þessi tfönduðu Saba-tski, sem hafa unnið til verðlana varðandi hönnun
09 gsli, á sérlega hagstsðu verði. Misstu ekki af þessu takikerM
Saba T-7049 28" sjónvarpstœki með
Nicam Stereo, innbyggðum 2 x 20 W
Surround-magnara, sem gefur gríðar-
lega góðan umhverfishljóm, Black
a 16:9 breiðtjaldsmynd,
tímai’ófð, vekjara, mjög fullkominni
fjarstýringu, tveimur scart-tengjum,
hótalaratengjum fyrir fjóra hátalara,
S-VHS-tengi, Pal, Secam og NTSC-video
móttaka,
Saba VR-5025 ervandaðstíl-
hreint tveggja hausa myndbands-
tœki, hannað í stíl við T-7049-
sjónvarpstœkið. Það er með
tvö Scart-tengi, fjarstýringu,
aðgerðum á skjá sjónvarps,
Show-View, stafrœnni sporun, 365 daga uppfökuminni,
Index-merkimöguleika í upptöku o.m.fl.
79.900,«
96.900,
m farsími
59.900,5
Nýi Siemens S3 farsíminn er lítill og handhœgur, en þó
sérlega öflugur. Hann er hlaðinn innbyggðum, stillan-
legum atriðum, s.s. símaskrá, símtalsflutningi, mismun-
andi hringingum, 5 númera endurvalsminni og fjölmörgu
fleira, en er þó rómaður fyrir að vera einstaklega auðveldur
í notkun. Svo vegur hann aðeins 280 gr.
EUROCARD
raögreiðslur
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
‘T/sTi RAÐGREIÐSLUR
TIL ALLT AÐ 24 MÁNAÐA
munÍ T11_ ALLT AÐ 30 MÁNAÐA
Hraðþjónusta við landsbyggðina:
(Kostar innanbœjarsímtal og
vörumar eru sendar samdœgurs)
ígi 11
Sími: 886 886 Fax: 886 888