Dagblaðið Vísir - DV - 01.03.1995, Síða 24
40
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 1995
Sviðsljós
Stones gerðu allt yit-
laust í Suður-Afríku
Mesta rokkhljómsveit allra tíma,
sjálfir Rolling Stones, hélt tónleika í
Suður-Afríku um helgina og tvífyllti
rúgbýleikvanginn Ellis Park í Jó-
hannesarborg, við mikil fagnaðar-
læti viðstaddra. Leikvangurinn tek-
ur liðlega sextíu þúsund áhorfendur.
Ekki voru þó allir jafn hrifnir af
komu Rollinganna til Suður-Afríku
því þar á bæ eru margir kaþólikkar
uggandi um andlega velferð ungviðis
landsins. Kaþólskur þrýstihópur,
sem kennir sig við kristna siðmenn-
ingu, mótmælti komu hljómsveitar-
innar hástöfum og sagði veru hennar
Talaðu við okkur um
BÍLARÉTTINGAR
BÍLASPRAUTUN
Vaimi
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
Þeir Mick Jagger, forsöngvari Rolling Stones, og Keith Richards, aðalgitarleikari sveitarinnar, voru í miklu stuði
á tónleikunum sem þeir héldu í Jóhannesarborg i Suður-Afríku um helgina, enda kunnu áhorfendur svo sannar-
lega að meta gömlu mennina. Rúmlega eitt hundrað þúsund manns hlýddu á stríða jafnt sem þýða tóna rokk-
sveitarinnar. Símamynd Reuter
Verslunin á 1 árs
afmæli í dag.
I tilefni af því bjóðum
við 30-40% afslátt af
öllum vetrarvörum
í 4 daga
Ath! takmarkað magn.
20% afsláttur
af öðrum vörum.
Slípum skíði.
Gerum við allar gerðir
reiðhjóla.
Heittá könnunni
á afmælisdaginn.
HJÓLiÐ S/F
• VERSLUN
• VIOGEROIR
EIÐISTORGI • SIMI610304
Verið velkomin.
Erotik Unaðsdraumar
Pöntunarsími: 96-25588
Póstsendum vörulista
hvert á land sem er!
Fatalisti, kr. 350
Nýr tækjalisti, kr. 850
Blaóalisti, kr. 850
Videolisti, kr. 850
Sendingarkostnadur
innifalinn
í landinu stuðla að enn frekari sið- Siðapostulamir fengu ekki að ráða fréttir af illum áhrifum rokköldung-
ferðilegri og sálrænni hnignun. í þetta sinn og ekki hafa enn borist anna á suður-afrískan æskulýð.
Tveir lofthausar deila:
Pamela stal útliti mínu,
líkamanum og kærastanum
- segir fyrrum kærasta Tomma trommara
Hér sýnir Pamela brjóstin glerhörðu. Þegar hún lét setja I þau silíkon á
sínum tíma var það til að líkjast stúlkunni Bobbie.
Tommy Lee, hinn tattóveraði
trommari hljómsveitarinnar Mötley
Crue og nýbakaður eiginmaður Bay-
watch-ljóskunnar Pamelu Anderson,
baö annarrar ljósku aðeins tveimur
vikum áður en hann giftist Pamelu.
Sú ljóska heitir Bobbie en þær stúlk-
umar era sláandi líkar. Bobbie sakar
nú strandvörðinn Pamelu um að hafa
ekki aðeins stolið útliti sínu og lík-
ama heldur einnig Tomma sínum.
Pamela og Tommy giftu sig fá-
klædd um síðustu helgi á strönd í
Mexíkó en þau höfðu þá aðeins
þekkst í fimm daga. Karlmenn úti
um allan heim eru fullir hneykslun-
ar á þessu háttalagi ljóskunnar
bijóstafylltu enda sé Tommy þessi
frægur flagari, rugludallur og eitur-
lyíjaneytandi sem leikið hafi margan
Bobbie er æf yfir því að Pamela
skuli nú vera búin að stela likama
sínum, útliti og kærasta.
kvenmannsbelginn grátt.
Bobbie og Tommy voru búin að
vera saman í tæplega eitt ár. Bobbie
segir að hún hafi hafnað bónorði
Tomma vegna þess að henni hafi
ekki fundist sem samband þeirra
stæði á nægilega traustinn grunni.
Hann hafi meðal annars barið hana
reglulega. Hún hafi því ætlað að bíða
og sjá hvernig sambandið þróaðist
en síðan, eins og þruma úr heiðskíru
lofti, hafi komið fréttin um að
Tommy hafi gifst Pamelu.
Bobbie segir að fyrir fjórum árum,
þegar þær Pamela hafi verið að reyna
að koma sér á framfæri í leiklist-
inni, með litlum árangri, hafi Pamela
farið í fegrunaraðgerðir ýmiss konar
og litað á sér hárið til að líkjast sér
sem mest. Það hafi greinilega borið
árangur því Tommy hafi tekið Pa-
melu sem varaskeifu þar sem hún
líktist Bobbie svo mikið.
Blöð í léttari kantinum í Bretlandi
eru uppfull af fréttum og myndum
af Pamelu þessa dagana. Ekki virðast
allir sammála um hversu skynsöm
stúlkan sé og kalla sum blööin hana
alltaf „lofthausinn" (airhead). Allir
eru hins vegar sammála um að hún
sé englakroppur hinn mesti.
NATO verðlaunar Faye
Faye Dunawav er með merkari
og vírtari leikkonum í Hollywood
og það vita kvikmyndahúsaeig-
endur. Þess vegna ætla samtök
þeirra, skammstöfuð NATO, að
heiðra leikkonuna fyrir ævistarf
hemiar yíir ljúffengum málsverði
í næstu viku. Faye er 54 ára og
hóf feril sinn á leiksviði. Hún er
þó líklega þekktust fyrir leik sinn
í myndinni um glæpahjúin
Bonnie og Clyde.
Carly Simon út á veg
Söngkonan Carly Simon hefur
ekki verið víðförui undanfarin
fimmtán ár. Nú hefur hún hins
vegar ákveðið að bregða undir sig
betri fætinum og leggja upp í tón-
leikaferð og ætlar hún að koma
fram á sjö tónleikum í þessum
mánuði. Allt er þetta nú í göfug-
um tilgangi gert, sem sé þeim að
kynna nýjustu plötuna, þá fyrstu
í ijögur ár.
Græðavelá
veitingunum
Bruce Willis og félagar hans,
þeír Sylvester Stallone og Arnold
Sehwarzenegger, hafa grætt svo
vel á Planet Hollywood veitinga-
stöðunum sínum að fleiri frægir
íhuga nú að lána nafnið sitt mat-
sölustöðum. Meðal þeirra er leik-
arinn Paul Sorvino en nafn hans
verður sett á ítalska veitinga-
staði. Svo er verið að undirbúa
veitingahúsakeðju þar sem
skúrkaleikarar koma við sögu en
meira um þaö síðar.
Ástríðan komin aftur
Patrick Swayze er himinlifandí.
„Ástríðan er komin aftur,“ segir
hann, nýbúinn að leika í mynd
með Mary Elisabeth Mastran-
tonio þar sem allt gekk eins og i
bestu sögu. Patrekur liafði þá
nánast verið í felum frá Holly-
wood um tima. Nú er hann kom-
inn á kaf í tóniistina og er hugs-
anlega að semja lokalagið fyrir
myndina To Wong Foo.