Dagblaðið Vísir - DV - 09.03.1995, Qupperneq 13
FIMMTUDAGUR 9. MARS 1995
13
spretta hagvaxtar
„Flestum ætti að vera Ijóst að átak við nýsköpun verður ekki í íslensk-
um framleiðsluiðnaði án þess að þekking og færni hönnuða jafnt sem
handverksmanna sé til staðar."
Framleiðsluiðnað á íslandi þarf
að efla til að auka þjóðartekjur.
Þekking, menntun og hæfni á sviði
iðnhönnunar er mikilvæg upp-
spretta hagvaxtar. Iðnhönnun er
hins vegar orð sem er ekki sérlega
greypt í þjóðarvitundina þrátt fyrir
vaxandi iðnaðarframleiðslu. Nauð-
synlegt er að efla iðnhönnun svo
hægt verði að byggja atvinnustefnu
framtíðar á nýjum grunni.
KjaUaiiim
Flestum ætti að vera ljóst að átak
við nýsköpun verður ekki í íslensk-
um framleiösluiðnaði án þess að
þekking og færni hönnuða jafnt sem
handverksmanna sé til staðar. Á
flestum sviðum atvinnulífsins er
þörf fyrir rannsóknir og vandaða
hönnun vegna þeirrar framleiðslu
sem ráðist skal í. Snjallar lausnir
eru forsendur þess aö árangur náist
við framleiðslu og sölu á iðnvarn-
Sturla Böðvarsson
alþingismaður, skipar 1. sæti á lista
Sjálfstæðisflokksins á Vesturlandi
„Snjallar lausnir eru forsendur þess
aö árangur náist við framleiðslu og
sölu á iðnvarningi. Menntun og þjalfun
skiptir miklu máli.“
Iðnhönnun - upp
ingi. Menntun og þjálfun skiptir þar
miklu máli. Því verður aö telja eðli-
legt að opinberir aðilar stuðh aö
eflingu iðnhönnunar með beinum
eða óbeinum hætti. Skipulagðri
samvinnu þarf að koma á milli
þeirra aðila á vinnumarkaöi sem
tengjast iðnaði eða þurfa að nýta sér
iðnaðarframleiðslu. í því sambandi
má m.a. nefna sjávarútveg.
í stefnumótun ASÍ í efnahags-,
atvinnu- og kjaramálum kemur
glöggt fram hversu mikla áherslu
verkalýðhreyflngin leggur á hvers
konar nýsköpun í atvinnulífinu.
Sókn á sviði verkmenntunar og
tæknimenntunar er grundvallar-
þáttur til þess að uppbygging geti
átt sér stað.
Samstarf stjórnvalda, launa-
fólks og fyrirtækja
Til að tryggja að markvissum og
árangursríkum vinnubrögðum
verði beitt þurfa stjórnvöld að
koma inn í náið samstarf með sam-
tökum launafólks og fyrirtækja.
Einnig er full ástæða til aö líta til
fagfélaga sem tengjast iönhönnun.
Starf þeirra er mikilvægt að styrkja
og efla. Má varpa fram þeirri
spurningu hvort ekki sé kominn
tími til þess að einhver angi af arki-
tektanámi fáist inn í landið. í það
minnsta mætti hugsa sér fyrir-
lestra og kynningu svipaða því sem
Arkitektafélag íslands stóð fyrir á
síðasta ári og mæltist mjög vel fyr-
ir. Slík starfsemi gæti verið sam-
vinnuverkefni menntamálaráðu-
neytisins, iðnaðarráöuneytisins og
Arkitektafélags íslands í nafni fag-
félaganna.
Handverk og hugmyndir
Síðustu vikur hefur staðiö yfir
sýning í Reykjavík á iðnhönnun og
verkum arkitekta. Þessi sýning er
að vísu ekki stór en hún gefur
ágæta mynd af því hversu margir
góðir hönnuðir eru starfandi hér á
landi. Sýningin vekur athygli á því
hversu nauðsynlegt það er að auka
kynningu á iðnhönnun. Rækileg
kynning ætti að fara fram í fram-
haldsskólum landsins og jafnvel
grunnskólunum í þeim tilgangi að
auka skilning á þessari mikilvægu
grein og draga fram þá möguleika
sem iðnhönnun gefur. Samfara
miklum tækniframforum við hvers
konar framleiðslu er mikilvægt að
huga vel að þeim þætti sem eru
hugverkin, hugmyndirnar, þar
sem er lagður grunnur að gerð þess
sem framleiða skal. Þau eru grund-
völlur þess að framleiðsluiðnaður-
inn vaxi og dafni en hann á allt
sitt undir góðum hugmyndum ekki
síður en góðu handverki.
Sturla Böðvarsson
Hvers vegna Þjóðvaki?
Óvíða er jafn mikill pólitískur
áhugi sem á íslandi. Það sýna tölur
um kjörsókn. íslendingar gera sér
grein fyrir mikilvægi þess að sú
vinna sem fram fer í Alþingishúsinu
við Austurvöll sé vönduð og horfi til
heilla fyrir land og lýð, ekki suma
heldur alla. í öllum stjómmálaflokk-
um er hugsjónafólk sem sér fyrir sér
réttlátara og betra ísland. Spumingin
er einfaldlega sú hvort aðferðir flokk-
anna á vali fulltrúanna til Alþingis
sé heiðarleg og skili þeim árangri
sem til er ætlast. í öllum gömlu flokk-
unum er orðin hættuleg þráseta
sumra þingmannanna en gömlu
flokkarnir hafa búið sér til samtrygg-
ingarkerfi sem erfitt er fyrir almenn-
ing að ráða við. Jafnvel Kvennalist-
inn sem átti aö vera svo hreinn og
fagur hefur sýnt í verki, að mati einn-
ar frammákonu hreyfingarinnar,
einhveija mestu mannfyrirlitningu
og valdníðslu í íslenskum stjómmál-
um á seinni tímum.
Hvað er þá til ráða? Almenningur
verður að rísa upp. Ég eygi von í
Þjóðvaka, hreyfingu fólksins til jafn-
aðar og framfara.
Siðareglur þingmanna
Jóhanna Sigurðardóttir, formað-
ur Þjóðwaka, hefur sýnt í verki á
KjáUarinn
Magnús Aðalbjörnsson
skipar 3. sæti á lista Þjóðvaka
í Norðurlandi eystra
Alþingi að hún er ötul baráttukona
fyrir jöfnun lífskjara og betra
mannlífi á íslandi. Jóhanna hefur
einn íslenskra ráðherra afsalað sér
þeirri reglu sem alþingismenn hafa
sett að ráðherrar hafi einkabíl-
stjóra og glæsikermr. Jóhanna hef-
ur notað sína eigin bifreið sem ráð-
herra og sparað ríkinu milljónir.
Stjómmálaforingi sem þannig
hugsar er líklegur til að veita sam-
starfsfólki sínu aöhald í meðferð
opinbers fjár.
Flokksþing Þjóðvaka samþykkti
að setja þingmönnum sínum siða-
reglur og mun jafnframt beita sér
fyrir að almennar og skráðar siða-
reglur verði settar í opinberri
stjórnsýslu til þess að koma í veg
fyrir hagsmunaárekstra og mis-
beitingu valds. Einnig veitir ekki
af að gera vörslumenn opinberra
sjóða ábyrgari fyrir gjörðum sínum
og faglegri vinnubragða verði kraf-
ist þegar ráða þarf í stöður hjá hinu
ópinbera.
Gömlu flokkarnir hræddir
Ég hvet fólk til aö Ijá eyra mál-
svörum Þjóðvaka. Gömlu flokkarn-
ir eru hræddir við þetta nýja afl
sem vill breyta og bæta. Það hentar
ekki gömlu flokkunum. Þess vegna
kappkosta þeir allir í senn að
ófrægja Þjóðvaka sem virðist vera
orðinn helsti óvinur þeirra. Kerf-
inu má ekki breyta að þeirra mati
en við skulum ekki láta þá kúga
okkur lengur.
Magnús Aðalbjörnsson
„Jafnvel Kvennalistinn, sem átti að
vera svo hreinn og fagur, hefur sýnt 1
verki, að mati einnar frammákonu
hreyfingarinnar, einhverjamestu
mannfyrirlitningu og valdníðslu í ís-
lenskum stjórnmálum á seinni tím-
11VV> «
Meðog
Sjálfstæðisflokk utan rikis-
stjórnar
Stefnumál
ofarráð-
herrastólum
„Þjóðvaki
tekur ekki
þátt í kapp-
hlaupi hinna
ílokkanna til
Sjálfstæðis-
flokksins. Við
metum
stefnumálin
Og trúnað við Ágúst Elnarsson, fram-
kjósendur bjóéanttl Þjóévaka
meira en ráð-
herrastóla undir forsæti þeirra.
Yfirlýsing Þjóðvaka hefur hlot-
ið mikinn meöbyr í þjóöfélaginu
og fjölmargir stuðningsmenn Al-
þýöuflokks, Alþýðubandalags,
Framsóknarflokks og Kvenna-
lista hafa lýst yfir stuðningi sín-
um við þessa afstöðu.
Sjálfstæðisflokkurinn er hægri-
sinnaður sérhagsmunaflokkur,
flokkur fyrirtækjanna og for-
ystuafla valdakerfisins. Launa-
fólk á ekki samleið með slíkum
flokki.
Gömlu flokksforingjarnir vilja
fara með atkvæði kjósenda eins
og þeim sýnist eftir kosningar og
semja sig frá loforðum sínum.
Þjóðvaki tekur ekki þátt í því að
blekkja kiósendur með þeim
hætti.
Valið i kosningunum stendur á
milli Þjóðvaka og gamla flokka-
kerfisins, milli breytinga og
óbreytts ástands,
Almenningur á rétt á aö vita
hvað flokkar þeirra ætla að gera
eftir kosningar. Þessi skýra af-
staða Þjóðvaka er liður í því að
brjóta upp flokkakerfið og sam-
eina félagshyggjuöflin. Orð og
efndír verða að fara saman.“
Sundurlyndi
í stjórnar-
fari
„í þessum
; kosningum
eru kostimirí
raun og veru
óvenju skýr-
ir. Annars
vegar er það
sfjómarsam-
starf þar sem
Sjálfstæðis- _____
•■flokkur yrði þlngmaóur SjóllslæðÍH-
aðili. Þar yröi <tokks
um að ræöa stjómarsamstarf
tveggja flokka þar sem stöðug-
leiki í stjórnarfari og stöðugleiki
í efnahagsmálum færu saman.
Hins vegar er um að ræða sam-
starf margra flokka, vinstra
samkrull, þar sem óstjóm í efna-
’ hagsmálum og sundurlyndi í
; stjómarfarinumynduleiðasthlið
| við hliö. Það er hefðbundið
vinstristjórnarmynstur. Þegar
Jóhanna Sigurðardóttir hvetur
tii þess að svokallaöir félags-
hyggjuflokkar fari ekki i ríkis-
stjórnarsamstarf með Sjálfstæð-
isflokknum er hún að velja síðari
kostinn, kost óstjórnar í efna-
hagsmálum og upplausnar á póli-
tíska sviðinu. Ég er ekki hissa á
því að aðrir vinstri flokkar skuli
ekki vilja undirgangast þetta
jarðarmen en á þessu stigi er ekki
hægt að svara því hvert sé líkleg-
asta stjórnarsamstarfið að lokn-
um kosningum. Kosningamar
munu leiða þaö í ljós en öflugur
stuðningur við Sjálfstæöisflokk-
inn er krafa um stöðugt stjóraar-
far og styrka efnahagsstjórn." -rt