Dagblaðið Vísir - DV

Dagsetning
  • fyrri mánuðurmars 1995næsti mánuður
    SuÞrMiFiLa
    2627281234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 11. MARS 1995 13 I » > > > ) ) ) ) ) Sviðsljós DV George Clooney bræðir mörg kvenhjörtu á vaktinni. Hjartaknúsar- inn á „Bráða- vaktinni" Sjónvarpsmyndaflokkurinn Bráðavaktin hefur orðið sá vinsæl- asti í Bandaríkjunum síöan Dynasty sló í gegn á sínum tíma. Hjartaknús- arann og barnalækninn í Bráðavakt- inni leikur George Clooney og er þetta áttundi sjónvarpsmyndaflokk- urinn sem hann leikur í á tiu árum. Framleiðendur voru vissir um aö á endanum yrði Clooney stjarna og þeir höfðu rétt fyrir sér. Þegar Clooney, sem er orðinn 33 ára, var í kringum tvítugt var hann í miklum vafa um hvað hann ætti aö leggja fyrir sig. Sumarið 1982 bauð frændi hans, leikarinn Miguel Ferr- er, honum til sín þar sem hann var að leika í kvikmynd sem var reyndar ekki merkileg. Clooney dvaldi fjóra mánuði á hótelherbergi frændans og varð harðákveðinn í því að verða leikari. „Það var fullt af sætum stelp- um í kringum leikarana og leikstjór- inn hvatti mig til að leggja þetta fyr- ir mig,“ sagði Clooney nýlega í við- tali. Hann lék í einni senu myndar- innar og eyddi afganginum af sumr- inu í tóbaksverksmiðju til að afla fjár til Hollywoodfarar. Föður hans, Nick Clooney, leist ekki á þessa fyrirætlan sonarins. Hann var sjálfur sjónvarpsmaður og vissi að bransinn var harður. En son- urinn var fullur sjálfstrausts og hon- um tókst að koma sér á framfæri. Hann kveðst viss um að hafa fengið fyrsta starfið, sem var í auglýsingu á hljómtækjum frá Japan, vegna þess að hann kom í prufu með bjórkippu og spurði menn hvort þeir væru þyrstir. Vinkona Clooneys er Kimberly Clooney með vinkonu sinni, Kimb- erly Russel. Russel og hafa þau verið saman í rúmt ár. Hann kvæntist leikkonunni Taliu Balsam 1989 en þau skildu þremur árum seinna. Áður hafði Clo- oney búið með leikkonunni Kelly Preston sem nú er gift John Tra- volta. Clooney hefur lýst því yfir aö hann ætli aldrei að kvænast aftur og að hann æth aldrei aö eignast börn. Hann segir jafnframt að þaö hafi í raun verið að mestu hans sök að hjónaband hans fór út umjoúfur. „Ég kvæntist frábærri konu. Eg tek ekki á mig alla ábyrgð á erfiðleikunum en þegar þeir komu var ég ekki tilbú- inn að leysa þá. Ég vildi bara losa mig undan þeim og þannig á það ekki að vera í hjónabandi." UTANKJÖRFUNDARATKVÆÐAGREIÐSLA í Reykjavík vegna kosninga til Alþingis 8. apríl nk. verður að Engjateigi 5, sími 5885605, frá mánu- deginum 13. mars og verður opið þar alla daga kl. 10-12, 14-18 og 20-22. Kjósendum er bent á að hafa með sér fullnægjandi skilríki. SÝSLUMAÐURINN í REYKJAVÍK fyrsti vinningur á laugardag! Landsleikurinn okkar!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað: 60. tölublað - Helgarblað (11.03.1995)
https://timarit.is/issue/195950

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.

60. tölublað - Helgarblað (11.03.1995)

Aðgerðir: