Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Blaðsíða 56

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.1995, Blaðsíða 56
FRÉTTASKOTIÐ BLAÐAAFGREIÐSLA 06 ÁSKRIFT ER 0PIN: 562•2525 Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiöast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- HRITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 27001 MrVIIBlVoku 1 ðOil AÍII KL, 6-8 LAUGAftDAGS- OG MANUDAGSMORGMA Frjálst,óháð dagblað LAUGARDAGUR 11. MARS 1995. Reykjavikurborg: Skýrsla um einkavæðing- una f undin Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóri hefur fengið senda 42ja blaðsíðna greinargerð sem Inga Jóna Þórðardóttir borgarfulltrúi vann fyr- ir Markús Öm Antonsson, þáverandi borgarstjóra, um möguleika til að einkavæða borgarfyrirtæki. Grein- argerðin hefur ekki fundist í skjala- safni Ráðhúss Reykjavíkur og var aldrei lögð fram í borgarráði þrátt fyrir óskir þáverandi minnihluta þar um. „Skýrslan" barst nafnlaust til borgarstjóra fyrir helgi. „Borgarstjórar Sjálfstæðisflokks- ins neituðu því að til væri skýrsla unnin af Ingu Jónu Þórðardóttur um einkavæðingu á fyrirtækjum borgar- innar. Þeir sögðu með öðmm orðum ekki satt í þessu máli. Mín skoðun er sú að þeir hafi talið óheppilegt fyrir flokkinn að hafa látið gera einkavæðingarskýrsluna í ljósi þess hvernig til tókst með SVR,“ sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgar- stjóri á blaðamannafundi í gær. „Það er rangt að ég hafi viðurkennt að þetta væri skýrslan. Ég sagði að þetta væri ein af þeim greinargerð- um sem fóru frá mér til borgarstjóra. Mér var ekki falið að búa til neina heildarskýrslu. Öll þessi efnisatriði komu fram í dagsljósið á minnisblaði fyrrverandi borgarstjóra í borgar- ráði,“ segir Inga Jóna Þórðardóttir borgarfulltrúi. „Við sögðum aldrei ósatt í þessu máli. Það var aldrei óskað eftir neinni skýrslu og ég gerði borgarráði skýra grein fyrir málavöxtum í bréfi sem ég sendi því skömmu fyrir kosn- ingar. Inga Jóna skilaði til mín minn- isblöðum um einstaka þætti sem hún vann að,“ sagði Markús Örn Antons- son. NSK kúlulegur PoMlxeti Suðurlandsbraut 10. S. 886483. LOKI Hverskyldi nú hafa sent Ingi- björgu Sólrúnu skýrsluna sem aldrei vartil? Mikill meirihluti telur of Mikill meirilúuti kjósenda telur að of vægt sé tekið á bruggurum. Þetta er niðurstaða skoðanakönn- unar sem DV framkvæmdi í vik- unni. Af þeim sem afstöðu tóku í könnuninni sögöu 73,6 prósent að of vægt væri tekið á bruggurum, hæfilega sögðu 24,4 prósent og ein- ungis 1,9 prósent sögðu aö of hart væri tekið á þeim. Úrtakið í skoðanakönnun DV var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja og eins á milli landsbyggðar Lögreglumeöferö bruggmála og höfuðborgarsvæðisins. „Spurt var: „Tekur lögreglan of hart, hæfi- lega eða of vægt á bruggurum?" Sé tekið mið af svörum allra í könnuninni urðu niðurstöðurnar þær að 69,3 prósent sögðu að of vægt væri tekið á bruggurum, 23 prósent sögðu hæfilega og einungis 1,8 prósent sögðu aö of hart væri tekið á þeim. Óákveðnir reyndust 5 prósent og 0,8 prósent aðspurðra neituðu að gefa upp afstöðu sína. Ekki reyndist mikill munur á af- stöðu kynjanna í könnun DV. Með- al þeirra kvenna sem tóku afstöðu til spurningarinnar sögðu 75,3 pró- sent að of vægt væri tekið á brugg- urum, 23,7 prósent sögðu hæfilega og einungis 1,1 prósent aö of hart væri tekið á þessum brotum. Meðal karla sem tóku afstöðu sögöu 72 prósent að of vægt væri tekið á bruggurum, 25,2 prósent sögðu hæfilega hart. og 2,8 prósent sögðu of -kaa Ásgeir Leifsson, eigandi leirbaðanna í Laugardalslaug, hefur hafið framieiðslu á hveraleir fyrir andlit. Hann hyggur á markaðssetningu á leirnum sem hreinni náttúruafurð erlendis og hefur látið hanna aðlaðandi og loftþéttar umbúðir. Ásgeir segir að hveraleirinn hafi mýkjandi og sléttandi áhrif á húð og dragi úr gelgjubólum og flösu í hári. DV-mynd BG Bruggari dæmdur: Fékkháifa milljón í sekt Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt 38 ára Sunnlending til greiðslu hálfrar milljónar króna sektar eftir að hann játaði að hafa bruggað hundruð lítra af áfengi á baðherbergi á heimili sínu, sveitabæ í uppsveitum Rangárvallasýslu, á seinasta ári. Ákærði játaði skýlaust að hafa framleitt 268 lítra af landa og selt 90 þeirra. Þá fundust 544 lítrar af gambra á heimili mannsins. í ákæru var þess krafist að maðurinn sætti upptöku á þeim landa sem ekki var seldur, auk þess sem krafist var að maðurinn sætti upptöku á fjórum plasttunnum, eimingartækjum, 160 kílóum af sykri og þremur kílóum af geri, sem lögreglan lagði hald á við rannsókn málsins. Með hliðsjón af því að maðurinn játaði brot sitt greiðlega og því að hann hafði ekki áður komið við sögu lögreglu var hann dæmdur til greiðslu 500 þúsund króna sektar ell- egar sæta varðhaldi í 40 daga. Þá var það niðurstaða dómsins að lagt skyldi hald á allt hið fyrrtalda nema hvað lögreglunni var gert að skila sykrinumoggerinu. -pp Veðrið á sunnudag og mánudag: Nokkuð hvasst um helgina Á sunnudag verður nokkuð hvöss sunnan- og suðvestanátt, slydda eða rigning sunnan og vestan til á landinu en skýjað norðaustanlands. Hiti verður á bilinu 0-ri stig. A mánudag verður vestlæg átt, strekkingur syðst á landinu en hægari annars staðar. Um landið vestanvert verða él en léttskýjað austan til, frost 1-6 stig. Veðrið 1 dag er á bls. 61
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.