Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1995, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 1995
Viðskipti
Hækkunávísi-
tölu neysluverðs
Vísitala neysluverðs hefur
hækkað um 0,2% frá aprílmán-
uði. Miðað við verðlag í maíbyij-
un reyndist hún vera 172,1 stig,
samkvæmt útreikningum Hag-
stofunnar. Neysluvisitala án hús-
næðis i maí er 175,7 stig.
Hækkun vísitölunnar er helst
rakin til hækkunar grænmetis,
ávaxta og brauðs. Það sem dró
úr hækkuninni var lækkun síma-
gjalda og bjórs. Hagstofan birti
einnig í gær samanburð á verð-
bólgu í nokkrum ríkjum miðað
við breytingar á neysluvisitölu
frá mars 1994 til mars 1995. Verö-
bólgan á íslandi mældist 1,4%,
eða hvergi lægri í ríkjum Evrópu.
Aðeins Japan var með minni
verðbólgu, eða 0,3% verðhjöðn-
un. Meðaltal ESB-ríkía var 3,3%
verðbólga. Sem fyrr var hæst
verðbólga í Grikkiandi eöa rúm
10%.
SSfékkVernd
Sláturfélag Suðurlands á
Hvolsvelli fékk í síöustu viku af-
hent umhverfisviðurkenningu
Iönlánasjóðs fyrir framúrskar-
andi öryggi á vinnustað og að-
búnað starfsmanna. Viðurkenn-
ingin, sem nefhist Vernd, er veitt
árlega af Iðnlánasjóöi, Á aðal-
fundi sjóösins afhenti Guðmund-
ur Bjarnason umhverfisráðherra
viöurkenninguna og er myndin
að neðan tekin við það tækifæri.
Jón Gunnar Jónsson, íram-
leíðslustjóri SS, tók viö viður-
kenningunni.
í undlrbúningi hjá Upplýsingamiöstöð ferðamála 1 Reykjavík:
Skiptistöðvar
með gjaldeyri
í samráði við Change Group Ltd í London
í undirbúningi er stofnun gjaldeyr-
isskiptistöðva fyrir erlenda ferða-
menn á íslandi. Um er að ræða útibú
frá breska fyrirtækinu Change
Group Ltd í London. Frumkvæði í
málinu hefur haft Upplýsingamið-
stöð feröamála í Reykjavík sem er í
eigu Ferðamálaráðs og Reykjavíkur-
borgar. Samningar hafa ekki verið
undirritaðir en þegar hefur verið
auglýst eftir starfsfólki. María Guð-
mundsdóttir, forstöðumaður Upplýs-
ingamiðstöðvarinnar, vildi ekki
ræða málið þegar DV hafði samband
við hana í gær, sagði það viðkvæmt.
Samkvæmt heimildum DV stendur
til að gjaldeyrisskiptistöð verði í hús-
næði Upplýsingamiðstöðvarinnar í
Torfunni auk þess sem samningavið-
ræður standa yfir við forráðamenn
Leifsstöðvar um að setja þar upp
stöð. Leyfi hefur þegar fengist frá
Seölabankanum fyrir starfseminni
sem eingöngu snýst um að skipta
gjaldeyri og ferðatékkum.
Eftirspurn eftir skiptistöðvum af
þessu tagi hefur verið mikil undan-
farin ár, sér í lagi eftir að komum
ferðamanna til íslands utan „ver-
tíða“ fór að fjölga. Erlendis eru svona
stöðvar á hverju strái.
Starfsfólk Upplýsingamiðstöðvar-
innar og annarra ferðaþjónustuaðila
hefur margoft rekiö sig á að erlendir
ferðamenn hafa á veturna hvergi
getað skipt gjaldeyri utan afgreiðslu-
tíma banka og sparisjóða. Aðeins
gestir stærstu hótelanna hafa fengið
þessa þjónustu.
Samkvæmt því sem DV kemst næst
reyndi Upplýsingamiðstöðin að fá
viðskiptabankana til samstarfs um
að opna sérstakar gjaldeyrisskipti-
stöðvar yfir vetrartímann en ákveðið
var að taka tilboði Change Group í
London sem bauð betur hvað varðar
fjármögnun og afgreiðslutíma.
-
Ef samningar nást við Change Group í London verður að öllum líkindum
opnuð gjaldeyrisskiptistöð fyrir erlenda ferðamenn hjá Upplýsingamiðstöð
ferðamála i Reykjavík. DV-mynd ÞÖK
Birgir Agústsson og Helgi Ingv-
arsson við nokkra af nýju Su-
baru-btlunum. DV-mynd gk
BílaleigaAkur-
eyrarfær35
nýja Subaru-bíla
GyK Kristjánsson, DV, Akureyri:
Bílaleiga Akureyrar fékk ný-
lega afhenta 35 nýja bíla af gerð-
inni Subaru Impressa sem fyrir-
tækið keypti af Ingvari Helgasyni
hf. Helgi Ingvarsson, fram-
kvæmdastjóri IH, afhenti bílana
formlega á Akureyri.
Birgir Ágústsson hjá Bílaleigu
Akureyrar segir að langflestir
bílarnir séu fjórhjóladrifhir og
svo er reyndar um nær allan
„bílaflota“ leigunnar sem er nú
um 300 bílar af ýmsum gerðum.
Nýju Subaru-bilarnir eru nyög
vel útbúnir og eru þegar komnir
í notkun hjá fyrirtækinu.
Vigdisikynning-
arriti DHL
í nýlegu kymúngarriti DHL
hraðflutningafyrirtækja á Norð-
urlöndum, Right on Time, er
miklu plássi variö í umflöllun um
ísland. Meðal annars er heilsíðu-
viðtal við Vigdísi Finnbogadóttur
forseta auk þess sem forsíðu-
myndin er tekin í Bláa lóninu.
I leiðara ritsins hælir svæðis-
stjóri DHL í Norður-Evrópu ís-
lenska útibúinu fyrir framúr-
skarandi árangur við að byggja
upp viðskipti hér á landi. Þess
má geta að DHL Worldwide Ex-
press og ABB Serviee hafa hafið
samstarf um uppbyggingu flutn-
ingamiöstöðva víðs vegar í Evr-
ópu til að flýta enn frekar fyrir
flutningi varahluta til viðskipta-
vina sinna.
Hlutabréf Olís falla í verði
Hlutabréfaviöskipti í síðustu viku
námu 24,6 milljónum króna og á
mánudag urðu 4,5 milljóna viðskipti.
Langmest var keypt af bréfum Har-
aldar Böðvarssonar í síöustu viku,
eða fyrir 11 milljónir króna, og Flug-
leiða fyrir 8,5 milljónir. Viðskipti í
öðrum félögum voru óveruleg.
Á mánudaginn gerðist það helst aö
gengi hlutabréfa Olís lækkaði niður
í 1,91 og hefur lækkað um þriðjung
á fáum vikum. Viðskiptin hafa
reyndar verið óveruleg í krónum tal-
ið. Um miðjan dag í gær höfðu engin
viðskipti átt sér stað meö Olísbréfin.
Þó var inni kauptilboð á genginu 2,25
en enginn hafði bitið á agnið þegar
þetta var ritað. Önnur viöskipti hafa
ekki verið með hlutabréf olíufélag-
anna síðustu daga.
Mikil gámasala í Englandi
Töluverð fisksala var úr gámum í
Englandi í síðustu viku. Alls seldust
580 tonn fyrir 73,4 milljónir króna,
þar af voru 285 tonn af ýsu. Aðeins
einn togari landaði í Þýskalandi í síð-
ustu viku, samkvæmt upplýsingum
frá Aflamiðlun LÍÚ. Skagfirðingur
SK seldi 162 tonn fyrir 16,3 milljónir.
Álframleiðendur birtu sl. fóstudag
tölur um töluverða minnkun birgða
frá síðustu birtingu. Við það lækkaði
staögreiðsluveröið niður í 1737 doll-
ara tonnið. Þegar viðskipti hófust í
gærmorgun var verðið svipað. Á
næstunni spá sérfræðingar stöðug-
leika á markaönum, ekki sé von á
hækkunum yfir sumartímann.
Gengi dollars og punds gagnvart
íslensku krónunni hefur lækkað síð-
ustu daga. Sölugengi pundsins er
komið niður í 100 krónur sléttar og
doUars í 62,80 krónur. Gengi þýska
marksins og jensins helst svipað.
Evrópskarvið-
skiptafréttirum
gervihnött
Daniel Ólaísson, DV, Akranesi:
í síðustu viku hóf enska sjón-
varpsstöðin European Business
News, EBN, sendingar á nýjum
gervihnetti, Eutelsat Hot Bird, og
sjást þær sendingar mjög vel hér
á landi. EBN birtir íréttir úr viö-
skiptaheiminum, s.s. um gengi,
hlutabréfaviðskipti og fyrirtæki í
Evrópu og Asíu ásamt viðtölum
og úttektum á rekstri fyrirtækja
og markaða.
Skeljungsstöðí
ættviðBónus
Daniel Ólaísson, DV, Akranesi:
Ný bensínstöð Skeljungs á
Akranesi verður tekin í notkun í
júrú. Samkvæmt heinúldum sem
DV hefur aflað sér mun þessi stöð
verða einstök að því leyti aö við-
skiptavinurinn afgreiðir sig sjálf-
ur að öllu leyti, þ.e. dælir á bOÍnn,
velur og tekur sjálfur olíuvörui'
og annað úr lúllum og greiðir við
sérstakt afgreiðsluborö. Þetta er
fyrsta sjálísafgreiðslubensínstöö
sinnar tegundar á íslahdi og svip-
ar til þess sem Bónus innleiddi í
sínum verslunum.
Gámaþorskur
Olíufélagið
Skeljungur Þingvísrt. hlutabr. ý?| Þíngvísit. húsbr.
5,50
^^MAM I
1091,25
DV