Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1995, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 1995
Stuttar fréttir
Vilja ná höfuðborg aftur
Foringi uppreisnarmanna í
Tsjetsjeníu segist ætla aö ná höf-
uöborginni, Grozny, aftur á sitt
vald.
Háðirógnunum NATO
Embættismenn Sameinuöu
þjóðanna í Bosníu fullyrða að án
hótana um loftárásir NATO geti
gæslusveitir þeirra ekki varið
öryggissvæði fyrir sprengjuárás-
um Serba.
Berlusconi reynir
Fjölmiöla-
kóngurinn
Silvio Berlusc-
oni reynir að
blása nýju lífl í
stjórnmálaferil
sinn með nýrri
stefnu sem
hann ætlar að
boöa fyrir þingkosningar sem
væntanlega veröa í október.
Gley mdi handbremsunni
Við rannsókn á slysinu þar sem
rúta rann af norskri feiju og sex
manns létust hefur komiö í ljós
aö bílstjórinn hafði gleymt aö
nota handbremsuna.
Refsa Japönum
Stjóm Clintons Bandaríkjafor-
seta undirbýr refsiaðgeröir gegn
Japönum með himinháum álög-
um á innfluttar vörur í tilraun til
að opna japanska markaöinn fyr-
ir bandariskum bílum.
Sendinef nd til Víetnam
Bandarísk sendineínd mun
halda til Víetnam til að ræða viö
þarlend stjómvöld um Banda-
ríkjamenn sem saknað er eftir
Víetnamstríöið.
Menemekkiöruggur
Carlos Men-
em, forseti
Argentínu,
virðist ekki ör-
uggur meö sig-
ur í forseta-
kosningunum
um næstu
helgi. Hann
hefur reynt að slá á vangaveltur
um að kosningamar fari í aöra
umferð þar sem úrslitin verði
mjög tvísýn,
Vilja menn meðreynslu
Sigur Jacques Chiracs í frönsku
forsetakosningunum hefur leitt
til ályktana um að franskir kjós-
endur velji menn meö reynslu
frekar en „utangarðsmenn" á
borö viö þá sem geti unniö banda-
rískar kosningar.
Gerafólkvinalegra
Átak er hafið í New York sem
gera á borgarbúa vingjarnlegri
gagnvart gestum,
Frlðarviðræður
í viðræðum
milli Sinn Fein,
stjómmála-
arms írska lýö-
veldishersins,
og breskra
stjórnvalda,
hefur Gerry
Adams hvatt
aöilana til að vera eftirgefanlega.
Hann sagði að Sínn Fein mundi
ekki láta vopnaviðræður hindra
samningaviöræðumar.
Fluttirúrfangelsi
Mikil óveöur og flóö í New Orle-
ans í Bandaríkjunum urðu til
þess aö flýtja varö um 800 fanga
úr fangelsinu á öraggari stað.
SjáHsmorð á netinu
Unglingar á Internetinu ræða
mismunandi aðferöir til aö
fremjasjálfsmorð. Reuter/NTB
Utlönd
Jeltsín og Clinton ræöa saman á tímum versnandi sambúðar:
Koma þín mun bæta
samskipti ríkjanna
- sagði Jeltsín þegar hann tók á móti Clinton 1 Kremlarhöll 1 morgun
Borís Jeltsín Rússlandsforseti og
BOl Clinton Bandaríkjaforseti settust
niður til sjötta fundar síns á forseta-
ferlinum í Moskvu í morgun, áfjáöir
í að bæta samskipti ríkjanna tveggja.
Jeltsín tók á móti Clinton í hinum
glæsilega Katrínarsal í Kremlarhöll
og þakkaði honum hjartanlega fyrir
að hafa sótt hátíðahöldin í Moskvu í
gær þar sem þess var minnst að 50
ár em liðin frá lokum heimsstyijald-
arinnar síöari.
„Ég er viss um aö koma þín til
Moskvu, hátíðahöldin í gær og sam-
skipti okkar muni bæta samvinnu
okkar, félagsskap og persónulega
vináttu okkar,“ sagði Jeltsín við
Clinton.
Sambúð Bandaríkjanna og Rúss-
lands hefur ekki verið erfiðari frá
endalokum kalda stríðsins og fyrir
fund leiðtoganna sögðust embættis-
menn ekki búast við miklum árangri.
Helstu ágreiningsmál forsetanna
eru hernaöur Rússa í Tsjetsjeníu,
fyrirhuguð sala Rússa á kjarnakljúf-
um til Irans og áform Vesturlanda
um aö stækka NATO og taka inn
fyrrum bandalagsríki Rússa í Aust-
ur-Evrópu.
Það var í desember sem slettast tók
upp á vinskapinn. Þá hélt Borís Jelts-
ín ræðu í Búdapest í Ungverjalandi
þar sem hann fordæmdi stækkun
NATO og varaði leiðtoga Vestur-
landa viö því aö ef ekki tækist að
semja um nýskipan öryggismála í
Evrópu kynni kaldur friður að ríkja
í álfunni.
Clinton vildi reyna að fullvissa
Jeltsín um að Rússum stæði ekki ógn
af áformunum um að stækka NATO,
að því er bandarískir embættismenn
sögðu.
Bil! Clinton Bandaríkjaforseti lætur mikilvæga leiðtogafundi ekki koma í veg fyrir morguntrimmið sitt. í morgun
brá hann sér út fyrir fundinn með Jeltsín Rússlandsforseta og hljóp meðfram bökkum Moskvu-árinnar í fylgd lif-
varða sinna. Símamynd Reuter
Embættismenn sögðu að þetta væri
í fyrsta sinn í nokkurn tíma sem nið-
urstaða fundar af þessu tagi væri
ekki að öllu leyti geíin fyrirfram,
þótt ekki mætti hins vegar búast viö
miklum árangri.
Ekki var búist við að forsetarnir
leystu ágreining sinn um stríðsrekst-
urinn í Tsjetsjeníu, þar sem barist
var við höfuðborgina þar til í dögun,
ogumbardaganaíBosníu. Reuter
Jacques Chirac er lítið gefinn fyrir athygli og er flestum ráðgáta:
Skiptir oft um skoðun
en þykir hjartagóður
Jacques Chirac, nýkjörinn forseti
Frakklands, er afskaplega lítið fyrir
að ræða um einkalíf sitt og forðast
kastljós fjölmiðla eins og heitan eld-
inn. Verndun einkalífsins er eitt af
því fáa sem menn hafa á hreinu um
persónuna Chirac, auk mikillar mat-
arlystar og gestrisni. Þá þykir hann
skipta fulloft um skoðun á ýmsum
málefnum.
Þegar Chirac stofnaði Samfylking-
una um lýðveldið (RPR) 1976, eftir tvö
ár í stóli forsætisráðherra, lagði
hann til að flokkurinn ætti að reka
svipaða stefnu og breski Verka-
mannaflokkurinn. En þegar Chirac
varö forsætisráðherra í annað sinn,
1986, hafði hann hins vegar söölað
um og boðaöi franska útgáfu af thatc-
herisma. Hann einkavæddi ríkisfyr-
irtæki, stöðvaði takmarkanir á upp-
sögnum og lagði niður hátekjuskatt.
í dag segist hann sjá eftir þeirri
ákvöröun sinni. Sá Chirac sem fólk
sá berjast fyrir kjöri síðustu vikum-
ar valdi eplatré sem einkennismerki
sitt og setti baráttu gegn fátækt og
atvinnuleysi á oddinn.
Jacques Chirac.
Yngri dóttirin nánasti
ráðgjafinn
Chirac, sem nú er 62 ára gamall,
er sonur framkvæmdastjóra en afi
hans var kennnari. Hann stærir sig
af því að forfeður hans voru bændur
enda hefur hann sjaldan skipt um
skqðun í landbúnaðarmálum.
Ólíkt öðrum frambjóðendum sló
hann skjaldborg um einkalíf sitt og
fjölskyldu og leytði engar myndatök-
ur á heimilinu. í eina skiptið sem
eiginkona hans sást með honum á
mynd var þegar kosningafundur var
haldinn á heimaslóðum þar sem eig-
inkonan situr í bæjarráði.
Chirac hefur tekist á við sorglega
atburði í einkalífmu. Laura, eldri
dóttir hans, 35 ára, er menntuð sem
læknir en þjáist af þunglyndi. Fyrir
sjö árum féll hún út um glugga og
slasaðist illa. Var hún lengi á sjúkra
húsi og síðan í hjólastól en lítið er
vitað um hana í dag.
Claude, yngri dóttir hans, 32 ára,
er meira í sviösljósinu. Hún er helsti
ráögjafi fóður síns. Hún varð fyrir
áfalli fyrir tveimur árum, þá nýgift,
þegar eiginmaður hennar fyrirfór
sér. Chirac treystir yngri dóttur sinni
betur en nokkrum öðrum. Hennar
hlutverk í kosningabaráttunni var
að gæta að því að hann misst ekkert
út úr sér sem eyöilagt gæti kosninga-
baráttuna.
Það kom mörgum á óvart að heyra
á dögunum að Chirac hefði ættleitt
víetnamska stúlku, Anh Dao, 1979.
Dao er 25 ára, nýgift og hefur þegar
gert Cirac að afa.
Chirac hefur þótt vera mannlegast-
ur forsetaframbjóðendanna. Fylgis-
menn segja hann eina frambjóðand-
ann í kosningunum sem sé í tengsl-
um við „hið raunverulega líf ‘ og að
hann sé hjartagóður.
Daðraði við kommúnisma
Ungur að árum daðraði Chirac lítil-
lega við kommúnisma en snerist til
gaullisma eftir að hafa gegnt her-
þjónustu í Alsír. Hann þótti, og þykir
enn, fjallmyndarlegur. Tvítugum var
honum líkt við kvikmyndastjörnu og
fékk konur um alla París til að snúa
sér við á götu. í dag er hann lítið
fyrir athyglina gefinn og sækir nær
aldrei samkvæmi. Dóttir hans segir
hann nota frítímann til lesturs og að
hann hafl mikinn áhuga á kínverskri
og japanskri menningu. Chirac sagði
í viðtali í fyrra að ef hann tapaði for-
setakosningunum myndi hann hætta
öllu stjórnmálavafstri og fara í langt
ferðalagumKína. Reuter