Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1995, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ
562*2525
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu þá í síma
562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum
allan sólarhringinn.
RITSTJÓRN - AUGLÝSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700
BLAÐAAFGREIÐSLA 0G
ÁSKRIFT ER 0PIN:
Laugardaga: 6-14
Sunnudaga: lokað
Mánudaga: 6-20
Þriðjudaga - föstudaga: 9-20
BEINN SÍMI BLAÐA-
AFGREIÐSLU: 563 2777
KL. 6-8 LAUGAftDAGS-OG MANUDAGgMÐRGNA
MIÐVIKUDAGUR 10. MAl 1995.
Framsóknarflokkurinn:
Barist um
bankaráð
„Ég hef ekkert heyrt í flokksforyst-
unni um að ég eigi að víkja þannig
að ég er alveg róleg. Fyrsta skrefið
hlýtur að vera að ræða þetta við mig
og þá met ég það í samráði við flokks-
forystuna. Ég er yfirleitt sveigjanleg
í viðskiptum og met hagsmuni
flokksins ofar mínum persónulegu
hagsmunum,“ segir Sigrún Magnús-
dóttir, varamaður Framsóknar-
flokksins í bankaráði Landsbankans.
Framsóknarmenn kjósa fulltrúa
sinn í bankaráð Landsbankans á vor-
þingi en nýtt þing kemur saman á
þriðjudag. Búist er við að Gunnlaug-
ur Sigmundsson alþingismaður gefi
kost á sér í bankaráðið og er gert ráð
fyrir hörðum átökum. Nafn Unnar
Stefánsdóttur, gjaldkera Framsókn-
arflokksins, hefur einnig verið nefnt.
„Ég hef mestan áhuga á bankavið-
skiptamálum og atvinnumálum en
ég þarf að sjá pakkann í heild áður
en ég segi hvort ég gef kost á mér í
þetta,“ segir Gunnlaugur Sigmunds-
son alþingismaður. -GHS
Formaður Sleipnis:
Göngum bjart-
sýnir til verka
Samningaviðræöur hjá ríkissátta-
semjara í deilu rútubílstjóra og við-
semjenda þeirra báru ekki árangur
í gær. Annar fundur hefur verið boð-
aður síðdegis í dag en verkfall Bif-
reiðastjórafélagsins Sleipnis hefst á
miðnætti ef samningar hafa ekki
náðst.
Óskar Stefánsson, formaður
Sleipnis, sagði við DV í morgun að
hans menn gengju bjartsýnir til
verka í dag. Aðspurður vildi hann
hins vegar ekkert segja um hvort
hann væri bjartsýnn á að samningar
tækjust fyrir miðnætti og verkfalli
yrði frestað.
Selfoss:
Bruggverk-
smiðju lokað
Lögreglan á Selfossi handtók í gær
tvo menn um leið og hún lokaði
bruggverksmiöju þar í bæ. Annar
þeirra viðurkenndi að eiga tvö eim-
ingartæki sem hald var lagt á. Einnig
var hald lagt á þúsund htra ílát und-
ir gambra og 80 lítra af landa. Viður-
kenndi sami maður einnig fram-
leiðslu á honum.
Framleiðslan átti sér stað í bílskúr
viðheimahúsáSelfossi. -pp
Samstarf SAS og Lufthansa:
Engin áhrif á
samstarf SAS
og Flugleiða
„Við höfum engar áhyggjur af
þessu. SAS er ekki að slíta samstarf-
inu við Flugleiðir. Við höfum fylgst
með málinu og átt í viöræðum við
aðalstjórnendur SAS síðustu vikum-
ar, síðast í gær. Við þurfum ekki að
bregðast sérstaklega við þessum tíð-
indum,“ segir Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða.
SAS og Lufthansa hafa náð sam-
komulagi um sameiningu félaganna
og skrifa undir bráðabirgðasam-
komulag á morgun. Danska blaðið
Berlinske Tidende birti frétt í morg-
un þar sem segir að SAS verði að
hætta samstarfi við Flugleiðir vegna
hins nýja samkomulags flugfélag-
anna stóru. Sigurður segir það ekki
rétt. Hann hafi rætt við bæði for-
stjóra SAS og Lufthansa og ekki sé
ágreiningur um áframhaldandi sam-
starf við Flugleiðir.
Sigurður segir að Hamborgarflug
félagsins verði óbreytt. Flugleiðir
muni halda áfram að fljúga milli
Kaupmannahafnar og Hamborgar.
-Ari
Digranesprestakall:
Kjörfundurinn
valdi Gunnar
Séra Gunnar Sigurjónsson á
Skeggjastöðum hlaut meirihluta at-
kvæða í prestskjöri í Digranespresta-
kalh í gær. Á kjörfundinum áttu
sæti 7 sóknarnefndarmenn í presta-
kallinu og 7 varamenn þeirra. Alls 9
umsóknir bárust um stöðuna en nú-
verandi sóknarprestur, séra Þor-
bergur Kristjánsson, lætur af störf-
um í sumar. Komi ekki fram ósk um
almenna prestskosningu frá fjórð-
ungi safnaðarmeðlima innan viku
telst Gunnar rétt kjörinn prestur í
DigranesprestakalU. -kaa
Síldarsmugan:
Tíu þúsund
tonná
sóiarhring
„Það má áætla að flotinn fiski um
10 þúsund tonn á sólarhring. Veiðin
í gær var með mesta móti og það eru
flestir annaðhvort á leið til löndunar
eða út aftur," segir Grétar Rögn-
valdsson, skipstjóri á Jóni Kjartans-
Rannsóknir á Miöhúsasilfrinu í danska þjóðminjasafninu eru á lokastigi. Vafi leikur á þvi að það sé allt frá víkinga- syni, þar sem hann var á landleið
öld. Lars Jorgensen safnvörður, sem sfýrir rannsókninni, skoðar hér silfursjóðinn í forvörsludeild safnsins. Hann með 1100 tonn úr Síldarsmugunni.
segir að beðið sé eftir niðurstöðunum af áhuga víðar en á íslandi DV-mynd pp -rt
Ólafur Þ. Þórðarson, fyrrverandi alþingismaður:
Stef nir ótrauð-
uríReykhoH
„Ég hef aldrei breytt út af kúrs. Ólafur ljóst að þeir eigi vart annars ir Oddur þess að ráðherra veiti sér
Það er grundvallaratriði í lífinu að úrkostienstandameðsínumskóla- liðsinni við að finna núverandi
taka stefnur og fara eftir þeim. Þaö stjóra. Fyrir dyrum standi próf en starfsemi á Reykholti stað annars
er fyrir löngu búið að ákveða það aö þeim loknum haldi þeir til sins staðar. Oddur bendir á að undir
aö ég taki við skólanum,“ segir heima. Þá vísar Ölafur því á bug sinnistjórnhafiveriöunniðþróun-
Ólafur Þ. Þórðarson, fyrrverandi að hann sé óhæfur þar sem liann arstarfinnanskólanssemhafivak-
alþingismaður, sem ætlar sér að skorti réttindi til kennslu í skólan- ið athygli meðal skólafólks. Um sé
taka viö skólastjórn í Reykholti eft- um. að ræöa opinn framhaldsskóla sem
ir 15 ára leyfi. „Ég hef enga ástæðu til að ætla taki mið af þörfum skapandi ung-
Ólafur segir ekkert óeðhlegt við að börn á Islandi hafi tekið þeirri raenna sera fóti sig iha í hefð-
þaö þótt settur skólastjóri sé ósátt- rosalegu breytingu að þau séu mér bundnu og köldu skólakerfi.
ur við að hætta enda sé atvinnu- ókunnugt viðfangsefni," segir Ólaf* „Ég bíð eftir því sem verða viU.
leysi í landinu. Vegna þessa sé ur. Stundum geta svona ferli leitt af
Oddur Albertsson, starfandi skóla- Að sögn Odds Albertssonar virð- sér eitthvað nýtt,“ segir Oddur.
stjóri í Reykholti, óhæfur til að ist menntamálaráöherra bundinn -kaa
fjalla um málið. af lögunum og neyðast til að setja
Hvað nemenduma varðar segir Ólaf i stárfið. Á hinn bóginn vænt-
LOKI
Eftir einhverju hlýtur að vera
að slægjast í bankaráðunum!
Veðrið á morgun:
Skýjaðog
súldarvottur
Á morgun verður norðvestan
gola, skýjað og súldarvottur við
vesturströndina en norðanlands
verða smáél á annesjum en bjart-
ara inn til landsins. Á Suðaustur-
og Austurlandi verður áfram létt-
skýjað í dag en skýjað með köfl-
um í nótt. Hiti 1-5 stig norðan-
og vestanlands yfir daginn en 3-8
stig suöaustanlands. í nótt verður
hiti víða nálægt frostmarki.
Veðrið í dag er á bls. 36
MTTO
alltaf á
Miðvikudögum