Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ1995 Fréttir Asdís Erla Gunnarsdóttir, vinnur af og til við ræstingar á Mömmu Rósu: Vann skyndilega 6,8 milljónir í Gullpottinum - á 22 bamaböm sem segja gjaman: „Amma, getur þú lánað mér pening?“ Ásdís Erla er 69 ára og hyggst borga skuldir og sennilega ferðast fyrir milljónirnar sem hún vann á einn af þremur fimmtíuköllum sem hún setti í Gullpottinn. DV-mynd GVA Hugmyndir um breytt starfskjör þingmarma: Starfskostnaður komi ofan á þingfararkaup - gætiaukiötekjurþingmannaumhálfamilljónáári „Þegar ég er hérna kemur einstaka sinnum fyrir aö ég finn fimmtíukall í skúffunum á vélunum eða á gólfinu. Þá spila ég fyrir þaö, aldrei meira en tvo, þijá fimmtíukalla. Um morguninn setti ég þrjá peninga í og mér brá held- ur betur. Skyndilega fór allt af stað í vélinni, ljósin blikkuöu og tónlistin fór af stað. Svo komu tölur. Ég sá aö þaö voru sex milljónir og átta hundruð og fimmtíu þúsund krónur. Ég ætlaði ekki að trúa þessu," sagði Ásdís Erla Gunn- arsdóttir, 69 ára Reykvíkingur, sem fékk gullpottinn í veitingasalnum Mömmu Rósu í Hamraborg 11 í Kópa- vogi í gærmorgun. Stuttar fréttir Þjódyefjar tala máli íslendinga Þjóðverjar hafa boöist til aö tala máli íslendinga á vettvangi Evr- ópusambandsins. Mbl. hafði þetta eftir Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra. Reykingafólk í meðferð Ingibjörg Pálmadóttir telur æskilegt aö koma á fót meöferð- arstofnun fyrir fólk sem þarf að hætta að reykja. RÖV greindi frá þessu. Skólastjóri hættir Alfreð Eyjólfsson, skólastjóri Austurbæjarskóla, hefur sagt starfi sinu lausu frá og með 1. ágúst í sumar. Gagnslaus mælir Yfirlæknir á kvennadeild Landspitalans telur frjósemis- mælinn Donnu, sem seldur er hérlendis, ekkert gagn gera. Stöð tvö skýrði frá þessu. Landhelgin i 250 milur? Halldór Ásgrímsson lýsti því yfir á fundi Varðbergs í gær að hann legöi áherslu á að árangur næðist á úthafsveiðiráðstefnu S.Þ. Að öðrum kosti útilokaöi hann ekki að norðlægar þjóðir færðu fiskveiðilögsöguna út í 250 mílur. Kröfu hafnað Samkeppnisráð hefur hafnaö kröfu kaupmanns um að fá að kaupa vörur af Bónusi til endur- sölu í eigin verslunum. Sjónvarp- iðgreindifráþessu. -kaa „Mér vitanlega er ekki verið að ræða um það núna að taka upp bein- ar kostnaöargreiðslur til þingmanna. Þetta var í umræðunni, síðast fyrir einu ári. Þá var rætt um þetta í tengslum við endurskoðun á starfs- kostnaði þingmanna," segir Karl M. Kristjánsson, fjármálastjóri hjá Al- þingi. Samkvæmt heimildum DV hafa ýmsir þingmenn hug á að breyta lög- um um starfskjör sín í þeim tilgangi aö fá auk þingfararkaups tiltekna upphæð mánaðarlega til að standa straum af kostnaði sem hlýst af störf- um þeirra utan þinghússins. í þessu sambandi hefur verið rætt um 40 þúsund krónur á mánuði, eða tæp- lega hálfa milljón króna á ári. Að sögn Karls tíðkast álíka greiðsl- ur víðast hvar erlendis, oftast nær á bilinu 30 til 70 þúsund krónur. Ýmis rök mæh með því að slíkar greiðslur verði teknar upp hér á landi en í því sambandi þurfi að huga að starfs- kjörum þingmánna í heild. Fyrir löngu sé orðin þörf á slíkri endur- skoðun. „Rætt hefur verið um að breyta fyrkomulagi á húsaleigustyrknum og dagpeningum til lækkunnar en taka jafnframt upp svokallaðar kostnaöargreiöslur sem væru hugs- aðar til að standa undir kostnaði við fundi, námskeið, kaup á tímaritum og mörgu fleira sem Alþingi greiðir ekki beint en sem embættismenn rík- issins fá greitt samkvæmt reikn- ingi,“ segir Karl. -kaa Lögbannskrafa á Bónustölvur samþykkt: Sauðaþjófar nútímans - segir Jóhannes í Bónusi um eigendur Bónustölva Sýslumaðurinn í Reykjavík féllst í gær á lögbannskröfu Bónuss á aug- lýsingar og heiti verslunarinnar Bónustölva við Grensásveg, sem er í eigu Tæknivals. Eigendum Bónus- tölva var gert að fjarlægja skilti fyrir utan versíunina og eyðileggja alla pappíra sem innihéldu nafnið. „Eg er mjög sáttur við þessa niður- stöðu því mér finnst þetta vera ein- hver grófasti þjófnaður í viðskiptalíf- inu sem ég hef séð. Öllum sem ég hef talað við finnst þetta mjög til minnk- unar fyrir Tæknival. Það er ekki einu stolið heldur öllu. Ég kalla þá sauða- þjófa nútímans að stela því sem aðrir koma á legg. Það er synd að við- skiptalífið skuli hafa svona guðsgeld- inga um borð,“ sagði Jóhannes Jóns- son, eigandi Bónuss, ómyrkur í máli við DV eftir að niðurstaða sýslu- manns lá fyrir. Málið mun fara fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur. Jóhannes sagði að ef dómurinn yrði Bónusi í vil þá myndi hann krefast lögbanns á fyrirtækið Bónusradíó sem Radíóbúðin starf- rækir við Grensásveg. Ásdís Erla er móðir eiganda veit- ingahússins og kemur stundum til aö aðstoöa við ræstingar og annaö. Hún sagði að peningarnir kæmu sér afar vel. „Þetta er algjör tilviljun. Ég hef aldrei unnið neitt nema 1.700 krónur í lottóinu. Ég hef spilað í mörg ár í happdrætti og ekki unniö nokkurn skapaðan hlut. Þetta kemur sér mjög vel. Ég get nú borgað skuldimar mínar. Það eiga ekki allir nóg þó það sé orðið fullorðið fólk. Sumir halda að það hafi lagt fyrir en það er ekki í mínu tilfelli. Maðurinn minn, sem er hjartasjúklingur, hefur verið ör- yrki í 16 ár og er orðinn ellilífeyris- þegi. Þetta kemur sér því afskaplega vel aö fá þennan vinning. Við búum í 90 fermetra kjaUara- íbúð í Reykjavík. Mér Ðnnst engin ástæða til að breyta því þar sem við eigum svo góða nágranna í húsinu. Auk þess er íbúðin hentug fyrir manninn minn,“ sagði Ásdís Erla. Hún sagði að peningarnir yrðu sennilega að einhverju leyti notaðir til að ferðast. „Annars á ég 22 barnabörn sem koma gjaman til mín og segja: „Amma, getur þú lánað mér pen- ing?“ -Ótt Gæsluvarðhald og geðrannsókn Pilturinn, sem ók á fyrrum stjúp- föður sinn, Sigurgeir Sigurðsson, í Hafnarfirði sl. föstudagskvöld með þeim afleiðingum að hann beið bana hefur verið úrskurðaður í gæslu- varðhald aö kröfu Rannsóknarlög- reglu ríkisins til 31. mai. Úrskurður- inn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness en piltinum, sem er 18 ára, var ennfremur gert að sæta geð- rannsókn. Samkvæmt upplýsingum DV mun geðrannsókn fara fram vegna fyrra háttemis piltsins, upp- lýsinga sem komu fram við rannsókn málsins og vegna framburðar pilts- ins við yfirheyrslur. Rannsókn málsins stendur enn yfir en pilturinn heldur því fram að hann hafi ekki ekið á Sigurgeir að yfir- lögðu ráöi heldur hafi hann einungis ætlaö að ná tali af honum með fyrr- greindum aíleiöingum. Yfirheyrslur yfir piltinum munu halda áfram næstu daga. -pp Pilturinn var færður fyrir dómara i gær og úrskurðaður i gæsluvarðhald til maíloka. Honum var einnig gert að sæta geörannsókn. DV-mynd ÞÖk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.