Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 32
FRÉTTASKOTIÐ 562*2525 Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í sima 562 2525. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eða er notaó í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið i hverri viku greið- ast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn. RITSTiÓRN - AUGLYSINGAR - ÁSKRIFT - DREIFING: 563 2700 BLAÐAAFGREIÐSLA 0G ÁSKRIFT ER OPUt: Laugardaga: 6-14 Sunnudaga: lokað Mánudaga: 6-20 Þriðjudaga - föstudaga: 9-20 BEINN SÍMI BLAÐA- AFGREIÐSLU: 563 2777 KL 6*8 LAUGARDAGS- OG MANUDAGSMORGNA Frjálst,óháð dagblað ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995, Pétur Gunnlaugsson: Ég varaði við þessum voða- atburðum - svaraö „meö skætingi“ „Ég var búinn aö vara við þessum atburðum. Ég sendi bréf stílað á bæjarstjórn Hafnarfjarðar fyrir hönd Éjölskylduverndar þann 28. mars. Margir einstaklingar og fjöl- skyldur hafa komið fram með lýsing- ar á skelfilegum vinnubrögðum starfsmanna félagsmálayfirvalda Hafnarfjarðar, þar á meðal í máli Sigurgeirs. 2. maí síðastliðinn kom bréf frá bæjarlögmanni þar sem þessu var svarað með skætingi," sagði Pétur Gunnlaugsson, formaður Fjölskylduverndar, við DV í morgun. Lýsti yfir áhyggjum Pétur telur að koma hefði mátt í veg fyrir deilur og jafnvel þann voða- atburð sem átti sér stað í Hafnarfirði á föstudag þegar ekið var á Sigurgeir Sigurðsson með þeim aíleiðingum að hann lést. Pétur hafði fylgst náiö með málinu hjá félagsmálayfirvöldum. í bréfinu lýsti ég yfir áhyggjum samtakanna vegna meðferðar mála í Hafnarfirði. Ég benti sérstaklega á mál Sigurgeirs Sigurðssonar og sendi mikið af gögnum með máhnu til stað- festingar. Þetta tók ég sem dæmi um mál þar sem aðilar og starfsmenn bæjarfélagsins vilja ekki viöurkenna mistök. Ég lagði áherslu á vanhugs- aðar aðgerðir sem höfðu lagt íjöl- skyldulíf Sigurgeirs í rúst. Síðan var bent á rökstudda kæru Sigurgeirs sem hann hafði lagt fram. Einnig var skorað á bæjarstjórnina að láta fara fram rannsókn á starfsháttum starfsmanna félagsmálakerfisins í Hafnarfirði," sagði Pétur. Ekki svaraverðar dylgjur „Þessu bréfi Fjölskylduverndar var svarað með skætingi 2. maí síð- astliðinn. Þar svaraði bæjarlögmað- ur erindinu á þá leið að þetta væru bara dylgjur og ásakanir og ekki svaraverðar," sagði Pétur. Pétur sagði að í bréfinu hefði hann í raun verið að fara fram á að „sæmi- lega skynsamlega yrði tekið á mál- um.“ „Við erum ekki að tala um að yfirvöld geti ekki gert sín mistök. Þetta eru erfið mál. En þetta fólk vill greinilega ekki viðurkenna neitt slíkt. Hér er um að ræða viðkvæm og tilfinningarík mál sem leiðast út í farveg sem verður illmögulegt að leysa eftir langan tíma, eins og raun bar vitni í þessu máli,“ sagði Pétur Gunnlaugsson. -Ótt LOKI Eigum við ekki að vona að Rússarnirkomi-og fari! Rússneskur vaktmaður á landbúnaðarsýningu í Litháen: Reif mig út og lamdi með byssu - kunningi minn róaði hann niður, segir Armann Rúnar Ármannsson „Ég var á vakt yfir hrossum á landbúnaðarsýningu. Rússi sem vaktaði svæði fyrir Þjóðvexja kom yfir á okkar svæði, reif upp dyr á bílnum sem við vorum í og reif mig út. Ég tók á móti honum svo að hann lamdi mig niður meö byss- unni og svo var byssunni bara mið- að á mann. Ég var svo vondur að ég ætlaði að rjúka á hann og það var ekki fyrr en daginn eftir að ég áttaði mig á því að hann hefði ver- ið með byssu. Maður veit ekki hvað heföi getað gerst. Þetta var mjög sérstök liísreynsla," segir Ármann Rúnar Ármannsson, tamninga- maður á íslenska hestabúgarðin- um í Litháen. Meðan Ármann Rúnar var í Lit- háen var forsvarsmönnum hestabúgarðsins boðið að senda hest á landbúnaöarsýningu nærri Vilnius og ákváðu þeir að láta slag standa. Ármann Rúnar var sendur á sýninguna ásamt Litháa sem tal- ar ensku og rússnesku og var það lán í óláni þvi að rússneski byssu- maöurinn skildi enga ensku. Taldi bílinn stolinn „Ég veit ekki af hverju hann réðst á okkur því að svæöið sem hann var aö vakta var svolítið langt í burtu og hann var kominn út af þvi. Þetta var um miðnætti og eng- inn í nágrenninu. Rússinn virtist halda að við heföum stolið bfinum sem við sátum í. Hann skildi ekk- ert hvað ég sagði og ég ætlaði bara að stökkva á hann þegar hann reif mig út en kunningi minn bjargaði málunum og róaði hann niður svo hann fór,“ segir Ármann Rúnar. Ármann Rúnar hefur starfað við tamningar á hestum á íslenska hestabúgarðinum 1 Litháen í þrjá mánuöi og er nýkomiim hingað til lands í mánaðarfrí. Óákveðið er ennþá hvort hann fer aftur í tamn- ingar til Litháens. -GHS Þorskkvótinn: 5 þúsund tonna viðbóttil báta - segir Þorsteinn Pálsson „Við erum að reyna aö finna svig- rúm til að hægt sé að bæta stöðu þeirra sem verst hafa farið út úr kvótaskerðingunni. Þar erum við fyrst og fremst að huga að því að stækka Jöfnunarsjóðinn. Hann er með 12 þúsund tonn og við erum í dag að tala um sérstaka viðbót sem yrði úthlutað þannig að hlutfallslega kæmi það minnstu bátunum best,“ segir Þorsteinn Pálsson sjávarút- vegsráðherra vegna boðaðra aðgerða ríkisstjórnar til aðstoðar bátaflotan- um. Hann segir að um sé að ræða í kringum 5 þúsund tonna viðbót sem úthlutað yrði eftir ákveðnum regl- um. „Við erum að tala um tímabundna viðbót við þennan sjóð meðan þorsk- stofninn er í lágmarki. Þessi úthlut- un verður væntanlega með ein- hveiju þaki,“ segir Þorsteinn Þorsteinn segir engan ágreining milli sín og Halldórs Ásgrímssonar. „Þaö er greinilegt á frétt Morgun- blaðsins um þessi mál að verið er að reyna að búa til einhvem ágreining semekkiertilstaðar." -rt Sænsku landsliðsmennirnir i handknattleik eru orðnir forfallnir sjóstanga- veiðimenn eftir dvöl sína á Akureyri. í gær héldu þeir veiðikeppni innan liðsins og hér sést hinn heimskunni leikmaður Magnus Wislander hampa „þeim gula“ þegar komið var að bryggju eftir veiðiferð um Eyjafjörð. í kvöld er það svo alvaran hjá Svíum, en þá mæta þeir Alsíringum í 16-liða úrslitum HM-mótsins. DV-mynd gk w Sjálfstæöisflokkurinn: Atök um for- mennsku í nokkr- um þingnef ndum - Geir H. Haarde líklega formaður utanríkismálanefndar Mikil átök hafa átt sér stað undan- farna daga innan þingflokks Sjálf- stæðisflokksins um formennsku í nokkrum nefndum þingsins og sæti í hinni valdamiklu fjárlaganefnd. Málin munu að mestu leyti leyst en þó sögðu sumir viðmælendur DV í morgun að til atkvæðagreiðslu gæti komið um einhver embættin á þing- flokksfundi í dag. Lára Margrét Ragnarsdóttir átti sæti í utanríkismálanefnd á síðasta kjörtímabili. Hún hefur sótt það mjög fast að verða formaður nefndarinnar nú enda unnið mikið í erlendum samskiptum eftir að hún varð þing- maður. Sólveig Pétursdóttir og Tóm- as Ingi Olrich hafa einnig sýnt áhuga á formennsku í nefndinni. Æðstu valdamenn flokksins hafa hins vegar lagt að Geir H. Haarde að taka for- mennskuna að sér. í morgun var tal- ið vist að hann myndi gera það. Heilmildir DV segja að Einar K. Guðfinnsson fari úr fjárlaganefnd og taki við formennsku í samgöngu- nefnd og einnig að hann taki sæti í stjórn Byggðastofnunar. Sjálfstæðis- menn áttu fjóra menn í fjárlaganefnd í fyrra en fá nú fimm. Fullyrt er að Hjálmar Jónsson og Arnbjörg Sveinsdóttir komi nú inn í fjárlaga- nefnd. Egill Jónsson var formaður land- búnaðarnefndar á síðasta kjörtíma- bili. Hann lætur af því starfi en mun fá formennsku í stjóm Byggðastofn- unar og einnig mun hann sitja í sam- göngunefnd. Enn er óvíst í hvaða nefndum stjórnarandstaðan fær formennsku. Þess vegna hefur ekki verið gengið frá því hver verður formaður sjávar- útvegsnefndar. Hins vegar er fullyrt að ef Sjálfstæðisflokkurinn fær for- mennsku í nefndinni verði Einar Oddur Kristjánsson formaður henn- ar. Veörið á morgun: Á morgun verður norðan- og norðvestanátt, víðast fremur hæg. Sums staðar slydduél á Vestfjöröum og við norður- og norðausturströndina en annars staðar þurrt, léttskýjaö verður sunnan- og suðvestanlands. Veð- ur fer lítiö eitt hlýnandi en þó má búast við næturfrosti, einkum inn til landsins. Veðrið 1 dag er á bls. 36 RAFMÓTORAR 1*oulsen SuAurtandsbraut 10. 8. 686480. LfDf timfelldUCTp alltaf á Miövikudö^um ■■■HnaaHBa

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.