Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995 3 Fréttir Skiptum enn ekki lokið í þrotabúi EG í Bolungarvík: llm 600 milljónir króna tapast í gjaldþrotinu enn ekki tekist að greiða búskröfur Skiptum í þrotabúi Einars Guð- finnsonar hf. í Bolungarvík er enn ekki lokið þrátt fyrir að liðið sé tals- vert á þriðja ár frá því að óskað var eftir gjaldþrotaskiptum. Fyrirtækið var lýst gjaldþrota 15. febrúar 1993 en haföi áður verið í greiðslustöðvun frá 23. október 1992. Áður en óskað var eftir gjaldþrota- skiptum var fyrirtækið í greiðslu- stöðvun. Ljóst þykir að fyrirtækið hafi safnað verulegum skuldum meðan á greiðslustöðvuninni stóð. Samkvæmt lögum verða fyrirtæki að standa við ákveðnar greiðslur á greiðslustöðvunartímanum og mega ekki efna til nýrra skuldbindinga meðan á greiðslustöðvun stendur. Reiknað er með að fyrirtæki standi undir daglegum rekstri meðan það er rekið undir greiðslustöðvun. Stofni það til skulda eru þær skil- greindar sem búskröfur og njóta for- gangs fram yfir allar aðrar kröfur. Takist fyrirtæki ekki að greiða slíkar kröfur er mögulegt að kalla stjórn- endur fyrirtækis til ábyrgðar fyrir dómstólum. Páll Arnór Pálsson, ann- ar tveggja skiptastjóra, segir aö ekki sé um það að ræða að lög hafi verið brotin á greiðslustöðvunartímanum. „Reyndar var reksturinn afleitur en það var vegna verðfalls og ann- arra ytri aðstæðna. Þetta greiðslu- stöðvunartímabil kom ekkert vel út,“ segir Páll. Alls voru gerðar kröfur í þrotabúið upp á 1,6 milljarða. Við uppboð á eignum fyrirtækisins fengust 900 milljónir upp í þær kröfur. Búskröf- ur voru að sögn Páls um 50 milljónir og hann segir helming þeirra þegar hafa verið greiddan. Hann segir að með sölu eignarhlutar þrotabúsins í Sölumiöstöð Hraðfrystihúsanna eigi að nást fyrir afganginum af búskröf- unum. „Þaö næst að greiða þetta og eitt- hvað fæst upp í forgangskröfur. Ég veit ekki hversu há fjárhæð fæst fyr- ir eignarhlutinn í SH en þar er um að ræða tugi milljóna; líklega á bihnu 40 til 50 miíljónir. Það nægir til að standa við búskröfurnar. Ég á von á að það gangi í gegn á næstunni og það takist að ljúka skiptum á næstu mánuöum,“ segir Páll. -rt íscLQörður: Nýtt skip í f lotann - fer á veiðar eftir mánuð Gisli Hjartarson, DV, Isafiröi: Frystitogarinn Orri ÍS 20 kom til ísafjaröar í fyrsta sinn á miöviku- dagskvöldið, 3. maí. Skipiö, sem er 770 lestir og 50 metrar að lengd, er 10 ára gamalt og smíðað í Frakklandi. Norðurtanginn hf. á ísafirði keypti skipið þaðan í stað línu- og rækju- bátsins Orra og togarans Guðbjarts ÍS. Að sögn Hans W. Haraldssonar hjá Norðurtanganum mun Orri hefja veiðar eftir u.þ.b. mánuð. Skipstjórar til skiptis verða þeir Hörður Guðbjartsson og Skarphéð- inn Gíslason. Orri fánum skreyttur r Sundahöfn á ísafirði. DV-mynd GH Farmannadeilan: Talið ólíklegt að miðlunartillagan verði samþykkt Atkvæðagreiðsla stendur nú yfir innan Sjómannafélags Reykjavíkur um miðlunartillögu þá sem ríkis- sáttasemjari lagði fram í kjaradeilu farmanna og viðsemjenda þeirra. Atkvæðagreiðslunni lýkur 29. maí. Kristinn Skúlason, einn samninga- manna Sjómannafélags Reykjavík- ur, sagði farmenn ekkert yfir sig hrifna af miðlunartillögunni og allt eins gæti fariö svo að hún yrði felld. Opið virka daga frá kl. 9-18 laugardaga 10-16. Hyundai Pony LS 1300 '94, 5 g., 4 d., rauður, ek. 6.000 km. V. 820.000. Toyota LandCruiser 2600 '88, 5 g„ 3 d„ brúnn, ek. 112.000 km. V. 1.150.000. Lada Samara 1500 '90, 5 g„ 5 d„ grár, ek. 33.000 km. V. 330.000. MMC Colt GL 1300 '89, 5 g„ 3 d„ rauður, ek. 93.000 km. V. 580.000. MMC Colt GLX 1500 '90, sjálfsk., 3 d„ grænn, ek. 95.000 km. V. 680.000. Subaru Justy 1200 '91, sjálfsk., 5 d„ vínrauður, ek. 70.000 km. V. 630.000. Mercury Topaz '86, sjálfsk., 4 d„ grár, ek. 112.000 km. V. 280.000. Hyundai Pony LS 1300 '92, 5 g„ 3 d„ grænn, ek. 57.000 km. V. 640.000. NOTAÐIR BILAR SUÐURLANDSBRAUT 12. SÍMI: 568 1200, BEINN SÍMI: 581 4060 Peugeot 205xR 1400 '87, 5 g„ 5 d„ rauður, ek. 112.000 km. V. 310.000. VW Jetta Carat 1800 '88, 5 g„ 4 d„ ek. 120 þ. km. Toppl., álf. geislasp., þjófav. V. 740.000. Mazda 323 4x4 1 800 '91, 5 g„ 4 d„ rauður, ek. 75.000 km. V. 1.080.000. Renault Twingo 1300 '94, 5 g„ 3 d„ rauður, ek. 7.000 km. V. 770. Ford Bronco 2900i sjálfsk., 3 d„ blár. V. 780.000. Lada station 1500 '92, 5 g„ 5 d„ hvítur, ek. 32.000 km. V. 390.000. Renault Express 1400 '92, 5 g„ 4 d„ hvítur, ek. 66.000 km. V. 800.000. - HYUnDHI IUM © Grciðshikjör íil alll að 36 niánaða án úíbor^unar v REMAULT GOÐIR NOTAÐIR BITAM

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.