Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995 13 dv Fréttir Páll Jónsson, Jaðri: Spáir jarðhræring- umogeldgosi Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: „Þegar mesti rosinn var í tíðarfar- inu í vetur spáði ég því að það mundi lagast 23. apríl og það gekk eftir þó svo að hlýindin hafl látið á sér standa," segir Páll Jónsson, bóndi á Jaöri í Skagafirði. Páll segist gjarnan leika sér að því um miðjan vetur að spá fyrir um vorkomuna og það hafi oft gengið eftir, hins vegar hafi hann ekki reynt að spá fyrir um sumar- komuna enda sé slíkt ógjörningur. Spár sínar byggir Páll gjarnan á draumum. En það er fleira en vorkoman sem Páll sér fyrir. Hann á von á því að nokkuð muni bera á jarðhræringum þegar líður á vorið og ef draumur sem hann dreymdi í vetur rætist verði mikiö eldgos ásamt tilheyrandi jarðhræringum í haust. Það hvort þarna gæti verið á ferðinni hinn margumtalaði Suðurlandsskjálfti vill hann ekki segja til um. „Annars er ákaflega eríitt að sjá fyrir með vissu hvað framtíðin ber í skauti sér og ég á ekki von á því að jarðfræðingar eða náttúrufræðingar sjái fyrir sér eldgos á þessu ári. En mér sýnist enginn vafi á því að erfið- leikar séu fram undan,“ segir Páll og býst greinilega við þvi versta frá móður náttúru þegar líður á árið. Það eru sem sagt til fleiri spámenn í Skagafirði en Lauga á Kárastöðum enda hefur heyrst af fólki í héraðinu sem er að fást við spádóma svo sem langtímaveðurspár. Sjómenn veiði ekki í Síldar- smugunni „Það hefúr komið fram hjá Norðmönnum að ekki sé samn- ingsvilji af okkar hálfu en hann er fyrir hendi. Við erum meö þessu að sýna samningsvilja og við viljum ná samningum,“ segir Halldór Ásgrímsson utanrikis- ráðherra vegna tilmæla til út- gerðarmanna og sjómanna um að þeir veiði ekki i Síldarsmugunni. Halldór segir engar samninga- viðræður fyrirhugaöar við Norð- menn og Rússa en það sé sam- band á milli þjóðanna um málið. -rt Farþegar á Keflavíkurflugvelli koma að lokuðum dyrum á flugstöðinni í verstu veðrunum. DV-mynd ÆMK Flugstöðin á Keflavíkurflugvelli: Koma að lokuðum dyrum Ægir Már Káiason, DV, Suðumesjum: „Það kemur fyrir nokkrum sinnum á vetri að grípa þarf til þess ráðs að loka útidyrunum í brottfararsal og taka farþegana inn komufarþega- megin. Þetta er gert í aftakaveðrum í útsynningi. Þetta eru viss óþægindi fyrir farþegana en þetta er sem betur fer mjög sjaldan," segir Pétur Guð- mundsson, ílugvallarstjóri Keflavík- urflugvallar. Farþegar, sem hafa átt leið til út- landa í vetur, hafa stundum komið að lokuðum útidyrum á flugstöðinni þegar vindur hefur staðið beint á þær. Til að komast inn í flugstöðina þurfa farþegar að ganga í kringum stöðina með þungan farangur sinn í aftakaveðri. Margir hafa lent í mikl- um erfiðleikum þegar þeir hafa þurft að berjast gegn óveðrinu. Þeir sem DV talaði við sögðu að nú væri kominn tími til að setja upp nýjar hurðir en þessar sem fyrir eru ættu heima þar sem sól og blíða væri allan ársins hring. Að sögn Péturs er verið að skoða þessi mál. Hann segir að reynt verði að leysa þetta í eitt skipti fyrir öll fyrir næsta vor. Dagsprent: Greiðir400 þúsund í skaðabætur Þórhailur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki: Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt Dagsprent til að greiða Sigríði Þorgrímsdóttur, fyrrverandi blaðamanni Dags á Sauðárkróki, 400 þúsund krónur í skaðabætur. Sigríð- ur höfðaði mál á þeim forsendum að hún taldi uppsögn sína úr starfi síð- sumars árið 1993 tengjast fæðingar- orlofi en uppsagnarfrestur hennar rann út um svipað leyti og orlof hennar hófst. Dagsmenn færðu hins vegar þau rök fyrir uppsögninni að ritstjórn Dags á Sauöárkróki hefði verið lokað vegna bágrar fjárhags- stöðu fyrirtækisins. Uppsögnin væri liður í samdráttaraögerðum. Tímamótadómur Um tímamótadóm er að ræða þar sem aldrei áður hefur verið tekist á um þennan rétt kvenna fyrir dómi, en samkvæmt lögum er bannað að segja konum upp vinnu í fæðingaror- lofi nema gildar ástæður hggi að baki. Sigríöur Þorgrímsdóttir segist vera mjög ánægð með þessa niður- stöðu. Hún hafi ekki hugsað þetta mál eingöngu út frá eigin hagsmun- um heldur meira sem réttindamál og vonandi verði þessi niðurstaða hvatning fyrir aðrar konur. Hörður Blöndal, framkvæmda- stjóri Dagsprents, segir í Degi sl. fimmtudag að ekki hafi verið tekin um það ákvörðun hvort málinu verði áfrýjað. Um niðurstöðuna segir hann að í áliti dómsins komi fram villandi ummæh þar sem skilja megi að 1993 hafi rekstrarvandi fyrirtækisins ver- iö vegna sölutaps eigna. Hið rétta sé að tap af reglulegri starfsemi hafi það ár verið 23,2 mhljónir króna og aldr- ei meira í sögu félagsins. Dagsprenti var einnig gert að greiða málskostnað, rúmlega 150 þúsund krónur. Hótel ísland kynnir skemmtidagskrána Matseðill Súpa: Koníakstónuð humarsúpa meó rjómatoppi Adalréttur: Lambapiparsteik meö gljáðu grœnmeti, kryddsteiklum jarðeplum og rjómapiparsósu Eftirréttur: Grand Marnier istoppur með hnetum og súkkuðlaði, karamellusósu og ávöxtum Verð kr. 4.600 - Sýningarv. kr. 2.000 Dansleikur kr. 800 Sértilboö á hótelgistingu sími 688999 Bordapantanir i sima 687111 BJORGVIN HALLDORSSON - 25 ARA AFMÆLISTÓNLEIKAR BJÖRGVIN HAI.I.DÓRSSON lítur yfir dagstcrkid sem dægurlagasöngxari á hijómplötum í aldarfjóröung, og vlð heyrum nær 60 lög frá glæstum ferli - frá 1969 til okkar daga v.t©1 **. Siðustu sýninqar: 20-maí »lrn 4L3I 27. mai Gestasöngvari: SIGRÍOUR BEINTEINSDÓ’ Leikm.vnd og leikstjórn: BJÖRN G. BJÖR.NSSON Hljómsveitarsljórn: GUN.N'AR ÞÓRÐARSON ásanit 10 manna hljómsveit Kvnnlr: , JÓ.N AXEL ÓLAFSSON * Danshöfundur: HELENA JÓNSDÓTTIR Dansarar úr BATTII tlokknum HÚS & GARÐAR fSÆÆjrffssssjrjr/ffrsfffSffffSfjrffi. Aukablað HÚS OG GARÐAR Miðvikudaginn 31. maí mun aukablað um hús og garða fylgja DV. Meðal efnis: • Sumarblómin (gróðursetning og umhirða) • Margt um rósir • Verkfæri í garðinn • Eitrun gegn maðki og illgresi • Bekkir og borð í garðinn eða sumarhúsið • Og margt fleira Þeir auglýsendur sem hafa hug á að auglýsa í þessu aukablaði vinsamlega hafi samband við Fríðu Sjöfn Lúðvíksdóttur, auglýsingadeild DV, hið fyrsta í síma 563-2721. Vinsamlega athugið að síðasti skiladagur auglýsinga er föstudagurinn 26. maí. ATH.i Bréfasími okkar er 563-2727 ATH.I Vissir þú að um 70% þjóðarinnar eru með sérgarð við heimili sitt og 74% þeirra sem hafa sérgarð við heimili sitt lesa DV í viku hverri. (Skv. könnun Félagsvísindastofnunar Háskólans 1994.)

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.