Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAÍ 1995
5
Fréttir
„Drullukafli“ á Mývatnsheiði nánast ófær vikum saman:
Mývetningar krefjast
úrbóta á „leirveginum"
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
„Þetta er stóralvarlegt ástand og
meö öllu óviðunandi. Það er ekki
vafi á því að þarna er slysahætta og
viö treystum því að stjórnmála-
mennirnir taki nu á þessu máli,“ seg-
ir Leifur Hallgrímsson, oddviti í
Skútustaðahreppi við Mývatn, en
sveitarstjórn Skútustaðahrepps hef-
ur skorað á samgönguráðherra og
þingmenn Norðurlands eystra að
bregðast þegar við því ófremdará-
standi sem ríkir í samgöngumálum
um Mývatnsheiði.
Um 5 km katli á hringveginum þar
hefur verið nánast ófærLmdanfamar
vikur vegna aurbleytu og er það
reyndar ekki í fyrsta skipti sem það
gerist. Mývetningar segja það al-
ranga forgangsröð að byggja fyrst
upp veginn yfir Fljótsheiði áður en
Mývatnsheiðarvegurinn verður lag-
færður, það sé til lítils að vegurinn
um Fljótsheiðina sé kláraður ef ekki
er hægt að komast áfram eftir hring-
veginum.
Umræddur vegarkafli var lagður
leirkenndu efni og fullyrða kunnugir
að vegurinn sé nánast slysagildra á
vorin þegar snjóa leysir og frost er
að fara úr jörðu, og ef miklar rigning-
ar eru er vegurinn mjög háll og var-
hugaverður. Úrbætur á veginum eru
samkvæmt vegalögum ekki fyrir-
hugaðar að neinu marki fyrr en árið
1998.
„Það eru engar framkvæmdir fyr-
irhugaðar á veginum á Mývatnsheiði
nema lítils háttar viðhald og þar
verður engin uppbygging fyrr en árið
1987 og reyndar ekki að neinu ráði
fyrr en 1998 þegar vinna á í veginum
fyrir 52 milljónir króna," segir Guð-
mundur Svavarsson, umdæmisstjóri
Vegagerðarinnar á Norðurlandi
eystra, en heildarframkvæmdir við
Mývatnsheiðarveginn munu kosta
um 180 milljónir. Guðmundur segir
að vissulega sé oft mikil umferð um
Mývatnsheiðina, en benti í samtali
við DV á fleiri vegarkafla á Norður-
landi eystra sem þarfnast lagfæring-
ar, eins og á Tjörnesi, í Kelduhverfi
og á Fljótsheiði.
Reyndar hefst vinna við uppbygg-
ingu vegarins um Fljótsheiði af krafti
á næsta ári og á henni að verða að
mestu lokið og vegurinn lagður
bundnu slitlagi árið 1977.
Þegar fréttaritari átti leið um á Kaldrananesi nýverið var Ingi Vífill Ingimars-
son að huga að veiðarfærum i nýkeyptum báti sínum og búa sig undir
góða grásleppuvertíð. DV-mynd Guðfinnur
Kaldrananes:
Grásleppuvertíð
undirbúin
Guðfinnur Finribogason, DV, Hólmavflc
Á Kaldrananesi eru góð hafnarskif-
yrði. Fyrrum áttu þar viðkomu stór
flutningaskip eins og strandferða-
skip Skipaútgerðar ríkisins um
fjölda ára. Það er löngu aflagt. Nú
eru gerðir þaðan út nokkrir minni
bátar, aðallega á grásleppu- og hand-
færaveiðar.
Skógræktarfélagið:
Jörðin er hrein-
lega sviðin eftir
sinubruna
„Bruninn getur breiðst rosalega
út því að sinan er svo ógnarlega
þurr og þaö brennur alveg ofan í
svörö. Jörðin er hreinlega sviðin á
eftir. Það er mjög óvanalegt að ekk-
ert rigni svona lengi á vorin og svo
er tíminn líka erflður þvi að nú eru
fuglarnir búnir að verpa í hreiörin.
Á þessum atvinnuleysistímum
þyrfti að hafa menn á vakt sem
færu á milli á bílum eða hjólum til
að fylgjast með,“ segir Þorvaldur
S. Þorvaldsson, formaður Skóg-
ræktarfélags Reykjavíkur.
Slökkvihöið í Reykjavík stóð í
ströngu um helgina við að slökkva
sinuelda í Fossvogi og Elliöaárdal.
Vegfarendur kveiktu í sinu í Foss-
vogsdal á laugardag og í Elliðaárd-
al um og eftir hádegi á laugardag,
bæði fyrir neðan Árbæjarlaug, Ár-
bæjarskóla og Árbæjarkirkju, og
hrunnu tré í dalnum. Einnig var
kveikt í sinu í Elliðaárdal aðfara-
nótt sunnudags en sem betur fer
tókst fljótt að slökkva eldinn.
„Þetta slapp sæmilega miðað við
öll ósköpin því að slökkviliðinu
tókst að slökkva eldinn fljótt. Þetta
var mikið bál um hádegisbihð og
hefði ekki þurft mikið til að það
breiddist út í garðana og þá væri
stutt í híbýh fólks,“ segir Þorvald-
ur. -GHS
Eldi hlýsjávarf iska haf ið að nýju
Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki:
Nýlega komu rúmlega 2000 barra-
seiði th Sauðárkróks og þá hófst að
nýju eldi hlýsjávarfiska hjá Máka hf.
en sem kunnugt er varð óhapp í stöð-
inni í byijun vetrar þegar viðvörun-
arkerfi brást og allir eldisfiskamir
drápust. Guðmundur Ingólfsson
framkvæmdastjóri segir að tryggi-
lega hafi verið gengið frá því að slíkt
gerist ekki aftur og hann reiknar
með því að slátmn muni byrja hjá
Máka í júní-júlí að ári.
Barraeldið á Sauðárkróki er evr-
ópskt samstarfsverkefni og nýlega
var hlutafé Máka aukið úr 12 mihjón-
um í 32.
Guðmundur Örn Ingólfsson, fram-
kvæmdastjóri Máka, segir að til-
raunaeldið hafi tekist vel og hafi
sannað sig þrátt fyrir að það hafi
endað með þessum ósköpum. Að-
spurður sagðist hann ekki geta sagt
hvaðan 20 milljónirnar í aukið hluta-
fé fyrirtækisins nú hefðu komið en
féð væri bæöi frá innlendum og er-
lendum aðilum.
25% afsláttur
Sturtuklefar
íhöld
Poulsen
ítalskir kranar
15.-31. maí
20-45% afsláttur
SUÐURLANDSBRAUT 10 • SÍMI 5 68 64 99