Dagblaðið Vísir - DV - 16.05.1995, Blaðsíða 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 16. MAl 1995
Stuttar fréttir
Kanaróánægðv
Bandarísk stjórnvöld eru afar
óánægð með kjarnorkutilraunir
Kínvería sem höfðu lofaö að gæta
hófs.
Fyrsta skrefið
Uppreisnarmenn indiána í
Mexikó og stjórnvöld hafa komist
að samkomulagi sem á að draga
úr spennu.
Oaesennyflrheyrður
Willy Claes,
framkvæmda-
stjóri NATO,
var yiirheyrður
enn á ný i gær
vegna hneyksl-
ismáls frá þeím
tíma er hann
var ráðherra í
belgisku stjórninni og telur að
hann verði ekki kallaöur fyrir
aftur.
Geðheilsuhrakar
Geðræn vandaraál fara vaxandi
í fatækum löndum heimsins þrátt
fyrir míkla sigra í baráttunni við
hefðbundna sjúkdóma.
Forðistátök
Sveitir SÞ i Sarajevo hafa fengið
fyrirmæli um aö forðast átök viö
deiluaðila í Bosníu-stríðinu.
Rétturinnerokkar
ísraelsmenn segjast hafa fullan
rétt á að gera arabísktland í aust-
urhluta Jerúsalem upptækt,
þrátt fyrrr andstöðu SÞ.
Víð erum fómariömb
íransforseti sagði í viðtali við
ameríska sjónvarpsstöð að íranir
væru fórnariömb hryöjuverka-
starfsemi en ekki bakhjarlar.
Horftframávið
Carlos Men-
em Argentínu-
forseti lætur
sér ekkí nægja
að hafa malað
andstæðinga
sína í forseta-
kosningunum á
sunnu-
dag, heldur er hann farinn að búa
sig undir að flokkur hans verði
við völd fram á næstu öld.
ífaðmJeltsins
MikOl meirihluti Hvít-Rússa er
fylgjandi efnahagssamruna viö
Rússland.
Tafirábótum
Greíðslustöðvun ameríska fyr-
irtækisins Dow Coming mun
tefja fyrir bótagreiðslum vegna
brjóstafyllinga.
DeiitáKínkel
Klaus Kinkel, leiðtogi ftjálsra
demókrata í Þýskalandi, sætir
gagnrýni félaga sinna eftir ófarir
flokksins í kosningum.
Búist við uppstokkun
John Major,
forsætisráð-
herra Bret-
lands, er grun-
aður um að
ætla aö stokka
upp f ríkis-
stjórn sinni og
reka mestu
skussana Ul að ganga betur í aug-
un á kjósendum.
Refsiaðgerðir
Bandaríkjastjóm býr sig undir
að kynna hvaða japanskar vörur
verða tollaöar aukalega í refsi-
skyni vegna lokaöra markaða
Japana.
Morðingi iifiátinn
Tæplega sextugur morðingi var
tekinn af lífi með eitrl í Louisiana
Reuter
Utlönd_____________________________ðv
Lögregla í Japan sér loks fyrir endann á rannsókn taugagasárásarinnar í Tokyo:
Sértrúarleiðtoginn
handtekinn í nótt
t
- almenningi létti stórlega en yfirvöld vara við hefndaraðgerðum
Lögregla ekur Shoko Asahara, leiðtoga sértrúarsafnaðarins Æðsta sannleiks, frá höfuðstöðvum safnaðarins um
100 km vestur af Tokyo í nótt. Asahara er grunaður um að hafa fyrirskipað taugagasárás i neðanjarðarlestar-
kerfi Tokyo 20. mars, sem varð 12 manns að bana. Símamynd Reuter
Lögregla í Japan handtók í nótt
Shoko Asahara, leiðtoga sértrúar-
safnaðarins Æðsta sannleiks, gmn-
aðan um að hafa fyrirskipað tauga-
gasárás í neðanjarðarlestarkerfi
Tokyo 20. mars. Gasárásin, þar sem
notað var hið banvæna taugagas sar-
in, varð 12 manns að bana en um
fimm þúsund manns urðu fyrir eit-
uráhrifum.
Asahara var handtekinn í höfuð-
stöðvum sértrúarsafnaðarins um 100
km vestur af Tokyo. Lögregla beitti
öílugum stálsögum og logsuðutækj-
um til að komast inn um stáldyr að
vistarverum Asahara og leitaöi her-
bergi úr herbergi með logandi kyndl-
um þar til hann fannst við hugleiðslu
í svefnherbergi sínu. Asahara, sem
er hálfblindur, veitti enga mótspyrnu
viö handtökuna og sagðist skilja þeg-
ar honum var tilkynnt aö hann væri
handtekinn, grunaður um fjölda-
morð.
Almenningur í Japan varpaði önd-
inni léttar við tíðindin en allar sjón-
varpsstöðvar sögðu frá handtökunni
og helstu dagblöð gáfu út aukablöð
með stríðsfyrirsögnum. Japanska
þjóðin hefur beðið í átta vikur eftir
„X-degi“, deginum sem Asahara yrði
handtekinn. Murayama, forsætis-
ráðherra Japans, samfagnaði með
löndum sínum í sjónvarpi en baö fólk
þó um að vera á varðbergi. Ekki
væri útilokað að sértrúarsöfnuður-
inn réði enn yfir einhverjum birgð-
um af taugagasinu sarin og búast
mætti við hefndaraðgerðum af hálfu
áhangenda Asahara.
Lögregla gerði leit í 130 byggingum
í eigu sértrúarsafnaöarins á sama
tíma og ráðist var inn í aðalstöðvarn-
ar. Aðgerðirnar hófust eftir að réttur
í Tokyo tengdi Asahara og söfnuð
hans í fyrsta skipti formlega við
taugagasárásina og gaf út handtöku-
skipun á hendur honum og 40 aðstoð-
armönnum hans. Fyrr um daginn
hafði aðalhugsuöur sértrúarsafnað-
arins verið handtekinn, 25 ára kar-
atesérfræðingur sem hætti í skóla.
Taliö er aö hann hafl skipulagt gas-
árásina.
Taugagasárásin í Tokyo 20. mars
var stærsta ógnun við þjóðaröryggi
í Japan frá stríðslokum. Lögregla
telur safnaðarmeðlimi hafa framleitt
sarin síðastliðin tvö ár og notað
sauðfé á búgarði safnaðarins í Ástr-
alíu sem tilraunadýr. Reuter
Vændiskonur
lögsækja
pútnamömmu
Fimm brasilískar vændiskonur
hafa lögsótt fyrrum pútnamóður
sína og kreúast skaöahóta þar
sem hún seldi vændishúsiö ofan
af'þeim. Vændiskonumar fara
fram á ríflega 7 milljónir í skaða-
bætur. Eru frídagar, uppsagnar-
frestur og yfirvinnutímar vegna
næturvinnu þá innifaldir.
Pútnamóðrin, María Oliveira
Barros, rak vændishúsið frá því
í síðari heimsstyrjöldinni. María,
sem nú er 74 ára og á Qögur börn
og tvö barnabörn, var orðin
þreytt á rekstrinum, ákvað að
selja og njóta ellinnar. En vænd-
iskonurnar, sem margar eru um
fertugt, segja að María eigi þeim
að þakka hve vel stæð hún er í
dag og vilja sinn hlut af söluand-
viröinu. Segjast þær ekkert hafa
að gera í liarða samkeppni um
kúnna á ströndum eða götum úti.
Stöðvar klám
á Internetinu
Bandarískt fyrirtæki hefur sett
á markaöinn forrit sem kemur í
veg fyrir að börn og unglingar fái
aögang að klámefni á Internet-
inu. Er þaö fyrsta forrit siunar
tegundar.
Þar sem Intemetið er stööugt
að breytast veröur hægt að fá
endurbætta gerð forritsins í
hverjum mánuði gegn vægu
gjaldi.
Reuter
Tónlistarstríð mlllL Svía og Norðmanna vegna Eurovision:
Harma viðbrögð Svía
við sigri Norðmanna
- sagði sendiherra Svía í Noregi og baðst afsökunar
Sigur Norðmanna í Eurovision- söngvakeppninni hefur komið af stað köldu
tónlistarstríði við Svía. Simamynd Reuter
„Ég harma að sænska dómnefndin
gaf ekki norska sigurlaginu eitt ein-
asta stig og ég harma einnig hve leið-
inleg viðbrögð Svía hafa verið við
sigri Norðmanna. Við erum bara öf-
undsjúkir," segir Kjell Anneling,
sendiherra Svíþjóðar í Noregi. Hann
sá ástæðu til þess að biðja Norðmenn
afsökunar á skrifum sænskra blaöa
um sigurlagið í Eurovision-söngva-
keppninni.
Urslit keppninnar eru nú orðin að
milliríkjadeilu þar sem gamalgróið
hatur milli Norðmanna og Svía hefur
blossað upp. Sænskir fjölmiölar hafa
ráðist hart gegn Norðmönnum og
saka þá um að hafa stolið sigurlaginu
frá írum. Lagið hafi verið fiðlusarg
aö mestum hluta en ekki söngur og
því hafi þaö alls ekki átt erindi í
keppnina.
Norsk blöð ganga fram gegn Svíum
af síst minni hörku. í gær fjallaöi
Verdens Gang, stærsta blað Noregs,
um „sænsk-norska tónlistarstríðið"
á 12 blaðsíðum en Dagbladet lét sex
síður nægja til aö rakka Svíana nið-
ur. Bæði blöðin notuðu „sænsku
spælinguna" sem forsíðuuppslátt og
Verdens Gang hafði sænska fánann
í hálfa stöng á forsíöunni.
í hjarta sínu eru Norðmenn þó
ósköp glaðir vegna reiði og öfundar
Svía. Þeim hefur tekist að reita stóra-
bróður í austri til reiði og það finnst
mörgum meira virði en sigur í sjálfri
keppninni.
Ekki bætir það bróðemið að Norð-
menn saka Svía um að standa gegn
samningum um útflutning á fiski til
ríkja Evrópusambandsins. Tónlist-
arstríðið er því að breytast í viö-
skiptastríð og herskáustu Norð-
mennirnir vilja að gömul landa-
mæravirki veröi mönnuð hið snar-
asta til að veijast árás Svía.