Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1995, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
Fréttir
Allt að 5 þúsund á at-
vinnuleysisskrá í vikunni
- segir Amar Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva
„Þessa dagana er að fjölga gífur-
lega á atvinnuleysisskrám. Það
vinna milli 6.500 og 7.000 manns viö
flskvinnslu og við reiknum með að
milli 4 og 5 þúsund manns verði at-
vinnulaus á næstu dögum. Þetta ger-
ist í einhverjum bylgjum og ég hygg
að dagurinn í dag sé fyrsti sterki
dagurinn í atvinnuleysisskráningu,"
segir Amar Sigurmundsson, formað-
ur Samtaka fiskvinnslustöðva, í sam-
tali við DV í gær um ástandið í fisk-
vinnslunni vegna sjómannaverk-
fallsins.
„Aö Vestfjörðum undanskildum er
fiskvinnsla meira og minna stopp.
Samt verður að segjast eins og er að
mönnum hefur gengið betur að út-
vega sér hráefni en við áttum von
á. Það kann að stafa af því að menn
hafi átt meira hráefni í frystigeymsl-
um en við töldum," segir Arnar.
Hann segir útlitið framundan vera
dökkt og ef verkfallið dragist fram
yfir sjómannadag muni atvinnu-
lausu fiskverkafólki fjölga um allt
að þúsund manns í viðbót. Þá segist
hann undrast þá stöðu sem verkfalhö
er komið í.
„Það er mjög dökkt útlit framund-
an og það er vandséð hvernig menn
ætla að leysa þennan hnút. Það kem-
ur okkur á óvart að ásteytingar-
steinninn skuli vera viðskipti milli
óskyldra aðila. Við gerðum okkur
grein fyrir að viðskipti milh skyldra
aðila gátu verið viðkvæm. Eftir að
búið var að leysa þá deilu með lág-
marksverði á þorski héldum við að
brautin framundan væri greiðari en
raun ber vitni,“ segir hann.
„Heima í Eyjum eru menn alveg
gapandi yfir þessari stöðu þar sem
vandamálið er þessar sjálfstæðu út-
gerðir sem setja mikið á markað og
landa í gáma og í húsin eftir því sem
ástæða er til. Hjá þessum útgerðum
eru menn ánægðir með sinn hlut og
fólk skilur ekki að vandinn snúist
um þær,“ segir Arnar. -rt
Líðan piltanna sem fluttir voru meðvitundarlausir á Landspítalann i gær, grunaðir um að hafa drukkið landa blandaðan tréspíra, er eftir atvikum góð að
sögn Jóns R. Kristinssonar, sérfræðings á barnadeild. Að sögn Jóns reyndist grunur um að landinn væri blandaður tréspíra ekki á rökum reistur og
piltarnir, sem eru 11 og 13 ára, hafa því drukkið mikið af landanum og drukkið hann hratt. DV-mynd S
Dagsbrún vill stöðva löndun úr flaggskipi Samherja:
Látum ekki undan þrýstingi
og hótunum Dagsbrúnar
- segir verkstjóri Löndunar hf. 1 Reykjavik
Stuttar fréttir
Dr. Halldór heiðraður
Dr. Halldór Halldórsson hlaut í
gær sérstaka viðurkenningu
Málræktarsjóðs, fyrstureinstakl-
inga, fyrir störf að málrækt.
Kaidur maímánuður
Nýliöinn maímánuður var meö
þeim köldustu t sögunni norðan-
Iands. Samkvæmt RÚV náði hit-
inn á Akureyri aðeins tvisvar
sinnum tveggja stafa tölu.
Kólefusdttíkúm
Kólerusótt hefur herjað á kýr í
Eyjafjarðarsveit að undanfómu.
Samkvæmt Mbl. er um mikið tjón
að ræða fyrir bændur.
Heimsókn frá Klna
Li Lanquing, aðstoðarforsætis-
ráðherra Kína, er væntanlegur til
íslands i opinbera heimsókn síð-
ar í þessum mánuði.
Nýflutningamiðstöð
Nýtt fyrirtæki í eigu Samskips
og Kaupféiags Ámesinga á Sel-
fossi, Flutningamiðstöð Suður-
lands, tekur til starfa 1. júlí nk.
Mengun á Ströndum
Ekkert lát er á gríðarlegri fjöra-
mengun á Ströndum þrátt fyrir
aukinn umhverfisvemdaráróð-
ur. Samkvæmt Rikissjónvarpinu
hefur mengun af völdum fiski-
skipa aukist.
Sjómennskannumin
Eigandi skipsins Haftinds frá
Haíharfirði hefur samið við sveit-
arfélög á suðvesturhorninu um
að taka unglínga í kennslu á réttu
handtökunum í sjómennskunni.
Rikissjónvarpið greindi frá
þessu.
Nýirlandnemar
Sífellt fleiri skordýr berast til
landsins með ýmsum hætti. Sam-
kvæmt Rikissjónvarpinu barst
nýlega til Vestmannaeyja svo-
kölluð ttjásníkjuvespa sem einn-
ig hefur verið kölluö „vinur garð-
yrkjumannsins“. -þjb
„Við ætlum að landa úr skipinu.
Það hefur verið þrýstingur frá Dags-
brún og þeir hafa hótað okkur. Við
munum ekki fara að þessum kröfum
nema það komi skrifleg beiðni frá
ASÍ og þar með sé ljóst að ekki verði
landað úr skipinu annars staðar ef
við ekki gerum það,“ segir Sigurþór
Sigurþórsson, verkstjóri hjá Löndun
hf., en fyrirtækið ætlar að landa úr
frystiskipinu Baldvin Þorsteinssyni
E A þrátt fyrir aö Verkamannafélagið
Dagsbrún leggist gegn því að landað
verði úr skipinu.
Baldvin Þorsteinsson, flaggskip
Samherja hf„ kemur í dag úr veiði-
ferð af Reykjaneshryggþar sem skip-
ið var við veiðar á úthafskarfa. Skip-
ið var leigt færeysku dótturfyrirtæki
Samherja til að komast hjá sjó-
mannaverkfalh og samtök sjómanna
hafa óskað eftir því að sett verði lönd-
unarbann á skipið vegna þessa. Sig-
urþór segir að það hafi enga þýðingu
fyrir þá að neita löndun úr skipum
sem muni einfaldlega leita til ann-
arra hafna. Hann segir að sú stað-
reynd að landað var úr Haraldi
Kristjánssyni HF í Hafnarfirði sýni
að það sé engin samstaða um að neita
löndun úr skipum.
„Við Otum á þetta sem vitleysu hjá
Guðmundi Jaka því það kannaðist
enginn við það á skrifstofu Dags-
brúnar að löndunarbann hefði verið
sett á skipið," segir hann. rt
Þú getur svaraö þessari
spurningu meö því aö
hringia í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
r ö d d
Já jJ
Nei yg|
1600
Ertu sátt/ur við Prince
Póló í nýjum umbúðum?
Alllr í stafrana kerflnu met tónvalssima geta nýtt sér þessa þjénustu.
Frystitogarasjómaður í verkfalli:
Skil ekki af hverju við erum í verkfalii
- snertir okkur engan veginn
„Ég botna ekkert í því hvers
vegna viö erum í verkfalli. Þetta
snertir okkur frystitogaramenn
engan veginn. Þetta snýst fyrst og
fremst um fiskverð hjá þeim sjó-
mönnum sem landa ferskum fiski,"
segir Hallgrímur Jónsson, háseti á
frystitogaranum Snorra Sturlusyni
RE, sem er í verkfalli eins flestir
sjómenn.
HaOgrímur segir að hann og þeir
sjómenn sem hann er í sambandi
við séu sammála um að verkfall
nú gefi frystitogaramönnum engar
kjarabætur,
„Það hefði verið eðlilegra að við
hefðum farið í samúðarverkfaO. Ég
botna í raun ekkert í þessu og það
er furöulegt að þaö skuO ekki vera
löngu búið að leysa þetta. Mennirn-
ir virðast ekkert byrja að tala sam-
an fyrr en allt er komið í óefni,“
segir HaOgrímur
-rt