Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1995, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
11
Fréttir
Ákæra vegna hnífstunguárásar viö skyndibitastað í Hafnarstræti í febrúar:
17 ára viður-
kennir að haf a
veitt pilti holsár
- litlu munaöi aö hnífurinn gengi í ósæö fómarlambsins sem var 16 ára piltur
17 ára piltur hefur verið ákærður
fyrir að hafa stungið 16 ára pilt, sem
hann var kunnugur, með hnííi í síð-
una með þeim afleiðingum að hann
hlaut holsár við ósæð. Atburðurinn
átti sér stað fyrir utan skyndibitastað
í Hafnarstræti aðfaranótt 11. febrúar
síðastliðinn.
Árásarmaðurinn hefur viðurkennt
það sem honum er gefið að sök. Hann
situr nú í afplánun í fangelsi vegna
annarra afbrota en hann rauf skil-
yrði reynslulausnar eftir að hann
varð uppvís að hnífstungunni. Pilt-
urinn kom einnig við sögu í vetur
þegar hann blandaðist í átök á milli
fangavarða og fanga.
Ljóst þykir að hnífstungan í Hafn-
arstræti var með öllu tilefnislaus.
Kristján Bragi Valsson, 16 ára, sagði
í samtali við DV eftir árásina að hann
og árásarmaðurinn hefðu eitthvað
verið að rífast á skyndibitastað. Þeir
hefðu ákveðið að fara út en þegar
þangað kom hefði hinn tekið upp
hníf og stungið sig. „Við vorum ekki
einu sinni byrjaðir að slást,“ sagði
Kristján Bragi við DV.
Hnífslagið kom í vinstri síðu hans
ofan við mjaðmarspaða þannig að
hann hlaut holsár inn undir ósæð.
Þvi mátti ekki muna miklu að verr
færi. Starfsfólk á skyndibitastaðnum
aðstoðaði piltinn með því að stöðva
blæöingar og var hringt á sjúkrabíl.
Fórnarlambið var síðan flutt á slysa-
deild en hann man lítið sem ekkert
eftir sér eftir hnífstunguna.
Eins og fyrr segir játaði sakbom-
ingurinn hjá lögreglu það sem hon-
um var gefið að sök í ákæru. Því má
búast við að réttarhöldin, sem eru
framundan, verði með einfaldara
sniði en ella. Dóms er að vænta á
næstu vikum. -Ótt
Asta Sigurðardóttir hjá Hollustuvemd:
Vara eindregið við
svepparæktinni
„Ég sé fulla ástæðu til þess að vara
fólk við því að vera að fikta við þetta
í heimahúsum. Ég efast ekki um að
framleiðslan er í lagi én menn hafa
sett spurningarmerki við meðhöndl-
unina. Ég rakst á grein í bandarísku
riti og þar er verið að fjalla um þetta.
Sagt er frá könnun sem gerð var á
framleiðslu á sveppum svipuðum
þeim sem við erum áð tala um og
þeir sjá ekkert athugavert við hana
sem shka. Þeir vara hins vegar ein-
dregið við meðhöndluninni og benda
á dæmi þar sem upp hafa komið veik-
indi og einn dáið, að því er þeir telja
í kjölfarið á neyslu svona drykkjar.
Þeir geta ekki staðfest þetta fyrir víst
en meðan ekki koma fram frekari
upplýsingar sé ég fulla ástæðu til
þess að vara við þessari fram-
leiðslu," segir Ásta Sigurðardóttir
hjá Hollustuvernd ríkisins
Svepparæktunarfaraldur sá sem nú
geisar hér á landi hefur vakið ugg hjá
sumum þar sem talið er að fólk sé að
rækta þetta í ílátum sem alls ekki eru
til þess fallin að geyma matvæh. Sér-
staklega er varað við keramik- og leir-
blómapottum sem margir kaupa til
þess ama. í þeim er blý og kalsíum
sem geta borist í sveppinn með ófyrir-
sjáanlegum afleiðingum fyrir þann
sem neytir hans.
„Það eina sem fólk þarf að hafa í
huga er að láta þetta ekki komast í
snertingu við málm. Fólk þarf bara að
fylgja þeim reglum sem viðhafðar eru
í þessu og þá er engin hætta. Ég er
búin að drekka þetta síðan í september
svo þetta er a.m.k. ekki bráðdrep-
andi," sagði Gunnar Eyjólfsson leikari.
Þannig lítur sveppurinn umdeildi út.
AÐAL-
FUNDUR
Aðalfundur Samtaka gegn astma og ofnæmi verður
haldinn í Múlabæ, Ármúla 34,3. hæð,
í kvöld, miðvikudaginn 7. maí, kl. 20.30.
Fundarefni:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnurmál.
Félagarfjölmennið. - Kaffiveitingar.
Stjórn Samtaka gegn astma og ofnaemi
SAMTÖK GECN ASTMA OC OFNÆMI
-en það er einfalt að prófa hvað
hverjum passar í dýnugalleríi okkar.
Réttur stuðningur -dýnan gefur eftir
við axlir og mjaðmir.
Of mjúkt -hryggurinn svignar
eins og bogi.
Of stíft -taktu eftir því hvernig
hryggjarsúlan beygist.
Við erum dýnusérfrœðingar og leggjum
metnað okkar í að hafa sem mest úrval
af alls konar dýnum, evrópskum, íslenskum
og amerískum.
Við bjóðum hagstœtt verð, þjónustu og
skiptirétt. Markmiðið er að þú sofir betur
og vaknir frískari á morgnana.
Húsgagnahöllin
BÍLDSHÖFÐA 20 -112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-871199