Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.1995, Side 26
26
MIÐVIKUDAGUR 7. JÚNÍ 1995
Afmæli
Ottó W. Magnússon
Ottó Winther Magnússon, fyrrv.
umboðsmaður Olíuverslunar ís-
lands hf., Skólabraut 5, Seltjarnar-
nesi, verður áttatíu og fimm ára á
morgun, fimmtudaginn 8. júní.
Starfsferill
Ottó ólst upp á Eskifirði og gekk
þar í barnaskóla Eskifiarðar.
Ottó stundaöi helst sjómennsku
framan af, bæði frá Eskifirði og síð-
ar vetrarvertíðir frá Hornafirði.
Hann fluttist til Seyðisfjarðar 1931
og stofnaði þá fljótlega Bifreiðastöð
Seyðisfjarðar en Ottó er annar
stofnenda hennar. Bifreiðastöðin
haíði með að gera bæði fólks- og
vöruflutninga. Hann starfaði viö
verslunarstörf frá 1948-60, fyrst hjá
Harald Johansen kaupmanni og síð-
ar hjá Kaupfélagi Austfiarða. Ottó
tók við starfi trúnaðarmanns hjá
Olíuverslun íslands 1960 og síðar
sem umboösmaður fyrirtækisins á
Seyðisfirði, sem þá var eitt sölu-
hæsta umboðið á landinu, og vann
við það til 1973 en þá flutti hann til
Reykjavíkur. Ottó starfaði við ýmis
verslunarstörf hjá Olís í Reykjavík
og auk þess vann hann þrjár vertíð-
ir sem mótttökustjóri á loðnu-
bræðsluskipinu Norglobal sem var
á vegum ísbjarnarins hf. Ottó lét af
störfum árið 1985 fyrir aldurs sakir.
Ottó söng í kirkjukór í samfleytt
sextíu ár, fyrst á Eskifirði, þá á
Seyðisfirði og síðast í Seltjamarnes-
kirkju.
Fjölskylda
Ottó kvæntist 17.6.1933 Valdísi
Guðmundsdóttur, f. 20.9.1904, d.
25.1.1955, frá Fáskrúðsfirði. For-
eldrarhennar: Guðmundur Jónsson
kaupmaður og Hólmfríður Jóns-
dóttir, þau bjuggu á Seyðisfirði.
Dóttir Ottós og Valdísar: Anna
Fríöa Winther Ottósdóttir, f. 25.8.
1946, húsmóðir, hún var gift Vil-
hjálmi Ingvarssyni, f. 27.4.1940, d.
18.8.1988, framkvæmdastjóra, þau
eignuðust þrjú börn, Ottó Val, f. 27.3.
1966, Valdísi, f. 5.2.1969, oglngvar,
f. 16.1.1973. Barnabarnabörnin eru
tvö, Bjami Steinar og Anna Andrea
(börnOttósVals).
•Systkini Ottós: Charles Magnús-
son, f. 10.8.1908, látinn; Axel Magn-
ússon, f. 20.11.1913, látinn; Guðni
Magnússon, f. 14.9.1916, látinn;
Gunnar Magnússon, f. 18.8.1920,
látinn; Rósalinda Magnúsdóttir, f.
18.8.1920, látin.
Foreldrar Ottós vom Magnús
Arngrímsson, f. 9.5.1884, vegaverk-
stjóri, og Anna Jörgensen, f. 20.6.
1884, húsmóðir af dönskum ættum.
Ottó verður að heiman á afmælis-
daginn.
Gísli Magnússon
Gísli Magnússon bifreiðastjóri,
Hlíðarvegi 15, Grundarfirði, er sjö-
tugurídag.
Fjölskylda
Gísli er fæddur í Kirkjufelli og ólst
þar upp. Hann hefur verið bifreiða-
stjóri í nærri hálfa öld.
Kona Gísla var Gróa Herdís Guð-
jónsdóttir, f. 18.11.1933, d. 15.1.1985,
húsmóðir. Foreldrar hennar: Guð-
jón Elísson, bóndi og sjómaður,
Skallabúðum, og Sigriður Elísdóttir
húsfreyja. Þau bjuggu síöast í
Grundarfiröi og em bæði látin.
Böm Gísla og Gróu Herdísar: Sig-
ríður, starfsmaður á hreppsskrif-
stofu Eyrarsveitar, gift Erni Jóns-
syni sjómanni, þau eru búsett í
Grundarfirði og eiga þrjú böm, Jó-
hann, Sigríði og Gísla Val; Magnús
sjómaður, kvæntur Jenny Gíslason,
húsmóður og eiganda snyrtistofu,
þau eru búsett í Ástralíu og eiga
tvær dætur, Rósu og Ingibjörgu;
Valgerður húsmóðir, sambýlismað-
ur hennar er Guðmundur Einisson
sjómaður, þau eru búsett í Grundar-
firði og eiga þrjú börn, Fannar,
Marsibil Katrínu og Guðmund Ar-
on, en hann er eins árs í dag; Guð-
jón, starfar í byggingariðnaði, maki
hans er Aðalheiður Birgisdóttir
húsmóðir, þau era búsett í Grundar-
firði og eiga fióra syni, Birgi, Vík-
ing, Guðjón og Róbert; Hermann,
sjómaður og bílasmiður, sambýlis-
kona hans er Björg Ágústsdóttir,
húsmóðir og starfsmaður á sýslu-
skrifstofunni í Stykkishólmsbæ,
þau eru búsett í Gmndarfirði.
Systkini Gísla: Haraldur rafvirki,
búsettur í Reykjavík; Elsa, látin, var
húsmóðir í Grundarfirði og síðar
Reykjavík; Alfreð, sjómaður og
verkamaður, búsettur í Grundar-
firði, en hann á sextíu og fimm ára
afmæh í dag; Aðalheiður húsmóðir,
búsett í Grundarfirði; Gunnar, fyrr-
verandi sjómaður, búsetturí
Gmndarfirði; Stella húsmóðir, bú-
settíReykjavík.
Foreldrar Gísla: Magnús Gíslason,
látinn, b. í Kirkjufelli, og Valgerður
Skarphéðinsdóttir, húsfreyja í
Kirkjufelli, en hún dvelur nú í
Fellnaskjóli í Gmndarfirði.
Gísh tekur á móti gestum á heim-
ih sínu á afmælisdaginn.
Höfum flutt á Smiöjuveg 30
- 100 m neðar í götuna -
ATH.: breytt síma- og faxnúmer
Efnaco hf. - Goddi
Smiðjuvegi 30
sími 567-3344, fax 567-5344
Auglýsing um próf fyrir
skjalþýðendur og dómtúlka
Fyrirhugað er að halda próf fyrir þá sem öðlast vilja
réttindi sem skjalþýðendur og dómtúlkar 14. október
og ef þörf krefur einnig 21. október 1995.
Umsóknum um þátttöku í prófinu skal skila til ráðu-
neytisins á sérstökum eyðublöðum sem þar fást fyrir
1. október 1995.
Þeim sem hyggjast gangast undir framangreint próf
er bent á að á vegum Endurmenntunarstofnunar
Háskóla Islands, símar 525-4923, 525-4924 og
525-4925, er efnt til námskeiðs dagana 4.-8. sept-
ember 1995 í skjalþýðingum og dómtúlkun sem fyrst
og fremst er ætlað þeim sem hyggjast gangast und-
ir löggildingarprófið. Prófstjórn löggildingarprófanna
mun hins vegar ekki gangast fyrir námskejði fyrir
próftakendur. Skráning fer fram hjá Endurmenntun-
arstofnun.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið, 6. júní 1995
80 ára
Jóna Magnúsdóttír,
Borgarheiði 14, Hveragerðl
Málfríður Matthíasdóttir,
Hólagötu 17, Vestmannaeyjum.
Anna Sigurjónsdóttir,
Hofsvahagötu 22, Reykjavík,
Garðar Guðjónsson,
Hjahavegi 64, Reykjavík.
Haukur Marsveinsson,
Álfaskeiöi 64, Hafnarfirði.
inn 10. júní í sumarbústað sinum í
Þórisstaðalandi í Grímsnesi frá kl.
18-22.
Sigríður Norðkvist
kirkjuvörður,
Þórsgötu 29,
Reykjavik.
Eiginraaður
hennarerHálf-
dán Ólafsson.
Þautakaámóti
gestumísafn-
aðarsal Hall-
grímskirkju frá kl. 19-21 á afmæhs-
daginn.
ara
------------ Hildigunnur Jóhannesdóttir,
60 ára
Guðlaugur Óskarsson
útgerðarmað-
ur,
Túngötu 16,
Grindavik.
Eiginkona
hanserHildur
SigrúnÁgústs-
dóttirhúsmóð-
ir.
Snæbýlil, Skaflárhreppi.
Guðmundur Hólm Sigurðsson,
Langanesvegi29, Þórshafnar-
hreppi.
Brynjar Sigurðsson,
Heiðvangi 58, Hafnarfiröi.
Sigríður Amþórsdóttir,
Ægissíðu 11, Grýtubakkahreppi.
Barði Helgason,
Bæjarási 11, Skeggjastaðahreppi.
Barhara Stefánsson,
Syðri-Reykjum 4, Biskupstungna-
Þau taka á móti gestum laugardag-
hreppi.
Kristófer Sverrisson,
Smárabraut 3, Blönduósi.
Sóley Kristjánsdóttir,
Borgarhlíð 9e, Akureyri.
Stefán Tyrflngsson,
Hæðarseli 15, Reykjavík.
40 ára
Guðni Sigvaidason,
Borgartúni 1, Ðjúpárhreppi.
Guðmundur Ragnarsson,
Viöarási 55, Reykjavík.
Ðaníel Gunnarsson,
Skógarási 1, Reykjavík.
Þorgerður Gunnarsdóttir,
Austurtúni9, Bessastaðahreppi.
Jóhann Grétar Ágústsson,
Heiðarvegi 61, Vestmannaeyjum.
Sigrún Jónsdóttir,
Keldulandi 21, Reykjavík.
Bjarni Olesen,
Háengi4, Selfossi.
Ómar Bergmann Elísson,
Gmndargötu 70, Grundarfirði.
Unnur Þóra Jökulsdóttir,
Mjóstræti2, Reykjavík.
Sigurveig J. Vilhelmsdóttir,
Ulugagötu 58, Vestmannaeyjum.
Andlát
Gunnar Huseby
Gunnar A. Huseby, fyrrv. Evrópu-
meistari í kúluvarpi, Hofsvahagötu
23, Reykjavík, lést á gjörgæsludehd
Landspítalans sunnudaginn 28. maí.
Hann verður jarðsunginn frá Nes-
kirkju í dag, miðvikudaginn 7. júní,
kl. 15. Þeim sem vhdu minnast hans
er bent á Afrekssjóð KR, íslands-
banka, Bankastræti, nr. 515-26-
1240.
Starfsferill
Gunnar var fæddur 4.11.1923 við
Kárastíginn í Reykjavík en ólst upp
hjá fósturforeldrum sínum í vestur-
bænum. Hann gekk ungur í KR og
æfði þar knattspymu frá þrettán
ára aldri og síðan frjálsar íþróttir.
Gunnar keppti með KR í knatt-
spymu í 3. flokki, 2. flokki og 1.
flokki en sneri sér síðan alfariö aö
frjálsum íþróttum og loks kastgrein-
um. Hann hóf að keppa með KR í
frjálsum íþróttum 1939 og setti fljót-
lega fiölda íslandsmeta í drengja-
flokkum í kastgreinum og hlaupum.
Þá setti hann fiölda íslandsmeta í
kastgreinum í fuhorðinsflokki og
átti íslandsmetið í kúluvarpi í tutt-
ugu og sex ár samfellt. Hann setti
sitt fyrsta íslandsmet í fuhorðins-
flokki í kúluvarpi 1941, þá átján ára,
þegar hann kastaði 14,31 m. Þetta
met bætti hann síðan átta sinnum
til ársins 1950 þegar haim kastaði
16,74 m en það kast var íslandsmet
th vorsins 1967 þegar Guðmundur
Hermannsson bætti það.
Gunnar náði besta árangri í kúlu-
varpi í Evrópu árið 1945 þegar hann
kastaði 15,57 m, varð Evrópumeist-
ari í Ósló 1946, setti Norðurlanda-
met 1949 þegar hann kastaði 16,41
og varð Evrópumeistari í Brassel
1950 þegar hann kastaði 16,74 m.
Gunnar stundaði ýmis abnenn
störf en lengst af starfaði hann á
vegum Reykjavíkurborgar, þar af í
þrjátíu ár hjá Vatnsveitu Reykjavík-
ur.
Fjölskylda
Sambýliskona Gunnars var Rósa
Þórðardóttir, f. 19.1.1920, lengi af-
greiðslustúlka við miðasölu Nýja
bíós. Gunnar og Rósa shtu samvist-
Gunnar A. Huseby.
um en hún er nú látin.
Uppeldissystir Gunnars er Britha
Huseby, f. 16.4.1931, húsmóðir og
ekkjaíHafnarfirði.
Fósturforeldrar Gunnars voru
Kristján Huseby, járnsmiður í
Reykjavík, og kona hans, Matthhd-
ur Nikulásdóttir húsmóðir.