Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1995, Blaðsíða 4
4
MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1995
DV
Landspítalinn:
Reykurvegna
eidsfbil
Mikill reykur myndaðist á lóð
Landspítalans, bak viö Blóðbank-
ann, um miðjan dag í gær þegar
kvíknaði i bíl sem stóð við svo-
kallað ketilhús. Bíllinn hafði ver-
ið 1 viögerð inni í húsinu þegar
kviknaði í honum og starfsmenn
spitalans komu honum út í tæka
tiö. Þar slökktu slökkviliðsmenn
eldinn.
Reykur komst ekki inn í sjúkra-
deildir heldur truflaði fyrst og
fremst eldvamakerfið. Flautur
fóru víða í gang um spítalann og
ollutöluverðuónæði. -bjb
ÖlvuníKeflavík:
Tvær líkams-
árásir
Talsverð ölvun var í miðbæ
Keflavíkur um helgina. Lögregl-
unni höfðu í gær borist tvær
kærur vegna minni háttar lík-
amsárása sem áttu sér stað á göt-
um Keflavíkur, önnur aðfaranótt
laugardags og hin aðfaranótt
sunnudags.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglu voru líkamsárásirnar svip-
aðar eölis. í báðum tilvikum var
um að ræða átök milli tveggja
manna. Meiösl þeirra vom minni
háttar. -bjb
InnbrotílObíla:
Hliðarrúður
brotnarupp
Rannsóknarlögregla ríkisins er
með í rannsókn 10 innbrot í bíla
víðs vegar um höfuöborgarsvæð-
ið eftir heigina. Dýrum útvarps-
tækjum og/eöa geislaspilurum og
-diskum var stolið úr þeim öllum.
Verömæti þýfisins í þessum 10
innbrotum er í kringutn 1 milljón.
Innbrot í bíla hafa tekið á sig
nýja mynd. Þjófarnir eru farnir
að brjóta hliðarrúður til að kom-
ast inn í bílana þannig að ekki
nægir að læsa þeim. Sérstök tól
virðast vera notuö til verksins því
að rúðurnar eru brotnar án
nokkurs hávaöa, samkvæmt því
semRLRkemstnæst. -bjb
Fréttir
Kvennaráðstefna Sameinuðu þjóðanna 1 Peking:
Ótrúleg gæsla á Torgi
hins himneska friðar
„Við sem tökum þátt hinni opin-
beru ráðstefnu SÞ hér í Peking höf-
um ekki orðið fyrir neinum töfum
eða öðrum óþægindum. Allt rann
mjög ljúflega í gegn á flugvelhnum
þegar við komum til Kína. Eins gekk
allt vel fyrir sig á hótelinu. Við fórum
svo skömmu eftir komuna hingað að
Torgi hins himneska friðar til að
hitta þar aöra þátttakendur frá Vest-
urlöndum. Um leið og við komum
út úr leigubifreiðunum voru teknar
ljósmyndir af okkur og það var
hreint ótrúleg gæsla þarna. Hún
bitnaði þó ekki á okkur en maður
varð mikið var við lögreglumenn.
Það var greinilegt að þarna átti ekki
að leyfa neins konar uppákomur,"
sagði Kristín Ástgeirsdóttir þing-
kona en hún er ,einn af fulltrúum
íslands á opinberu kvennaráðstefn-
unni í Peking sem hefst í dag.
Hún sagði að þær hefðu fariö í
gær, þrjár íslenskar konur, á óopin-
beru kvennaráðstefnuna. Þaðan hafa
borist fréttir um töluverða spennu
og að kínversk yfirvöld væru að gera
mörgum þátttakendum lífið leitt. Þar
sagöist Kristín hafa hitt íslenska
þátttakendur sem haldi því fram að
fréttirnar af þvi sem þarna hefur
gerst séu orðum auknar.
„Þaö er hins vegar ljóst að sumar
konur hafa lent þarna í erfiðleikum
vegna framkomu kínverskra yfir-
valda. Það er til að mynda alveg ljóst
að framkoma yfirvalda í garð útlaga-
kvenna frá Tíbet hefur verið óþol-
andi. Yfirvöldum voru enda settir
úrslitakostir.'Annaðhvort létu þau
af þessum ofsóknum gegn tíbetsku
konunum eða ráðstefnunni yrði slit-
ið. Það er alveg ljóst að kínverskir
ráðamenn hafa tekið mark á þeim
hótunum þvi að við þrjá sem komu
þama að frá Peking urðum ekki var-
ar við neinar hindranir eða gæslu á
ráðstefnusvæðinu," ságði Kristín.
- segirKristínAstgeirsdóttirþingkona
Opinberri heimsókn Vigdisar Finnbogadóttur, forseta islands, til Kína lauk i gær. I dag mun hún hins vegar flytja
ávarp við setningu kvennaráöstefnu Sameinu þjóðanna i Peking. Hér er Vigdís að heilsa ungri kínverskri stúlku
sem tók á móti henni á einum staðnum í hinni opinberu heimsókn. OV-símamynd GTK
Hin opinbera ’ kvennaráðstefna
hefst Peking í dag, mánudag. Hún
hefst með hátíðardagskrá í Höll al-
þýðunnar þar sem Vigdís Finnboga-
dóttir, forseti íslands, flytur hátíð-
árávarp og þakkar fyrir hönd þjóða
heims því hún er hæst setti embætt-
ismaður sem staddur er á ráðstefn-
unni. Ráðstefnan sjálf hefst svo form-
lega klukkan 15 í dag og byrjar með
ávarpi Benazir Bhutto, forsætisráð-
herra Pakistan. Kristín Ástgeirsdótt-
ir segir að talað sé um að hún hafi
troðið sér fram fyrir forseta íslands
með sitt ávarp. Vigdís flytur sitt
ávarp strax á eftir.
Formannsslagurinn
Um fátt er meira talað þessa dag-
ana en formannskosninguna í Al-
þýðubandalaglnu. Þúsundir er-
lendra fréttamanna flykkjast til
landsins, augu alheimsins beinast
að íslandi og íslenska þjóðin sjálf
stendur agndofa af spenningi yfir
þvi hvort verði kosið formaður,
Steingrímur J. Sigfússon eða
Margrét Frímannsdóttir.
DV tók frambjóðenduma báða
tali um helgina, enda hefur þeim
fjölmiðlum fækkað í seinni tíð sem
hafa getað setið á sér um að taka
afstöðu. Til að mynda hefur Stein-
grímur sérstaklega kvartað undan
því að Alþýðublaðið styður Margr-
éti sem hann telur aö geti haft af-
gerandi áhrif á kosningaúrslit.
Þess vegna er Steingrímur ánægð-
ur með að DV skuli vilja hafa við
sig viðtal, því hann fær ekki inni í
Alþýðublaðinu.
Blaðamaður DV: Og hver er svo
munurinn á ykkur?
Steingrímur: Ég er karl, hún er
kona.
Margrét: Ég er kona, hann er
karl.
Blaðamaður: Ja, ég meina póli-
tískan mun.
Steingrímur: Þetta er ekki spum-
ing um pólitík, við eram bæði í
sama flokknum. Þetta er frekar
spurning um persónur sem eiga að
leiða flokkinn.
Margrét: Munurinn er ekki mik-
ill í pólitískum skilningi, annars
værum við ekki í sama flokki. Þetta
er frekar spuming um hver eigi að
ráða í flokknum. Ég vil hafa meiri
samráð við flokkinn, flokksmenn
hafa ekki verið spuröir álits þegar
stefnan hefur verið mörkuð.
Blaðamaður: Hverjum er það að
kenna?
Steingrímur: Það er engum aö
kenna. Flokksmönnum hefur
fækkað, forystan hefur þurft að
taka völdin. Annars getur Margrét
ekki kvartað, hún hefur verið í for-
ystunni, hún situr í miðstjórn.
Margrét: Ég er ekki að kvarta, en
forystan hefur týnt fólkinu og
flokknum. Þessu vil ég breyta. Það
þarf að finna fólkið í flokknum svo
hægt sé að spyrja það hvað það
vilji aö flokkurinn geri.
Blaðamaður: Era þið þá sitt í
hvorri klíkunni, sitt í hvoram arm-
inum?
Steingrímur: Ég er ekki í neinum
armi. Eg er armur sjálfur.
Margrét: Ef þú heldur að ég sé í
ólafsarminum, þá er það ekki rétt.
Ólafur Ragnar hefur verið ágætur
formaður en hann hefur bara ekki
fundið fólkið. Það er ekki honum
að kernia, heldur fólkinu. Þaö er
farið. Úr þessu vil ég bæta.
Blaðamaður: Vilt þú ekki finna
fólkið eins og Margrét, Steingrím-
ur?
Steingrímur: Ég vil finna flokk-
inn.
Blaðamaður: Er þá flokkurinn
týndur eða er hann kannski ekki
lengur til. Viljið þið sameiningu við
aðra flokka?
Steingrímur: Sameining er ekki á
dagskrá. Ekki strax, ekki fyrr en
viö höfum fundiö út hvort flokkur-
inn sé enn þá til, svo hægt sé að
sameina hann öðram flokkum
undir forystu Alþýðubandalagsins.
Alþýðubandalagið hefur hlutverki
að gegna í þeirri sameiningu, þegar
við höfum fundið Alþýðubandalag-
iö.
Margrét: Sameining er ekki núm-
er eitt, tvö og þrjú. Sameining er
háð því hvort fólkið í flokknum
vill sameiningu og það þarf að
spyrja fólkið og fólkiö verður ekki
spurt fyrr en við finnum það, vegna
þess að við finnum ekki flokkinn
ef við finnum ekki fólkið og meðan
við finnum hvoragt vitum viö ekki
hverja við erum aö sameina. Þess
vegna verður sameiningin að bíða.
Blaðamaöur: Um hvað er þá bar-
ist á milli ykkar?
Steingrímur: Við berjumst til aö
sleppa heil frá þessum bardaga. Ég
vil ekki koma kalinn á hjarta út
úr þessari kosningabaráttu. Það er
mitt markmið. Ég vil að flokks-
menn viti það.
Margrét: Baráttan stendur um
það hvort okkar verður kosið. Það
breytir í sjálfu sér ekki miklu hvort
okkar verður kosið. En um það
snýst þessi kosning. Alþýðubanda-
lagið verður að fá nýja forystu, það
er aðalatriðiö. Þetta er ekki pólitík,
við erum bæði í sama flokki. Þetta
snýst ekki um kynferði, ég er kona
og hann er karl.
Blaðamaöur: En hver verður þá
munurinn?
Steingrímur: Ég er karl en hún
er kona.
Margrét: Ég er kona, hann er
karl.
Dagfari