Dagblaðið Vísir - DV - 04.09.1995, Blaðsíða 32
TÉ
nn
c
Guðmundur Andri sá Ijósglætu.
Eiturlyfj aætur
og fyllibyttur
„Eina ljósglætan í þróun mið-
bæjarins var þegar McDonald’s
reisti úr rústum Hressingarskál-
ans sem kominn var í ömurlega
niðumíslu svo að örlítil von er
þó til að sjá í sjálfum miðbæ
Reykjavíkur eitthvert annað fólk
en eiturlyfjaætur, tötrughypjur,
fyllibyttur, raslafótutínara og
dettandi börn á hjólabrettum."
Guömundur Andri Thorsson,
i Alþýðublaöinu.
Fréttnæmt frí
„Ég er nú bara að fara í frí. Ég
veit ekki hvort það er fréttnæmt."
Siguróur Tómas Björgvinsson, i Al-
þýðublaóinu.
Ummæli
Röggsamur borgari
„Þegar ég kom austar í bæinn,
áleiðis að lögreglustöðinni, fóru
piltarnir að ókyrrast. Þá jók ég
hraðann og ók beint að stöðinni. “
Bragi Einarsson, i DV.
Veira D-listans
„Veira af þessum D-stofni náði
allar götur upp í Mosfellssveit
með áætlun um að endursmíða
gamalt fjós undir mynd eftir
mann ofan úr Kjós.“
Ásgeir Hannes, i Tímanum.
Geðvondur og
skemmtilegur
„Stjórnmálamaðurinn Hallgrím-
ur Helgason virðist vera bæði
geðvondur og fordómafullur
meðan rithöfundurinn er léttur
og skemmtilegur."
Jón Kr„ i Timanum.
Ekki eru allar bækur ódýrar.
Dýr bók
Hæsta verð sem greitt hefur
verið fyrir bók era 8.140.000 sterl-
ingspund. Sú upphæð var greidd
fyrir Guðspjallabók Hinriks
ljóns, hertoga af Saxlandi, á upp-
boði hjá Sotheby’s í London þann
6. desember 1983.
Hermann, munkur í Helmers-
hausen-klaustrinu um 1170, sá
Blessuð veröldin
um að fegra bókina en hún er 225
blaðsíður og 34,3 x 25,4 sentímetr-
ar að stærð. í bókinni er 41 heils-
íðumynd.
Dýr einblöðungur
Eintak af sjálfstæðisyfirlýsingu
Bandaríkjanna er dýrasti ein-
blöðungur sem keyptur hefur
verið. Eitt eintak, af þeim 22 sem
prentuð voru hjá Samuel T. Free-
man og Co. í Fíladelfíu áriö 1776,
var selt Chapin-bókasafninu í
Williams College í Willamstown
í Massachusetts í Bandaríkjun-
um þann 22. apríl 1983.
Þetta átti sér stað á uppboði hjá
Christie í New York en verðið var
412.500 dalir.
44
MÁNUDAGUR 4. SEPTEMBER 1995
Allvíða léttskýjað
í dag er gert ráð fyrir breytilegri átt,
víðast hvar fremur hægri. Reikna
má með skúraleiðingum suðaustan-
Veðriðídag
lands, en í öðrum landshlutum verð-
ur þurrt og allvíða léttskýjað. Hiti
verður á bilinu 8-14 stig að deginum,
hlýjast suðvestanlands.
Á höfuðborgarsvæöinu verður hæg
norðanátt, um tvö vindstig og hitinn
um 13 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 20.35
Sólarupprás á morgun: 06.20
Síðdegisflóð í Reykjavík: 14.08
Árdegisflóð á morgun: 02.46
Heimild: Almanak Háskólans
Veðrið kl. 12 í gær:
Akureyri skýjað 10
Akurnes súld 7
Bergsstaðir léttskýjað 10
Bolungarvík léttskýjað 8
Grímsey léttskýjað 6
Egilsstaðir skýjað 6
Kefla víkurflugvöllur skýjað 12
Kirkjubæjarkla ustur skúrásíð. klst. 9
Raufarhöfn léttskýjað 7
Reykjavík skýjað 11
Stórhöfði úrk. í grennd 9
Helsinki skýjað 25
Kaupmannahöfn rigning 13
Stokkhólmur rign. ásíð. 17
klst.
Þórshöfn rigning 9
Amsterdam skúr 14
Barcelona skýjað 24
Chicago hálfskýjaö 17
Feneyjar skýjað 20
Glasgow skýjað 19
London skýjað . 19
LosAngeles skýjað 19
Mallorca hálfskýjað 30
New York léttskýjáð 19
Nice léttskýjað 27
Nuuk rigning 9
Orlando þokumóða 24
París hálfskýjað 19
Róm skýjaö 24
Vín skýjað 18
Winnipeg lágþokubl. 9
Ævintýrakona og
dýravinur
„Bangsi er allur að koma til.
Hann er mjög ánægður með að
vera kominn heim til sín. Bangsi
er alveg alsæil og fjölskyldan
sömuleiðis með að vera búin að
endurheimta hann,“ segir Ríkey
Ingimundardóttir myndlistarkona
Maður dagsins
en gæludýrið hennar, símasköttur-
inn Bangsi, komst í fréttirnar á
dögunum þegar hann komst loks-
ins heim til sín eftir að hafa verið
týndur í meira en ár.
„Þetta er eins og að fá týnda son-
inn aftur,“ sagði Ríkey enn fremur
og var hin kátasta þegar við slógum
á þráðinn til hennar á föstudaginn.
„Eg er búin að eiga Bangsa í fimm
ár en áður átti ég Kasper sem var
líka símasköttur en ég er mikið
fyrir þá. Ég átti líka einu sinni kött
Ríkey Ingimundardóttir.
sem hét Guðbrandur og hann elti
mig hvert sem ég fór,“ bætir Ríkey
við en hún er mikill dýravinur og
hefur átti ketti í fíöldamörg ár.
„Ég hef átt ketti síðan ég var
krakki. Ég er mikill dýravinur og
hef átt mörg gæludýr, t.d skjald-
böku, froska, hamstra og naggrísi.
Svo átti ég líka einu sinni hest og
einu sinni átti ég iíka hund.“
„Mér þykir mjög heimilislegt að
hafa dýr og við hugsum mjög vel
um þau. Það eru allir í mimii fíöl-
skyldu miklír dýravinir og stelp-
umar mínar þrjái', sem era upp-
komnar, eru allar með gæludýr,"
segir Ríkey en margir kannast trú-
lega við nafn hennar enda er hún
listakona og hefur haldið sýningar
á verkum sínum.
„Ég hef líka gaman af því að gera
myndir af dýrum og hef gert bæði
styttur af köttum og hestum. Ég er
útskrifuð sem myndhöggvari en
lærði málun áður og var svo þrjú
og hálft ár í keramik.“
Rikey bjó í Bandaríkjunum og
kunni því mjög vel. Hún segir að
hver dagur hafi verið eins og ævin-
týri og hún gæti alveg hugsað sér
að búa þar aftur enda sé hún ævin-
týrakona.
Myndgátan
Óframfærinn maður
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði.
Tveir leikir í 1.
deild karla
Fimmtándu umferð fslands-
mótsins í 1. deild karla í knatt-
spyrnu lýkur í kvöld en þá fara
fram tveir leikir, annar í Reykja-
vík en hinn í Keflavík.
Reykjavíkurrisarnir Valur og
KR leika á Hlíöarenda og Fram-
arar sækja ÍBK heim suður með
sjó.
Bæði Fram og Valur era í mik-
illi fahhættu og þurfa nauðsyn-
lega á stigum að halda. KR og ÍBK
eru hins vegar í efri hluta deildar-
innar. KR-ingar hafa verið á
núklu skriði að undanförnu en
Keflvíkingar hafa eilítið gefið eft-
ir.
Skák
Lev Polugajevsky er látinn í París eftir
langvinn veikindi, á 61. aldursári. Hann
var einn fremsti stórmeistari heims um
árabil, varð þrívegis efstur ásamt öðrum
á skákþingi Sovétríkjanna og tefldi marg-
sinnis í áskorendakeppni. Poluggjevsky
tók þátt í fjórum alþjóðlegum mótum hér
á landi, fyrst á heimsmeistaramóti stúd-
enta 1957, síðast á Reykjavíkurskákmót-
inu 1988.
Polugajevsky var þekktur fyrir útsjón-
arsemi sína í erfiöum stöðum og gott
auga fyrir óvæntum möguleikum. Hér
hefur hann hvítt og á leik gegn Bilek 1969:
30. Bxf6! Hel+ 31. ,Kh2 Hxcl Svo gæti
virst sem hvítur hefði leikið illilega af
sér, þvi að drotmingin er nú leppur og
má sig hvergi hræra. Polugajevsky hafði
hins vegar séð þetta fyrir og lauk skák-
inni meö 32. Bd5 +! og svartur gaf. Ef 32.
- Hxd5 33. Dxb8 +, eða 32. - Kf8 33. Bg7 +
Ke8 34. Bf7 mát!
Bridge
Þetta spil kom fyrir í spilaklúbbi í New
York fyrir fimm árum. Góð tilþrif sáust
í sókn og vöm en sagnir gengu þannig:
♦ ÁK2
• ¥ KD8
♦ ÁK732
+ 82
* 109863
¥ 765
♦ DG8
+ K3
* DG75
¥ Á1093
♦ 104
+ G97
+ ÁD10654
Austur Suður Vestur
pass pass pass
pass 1 G pass
pass 3 G p/h
Norður
14
2 G
Útspil vesturs var spaðatían, sagnhafi
drap strax á ásinn og austur setti drottn-
inguna til að sýna gosann í litnum. Sagn-
hafi spilaö strax laufi á tíuna og austur
sýndi góða vörn með því að setja lítiö
spil. Ef hann hefði drepið á kóng, var
eftirleikurinn auðveldur. Suður spilaði
þá tígli á ás og siðan hjartakóng. Austur
drap á ás og spilaöi lágum spaða. Sagn-
hafi gaf einu sinni, drap síðan á kóng og
austur losaði sig við gosann. Sagnhafi tók
nú tvo slagi á hjarta, tígulkóng og staðan
var þessi:
¥ II
♦ 732
+ 8
♦ 96
¥ --
♦ G
+ K
* 7
¥ 10
+ G9
* --
¥ - -
♦ --
+ ÁD65
Nú kom laufáttan og austur setti níuna
(betri vörn hefði veriö að setja gosann)
og sagnhafi reyndi að lesa stöðuna. Sagn-
hafi bjóst við að austur hefði opnun-
ardoblaö með DG í spaða, hjartaásinn og
KG í laufi. Meö það fyrir augum setti
hann laufásinn og átti afganginn af slög-
unum.